Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Page 25
25
g í fóstur
aróu á Leiti“
Albert Guðmundsson
í helgarviðtalinu
an frá.“
- En ert þú einangraður í flokknum
og f]ær forystunni en þú hefur verið?
„Nei, það er langt frá því að ég sé
einangraður. í þeim hópi sem ég
starfa fer því fjarri. Ég á einnig mjög
gott samstarf við félaga mína í þing-
flokki og miðstjórn. Staða mín innan
flokksins hefur ekkert breyst og það
er langt frá því að ég hafi fjarlægst
forystu flokksins síðustu misseri. Ég
er í þessari forystusveit og veit ekki
annað en að þar ríki samheldni og
gott samstarf."
- Nú virðist annað mega ráða af
skrifum Morgunblaðsins eftir próf-
kjörið?
„Ritstjóm Morgunblaðsins hefur
aldrei verið ánægð með velgengni
mína í flokknum. Ég hef ekki hug-
mynd um af hverju það er. Ég hef
aldrei spurtþá.
Hef ekkert brotið af mér
Ég veit ekki til að ég hafi brotið
neitt af mér og árangur minn í vinnu
fyrir flokkinn er sambærilegur við
þann sem þeir hafa náð sem mest
hafa starfað þar. Ég á þar sérstaklega
við byggingu höfuðstöðvanna og
þátt minn í að leysa fjárhagsvanda
flokksins á sínum tíma ásamt öðrum
mönnum í fjárhagsnefnd og ýmsar
góðar tillögur almenningi til heilla
sem borgarfulltrúi, þingmaður og
ráðherra.
Þingflokkur sjálfstæðismanna hef-
ur sýnt mér góðan drengskap og á
því hef ég engan bilbug fundið. Það
hefur verið mér mikill styrkur - ekki
síst drengskapur sá sem formaðurinn
hefursýntmér."
- Gerðir þú ráð fyrir þeim möguleika
að falla þegar þú bauðst þig fram í
prófkjörinu?
„Ég erkeppnismaður að eðlisfari
og gaf aðeins kost á mér í fyrsta
sætið. Mér var því ekkert annað í
huga en að halda fyrsta sætinu þegar
ég hóf baráttuna og reikna fastlega
með að ég hefði ekki tekið annað
sæti á listanum.“
- Ætlaðir þú þá að hætta í pólitík-
inni ef þú hefðir fallið?
„Ég hef ekki hugsað út í það. Ég
hefði tekið það sem vantraust flokks-
bundinna sjálfstæðismanna á mig en
því má ekki gleyma að möguleikam-
ir á þátttöku í prófkjörinu voru
þrengri en síðast.“
- Nú mátti skilja ummæli þín svo
eftir prófkjörið að Helena dóttir þín
hefði komið þér til bj argar. Var það
svo?
„Helena gegnir mjög mikilvægu
hlutverki í stuðningsmannahópnum
sem ég get leitað til þegar ég þarf á
að halda. Þetta er hópurinn sem
gengið hefur undir nafninu Huldu-
herinn.“
Vel skipulagður hópur
- Er Hulduherinn flokkur í flokkn-
um?
„Þetta er vel skipulagður hópur en
ég gef engar frekari upplýsingar um
hann.
Andstæðingar mínir hafa alltaf átt
erfitt með að átta sig á uppbyggingu
stuðningsmannahópsins og héldu
fyrir prófkjörið að Hulduherinn væri
ekki lengur til en annað kom í ljós.
Ég held að Hulduherinn hafi styrkst
verulega við þær árásir sem hafa
verið gerðar á mína persónu.
Ég er fæddur og uppalinn í Reykja-
vík og vina- og kunningjahópurinn
bæði stór og traustur enda hafa þeir
þekkt mig og mitt starf bæði innan
og utan valla í íþróttum og stjórn-
málum."
- Nú virðist mörgum sem einhvers
konar deyfð eða uppdráttarsýki hrjái
Sjálfstæðisflokkinn. Hvaðfinnst
þér?
„Sjálfstæðisflokkurinn mætti vera
líflegri en ég held að við eigum mjög
sterkan formann og ég hef trú á að
flokkurinn eigi eftir að styrkjast og
dafna undir forystu hans.
En við sem flokkur höfum á þessu
kjörtímabili verið á ferð í gegnum
afbrigðilega tíma þar sem formaður
Framsóknarflokksins varð óvænt
forsætisráðherra vegna aðstæðna í
Sjálfstæðisflokkum. En við sjáum nú
fyrir endann á þessu tímabili.
Sama hvað Jónarnir
eru margir
- Jón Baldvin, formaður Alþýðu-
flokksins, stefnir leynt og ljóst að því
að vinna fylgi af Sjálfstæðisflokkn-
um í komandi kosningum. Verður
ekki erfitt að leiða Sjálfstæðisflokk-
inn í kosningabaráttunni við þessar
aðstæður?
