Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Blaðsíða 44
44
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986.
Tillcynriingar
Til umhugsunar
Þú, sem gefur börnum gjaílr þessi jól.
Hvað ætlarðu að gefa þeim? Við hvetjum
þig til að vanda valið vel. Það setur eng*
inn tímasprengju í jólaböggul bamanna
né heldur önnur vopn. - Gerið bömin ekki
að litlum hermönnum: - Gefið þeim friðar-
gjafir og leggið með þeim áherslu á frið,
samvinnu og bróðurkærleika.
Menningar- og friðarsamtök íslenskra
kvenna.
Vímulaus æska
Skrifstofa foreldrasamtakanna Vímulaus
æska, Síðumúla 4. Opið mánudaga kl.
13-16, þriðjudaga kl. &-12, miðvikudaga
kl. 9-12, fimmtudaga kl. 9-10, föstudaga
kl. 9-12. Sími 82260.
Jólatónleikar kórs Félags
Snæfellinga og Hnappdæla
Kór Félags Snæfellinga og Hnappdæla
heldur jólatór.leika sunnudaginn 7. nóv--
ember nk. í félagsheimili Sóknar, að
Skipholti 50a. og hefjast þeir kl. 15. Á síð-
astliðnu ári hélt kórinn aðventutónleika
í Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi.
Nú vill hann gefa Snæfellingum, sem bú-
settir eru á höfuðborgarsvæðinu, og
gestum þeirra kost á að hlýða á söng sinn.
Einnig verða kaffiveitingar. Söngstjóri er
F’nðrik Kristinsson frá Stykkishólmi og
undirleikari er Þóra Guðmundsdóttir frá
Miðhrauni.
Jólahappdrætti 1986.
SÁÁ reynir nýja leið:
Allir vinningar dregnir út
Nú um nokkurt skeið hafa líknarfélög
á íslandi treyst einna mest á happdrætti
til fjáröflunar. Velvild almennings hefur
verið aflgjafi þeirrar starfsemi sem hvert
félag hefur haft með höndum. Hefur þá
verið farið að reglum sem dómsmálaráðu-
neytið hefur sett. Meginreglan er sú að
heildarverðmæti vinninga skuli nema
sjötta hluta verðmætis útgefinna miða.
Þegar upp er staðið hefur selst ákveðinn
hluti miða og vinningar þar af leiðandi
dregist út í svipuðu eða sama hlutfalli.
Til dæmis ef selst hefur fjórðungur miða,
þá dregst út um fjórðungur vinninga.
Þetta fyrirkomulag hefur sætt gagnrýni
sem er skiljanleg. Hefur umræða í sam-
félaginu verið nokkuð neikvæð og við-
brögð á þann veg að þessi fjáröflunarleið
hefur ekki verið líknarfélögunum eins
gjöful og áður.
SÁÁ vill nú í jólahappdrætti sínu koma
til móts við fram komin sjónarmið og lang-
ar um leið að eyða tortryggni sem uppi
hefur verið.
SÁÁ fór þess á leit við dómsmálaráðu-
neytið að það heimilaði að dregið yrði úr
seldum miðum eingöngu. Var það leyft að
nýjum skilyrðum uppfylltum.
SÁÁ dregur því eingöngu úr seldum
miðum í jólahappdrætti 1986. Vinningar
eru þó engu að síður glæsilegir sem fyrr:
1 Daihatsu Rocky jeppabifreið, að verðm.
567.700 kr.
3 Daihatsu Charade fólksbifr., að verðm.
322.200 kr. stk.,
10 Daihatóu Cuore fólksbifreiðir, að
verðm. 269.600 kr. stk.,
8 JVC videotökuvélar GR 7C, að verðm.
125.900 kr. stk.,
75 JVC tvöf. kassettuútvarpst., að verðm.
11.750 kr. stk.,
75 BMX luxus reiðhjól, að verðm. 9.900
kr. stk.
Heildarverðmæti vinninga er því
6.861.250,- krónur.
Þar sem eingöngu er dregið úr seldum
miðum má sjá að samtökin taka hér vissu-
lega mikla áhættu.
Mikilvægt er að greiða heimsenda miða
fyrir kl. 12 á hádegi á aðfangadag. Síðan
verður dregið úr seldum miðum í beinni
útsendingu á Rás II milli kl. eitt og þrjú
e.h. á gamlársdag.
