Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986.
23
Þau giftust affusum
/ u
og frjálsum vilja
íslenska Knudsen ættin er stór og
mikil ætt og til Knudsena eiga ættir
að rekja Möllerar, Thomsenar,
Guðjohnsenar, Bernhöftsfólkið og
fleira gott fólk. Nýlega kom út niðja-
tal Knudsen ættarinnar. Ættin er
talin frá þeim hjónum Lauritz Mic-
hael Knudsen, sem réðst til Reykja-
víkur sem verslunarþjónn um
aldamótin átján hundruð, og Margr-
ethe Andreu.
Margrethe Andrea var dóttir
Lauritz Johans Peters Hölters,
beykis í Stokkhólmi. Rétt eftir
aldamótin átján hundruð býr hún
í Reykjavík hjá frænku sinni Katr-
ínu Önnu og manni hennar, Westy
Petræusi, sem rekur verslun í
Reykjavík, Hafnarfirði og Vest-
mannaeyjum.
Sagan segir að þau Margrethe
Andrea og Lauritz hafi litið hvort
annað hýru auga en skyldfólki
hennar leist ekki meira en svo á
þann ráðahag þar sem Lauritz var
aðeins ungur og eignalaus verslun-
arþjónn.
Ættingjar Margrethe komu því svo
fyrir að gegn vilja sínum varð hún
að giftast Claus Mohr, efnuðum
verslunarstjóra, sem var tuttugu
og tveimur árum eldri en hún.
Hljópst á brott
Margrethe, sem nú gekk undir
nafninu maddama Mohr, þoldi ekki
sambúðina við mann sinn og eftir
aðeins fimm mánuði hljópst hún á
brott og steig ekki inn fyrir hans
dyr framar. Varð þessi atburður til
að vekja mikið umtal í henni litlu
Reykjavík.
Kynni hennar og Lauritz Knuds-
en urðu nú öllu nánari. Vorið 1807
fór Margrethe síðan til Noregs og
er þá orðin þunguð að fyrsta barni
þeirra. I Noregi eignaðist hún son,
sem skirður var i höfuð á föður sin-
um, Lauritz Michael.
Margrethe fór síðan til Kaup-
mannahafnar með son sinn og
dvaldi þar um skeið. Þar varð hún
sér úti um konungsleyfi til að skilja
og ganga aftur í hjónaband.
I byrjun sumars 1809 kom Margr-
ethe aftur til íslands. Hér ríkti þá
Jörundur hundadagakonungur og
veitti hanri leyfi til þess að þau
Lauritz og Margrethe gengju í
hjónaband.
Meðan Margrethe hafði dvalið
ytra hafði Lauritz stofnað til náins
kunningsskapar við aðra stúlku,
Bolettu Dyrekier, fósturdóttur
Hendriks Scheels, tugthúsráðs-
manns í Reykjavík. Ó1 hún Lauritz
dóttur suður í Keflavík á giftingar-
degi hans og Margrethe.
Landakotsrósirnar
Lauritz og Margrethe hófu bú-
skap í svonefndu Brekkumanns-
húsi, sem stóð þar sem nú er hornið
á Veltusundi og Hafnarstræti. Lau-
ritz fékk borgararéttindi árið 1812
og keypti þá Bergmannsbúð í Aðal-
stræti. Jafnframt höfðu þeir
samvinnu með sér Lauritz og
Petræus, frændi Margrethe, og
stýrði Lauritz einni verslun Petræ-
usar. Varð Lauritz smám saman
með umsvifameiri kaupmönnum í
Reykjavík.
1820 keypti Lauritz Landakot og
stuttu eftir að hann lést, árið 1828,
fluttist ekkja hans, Maddama
Knudsen eins og hún var alltaf
nefnd, þangað. 1 Landakoti bjó hún
með börnum sínum, sem alls urðu
tiu, og hafði kindur og kýr.
Dætur Maddömu Knudsen voru
kallaðar Landakotsrósirnar og
þóttu afbragð ungra kvenna í
Ættargripur Knudsen
ættarinnar. Hálsme-
nið góða, sem fellur í
skaut fyrstu dóttur-
inni sem giftist af
fúsum og frjálsum
vilja.
Reykjavík, fríðar sýnum og gáfað-
ar. Jón Helgason ritstjóri hefur
ritað mikið um Knudsen systurnar
í Landakoti og ástalíf þeirra i riti
sínu íslenskt mannlíf.