„Ég hef ekki trú á að Jón Baldvin
vinni verulegt fylgi af Sjálfstæðis-
flokknum í kosningunum. Sjálfstæð-
isfólk er afskaplega trútt sinni
hugsjón. Uppstilling á lista Alþýðu-
flokksmanna skiptir þar engu. Það
er alveg sama hvort það er fleiri en
einn Jón á þeim lista. Báðir þessir
Jónar hafa misreiknað sig hrapal-
lega í fortíðinni.
Auðvitað verður erfitt að leiða
Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum.
Það er alltaf erfitt að leiða stóran
flokk manna. En ég hef enga trú á
að það verði neitt erfiðara en áður.
Við þurfum bara að leggja meira að
okkur en oft áður og þannig verður
það um alla framtíð. Við verðum allt-
af að leggja meira að okkur i
væntanlegum kosningum en þeim
síðustu.
En að sjálfsögðu verðum við alltaf,
þegar við beijumst til sigurs, að vera
viðbúin ósigri. Þetta er ekkert ósvip-
að því þegar lagt er í knattspyrnu-
kappleik.
Morgunblaðið hefur brugðist
Erfiðleikarnir, sem við verðum að
yfirstíga nú, eru meðal annars þeir
að undanfarið hefur Morgunblaðið
haft margt við Sjálfstæðisflokkinn
og æðstu menn í forystu hans að at-
huga á sama tíma sem Morgunblaðið
hefur birt greinar eftir alþýðuflokks-
menn og um ágæti forystu alþýðu-
flokksmanna. Á meðan Morgun-
blaðið telur sig vera áhrifaríkt
málgagn í skoðanamyndun þá hljóta
þessi skrif að hafa veruleg áhrif í
þeim skoðanakönnunum sem fram
hafa farið og eiga eftir að fara fram.
Að sjálfsögðu vil ég hafa Morgun-
blaðið það flokksmálgagn sem það
var og er viss um að forystumenn
fyrri tíma, bæði í flokknum og á blað-
inu, hafa ekki ætlast til þess að
Morgunblaðið sendi forystumönnum
sjálfstæðismanna kaldar kveðjur á
sama tíma og þeir tala um ágæti
andstæðinganna. Morgunblaðinu
var ekki ætlað það hlutverk að bera
slík skrif inn á heimili hvers einasta
sjálfstæðismanns í landinnu."
- Síðustu vikur hefur Helgarpóstur-
inn borið á þig skattsvik. Þú átt að
hafa fengið verulega afslætti úr sjóð-
um Hafskips og ekki talið fram til
skatts. Er þetta rétt?
„Nei, þetta er rangt. Helgarpóstur-
inn hefur borið mig öllum þeim
sökum sem þeir hafa getað látið sér
detta í hug. Ég hef ekki hugsað mér
að svara þessum ásökunum að svo
stöddu. En allt þetta tal um skatt-
svik kannast ég ekki við. Viðskipta-
afslætti hefur fyrirtæki mitt fegnið
frá Hafskip eins og öðrum flutninga-
fyrirtækjum en það eru eðlilegir
viðskiptahættir."
- En hvað um skattaívilnanir til
handa stjórnendum Hafskips?
„Stjórn Hafskips samþykkti kjara-
samninga beggja forstjóra félagsins
og embættismenn stjórnarinnar und-
irrituðu þá samninga í umboði
stjórnarinnar. En það er að sjálf-
sögðu undir hverjum og einum komið
hvemig hann telur fram til skatts.
Af hálfu stjórnarinnar voru þama
engin undirmál."
- Hvernig liggur þá í þessu máli?
„Ég veit það ekki og hef ekki gert
mér far um að skoða allar dylgjurnar
í Helgarpóstinum. Það má geta þess
að ég var bara stjómarformaður í 2
-3 ár hjá Hafskip. Það sem eftir á
kom og reið félaginu að fullu kom
ekki til sögunnar fyrr en 2-3 árum
eftir að ég hætti. Ég átti t.d. engan
þátt í Ameríkusiglingunum.“
Hef ekki kvartað
- Nú hefur þú ásamt fleiri stjórn-
málamönnum borið þig illa undan
gagnrýni fiölmiðla. Hefur gagnrýnin
verið óréttlát?
„Ég hef ekki kvartað undan neinu
hvað sjálfan mig snertir. Ég hef ein-
faldlega ekki rætt þau mál.
Ég kvíði því ekki að bera saman
lífshlaup mitt og lífshlaup þeirra sem
mest hafa tengt mig við lögbrot. Það
sem mig hefur tekið sárast er að
heyra um skrif um marga þá sam-
starfsmenn mína sem ég þekki ekki
að neinu öðru en drengskap."