Stuðningur þjóðarinnar hefur allt frá
stofnun SÁÁ verið styrkur samtakanna.
SÁÁ reiðir sig enn á þennan stuðning um
leið og SÁÁ kemur til móts við gagnrýni
og athugasemdir með nýju fyrirkomulagi
happdrættisins. Vonandi til endumýjunar
trausts og til hagsbóta beggja.
SÁÁ nefnir happdrættið nú „Jólagjöf
SÁÁ“ og hefur það tvíþætta merkingu.
Við teljum stuðning fólksins í landinu
vera jólagjöf til SÁÁ og þeir sem hreppa
einhvern hinna 172 vinninga fá jólagjöf
frá SÁÁ. Vinningar fara allir, því eins og
fyrr segir er aðeins dregið úr seldum mið-
um. Vinningarnir eru auk þess skattfrjáls-
ir.
Skip úr franska flotanum
Tvö skip úr franska flotanum Agostra og
Rhone Komu í kurteisisheimsókn í Reykja-
víkurhöfn í gær. Skipið mun dvelja hér til
10. desember. Eingöngu verða heimilaðar
heimsóknir almennings í birgðaskipið
Rhone sunnudaginn 7. desember frá kl.
14-17.
Afmælistónleikar í tilefni 75
ára afmælis Háskólans.
1 tilefni af 75 ára afmæli Háskóla íslands
gangast tónleikanefnd Háskólans og Há-
skólakórinn fyrir afmælistónleikum
sunnudaginn 7. desember. Þeir verða
haldnir í Norræna húsinu og hefjast kl.
17. Kristinn Sigmundsson baritón og Jón-
as Ingimundarson píanóleikari flytja
ítalskar óperuaríur og sönglög eftir eldri
og yngri íslensk tónskáld. Einnig syngur
Góðtemplarahúsið í Hafnar-
firði 100 ára
Sunnudaginn 7. desember verður þess
minnst með samkomu í Góðtemplarahús-
inu í Hafnarfirði að 17. desember nk. verða
liðin 100 ár frá vígslu hússins. Það var
stúkan Morgunstjarnan nr. 11, stofnuð
1885, sem lét reisa húsið. Var það að mestu
byggt fyrir samskotafé og í sjálfboðavinnu
og er fyrsta templarahúsið hér á landi.
Þegar stúkan Daníelsher nr. 4 var stofnuð
í Hafnarfirði árið 1888 gaf Morgunstjarn-
an henni helming hússins og siðan hafa
þær átt húsið saman. Góðtemplarahúsið
var lengi eitt helsta samkomuhúsið í Hafn-
arfirði og um áratugaskeið miðstöð alls
konar menningar- og félagslífs. Auk þess
sem stúkurnar hafa alltaf haldið þar sína
fundi og samkomur fóru þar fram söng-
skemmtanir, sjónleikir, dansskemmtanir
og um tíma íþróttaæfingar og guðsþjón-
ustur. Enn þjónar Góðtemplarahúsið
þörfum ýmissa félagasamtaka og mörgum
finnst hvergi þægilegra að koma saman
en í þessu gamla og hlýlega húsi. Margir
hafa og sýnt hlýhug sinn og velvild til
hússins með gjöfum og styrkjum. Vill hús-
nefndin þakka öllum sem þar hafa átt hlut
að máli. Eimm manna nefnd stúkufélaga
hefur umsjón með rekstri hússins. For-
maður hennar er nú Ólafur Jónsson sem
hefur verið húsvörður um langt skeið.
„I smjásjá" bíður ársloka
Nú er nýtt leikhús að líta dagsins ljós,
Litla svið Þjóðleikhússins að Lindargötu
7. Opunarverk Litla sviðsins verður nýtt
leikrit eftir Þórunni Sigurðardóttur, „1
smásjá", í leikstjóm Þórhalls Sigurðsson-
ar. Hönnuður leikmyndar og búninga er
Gerla og ljósahönnuður Björn Bergsteinn
Guðmundsson. Frumsýning átti að verða
nú um mánaðamótin, en sökum veikinda
eins leikaranna er nú stefnt að frumsýn-
ingu 30. desember. Leikaramir Anna
Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir og Sigurður
Skúlason fara öll með stór hlutverk í þessu
magnaða nýja verki Þórunnar sem bíður
frumsýningar.
Kvöldlokkur á jólaföstu
Þriðjudaginn 9. desember kl. 20.30 verða
„Kvöldlokkur á jólaföstu“ í Áskirkju í
Reykjavík. Blásarakvintett Reykjavíkur
stendur fyrir þessum tónleikum ásamt ell-
efu félögum sínum. Þetta er í sjötta sinn
sem „Kvöldlokkur á jólaföstu“ hljóma, nú
í Áskirkju, en síðustu ár hafa þær heyrst
í fimm öðrum kirkjum í Reykjavík.
Háskólakórinn undir stjórn Áma Harðar-
sonar erlend og innlend lög, þ.á m. lög sem
hafa verið samin sérstaklega fyrir kórinn.
í vetur er 13. starfsár Háskólatónleika sem
tónleikanefnd Háskólans stendur fyrir.
Undanfarin misseri hafa þeir verið í há-
deginu á miðvikudögum í Norræna
húsinu. Upphaflegur tilgangur Háskóla-
tónleika var tvíþættur, að örva menning-
arlegt félagslíf í Háskólanum og að auka
tónlistarlíf í Reykjavík. Nú orðið skipa
þeir fastan sess í tónlistarlííi borgarinnar.
Viðskipta- og tölvublaðið,
6. tölublað 5. árgangs, er komið út.
Meðal efnis eru fréttir úr viðskiptalífi,
sagt er frá nýstofnuðum fyrirtækjum og
nýútkomnum bókum sem fjalla um tölvur
og tölvutækni.
Tækni- og tölvunýjungar er meðal fastra
þátta. Af erlendu efni má nefna grein um
afdrif breska dagblaðsins TODAY og við-
ureign eiganda þess við verkalýðsforystu
breskra prentara.
Viðskipta- og tölvublaðið íjallar að stað-
aldri um hugbúnað.
Ritvinnsla. Að þessu sinni er birt ítar-
leg lýsing á ritvinnslukerfínu „Word-
Perfect“ þar sem getið er allra helstu
eiginleika kerfísins, mismunandi notkun-
ar þess, vinnslu og ýmissa sérverkefna, svo
sem prentsetningar o.fl. Þessi grein gefur
einnig þýðingarmiklar upplýsingar sem
koma að góðu gagni við val á hvaða rit-
vinnslukerfí sem er.
Launakerfí. í þessu tölublaði er einnig
ítarleg lýsing á tveimur kerfum til útreikn-
ings á launum. Bæði þessi kerfí eru ætluð
fyrir einkatölvur og eru hönnuð og sett
upp af íslenskum hugbúnaðarfyrirtækjum.
Þessar tvær greinar svara þeim spurning-
um, sem margir velta fyrir sér, hvort það
borgi sig fyrir smærri fyrirtæki að tölvu-
vinna launareikning.
Sölukerfí. Mörgum mun koma á óvart
hve öflugt hjálpartæki ódýr einkatölva
getur verið fyrir sölumann. Lýst er nýju
íslensku sölukerfi og sýnt hvernig það
eykur afköst sölumanns.
Auk þessa eru athyglisverðar greinar,
m.a. um nýjan þýðanda sem eykur hrað-
virkni „dBase“ gagnasafnskerfa, sagt frá
nýju netkerfí, sérhannaðri forritasam-
stæðu fyrir iðnaðarmenn og framleiðslu-
fyrirtæki.
Að þessu sinni eru bomir saman tveir
algengir tölvuprentarar, lögð eru afkasta-
próf fyrir prentarana, birt letursýni og
greint frá tæknilegum eiginleikum. Grein-
in varpar ljósi á fjölmörg atriði sem hafa
þarf í huga þegar velja á tölvuprentara.
Viðskipta- og tölvublaðið kemur út 8
sinnum á ári. Utgefandi er Fjölnir hf. Rit-
stjóri er Leó M. Jónsson.
Jólafundur Kvenfélags Bú-
staðasóknar
verður mánudag 8. des. kl. 20.30 í safnaðar-
heimili kirkjunnar. Til skemmtunar
verður leiksýning Alþýðuleikhússins.
Spilakvöld Kársnessóknar
Spiluð verður félagsvist í safnaðarheimil-
inu Borgum þriðjudaginn 9. desember kl.
20.30.
