Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
Neytendur
Okkur finnst alltaf að rautt sé litur jólanna, en litur aðventunnar, sem
er upphaf kirkjuársins, er fjólublátt. Þess vegna er það alls ekki út I
hött að hafa fjólublátt á aðventukransinum sínum.
Aðventan hefst
á sunnudaginn
Fyrsti sunnudagur í jólaföstu eða
aðventu er á sunnudaginn. Þá á að
kveikja á fyrsta kertinu í aðventu-
kransinum. Grenikransamir em
auðvitað sérlega jólalegir en þeir
geta verið eldfimir þegar þeir þoma
í heitum húsakynnum okkar. Ymsar
tegundir af aðventukrönsum hafa
komið á markaðinn á undanfömum
árum, eins og t.d. úr leir eða gleri.
Einnig má hugsa sér að raða saman
á stóran disk fiórum eins kertastjök-
um og nota sem aðventukrans.
Hægt er að fá grenikrans til að
hafa á borði á tæpl. 1000 kr., krans
til að hengja upp á tæpar 1200 kr.
og krans á statífi á tæpar 1400 kr.
Sömuleiðis fást ýmiss konar að-
ventuskreytingar á allt frá 800 kr.
og upp úr.
Greni var komið í Blómavali fyrir
helgi og kostaði tæpt 'h kg 150 kr.
Við leyfum okkur að benda á að fyr-
ir óvana fer heilmikið greni í að
binda upp aðventukrans.
-A.BJ.
Kokkteilar og aðrir
blandaðir diykkir
Kokkteilar og aðrir blandaðir
drykkir nefnist nýútkomin bók sem
Símon Sigurjónsson barþjónn þýddi,
breytti og staðfærði. í bókinni er að
finna fiöldann allan af kokkteilaupp-
skriftum, púns- og bolluuppskriftum.
Við leyfum okkur að birta tvær upp-
skriftir úr bókinni. Tenderberry
nefiiist glæsilegur drykkur úr jarðar-
beijum:
6-8 jarðarber
3cl grenadine
3 cl ferskur rjómi
3 cl engifer gosdrykkur
Látið jarðarberin, grenadínið og
ijómann í rafmagnshristara ásamt
muldum ís í pott og setjið á mesta
straum í ca 15 sek. Framreitt í stóru
glasi. Stráið engiferdufti yfir drykkinn.
Skreytið með jarðarbeijum.
Kampavínsbolla
250 g flórsykur
3 heilflöskur kampavín
6 fl sódavatn
6 cl koníak
6 cl Marachino (kirsuberjalíkjör)
6 cl orange Curaco
Setjið allt efrúð í stóran pott eða-bollu-
skál, mikið af ís og hrærið í þar til
ísinn er bráðnaður. Skreytið drykkinn
með ferskum ávaxtasneiðum. Er fyrir
15-20 manns.
Útgefandi þessarar snotru bókar er
Setberg. Litmynd er af sérhveijum
drykk. Bókin kostar 688 kr. út úr búð.
-A.BJ.
Við myndum þessar ágætu tvær bækur saman, efni þeirra er skylt, þær fjalla
um mat og drykk.
Af matarmenningu annarra þjóða
Umhverfis jörðina á 80 réttum nefnist
nýútkomin matreiðslubók. Höfundar
eru Inger Grimlund og Christine
Samuelsson en Edda Óskarsdóttir
þýddi og staðfærði.
Eins og nafnið bendir til er að finna
uppskriftir frá ýmsum löndum í bók-
inni en henni er skipt í tólf kafla.
Einnig er að finna ýmsan fróðleik um
matarmenningu hinna ýmsu þjóða. í
kaflanum, sem fiallar um indverskan
mat, segir m.a.:
„Það sem gefúr indverska matnum
sín sérstöku einkenni er masala,
blanda af kryddi og jurtum, sem gefúr
hverjum rétti sitt sérstaka bragð.
Blandan getur verið svo mild að jafri-
vel næmustu bragðlaukar geta ekki
fúndið hvert kryddið er. Eða svo sterkt
og brennandi að maður fær tár í aug-
un og á erfitt um mál. Hæfriin við að
blanda masala er aðalsmerki mat-
sveinsins og sagt er að enn séu til fín
heimili sem hafi í þjónustu sinni sér-
stakan masala-kokk sem á sína eigin
blöndu sem hefur gengið í erfðir mann
fram af manni.“
Bókin er gefin út af Markaðsútgáf-
unni, hún er piýdd fiölda litmynda og
kostar 1380 kr.