- Samt verður ekki framhjá því horft
að Útvegsbankinn er svo gott sem á
hausnum og hundruð milljóna hafa
tapast af almannafé.
„Áður en ég kom til Útvegsbank-
ans var hann í miklum vanda og ríkið
þurfti að styrkja hann. Sá vandi var
kominn upp áður en ég kom þangað.
Ég vil ekki dæma gagnrýni. Ég hef
mínar skoðanir en tel mig ekki í
aðstöðu til að dæma nokkurn mann.“
Stjórnmálamenn verða að
taka gagnrýni
- Samt er það svo að stjórnmála-
menn vilja helst fá að velja sér
gagnrýni?
„Það segir sig sjálft að stjórn-
málamenn geta ekki valið sér
gagnrýni. Þeir verða að taka henni.
Ég hef aldrei gert það minnsta til að
koma í veg fyrir að gagnrýni á mig
kæmi fyrir sjónir almennings.
Ég hef treyst því að lífshlaup mitt
og kynni af fólki verði gagnrýninni
yfirsterkari.”
- H vaða augum lítur þú framvindu
mála þann tíma sem Hafskips/
Útvegsbankamálið hefur verið efst á
baugi? Er málið öðru fremur pólitískt
eða dæmi um spillingu?
„Ég vil ekkert um það dæma hvort
þetta mál er pólitískt eða ekki. Ég
varð hvorki var við pólitík né spill-
ingu þann tíma sem ég hafði afskipti
af þessum fyrirtækjum. Ég held að
ýmis utanaðkomandi áföll hafi orðið
til þess að Hafskip varð gjaldþrota.
Það gjaldþrot hafði verulegar afleið-
ingar eins og öll gjaldþrot og þá að
sjálfsögðu mestar fyrir Útvegsbank-
ann.“
- Nú hefur þú sagt að stjórnmálin
hafi verið þér erfiðari síðustu misser-
in en áður. Ertu þreyttur á pólitík-
inni?
Nei, ég er ekki þreyttur á pólitík-
inni og verð það ekki svo lengi sem
ég get unnið að hagsmunamálum
fólks. Ég er í góðri líkamlegri og
andlegri þjálfun en það getur verið
lýjandi að fá aldrei starfsfrið. Þau
mál sem ég hef beitt mér fyrir hafa
komið að gagni og á meðan ég get
orðið litla manninum að liði þá
þreytist ég ekki.
Ég get rakið langan lista af málum
sem ég hef komið í höfn. Ég hafði
t.d. mikla ánægju af að koma af stað
skóladagheimili að beiðni Félags
einstæðra foreldra. Ég lánaði endur-
gjaldslaust til þess hús sem ég átti.
Þjónusta við flutning fatlaðara var
mín hugmynd og sömuleiðis tillaga
um byggingu þjónustuíbúða fyrir
aldraða.
í þjóðmálum get ég nefnt aðstoð
við blinda sem hefur gert þeim kleift
að auka sín störf á sérsviðum
blindra, bæði í framleiðslu og útgáfu-
starfsemi. í skattamálum var það mín
tillaga að aldrei mætti ganga svo
hart í innheimtu skatta að ekki væru
eftir 25% af launum hverju sinni.
Alltaf verið
fyrirgreiðslumaður
Ég er ekkert gefinn fyrir að telja
upp afrek en ég tel nauðsynlegt að
nefna sitthvað því máli til sönnunar
að ég hef komið fram ýmsum málum
sem gera það ánægjulegt að starfa
að stjórnmálum enda bauð ég mig
fram til þjónustu. Ég hef alla tíð
verið fyrirgreiðslumaður fyrir þá sem
ég get sinnt og lít svo á, sama í hvaða
ráðuney ti ég starfa, að kerfið sé til
að þjóna fólki en ekki fólkið til að
þjóna kerfinu.“
- Nú hefur vinur þinn, Guðmundur
J. Guðmundsson, ákveðið að hætta
á þingi. Öfundar þú hann?
„Nei, ég öfunda hann ekki af því
að hætta. Hann tók þessa ákvörðun
og hafði sínar ástæður. Ég hef átt
gott samstarf við Guðmund í ýmsum
mannúðarmálum. Ég á eftir að sakna
' hans. Það verður sjónarsviptir að
1 honum þegar hann hverfur af þingi.
Æska okkar var á margan hátt
svipuð en við höfum verið andstæð-
ingar í pólitík. Það hefur aðeins einu
sinn slest upp á vinskapinn en það
lagaðist fljótt aftur og ég er mjög
ánægður með það,“ sagði Albert
Guðmundsson.
GK