Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Síða 7
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
7
Fréttir
Fiskiskipaflotinn:
Meðalaldur minni fiski-
bátanna hættulega hár?
margir hafa hætt við úreldingu á þessu ári vegna kvótakerfisins
Meðalaldur fiskibóta hér á landi er
orðinn mjög hár, hættulega hár segja
sumir, þar á meðal talsmenn sjó-
manna. Sem dæmi um aldur bátanna
má nefiia að meðalaldur báta af stærð-
inni 50 til 100 lestir er 28,7 ár og fjöldi
bátanna er 102, þar af 74 tréskip. Með-
alaldur 100 til 150 lesta er 18,7 ór og
fjöldi þeirra 86. Og meðalaldur 150 til
200 lesta báta er 20,5 ár og fjöldinn
48 en aftur á móti lækkar meðalaldur-
inn af stærðinni 200-300 lesta, en hann
er 16,9 ár og fjöldinn 72. Meðalaldur-
inn er sum sé hæstur í þeim stærðar-
flokki þar sem bátaljöldinn er mestur.
Ástæður þessa eru fleiri en ein. Höf-
uðástæðan er sú að þegar kvótakerfið
á bolfiski var tekið upp hækkaði verð
gamalla báta uppúr öllu valdi ef þeir
höfðu stóran kvóta.
Ef útgerðarmaður úreldir 50-100
tonna bát og fær sér nýjan 100-200
tonna bát í staðinn færist bolfiskkvóti
minni bátsins yfir á þann stærri sem
aftur hefur meiri veiðimöguleika og
þess vegna er það fysilegri kostur að
gera gamla bátinn út. Að auki er svo
verð gamalla báta með góðan kvóta
miklu hærra á frjálsum markaði en
það raunverð sem Úreldingarsjóður
greiðir fyrir hann til úreldingar.
Ofan ó þetta bætast svo breyttar
lánareglur Fiskveiðasjóðs. Nú fá þeir
sem láta smfða báta fyrir sig erlendis
60% af andvirði hans lánað en 65%
ef hann er smíðaður innanlands. Aður
fékkst hærra lán og að auki var hægt
að fá erlent lán til viðbótar. Gátu
menn oft fengið allt verð bátsins lón-
að. Nú fá þeir bara þessi 60%-65%
lánuð.
Mikið hefur verið um það að menn
láti breyta og byggja nýtt á gömlu
bátana. Margir bera ugg í brjósti
vegna þessa og segja að skrokkar
gömlu bátanna séu orðnir svo lélegir
að þeir þoli ekki þessar endurbætur á
yfirbyggingunni.
Umræða um mólið hefur farið vax-
andi að undanfomu og menn lýst
áhyggjum sínum vegna þess.
-S.dór
Um 700 manns heimsóttu fyrirtækið Harald Böðvarsson & Co þegar 80 ára
afmælis þess var minnst á dögunum. Hér er hluti veislugesta.
Akranes:
Fjölmenn afmælis-
veisla hjá HB & Co
Mikið fjölmenni kom saman til að
minnast 80 ára afinælis fiskvinnslu-
og útgerðarfyrirtækis Haralds Böðv-
arssonar & Co á Akranesi á dögunum.
í tilefhi þessara merku tímamóta í
sögu fyrirtækisins var haldin vegleg
afinælisveisla í nýjum og glæsilegum
húsakynnum sem ætluð em starfsfólki
fyrirtækisins.
Það voru ekki færri en 700 manns,
starfsfólk og velunnarar HB & Co, sem
heimsóttu afinælisbamið á heiðurs-
daginn. Var boðið upp á kaffi og
rjómatertu sem var hvorki meira né
minna en 10 metrar á lengd. Þá höfðu
forráðamenn HB & Co látið gera
heimildarkvikmynd um fyrirtækið í
tilefni áttræðisafinælisins. Sú mynd
var sýnd í veislunni.
Forráðamenn létu ekki þar við sitja
því efnt var til kvikmyndasýningar
fyrir bömin í Bíóhöllinni en það var
einmitt stofnandi HB & Co, Haraldur
Böðvarsson, sem gaf Akumesingum
ofangreint kvikmyndahús.
JSS
'*Sbmst
Afmælistertan var hvorki meira né
minna en 10 metrar á lengd, það
er að segja í upphafi veislunnar.
Veislugestir notuðu tækifærið til að spjalla saman yfir kaffjbollunum.
DV-myndir Árni S. Árnason
Prófmálið í borgardómi:
Berjumst fyrir breyttum
lögum um fjölbýlishús
- segir lögfræðingur Húseigendafélagsins
„Við munum berjast fyrir breyting-
um á fjölbýlishúsalögunum, 12.
málsgrein þeirra sem dómurinn byggir
á, og miðar sú barátta að því að fó
efhissvið greinarinnar þrengt,“ sagði
Sigrún Benediktsdóttir, lögfræðingur
Húseigendafélagsins, í samtali við DV
er við inritum hana álits á dómi þeim
sem nýlega var kveðinn upp i borgar-
dómi þar sem húseigandi var sagður
ábyrgur fyrir gjörðum leigjanda síns.
„Jafhframt því að berjast fyrir þess-
ari breytingu skorum við á alla
húseigendur að hafa ávallt í gildi full-
nægjandi tryggingar á eignum sínum,
bæði húseigendatryggingu og innbús-
eða heimilistryggingu."
Sigrún átti ekki von á að fleiri mál
þessu lík mundu fylgja í kjölfar þessa
dóms. Hún sagði að brýnt væri að af-
greiðsla á fyrrgreindum lagabreyting-
um gengi hratt í gegnum alþingi því
ef ekkert jtöí að gert væri sú hætta
fyrir hendi að húseigendur hættu að
leigja út íbúðir sínar í einhverjum
mæli.
-FRI
Nýtt!
Látið ekki happ úr hendi sleppa
langaidagsmarkaðnr
Lagerinn verður opinn
á morgun frá kl. 10-16
Þar eru til sölu með
ríflegum afslætti
ýmsar gerðir af gólfteppum, flisum,
hreiníætistækjum og öðrum
byggingavörum.
Stórhöfða, sími 621100 -Hringbraut, simi 28600.
2 góðar byggingavöruverslanir.
Austast og vestast í borginni
OPIÐ KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA