Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986.
21
Frægðin er Michael Jackson erfið
Miehael Jackson er búinn að vera
á toppnum sem.poppstjarna í fjölda
ára þó ekki sé hann nema rúmlega
tvítugur. Hann gerði garðinn fyrst
frægan með bræðrum sínum í hljóm-
sveitinni Jacksons Five en varð fyrst
verulega frægur þegar hann fór að
syngja einn.
En frægðin hefur reynst Michael
Jackson erfið og vinir hans hafa
margir hverjir þungar áhyggjur af
geðheilsu kappans. Milli tónleika og
plötuupptaka lokar hann sig mikið
af og umgengst fáa.
Sviðsframkoma Michael Jackson
hefur alltaf þótt skemmtileg og
skrautið og umstangið í kringum
skemmtanir hans meiri háttar.
Öfugt við flesta jafnaldra sína er
hann lítið fyrir skemmtanir og ekki
hefur hann átt í ástarsambandi við
hið veikara kyn. Um tíma gengu sög-
ur um að Michael Jackson væri
hommi en sá orðrómur leið fljótt
undir lok enda hefur Jackson ekki
verið í nánum vinskap við neinn
karlmann svo vitað sé.
Hann vill helst vera heima hjá sér,
innan um allar ævintýra- og furðu-
verumar sem hann er búinn að fylla
húsið sitt af.
LADA
VANTAR
BÍLA
Á
SKRÁ
Opið alla daga
frá kl. 9-19,
laugardaga
frá kl. 1Q-17.
VERIÐ VELKOMIN.
Ekkert innigjald.
Bila& Vélsleóasalan BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR 84060 & 38600
Jackson hefur miklar áhyggjur af
útliti sínu og hefur gengist undir
ótal skurðaðgerðir til þess að betr-
umbæta það. Þær sögur ganga að
hann sé að reyna að breyta sjálfum
sér þannig að hann líkist söngkon-
unni Diönu Ross sem allra mest en
hún er ein af fáum manneskjum sem
hefur náð einhverju sambandi við
Michael.
Jackson er ákaflega lífhræddur og
hreyfir sig ekki úr húsi nema um-
kringdur sveit vaskra manna. Veitir
honum kannski ekki af því aðdáend-
ur hans em oft æði aðgangsharðir.
Michael er líka mjög í mun að
halda í æskuna, hann hræðist ákaf-
lega að verða gamall og ljótur. Nú
þykist hann hafa dottið niður á góða
aðferð sem eigi að geta tryggt að
hann verði að minnsta kosti hundrað
og fimmtíu ára. Hann sefur allar
nætur í sérstaklega útbúnum súrefn-
isklefa, nokkuð sem hann segir að
fresti hrömun líkamans.
__________________
myndavélPvMtvarp
í einum og sama pakkanum!
a
einstöku
veröi:
Hverri filmu sem kcypt er
sem sagt filman i. pg
myndavílin tilbúin
I Jl
gi 'L:-
\ r|cr»-!','-v^-r)5rS
Polaroid myndavélin cr hrókur alls fagnaöar
LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN HF
Uugavegi 178 • Reykjavik - Simi 685811
miiiiiinnmm
TAKN UM TRAUST TEKKAVIDSKIFTI
Þegar þú greiðir með tékka, fyrir vöru eða veitta
þjónustu, og sýnir Bankakortið þitt, jafngildir það
ábyrgðarskírteini frá viðskiptabankanum eða spari-
sjóðnum þínum, sem ábyrgist innstæðu tékkans
að ákveðinni hámarksupphæð og tryggir þannig
viðtakandanum innlausn hans. Viðskiptineiga
sér þannig stað að um leið og þú afhendir
tékkann, synirðu Bankakortið og viðtakandinn
skráir númer kortsins á hann.
Þannig er Bankakortið þitt tákn um trausta
viðskiptahætti. Hafðu Bankakortið því ávallt
handbært.
Bankakortið
- nauðsynlegt í nútímaviðskiptum
Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Alþyðubankinn,
Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Verzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.