Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Side 30
42 HIMNASENDING VIKUNNAR CHINA CRISIS - ARIZONA SKY (VIRGIN) China Crisis er orðin ein af þessum traustu hljóm- sveitum sem bregst sjaldan eða aldrei bogalistin eða öllu heldur tónlistin. Hér er gullfallegt lag í þægileg- um takti og smekklegri útsetningu þar sem blást- urshljóðfæri eiga skemmti- lega innkomur. En fyrst og fremst er það hugljúf meló- dían sem heillar. AÐRAR GÓÐAR SENDINGAR SPANDAU BALLET - THROUGH THE BARRICA- DES (CBS) Hér er annað ljúffengt lag, Spandau tilheyra trausta hópnum líkt og china menn; þetta lag öllu betra en fyrri smáskífan, Fight For Ourselfs. Kassagítar- inn leikur stórt hlutverk í þessu rólega lagi sem byrj- ar ósköp hæglætislega en eykur við styrkinn eftir því sem á það líður. SIMPLE MINDS - CHOSTDANCING (VIRGIN) Það er meira draugatalið þessa dagana í Bretlandi, önnur hver hljómsveit með einhver draugalög og þar á meðal Sipmle Minds í týp- ísku Simple Minds lagi, kröftugur taktur og kraft- mikill söngur Jims Kerr einkennir en þar fyrir utan er lagið líka gott. BRUCE SPRINGSTEEN - WAR (CBS) Mögnuð útsetning Springsteen á þessu gamla lagi gefur því nýtt líf og Brúsi hnykkir líka á boð- skapnum með hjartnæmri ræðu í upphafi lags. Hann er engum líkur. PAUL SIMON - THE BOY IN THE BUBBLE (WB) Þessi náungi er sömuleiðis engum líkur, hann fer ótroðnar slóðir óhræddur og stendur og fellur með því sem hann gerir. Þetta er sérkennilegt lag með sérkennileg hljófæri í aðal- hlutverkum, bassa og harmóniku. Afríkustíllinn leynir sér ekki og söngur- inn er hálftalaður, nokk- urskonar rap. Þrælgott. EURYTHMICS - A MIRACLE OF LOVE (RCA) Enn ein ballaðan sem boðið er uppá á smáskífu um þessar mundir, engu líkara en að tónlistamenn séu fallnir í botnlausa rjómatík svona íyrir jólin. En gam- anlaust er þetta enn ein fjöðrin í hatt Eurythmics sérlega fallegt og viðkunn- anlegt lag. -SÞS- FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986. Bubbi Morttiens - Frelsi til söiu Frelsið er dýimætt Oft hefur verið beðið eftir nýrri plötu frá Bubba Morthens með mikilli eftir- væntingu en engri þó einsog þeirri síðustu, Frelsi til sölu. Þar kemur til mikið umtal um plötuna sem nær meira en ár aftur í tímann og ennfrem- ur ýmis ummæli sem Bubbi hefur látið frá sér fara um plötuna á meðan hún var í vinnslu. Eftirvænting sem þessi getur verið tvíeggjað vopn; menn kannski búast við meiru en platan síðan stendur undir eða þá að dæmið gengur upp; platan reynist vera eftirvæntingarinn- ar virði og kannski gott betur en það. Og í þessu tilfelli á síðara atriðið við; aldrei hefur Bubbi sent frá sér plötu sem er eins jafngóð og þessi er. Reyndar tel ég að fáar ef nokkur ís- lensk plata standist samanburð við Frelsi til sölu og er þá nokk sama við hvað er miðað. Fyrst og fremst eru það auðvitað lögin sem skapa plötuna en úrvinnsla þeirra skiptir oftar en ekki sköpum um hvernig heildarmyndin lítur út þegar upp er staðið. Hér fer þetta allt vel saman; lögin hvert öðru betra og útsetningar og frágangur einsog hann gerist bestur. Og þar á stóran þátt sænski rokkarinn Christian Falk, sem auk þess að að- stoða Bubba við útsetningar á plöt- unni, leikur á fjöldann allan af hljóðfærum og heilum og stjómar upp- tökum. Christian þessi Falk er þannig til- kominn í þetta samstarf við Bubba að platan er gefin út