Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Side 11
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1987.
11
Útlönd
Leiðtogar hægri flokkanna, Helmut Kohl og Franz-Joseph Strauss, hittast eftir kosningarnar í siðasta mánuði.
Stjómarmyndunarvið-
ræður ganga hægt
Ketílbjöm Tryggvason, DV, V-Berlm;
Eiginlega ætlaði Helmut Kohl,
kanslari Vestur-Þýskalands, að hafa
nýjan stjómarsáttmála tilbúinn á mið-
vikudaginn í síðustu viku. Þróun
stjómarmyndunarviðræðnanna frá
kosningunum 25. janúar síðasta hefúr
þó leitt til þess að ekki tókst að stand-
ast þá áætlun og óvíst er hvenær
flokkamir þrír, báðir kristilegu hægri
flokkamir (CDP og CDU) og ffjáls-
lyndi flokkurinn (FDP), munu ná
endanlegu samkomulagi um stjómar-
samstarfið og stefriu ríkisstjómarinn-
ar.
Það fer ekki á milli mála að ríkis-
stjómarsáttmálinn á að þessu sinni
að vera betur úr garði gerður en sá
síðasti. Koma á í veg fyrir erjur innan
ríkisstjómarinnar svipuðum þeim er
komu upp á yfirborðið í stjómartíð
síðustu fjögurra ára.
Biðin orðin feimnismál
Bráðum fer þó biðin eftir samkomu-
laginu að verða stjómarflokkunum til
álitshnekkis. Margur hlekkur þýska
þjóðarbúskapsins bíður eftir stjómar-
sáttmálanum, margir stórir mála-
flokkar krefjast úrlausnar og óvissan
fer að verða kostnaðarsöm.
Síðast en ekki síst em svo kosningar
ffamundan í sambandslandinu, Hess-
en, þann 5. apríl næstkomandi og
Kohl og samstarfsmenn hans vita að
farsæl lausn stjómarsamninga í Bonn
getur haft mikil áhrif á úrslit þeirra
kosninga.
Hvað tefur samningana?
í þetta sinn em það ekki vamarmál
þjóðarinnar sem tefja samkomulagið
né heldur mismunandi afstaða flok-
kanna þriggja í baráttunni við at-
vinnuleysið ægilega. Það em miklu
heldur málefni sem maður gæti flokk-
að undir innanríkis-ögyggismál.
Þama er um að ræða málaflokka eins
og baráttuna gegn hryðjuverkaöflun-
um, afstöðu til erlendra flóttamanna,
breytingar á lögum um mótmælarétt
og síðast en ekki síst hin siðferðilega
hlið, þ.e.a.s. afstaða gegn fóstureyð-
ingum og baráttan gegn alnæmisjúk-
dómnum.
Svarti Péturinn
Franz-Joseph Strauss og flokks-
bræður hans í Kristilega bandalaginu
í Bæjaralandi (CSU) skera sig nokkuð
úr með afstöðu þeirra til þessara mála-
flokka. Þó svo að flokkurinn hafi
komið fremur illa út úr nýafstöðnum
kosningum og standi veikari fótum við
samningaviðræður um þennan stjóm-
arsáttmála (miðað við seinasta) þá em
það þeirra kröfur sem mesta stappið
stendur um þessa dagana við samn-
ingaborðið í Bonn.
Þessi kristilegi hægriflokkur frá
Bæjaralandi er þvi hinn eiginlegi
Svarti Pétur stjómarmyndunarvið-
ræðnanna. - Vill hann meðal annars
innleiða ýmsar aðferðir við baráttu
gegn hryðjuverkum sem hinir flokk-
amir, og þá aðallega fijálslyndir
(FDP), geta illa sætt sig við. Einnig
vill hann skerða gildandi rétt til er-
lendra flóttamanna, hingað kominna,
umffam það sem hinir flokkamir fá
sig til. Þeir vilja auka vald lögreglu
og umboð og um leið skerða rétt til
opinberra mótmælaaðgerða.
Mest er þó bilið milli CSU og hinna
flokkanna varðandi afstöðu til eyðni-
sjúkdómsins og hvemig snúast eigi til
vamar gegn honum. CSU krefst í því
sambandi skráningarskyldu þeirra
sem smitast hafa og meðhöndlun
óskráðra sem afbrotamanna. - Rita
Sússmuth heilbrigðismálaráðherra
(CDP) er gjörsamlega á móti þeirri
vinnuaðferð og þar em einnig sam-
mála henni FDP-menn.
Skattalögin
Einn er þó sá málaflokkur sem FDP
og CSU standa saman um gegn kristi-
legum demókrötum Kohls og það em
skattalögin. Vilja þessir tveir, að vísu
með mismunandi aðferðum, almenna
lækkun skatta í landinu, sérstaklega
hátekjuskatts. Til að bæta ríkissjóði
upp tekjutapið af þeirri lækkun vilja
þeir skera niður niðurgreiðslur á ýms-
um vömtegundum, svo sem land-
búnaðarvörum, og minnka fjármagns-
aðstoð ríkisins við ýmsar
atvinnugreinar.
Litlar breytingar á sætaskipan
Ein skýringin á tiltölulega stórum
sigri fijálslyndra í kosningunum fvrir
mánuði er sú að landsmenn hafi óttast
hreinan meirihluta systraflokkanna til
hægri. Ef svo hefði farið er talið víst
að Strauss, forsætisráðherra Bæjara-
lands (og formaður CSU), hefði krafist
sætis utanríkisráðherrans í sambands-
stjóminni í Bonn en fáir hér í V-
Þýskalandi vilja hann í þann stól.
Þess vegna þykir líklegt að fólk hafi
kosið FDP til að styrkja þriðja aflið í
ríkisstjóminni. Nú er þvi fullvíst að
Hans Dietrich Genscher muni halda
þeim ráðherrastólnum. Enda er það
ein höfúðforsenda fijálslvndra f>TÍr
stjómarsamstarfi.
Almennt er ekki búist við neinum
breytingum á sætaskipan í Bonn-
stjóminni. Flokkamir þrír fá að
líkindum sama fjölda ráðherrastóla í
sinn hlut og einu breytingamar. sem
gætu orðið, eru persónuval ráðherra
innan flokkanna sjálfra. Þó skal ekki
fullyrt neitt það á þessu stigi því að
samningar standa enn vfir og ekki er
séð fyrir endann á þeim.
Toyota Landcruiser árg. 1981, original 6 cyl. dísilvél,
140 hö., ekinn 124.000 km. Upphækkaður, 15"
Spoke-felgur, nýleg 33x12,50" Firestone radialdekk,
brettavíkkanir, stýrisarmur samþykktur af Iðntækni-
stofnun, Ijóskastarar, stereoútvarp + segulband, 4
hátalarar, nýir demparar, fljótandi öxlar o.fl.
Góður bíll. - Verð 820.000.
Upplýsingar í síma 20650 í dag og næstu daga.
Áramm