Kvikmyndasýningar MIR
Reglulegar kvikmyndasýningar verða í
vetur á hverjum sunnudegi kl. 16 í bíósal
MÍR, Menningartengsla Islands og Ráð-
stjómarríkjanna, að Vatnsstíg 10. Nú í
desember verða sýndar frétta- og fræðslu-
myndir af ýmsu tagi en eftir áramótin
hefjast sýningar á leiknum sovéskum
kvikmyndum, nýlegum og gömlum. Nk.
sunnudag, 7. desember, verða sýndar þrjár
myndir með skýringum á íslensku: 1. „Til
móts við komandi öld“ mynd um 27. þing
kommúnistaflokks Sovétríkjanna, 2. „Allt
í þágu mannsins“ mynd um heilbrigðismál
í Sovétríkjunum, 3. „Erindrekar friðar og
vináttu“ mynd um 60 ára afmælishátíð
Sovéska vináttufélagasambandsins og
ýmsa heimsþekkta menn sem tengst hafa
störfum þess. Aðgangur að kvikmynda-
sýningum MÍR er ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir.
Skoðunarstöðvar Bifreiðaeft-
irlits ríkisins
Neytendasamtökin fagna því að á fjárlög-
um er gert ráð fyrir Qárveitingu til
byggingar skoðunarstöðva fyrir bifreiðar
á vegum Bifreiðaeftirlits ríkisins. Veruleg
umræða er að jafnaði um Bifreiðaeftirlitið
og gætir þá gjarnan gagnrýni vegna lé-
legrar þjónustu. Ástæða þessa er að
stórum hluta sú að hvergi á landinu fer
bifreiðaeftirlit fram við fullnægjandi að-
stæður. Það er því löngu tímabært að
byggðar verði skoðunarstöðvar á helstu
þéttbýlisstöðunum. Skoðunarstöðvar
munu flýta mjög allri skoðun og jafnframt
gera hana miklu nákvæmari og öruggari.
Mun fleiri þætti í búnaði bifreiða mætti
athuga en kleift er við núverandi aðstæð-
ur. Þetta stuðlar því jafnt að bættri og
fljótari þjónustu sem stórauknu umferðar-
öryggi. Neytendasamtökin hvetja fjárveit-
ingavaldið til þess að sjá svo um að þessi
fjárveiting komist sem fyrst til skila til
þess að binda megi enda á núverandi
ástand sem er fyrir neðan allar hellur.
Félag kennara á eftirlaunum
Aðventufagnaður félagsins verður í dag,
laugardag, kl. 14-18 á Grettisgötu 89, 4.
hæð. Félagsvist, kaffiveitingar, jólaminn-
ingar og fjöldasöngur.
Ljóða- og söngdagskrá á A.
Hansen
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi ljóða-
og söngdagskrána „Ástin er....“ á veitinga-
húsinu A. Hansen 18. nóvember sl.
Dagskráin var unnin að mestu leyti í hóp-
vinnu. Leikfélagið fékk til liðs við sig þá
Símon Jón Jóhannsson og Helga Guð-
mundsson til að vinsa úr þau ljóð sem
nota ætti því að, eins og alkunna er, hafa
flest íslensk ljóðskáld samið eitthvað tengt
ástinni. Það er nánast sama hvaða stefnu
skáldin fylgja, öll hafa þau reynt eitthvað
við ástina. I ljóðadagskránni „Ástin er....“
er stiklað á stóru í gegnum tímann og
reynt að gefa sýnishorn af kveðskap ís-
lenskra ljóðskálda frá upphafí ljóðsins.
Dagskráin er fjölbreytt og sýndar eru
bæði alvarlegar og „kómískar“ hliðar á
ástinni. Síðustu sýningar fyrir jól á „Ástin
er...“ verða mánudaginn 8. og þriðjudag-
inn 9. des. og hefjast þær kl. 21.
Aðventukvöld í Laugarnes-
kirkju
Sunnudaginn 7. desember verður aðventu-
kvöld í Laugameskirkju kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins verður Dr. Gylfi
Þ. Gíslason fyrrv. ráðherra. Unglingar úr
æskulýðsstaríl Laugameskirkju sýna
helgileik undir stjóm Jónu Hrannar
Bolladóttur guðfræðinema. Einnig verður
flutt tónlist undir stjórn organistanna Ann
Toril Lindstad og Þrastar Eiríkssonar.
Sóknarpresturinn sér um helgistund í lok
samkomunnar. Eftir samkomuna í kirkj-
unni verður heitt súkkulaði og smákökur
á boðstólum í safnaðarheimilinu. Konur
úr Kvenfélagi Laugamessóknar undirbúa
þessar veitingar. Um morguninn kl. 11
verður bamaguðsþjónusta með fjölbreyttu
efni fyrir bömin. Engin messa verður kl.