-A.BJ.
Eplakaka í jólaönnum
Margar tegundir eru til af eplakök-
um. Þessi er góð og fljótbökuð.
Það getur verið gott að eiga eitt-
hvað gómsætt til þess að gæða sér á
með kaffinu svona rétt í byrjun jóla-
föstu. Héma er uppskrift að epla-
köku sem er fljótbökuð.
2 egg
225 g sykur
100 g smjörl.
1 'h dl mjólk
175 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
3-4 gul epli
Þeytið egg og sykur. Setjið mjólk
og smjörl. í pott og látið sjóða og
hellið alveg sjóðandi út í eggjahrær-
una og hrærið í á meðan. Sigtið
hveitið varlega út í og gætið þess
að hveitið fari ekki í kekki. Hellið
deiginu í smurt bökunarform (20x30
cm).
Flysjið eplin, takið kjamahúsið úr
og skerið í sneiðar og raðið ofan á
deigið. Stráið strásykri yfir ephn.
Bakist í 180-200° C heitum ofni í
20-25 mín., eða þar til kakan er orð-
in ljósbrún. Kælið í forminu og
skerið kökuna svo í hæfilega bita.
Hráefniskostnaður reiknast okkur
að sé um 90 kr.
-A.BJ.
Ryðblettir, kopar-
hreinsun og skóviðgerðir
Kristín hringdi og bar fram þijár fyrir-
Hér er Sigurbjöm Þorgeirsson skó-
smiður við vinnu sína.
spumir til okkar:
1. Er til betra efiii en sýrusalt til að
ná ryði úr fötum?
2. Má nota kopargrautinn, sem skrif-
að var um á neytendasíðu nú fyrir
stuttu, utan á koparpotta?
3. Er föst verðskrá hjá skósmiðum?
í bókinni Blettahreinsun, sem Kven-
félagasamband Islands gefur út, er
gefið upp að gott sé að nota ryðbletta-
eyði á lyðbletti. Bent er á að fylgja
leiðarvísinum. Ef það er ekki hægt
má nota oxalsýru. Leysið upp 1 msk.
af oxalsýru í 1 dl af vatni og dýfið
blettinum í upplausnina, skolið síðan
vandlega með vatni. Athugið að oxal-
sýra er eiturefni. Reynið meðferðina á
pjötlu af efninu til þess að ganga úr
skugga um hvort liturinn þolir með-
ferðina.
Kopargrautinn má nota á allt sem
ömgglega er úr kopar.
Kannað var verð á skóviðgerðum,
sjá töflu hér á síðunni.
-BB
Verðkönnun á skóviðgerðum
Við gerðum verðkönnun á skóvið-
gerðum nú á dögunum. Þá kom í ljós
að verð á viðgerðum er allt mjög svip
að hjá skósmiðum.
Þegar talað er um grunnverð er átt
við að viðgerð fæst ekki undir þessu
verði en hún hækkar eftir því sem
skómir eru verr famir.
Það er því betra að trassa ekki að
fara með skóna í viðgerð. Það er aldr-
ei fallegt að sjá skótau á fótum sem
ekki er vel hugsað um. Taflan sýnir þær skóvinnustofur sem haft var samband við og grunnverð
-BB þeirra á algengustu skóviðgerðum.
Grunnverð á skóviðgerðum
Minnsta viðg. Hæla skó Sóla alveg + hæla
með gúmmíi
Skóvinnus. Heiða 70 kr.
Skóarinn 70 kr.
Gísli Ferdinands 70 kr.
Halldór Guðbjarts. 70 kr.
Skóvinnus. Hafþórs 70 kr.
Skóvinnus. Halldórs 70 kr.
Skóvinnus. Sigurbjörns 70 kr.
Skóvinnus. Sesar 90 kr.
Kven. Karla Kven. Karla
ca260 280 kr. ca650 700 kr.
ca260 290 kr. ca690 750 kr.
ca250 290 kr. ca690 750 kr.
ca260 290 kr. ca690 750 kr.
ca 260 295 kr. ' ca750 750 kr.
ca260 290 kr. ca690 750 kr.
ca 260 260 kr. ca700 750 kr.
ca260 290 kr. ca795 825 kr.