Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986.
27
-----
S HITT!
\
Smásaga
Brostu, brostu!
Þessi jólastjarna hreyfíst við
minnsta vindgust!
Klipptu (eða helst, taktu í gegn á
annan pappír) ferninginn og límdu
á stífan pappír. Litaðu hann í gul-
um og gylltum litum og klipptu
síðan eftir punktalínum.
Beygðu hornin inn að miðju og
biddu einhvern fullorðinn að hjálpa
þér við að gera göt og stinga bréfa-
splitti í þau. Stingdu síðan splittinu
í sogrör.
Nú geturðu blásið í stjörnuna eða
hengt hana í gluggann þinn.
„Hvað er eiginlega að þér?“ spurði
Maggi. En litla systir gretti sig
bara. „Láttu ekki svona, brostu til
okkar,“ sagði pabbi. En sú litla
starði stúrin á hann.
„Hvað í ósköpunum getur verið
að henni?“ sagði mamma. Maggi
reyndi að fá litlu systur til að brosa.
Hann sýndi henni öll uppáhalds-
leikföngin. Hann dinglaði Bjössa
bangsa fram og aftur, upp og nið-
ur, en ekkert gekk.
„Við skulum koma út í búð,“ sagði
mamma.
Það var rigning og leiðindaveður.
„Ég fæ þá litlu til að brosa,“ sagði
Gulli kaupmaður um leið og hann
henti tveimur appelsínum upp í
loftið og greip þær aftur. Allir í
búðinni klöppuðu og fögnuðu, en
ekki stökk litlu systur bros.
Þau fóru í bókabúðina.
„Ég veit!“ sagði Maggi. „Hún má
fá myndablaðið mitt.“
Auðvitað kunni litla systir ekki
að lesa, en yfirleitt hafði hún gam-
an af því að veifa myndablaðinu
hans Magga kringum sig. En ekki
í dag.
„Við skulum þá koma heim,“
sagði mamma. „Það er svo kalt og
hráslagalegt. Ég ætla að gefa okkur
heitt kakó.“
Nú var hellirigning. Magga þótti
gaman að stökkva yfir pollana.
„Sjáið mig!“ kallaði hann.
Einn, tveir og þrír... hann stökk.
SKVAMP! Beint í miðjuna á pollin-
um!
„Sjáið litlu systur!“ hrópaði
Maggi.
Mamma og pabbi litu við. Sú litla
skellihló og tísti. Hún hafði aldrei
séð neitt jafn skemmtilegt fyrr.
Mamma hló líka. Og það gerði
pabbi. Maggi brosti líka þó votur
væri í fæturna. Hann hló reyndar
svo mikið að hann tók ekki eftir
því hvert hann gekk. Hann óð beint
út í annan poll. SKVAMP!