Síðar bjó Maddama Knudsen í
skjóli dóttur sinnar, Jóhönnu, og
tengdasonar, Þórðar Guðmunds-
sonar, i svonefndu Maddömu
Knudsenshúsi. Það stóð þar sem
nú er ísafoldarhúsið, Austurstræti
8.
Morgungjöfin
Skyldfólk Margrethe vildi
tryggja henni fjárhagslegt öryggi
þegar það neyddi hana kornunga
til að giftast manni sem hún ekki
unni og var miklu eldri en hún.
En ástin lætur ekki þröngva sér
og Margrethe yfirgaf mann sinn til
þess að geta verið samvistum við
ástina sína.
Hefur ábyggilega þurft mikið
hugrekki til að gera það sem hún
gerði á þessum tíma. Enda var sagt
um Maddömu Knudsen að hún
hefði verið mikil merkiskona, táp-
mikil og dugleg.
Að vonum var ráðdeildarsemi
ættingja Margrethe í hjúskapar-
málum ungu elskendunum mikill
þyrnir í augum. Þau voru ákveðin
í að sú saga skyldi ekki endurtekin.
Þegar þau voru gefin saman í
hjónaband, þann 29. október 1809,
gaf Lauritz konu sinni forkunnar-
fagurt hálsmen í morgungjöf með
þeim ummælum að fyrsta dóttir
þeirra, sem giftist af fúsum og
frjálsum vilja, fengi menið. Þá voru
á annarri hliðinni upphafsstafir
Lauritz - LMK - en á hinni mynd
af honum. Eftir lát hans lét Margr-
ethe setja á það eins konar legstað,
líkkistu, hörpu og pálmatré, til
minningar um mann sinn.
Nú hafa sjö kynslóðir kvenna
sem gifst hafa af fúsum og frjálsum
vilja borið þetta fallega hálsmen.
-VAJ
STOFAN BREYTIST I KVIKMYNDASAL MEÐ
í dag kaupa allir HQ myndbandstæki - en fleiri og fleiri kaupa
HQ myndbandstæki með Hi-Fi Stereo hljómgæðum.
Með HR-D370 nýtur þú nýrra kvikmynda til hins ýtrasta.
Áhrifin af Hi-Fi Stereo eru slík að stofan heima hjá þér
breytist í kvikmyndasal. Með HR-D370 getur þú líka tekið
upp samtímaútsendingar - myndina úr sjónvarpinu og
hljóðið úr útvarpinu - í FM Stereo. Það er engin spurning
-fullkomið myndbandstæki í dag hefur HQog Hi-Fi Stereo.
Ef þú ert kröfuharður velurðu JVC, leiðtoga VHS.
JVC
HR-D370 HI-FI
STEREO
HAGÆDA VHS
Aðrir eiginleikar HR-D370: Örtölvustýrður móttakari - þú stimplar inn tíðnisviðið. Afgangstíma- - fyrir 8 dagskrárliði. Hi-Fi hljóðupptaka í 8 tíma á LP-hraða og þráðlaus fjarstýring með ótal
mælir - þú veist alltaf hve mikið er eftir af spólunni. Fullkomið teljaraminni - þú stimplar inn 4 möguleikum.
stafa tölu og ferð þangað. Lagaleitun - þú finnur einhverja 1 upptöku af 9. Upptökuminni í 1 ár
Faco býður ósigrandi jólaverð á HR-D370 HQ Hi-Fi Stereo:
Kr. 58.800 stgr.
■ Kynntu þér niðurstöður neytendasamtakanna ■ Höfum 12 síðna baskling á íslensku yfir öll JVC myndbandstæki og
um myndbandstæki á íslandi hjá okkur. myndbönd. Hafðu samband og við sendum þér eintak um hæl.
í gamla /'Jl. '.
góða miðbænum
FACO
LAUGAVEGI 89 ‘Sí 91-13008
Umboðsmenn: Akureyri: Hljómdeild KEA, Hljómver, Húsavik: KF. Þingeyinga. Ólafsfjörður: Valberg. Borgarnes: KF. Borgfirðinga. Sauðárkrókur: Radíólínan, Hegri. Akranes: Skagaradíó. Keflavík:
Littinn hjá Óla, Hljómval. Hella: Vídeóleigan Hellu. Hvolsvöllur: KF. Rangæinga. Neskaupstaður: Nesvideó. Egilsstaðir: KF. Héraðsbúa. Vestmannaeyjar: Sjónver.