Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986.
13
DV
Enn bíðum við
Franskur gestaleikur í Iðnó.
Leikflokkur Dominique Houdart sýnir
BEÐIÐ EFTIR GODOT.
Höfundur: Samuel BecketL
Leikstjóri: Dominique Houdart
Sviðsmynd og búningar: Marcel Violette.
Leikendur: Jeanne Heuclin, Yannis Chauv-
iré, Francois Guillier og Dominique
Houdart
í tileftii áttræðisafinælis Samuels
Beckett á þessu ári gekkst Alliance
Prancaise fyrir því myndarlega átaki
að fá hingað til lands franskan leik-
hóp sem hafði tvær sýningar á
frægasta verki skáldsins, Beðið eftir
Godot, í Iðnó nú í vikunni.
Hér gafst einstakt tækifæri fyrir
leikhúsáhugafólk til að sjá ferska
útfærslu á þessu gamalkunna verki
og hlýða á magnaðan texta Becketts
á frummálinu, frönsku, fluttan af
framúrskarandi leikurum.
Leikflokkur Dominique Houdart,
sem á heimahöfn í borginni Épinal
í Frakklandi, var stofnaður árið
1964. í kynningu á hópnum er sagt
frá því að í sýningum hans séu
gjama notaðar leikbrúður og grímur
og þá víða leitað fanga, meðal ann-
ars í austurlenskri leikbrúðuhefð,
sem á sér ævafoma sögu.
Leikmynd og leikmunir gegna líka
lykilhlutverki i sýningum flokksins
og mikil áhersla er lögð á að full-
komna framsögn og raddbeitingu.
Trúðleikur
Strax í í upphafi sýningarinnar
sjást merki um þessi síðasttöldu at-
riði. I stað þess að leikurinn gerist
á ótilgreindum og eyðilegum stað
einhvers staðar við vegarbrún, sem
er hin venjulega sviðsmynd, bíða
flækingamir tveir, þeir Estragon
(Gogo) og Vladimir (Didi) eftir Godot
á sviðinu í sirkus. Til þess að leggja
Leiklist
Auður Eydal
áherslu á hið grátbroslega í textan-
um em þeir í gervi trúða. Þar með
er undirstrikað hvemig í verkinu
togast á skop og tregi, lýsing á ömur-
legum vemleika og svo vonin um
eitthvað betra framundan. Það er
ljóst að sú von rætist aldrei en hún
er þó það eina sem þessir hlálegu
trúðar lifa fyrir.
Frumsýning leikritsins Beðið eftir
Godot í París árið 1953 olli talsverðu
fjaðrafoki. Menn vom alls ekki viss-
ir um hvað höfundurinn var að segja
með verkinu og áhorfendur vissu
ekki hvort þeir áttu að hlæja eða
gráta. En hér var kominn fram á
sjónarsviðið einn af meisturum nú-
tíma leikritunar og á næstu árum
var verkið leikið víða um lönd, með-
al annars hér í Iðnó, árið 1960. Sú
sýning gleymist varla þeim sem hana
sáu.
Ekki dofnað með árunum
Hver er Godot? Menn em víst engu
nær um það nú en fyrir rúmum ald-
arfjórðungi. En flækingamir tveir,
sem bíða hans nú sem þá, láta dæl-
una ganga á meðan. Þeir karpa og
Menning
Leikflokkur Dominique Houdart.
kýta og endurtaka í sífellu að ekk-
ert gerist. Þegar upp er staðið hefur
líka í rauninni ósköp lítið gerst. Þó
birtust þeir kumpánar Pózzo, ímynd
kúgarans, og þræll hans, Lucky, ó
sviðinu og staldra við hjá þeim Vlad-
imir og Estragon um stund en hverfa
síðan á brott í lok fyrsta þáttar. Þá
er dagur að kvöldi kominn og ljóst
að ekki kemur Godot þann daginn.
Síðari þátturinn er að vissu leyti til-
brigði við sama stef.
Og galdur textans hefur sannar-
lega ekki dofhað með árunum. I
flutningi leikflokks Dominique Ho-
udarts var verkið kröftugt og sterkt
og hvergi læðst með veggjum í túlk-
uninni.
Flækingamir tveir, eða trúðamir,
em hér harla mannlegir, tilvera
þeirra er bara svo dapurleg og von-
laus af því að þeir geta eiginlega
hvorki lifað né dáið fyrr en Godot
kemur, og hann kemur aldrei.
Grimmdin kemur inn í verkið í líki
Pozzos en einhvem veginn fannst
mér hann ekki nægilega hrollvekj-
andi, ógnin ekki nógu áþreifanleg.
Gleymist seint
En Jeanne Heuclin, í hlutverki
vesalingsins kúgaða, Lucky, túlkaði
mannlega þjáningu og eymd með
þeim hætti að það mátti bókstaflega
heyra leikhúsgesti stynja líka. Bæði
gervi Luckys og túlkunin í hlutverk-
inu vom svo sterk að seint gleymist
þeim sem sóu. Og þama má þó ekki
muna hársbreidd, svo að ekki verði
úr aumlegar ýkjur.
Það er alltaf hollt að opna menn-
ingargluggann upp á gátt og hleypa
inn ferskum gusti en það finnst mér
einmitt gerast við svona heimsókn.
Alliance Francaise og öðrum þeim
er stuðluðu að heimsókninni er
þakkað framtakið.
AE
keN\NOOD
„ollano electbo
KRLJ
Dæmi um verð:
Hárblásarar, 100 W. Verð frá 1.100,- Kaffivélar. Verð frá 1.701,-
Vöfflujárn. Verð frá 3.597,- Örbylgj uofnar. Verð frá 13.716,- stgr.
Expressokaffivél. Verð 3.800,- Kenwood hrærivél. Verð 10.830,- stgr.
Krullujárn. Verð frá 867,- Ryksugur. Verð frá 8.053,-
Baðvogir. Verð frá 1.000,- Handryksugur. Verð frá 1.995,-
Gufustrauj árn. Verð frá 1.970,- Rafmagnsrakvélar frá Philips. Hljómtæki frá Pioneer. Ferðatæki frá Sharp.
Opið til kl. 16 í dag í öllum
deildum.
Jli
rA A A A A A
;:e
aaKMaan«iM«tuiMUi<f nn.,
Jón Loftsson hf. ________________
Hringbraut 121 Sími 10600
RAFDEILD 2. hϚ
___
.luufjanj^T^