Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Blaðsíða 48
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022
Borgarsprtalinn
verður seldur
Nú er ljóst orðið að Borgarspítalinn
verður seldur ríkinu, líklega á næstu
dögum.
Ef spítalinn verður settur á fjárlög
eru þær verðhugmyndir sem settar
hafa verið fram um 600 til 700 milljón-
ir króna. Auk þess mun Reykjavíkur-
borg vilja fá um 15 prósent af
byggingarkostnaði þeirra bygginga
sem borgin hefur byggt.
Borgarstjóri kynnti hugmyndir
borgarinnar á fjölmennum fundi með
starfsmönnum Borgarspítalans í gær.
Skiptar skoðanir eru meðal starfs-
fólksins um söluna. Starfsmenn hafa
óskað eftir viðræðum um að þeir kaupi
spítalann. -óm
Strætisvagn ók
aftan á vönibíl
Einn farþegi slasaðist og var fluttur
á slysadeild þegar strætisvagn ók aft-
an á kyrrstæðan vörubíl á Kleppsvegi
í Reykjavík.
Svo virðist sem ökumaður vörubíls-
ins hafi stöðvað til að hleypa út
farþega og ökumaður strætisvagnsins
hafi áttað sig of seint, en mikil hálka
var á Kleppsveginum í gær. Strætis-
vagninn er mikið skemmdur eftir
áreksturinn. -SJ
LOKI
Borgar spítalinn?
Samningamálin:
Með pennana á lofti
Búistvar vlð undirskrift samninga í nótt- rikisstjómin gekk að kröfum aðila vinnumaikaðarins
Um kvöldmatarleytið í gær barst
aðilum vinnumarkaðarins jákvætt
svar frá ríkisstjóminni við þeim
kröfum sem til hennar em gerðar
varðandi nýja kjarasamninga.
„Okkur Þorsteini Pálssyni fjármála-
ráðherra var falið fúllt umboð til að
svara aðilum vinnumarkaðarins og
það er skoðun ríkisstjómarinnar að
gera skuli allt sem í hennar valdi
stendur til að samningar geti gengið
saman,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í gær-
kveldi. Hann sagði í kröfúnum vera
erfiða liði sem ætti eftir að reikna
betur og yrði það gert strax. Borgar-
stjóri var hafður með i ráðum og
lofar hann að gera það sem hann
getur varðandi þessi sömu atriði.
Verðbólguspá fyrir næsta ár er
7%-8% í þessum plöggum. Gengið
verður áfram fast.
I gær var að mestu búið að ganga
frá nýjum kjarasamningum, aðeins
beðið eftir svari ríkisstjómarinnar.
Eftir að það barst þurfti að halda
áfram útreikningum fram eftir
kvöldi, jafnvel fram á nótt. í þeim
samkomulagsdrögum, sem fyrir lágu
í gær, var gert ráð fyrir að lágmarks-
laun yrðu á bilinu 25-26 þúsund
krónur fyrir til að mynda byrjendur
í fiskvinnslu en 26.300 kr. á mánuði
fyrir fiskvinnslufólk sem farið hefur
á námskeið. Afgreiðslufólk og fleiri
hópar, sem em fyrir neðan þetta lág-
mark, flytjast upp. Samningurinn
gildir í eitt ár. Gert er ráð fyrir að
laun hækki þrisvar sinnum um 500
krónur á mánuði á næsta ári. Samn-
ingar um breytingar á taxtakerfinu
fari fram á bilinu 1. mars til 1. sept-
ember. VSI segir lítið svigrúm til
annars en samræmingar varðandi
breytingar á taxtakerfinu. Að öllum
líkindum mun launanefnd starfa
næsta ár en ekki var víst hvort ein-
hver rauð strik verða á árinu.
Uppsagnarákvæði mun verða miðað
við 1. september ef ekki næst sam-
komulag um taxtauppstokkun.
Þetta er í grófum dráttum það sem
samkomulag hafði náðst um í gær
en þó með þeim fyrirvara að meðan
ekki er búið að undirrita getur þetta
eitthvað breyst.
Það sem að ríkisstjóminni snýr er
að draga úr erlendum lántökum,
aðhald í peningamálum, að ekki
verði settur kvóti á kjúklinga- og
eggjaframleiðslu, almannatrygg-
ingabætur verði hækkaðar, fast
gengi, opinberar verðhækkanir
verði ekki umfram almenna verðlag-
sviðmiðun né heldur hækkanir á
búvöm.
Steingrímur Hermannsson tók
fram að kjarasamningar undir þess-
um formerkjum gætu leitt til vaxta-
hækkana.
-S.dór
Þrjár konur og tveir karlmenn voru flutt á slysadeild Borgarspitalans eftir mjög harðan árekstur á Reykjanesbraut skömmu eftir hádegi í gær og eru
konurnar þrjár alvarlega slasaðar. Ekki er vitað nákvæmlega um tildrög slyssins en bifreiðamar vom að mætast og virðist sem þær hafi rekist saman
á miðjum veginum. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var gífurlega mikil hálka á Reykjanesbrautinni í gær.
SJ/DV-mynd Steingrímur Erlendsson
Veðrið á sunnudaginn:
Slydduél sunnanlands
Á sunnudaginn verður lægð skammt suður af landinu, hæg austlæg átt
og skúrir eða slydduél sunnanlands. Austan- og norðaustanstrekkingur og
él norðanlands. Hiti verður á bilinu -3 til 2 stig.
Veðrið á mánudaginn:
Él norðanlands
Á mánudaginn verður lægð fyrir suðaustan landið og norðaustanátt á
landinu með éljum norðanlands en björtu veðri syðra. Hiti verður á bilinu
-4 til 0 stig.