14.
Aðalfundur Hjálparstofnunar
kirkjunnar
Á fundi aðalstjórnar Hjálparstofnunar
kirkjunnar 24. nóv. sl. var ákveðið að
stefna að því að halda aðalfund stofnunar-
innar um miðjan janúar nk. Samþykkt var
að fram til aðalfundar yrði málum skipað
á eftirfarandi hátt:
1. Formaður aðalstjórnar var kosinn
Gunnlaugur Finnsson.
2. Sigurjóni Heiðarssyni skrifstofustjóra
var falið að fara með prókúru fyrir
stofnunina fram til aðalfundar.
3. Ákveðið var að gefa fólki kost á að
gefa til hjálpar- og líknarstarfa á að-
ventunni. Söfnunarfé verði varið til
ákveðinna verkefna innanlands og er-
lendis, sem framkvæmdastjórn mun
kynna innan tíðar.
Ekki verði lagt í mikinn kostnað vegna
þessara safnana. Ennfremur var eftirfar-
andi samþykkt:
„Stjómin harmar þær árásir sem starfsfólk
og fráfarandi stjómarformaður hafa orðið
fyrir“.
Lagarefirfrumsýnd í Laugar-
ásbíöi
Laugarásbíó frumsýnir gamanmyndina
Lagarefir (Legal eagles). Lagarefir íjallar
um ríkissaksóknara (Robert Redford) sem
flækist inn í sakamál hjá hálíklikkuðum
lögfræðingi (Debra Winger). Þau reka mál
fyrir sérvitran listamann (Ilaryl Hannah)
sem varla má láta á sér kræla án þess að
glæpur sé framinn. Redford flækist þarna
inn í dularfullan heim listamanna í New
York, lendir í ósiðlegu athæfi með skjól-
stæðingi sínum og missir síðan metnaðar-
fullt starfið í ofanálag. Lagarefir var ein
best sótta myndin síðasta sumar í Banda-
ríkjunum. Leikstjóri hennar er Ivan
Reitman sá hinn sami og leikstýrði gaman-
myndunum Ghostbusters og Stripes.
Síamsköttur týndur
Ómerktur síamsfressköttur, eins og hálfs
árs gamall, tapaðist frá Tjarnargötu 42,
16. nóvember sl. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við Kattavinafé-
lagið eða Jóhann í síma 19492. Fundar-
laun.
Jóhann G. Jóhanns sýnir í
Gerðubergi
í dag, 6. desember, opnar Jóhann G. Jó-
hannsson, myndlistar- og tónlistarmaður,
málverkasýningu í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi, Breiðholti. Á sýningunni
verða yfir 80 verk (flest vatnslitamyndir)
unnin á tímabilinu ’85-’86. Sýningin, sem
er sölusýning, stendur til 14. desember og
verður opin daglega frá kl. 14-22. Aðgang-
ur er ókeypis.
Sölusýning og kynning á
Kópavogshæli
Sölusýning á munum sem vistmenn á
Kópavogshæli hafa unnið og kynning á
starfsemi hælisins verður í dag, 6. desemb-
er kl. 14.
Fyrirlestur á vegum rann-
sóknarstofnunar uppeldis-
mála
Þriðjudaginn 9. desember flytur Njáll Sig-
urðsson námstjóri fyrirlestur á vegum
Rannsóknarstofnunar uppeldismála er
nefnist: Svipmyndir úr sögu tónmennta-
kennslu á Islandi. Fyrirlesturinn verður
haldinn í Kennaraskólahúsinu við Laufás-
veg og hefst kl. 16.30. öllum er heimill
aðgangur.
Basarar
Kvenfélagið Fjallkonurnar
heldur jólabasar í dag, 6. desember, kl. 13
í Gerðbergi. Lukkupokar, happdrætti,
kökur og laufabrauð ásamt ýmsum góðum
vörum.
Kökubasar Framkvenna
Kökubasar verður í Framheimilinu við
Safamýri, sunnudaginn 7. desember kl.
14.00.
Framkonur.
Varmi
Bilasprautun
N YFORM
Reykjavikurvegi 66,
Hafnarfirði, sími 54100.
Sjónvarps-
skápar,
10 tegundir,
4 litir.
Verð frá kr. 5.500,-