Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986.
Bannað að hallmæla
z:
7
Jörundi
Jón G. ILiuksson, DV, Akureyn:
„Móðir mín lét mig fá menið þeg-
ar ég gifti mig fyrir fimmtán árum,“
sagði Lára María Ellingsen á Ak-
ureyri, núverandi handhafi þess
fræga mens sem Lauritz M. Knuds-
en gaf konu sinni Margrethe
Andreu þegar þau giftust árið 1809.
Menið hefur gengið í beinan
kvenlegg kynslóð fram af kynslóð
og er Lára sú sjöunda sem ber það.
Skilyrðið sem fylgir meninu er að
handhafi þess gifti sig af fúsum og
frjálsum vilja.
Lára er þrjátíu og sjö ára Reyk-
víkingur, dóttir hjónanna Sigríðar
Ólafar og Othars Ellingsen. Afi
Láru, Othar Ellingsen, stofnaði
fyrirtækið 0. Ellingsen í Reykjavík
fyrir sjötíu árum. Lára giftist norð-
ur til Akureyrar, Erlingi Aðal-
steinssyni tæknifræðingi. Dóttir
þeirra, ólöf Höm, er ellefu ára og
hún fær menið þegar hún giftir sig.
„Ég fékk menið eftir athöfnina í
Neskirkju," sagði Lára María.
„Móðir min flutti stutta tölu í gift-
ingarveislunni, rakti sögu mensins
og setti það síðan á mig.“
Jörundur hundadagakon-
ungur
Að sögn Láru ber hún menið við
mjög hátíðleg tækifæri, mest í íjöl-
skylduboðum. „Nei, nei, svona
persónulegt men fer maður ekki
með í Sjallann."
í meninu er hárlokkur af Lauritz
Michael Knudsen sem Margrethe
giftist af fúsum og frjálsum vilja,
nýskilin við þann sem hún vildi
aldrei giftast en var neydd til. Fest-
in er líka sérstök. „Það er fléttað
úr hárlokkum af langömmu minni,
Guðrúnu Brynjólfsdóttur," sagði
Lára.
Jömndur hundadagakonungur
kemur við sögu þessa mens. Hann
veitti Margrethe skilnað svo hún
gæti gifst Lauritz. Þau gengu í það
heilaga og eignuðust tíu börn. Eng-
in smáætt, eins og kemur fram hér
annars staðar á síðunni. Afkom-
endumir eru um þrjú þúsund átta
hundmð og fimmtíu.
Menið gengur aðeins í kvenlegg
þannig að handhafi þess verður að
eiga stúlkubarn til þess að menið
strandi ekki heldur gangi í erfðir
frá kynslóð til kynslóðar.
Dóttir Lám er ellefu ára. Hún fær
menið en eigi handhafi þess fleiri
en eina stúlku þá fær ekki sú elsta
það heldur sú sem giftir sig fyrst.
Og vegna þess að Jömndur
hundadagakonungur veitti skiln-
aðinn forðum, sem varð til þess að
Lauritz og Margrethe gátu gifst,
er það ekki vel séð í Knudsensætt
að Jörundi sé hallmælt.
„Maður tekur því alltaf með
ákveðnum fyrirvara sé fólk að hall-
mæla Jömndi og ég veit að heima
hjá einum í ættinni er beinlínis
bannað að hallmæla honum,“ sagði
Lára María Ellingsen.
LáraMaríaEllingsen:
Ég ber menið aðeins
við hátíðleg tækifæri,
fer til dæmis aldrei
með það í Sjallann.
Lára María og dóttir hennar, Ólöf Höm sem fær menið góða