og kostuð af sænska hfjómplötufyrirtækinu Mistlur og Gramminu hér heima. Mistlur hefur síðan meðal annars á sínum snærum eina þekktustu rokkhljómsveit Svía, Imperiet, þar sem Christian Falk er einn liðsmanna. Samningur Bubba við Mistlur gerir það að verkum að öll aðstaða Bubba við undirbúning og vinnslu á plötum sínum breytist mjög. Hann hefúr sjálf- ur sagt að aldrei hafi hann fengið jafiigóðan tíma til vinnslu einnar plötu og nú og ekki verður betur séð en þeim tíma hafi verið vel varið. Einsog áður hefur verið sagt er hér hvert lagið öðru betra; þau em einfold og flókin í senn; sum em fljót að síast inní mann, önnur lengur. Textamir em ekki mikið síðri; og hefúr Bubbi greinilega lagt meira í þá en oft áður. Innihaldið er svipað og það sem Bubbi hefur verið að yrkja um allan sinn feril; mótmæli og ádeil- ur á ýmislegt sem Bubba finnst miður fara í okkar þjóðfélagi og umhverfi. Á einum stað skýtur hann þó yfir markið að mfnu mati en það er í text- anum um gaukinn í klukkunni, sem ku fjalla um forseta vom. Söngur Bubba á plötunni er mjög góður, hann er fágaðri en oft áður og Bubbi sýnir á sér nýja hlið sem söngv- ari þar sem hann fetar í fótsor Tom Waits í titillagi plötunnar. Frelsi til sögu er tvímælalaust besta íslenska platan sem komið hefur út á þessu ári og að mínu mati ein sú besta sem út hefur komið hér á landi í gegn- um árin. -SþS _____Ultravox - U-VOX Ljós í myrkrinu Þá em Ultravox aftur komnir á kreik. Hljómsveitin hefur ekki sent frá sér nýja plötu í rúm tvö ár. Sú síðasta var Lament. Að visu tók söngvarinn Midge Ure sig til og gaf út sólóplötuna The Gift í fyrra. Gjöfin var hins vegar svo lík tónlist Ultravox að hún hefði eins getað borið nafn hljómsveitarinn- ar. Ultravox hóf feril sinn í nýrómantík- inni, sællar minningar. Dansandi hljóðgervlatónlist var vörumerkið í þá daga og víst er að liðsmenn sveitarinn- ar kunna ýmislegt fyrir sér á því sviði. Hver man til dæmis ekki eftir hinu stórgóða lagi Vienna. Á Lament mátti enn finna merki nýrómantíkurinnar sem þá, til allrar óhamingju fyrir Ultravox, var á undanhaldi. Það gleði- legasta við nýjustu plötu sveitarinnar er að tónlistin er orðin rokkaðri. Hvildin hefur gert hljómsveitinni gott. U-Vox er á heildina litið áheyrileg- asta plata. Lögin eru mörg hver bráðskemmtileg og útsetningar mun fjölbreyttari en áður. Trommuleikari Big Countiy, Mark Brzezicki, hleypur í skarðið fyrir Warren Cann, sem ku vera hættur. Brzezicki er stórgóður trommari og nærvera hans á plötunni gefúr tónlistinni mun ferskara yfir- bragð. Af frambærilegum lögum á U-Vox má nefna Same old story, sem náð hefur nokkrum vinsældum, Dre- am on, Follow your heart, og ekki síst Time to kill þar sem áðumefndur Brzezicki er í aðalhlutverki. Lagið AU fall down er einnig áheyrilegt þó tón- listarlega skjóti það skökku við annað efni plötunnar. Þjóðlagahljómsveitin The Chieftains aðstoðar Ultravox í því lagi! Ekta þjóðlagapopp. U-vox sannar að Ultravox er ekki dauð úr öllum æðum. Þetta er lífleg plata. Ljós punktur í þungbúnu skammdeginu. -ÞJV Mezzoforte - No Limíts No Limits markar tímamót í ferli þekktustu hljómsveitar okkar íslend- inga, Mezzoforte. f fyrsta skipti á breiðskífu er söngvari með hljómsveit- inni og eins og gefúr að skilja breytist heildarsvipur hljómsveitarinnar tölu- vert þó lögin, sem sungin eru, séu aðeins þijú. Þrátt