Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Síða 33
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986. 45 Fyrir ári giftist Phylicia Ahmad Rac- had iþróttafréttaritara. Er þetta þriðja hjónaband hennar og á hún nú von á barni með eiginmanninum. Debbie Allen ku vera óhamingjusöm eftir skilnaðinn við plötuframleið- andann Winn Wilfred þó svo að það verði varla greint á þessari mynd. Jacquline berst enn gegn Brigitte - núna á opinberum vettvangi. Margar Hollywoodstjörnur eru örlátar á fé til foreldra sinna sem oft á tíðum eru fátækir. Það tilheyrir eiginlega og hefur þar að auki heil- mikið auglýsingagildi. En nú hefur sá er græðir einna mest, Sylvester Stallone, hætt öllum greiðslum til móður sinnar, Jacquline. Tilefnið er árás hennar á nýju, dönsku eigin- konuna hans, Brigitte Nielsen. Fullyrðir mamman að Brigitte hafi gifst til fjár og gerði hún allt sem í hennar valdi stóð til þess að koma í veg fyrir hjónabandið. Brigitte hefur reynt sitt ýtrasta til þess að blíðka tengdamömmu og ausið hana gjöfum en sú gamla hefur brugðist hin versta við þar sem gjafimar eru keyptar fyrir fé sonarins. Hefur Jacqueline nú lýst yfir stríði milli sín og tengdadótturinnar. Systurnar Phylicia Ayers-Allen (Cosby) og Debbie Allen (Fame) hafa öðlast mikið hrós og fengið mikið fé fyrir frammistöðu sína sem eiginkona Bills Cosby og danskennarinn í Fame. En ekki er allt gull sem glóir og kenna þær báðar framanum um mis- heppnuð hjónabönd. Phylicia, sem er 39 ára, er nú gift í þriðja sinn og á von á bami þannig að ekki er loku fyrir það skotið að íslenskir sjónvarpsá- horfendur sjái hana í því velmeg- unarástandi. Hún er ánægð í þessu síðasta hjónabandi sínu sem varað hefur í eitt ár en það sama er ekki hægt að segja um litlusystur. Debbie, sem er hálffertug, er óhamingjusöm eftir skilnaðinn við plötuframleiðandann Winn Wilfrid en honum var hún gift í sex ár. Segir hún vandamálin hafa byrjað þegar þau neyddust til þess að búa fjarri hvort öðru vegna atvinnunnar. Winn bjó í New York en Debbie í Holly- wood. Ástin var ekki nógu heit til þess að þola þann aðskilnað. Nýtur ekki lengur stuðnings sonarins Sylvester og Brigitte reyndu að blíðka Jacquline en gáfust upp. Sviðsljós Ólyginn sagði . . . Joan Collins eða Alexis í Dynastyseríunni er að verða vitlaus aftur og það í raunveruleikanum og nýtur hún stuðnings eiginmannsins, hans Peter Holm frá Sviþjóð. Frúin er óhress yfir því að tilheyra lág- launafólki því að hún fær aðeins tæpar 3 milljónir fyrir hvem þátt. Henni er svo sem vorkunn þar sem það hefur komið í Ijós að John Forsythe, sem leikur Blake Carrington, fær næstum því einni milljón meira. En áður en Joan Collins fer alveg í hundana getur hún huggað sig við að Linda Evans fær um 200 þús- und krónum minna en hún sjálf fyrir hvern þátt. Þótt óskiljanlegt sé virðist Linda vera ánægð með þau lúsarlaun. Friðrik krónprins stýrir Danmörku meðan mamma og pabþi fara í innkaupaferð til London. Er það í fyrsta skipti sem landinu er stýrt af nýliða I hernum. Ekki er gert ráð fyrir að hann þurfi að yfirgefa bæki- stöðvarnar þrátt fyrir ábyrgðar- störfin. Hefur hann reyndar kosið að sofa þar í harðri koju í stað þess láta fara vel um sig innan um æðardúnsængurnar heima í höllinni, sem honum er heimilt. Theo eða Malcolm-Jamal Warner, eini drengurinn í sjónvarpsþátt- unum Fyrirmyndarfaðir, er frægari í heimabæ sínum, New York, en Michael Jackson. Það fullyrðir hann að minnsta kosti sjálfur. Malcolm er 15 ára en hefur leikið frá því hann var aðeins átta ára gamall. Þykir honum bara skemmtilegt að láta kalla sig Theo á götum úti og er staðráðinn í því að halda áfram á sömu braut.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.