fyrir þá gæðatónlist sem Mezzo forte hefur sent frá sér á undanfomum þremur árum hafa þeir ekki náð aftur þeim vinsældum sem þeir náðu erlend- is í gegnum Garden Party. Það er því skiljanlegt að reyndar skuli nýjar leið- ir. Mezzoforte hefur áður sent frá sér sungið lag á smáskífú, This Is the Night. Lag sem náði þó ekki þeim vin- sældum sem vonast hafði verið til. Það lag söng enskur söngvari, Noel McCalla. Hann syngur einnig lögin þrjú á No Limits sem öll sveija sig í ætt við This Is the Night. Sjálfsagt em ekki allir sáttir við þessar breytingar á tónlist Mezzoforte. Poppkynslóðin kann sjálfsagt að meta þessi lög. Þau eru taktföst, vel sungin og þótt fönkáhrifin séu greinileg þá em þau um leið svellandi danslög. Lögin þijú, No Limit, Nothing Lasts Forever og Another Day, eins pottþétt og þau em, verða samt vonandi aldrei sú tónlistarstefiia sem Mezzoforte mun um ókomna framtíð tileinka sér. Til þess em þau of léttvæg. Enda er það svo að á No Limits em mun bitastæð- ari tónverk þar sem hæfileikar strák- anna fjögurra em betur nýttir og er svo sannarlega ekki um neina stöðnun að ræða hjá þeim þegar kemur að Kaflaskipti þeirri tónlist sem þeir em þekktastir fyrir. Ef eitthvað er þá em þeir orðnir jass- aðri en áður eins og best kemur fram í blúsnum hans Eyþórs, E.G. Blues, geysikraftmiklum blús sem grípur mann við fyrstu hlustun. Þeir sem hafa farið á tónleika með Mezzoforte kannast ömgglega við stefið. Þeir hafa á undanfömum árum verið að leika sér að þessum blús. Þrátt fyrir jassáhrif er það samt raf- magnaða fönkið sem er aðalsmerki Mezzoforte og er leitun að betri hljóm- sveit á því sviði. Lög Friðriks Icebrea- ker og Joyride em einkennandi fyrir þessa tónlist og em kannski þau lög sem minna mest á fyrri verk. Evoluti- on eftir Eyþór er magnað verk sem vinnur á við hveija hlustun. Sama má segja um Ciystal Rain eftir Frið- rik. Rólegt stef sem þeir félagar gera frábær skil. Það þarf ekki að fjölyrða um hljóð- færaleik Þeirra Friðriks, Eyþórs, Gunnlaugs og Jóhanns. Þeir em sér- fræðingar hver á sfnu sviði og mynda einn samstilltasta hóp sem um getur á tónlistarsviðinu. Þeirra helstu að- stoðarmenn á No Limits em söngvar- inn Noel McCalla og saxófónleikarinn David O’Higgins sem er greinilega mjög góður saxófónleikari en fær ekki mikið svigrúm hér. No Limits er kannski ekki jafnbesta plata Mezzoforte en inn á milli em slík snilldarverk að þau lyfta henni langt yfir meðallag. HK. fvlason, Davíd Gilmotir on starfi áfram undir ftafninu !Kwlmmb'inMí n«Ufúi>il? 1 jjji IJirilMilH if'íif til að fara í mál viöþá útaf nafni hljómsveitarinnar. Þess íEfg auki... CaitO'Riordan Hún liefur hætt um stundar- sakir áður en nú mun ákvörð slasaðist litillega í umferð aróhappi á dönunum er bíll kom i Ijós að li/larr hafði feng gengurnú ummeö craga... Alltaferunýir ið sanran... ElvisCostellovará tónleikaferð í Svíþjóð á dög- fjjj m [íj íi || ÍK íiillJI kom svo hressilega á óvart er hann birtístásviðinuá tónleikum Tbe Fabulous Thunderbirds í Stokkhólmi og tók létta sveiflu í gömlu blús- •ISIÉi Midler erorðin léltan, hún lijáiparstarfið í Eþiópiu. Pen fíj iWÍÍíWffji i KTiTMilI iiít ijis o xp mim rS-i I: inn á næstunm ef hann vinnur mál sem hann hefur höfðað á hendur fronskum hlaðamamti sem Kallaði Bob handbcndi Eþíópiu... sæl aðsmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.