Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1987. 13 Neytendur Aukaefni í hveiti Lesandi hafði samband við okkur, og vildi fá að vita hvaða aukaefni væru leyfileg í hveiti. Sendi hann okk- ur gamla grein úr Dagblaðinu þar sem bent var á þá staðreynd að þrátt íyrir bann við notkun efhisins potassium bromate í matvæli þá væri selt hveiti með þessu efiii. Greinin var skrifuð 1976 og er skemmst frá þvi að segja að enn er selt hveiti frá Bandaríkjunum sem inniheldur þetta efni. Þó er rétt að benda á að samkvæmt nýrri athugunum er þetta ekki eins slæmt og áður var talið. Potassium bromate ætti að vísu aldrei að hafa í matvælum en samkvæmt skýrslu Al- þjóða heilbrigðisráðsins um efnið, frá árinu 1983, kemur fram að við bakstur breytist efnið í brómíð sem er mun saklausara. Eftirlit með notkun bannaðra auka- efha hefur verið í molum hér á landi. Erfitt hefur reynst að fylgja eftir bönn- um, en nú liggur fyrir nýr listi um leyfileg aukaefni í matvælum. Samkvæmt honum má ekki nota nema askorbinsýru, öðru nafni C- vítamín, í hveiti og í mjöl til kexgerðar má eingöngu nota amylasi og papin sem eru hvatar. Er listinn öðlast gildi, líklega um áramót, er ætlunin að sinna þessum málum af aukinni festu og hafa þá eftirlit með því að reglugerðir séu í heiðri hafðar. Verður þá væntanlega neytandinn loks tryggður fyrir alls kyns hættuleg- um aukaefnum og það hveiti, sem ekki uppfyllir kröfur þar um, tekið af mark- aði. -PLP Þar sem brómat er ekki bannað i Bandarikjunum er það i mörgum tegundum hveitis þaðan. Hársins vegna! FAMILY FRESH Hárnæring Freyðibað Sturtusápa Svitaspray Rollon FJÖLSKYLPUSJAMPÓ 600 ml Þrjár mildar tegundir fyrir {ajlaj fjölskylduna. Reynið FAMILY FRESH - hársins vegna! Heildsala: Kaupsel Laugavegi 25 S: 27770 og 27740 Raddir neytenda Okrað í nafni frelsis Guðrún Jakobsdóttir hringdi og sagði okkur sögu um kjólakaúp. Hafði hún farið í bæinn til að kaupa sér kjól fyrir árshátíðina. Sá hún einn sem henni leist vel á í versluninni Liljan og kostaði hann kr. 11.900. Þótti henni það nokkuð dýrt og ákvað að hugsa málið yfir nóttina. Morguninn eftir var hún búin að ákveða að kaupa kjólinn og fór aftur í bæinn. Á leiðinni varð henni litið í verslunina Quatro og sá hún sama kjólinn. Þar kostaði hann ekki nema kr. 5.200, og var um sama vörumerki að ræða. Kjóllinn var sumsé á 128% lægra verði í Quatro. Viljum við enn og aftur brýna fyrir fólki, að kaupa aldrei neitt án þess að hafa verðsamanburð. Það að Guðrún skyldi ákveða að hugsa málið hefur sparað henni kr. 6.700 sem er drjúgur skilding- ur. Þið hafið alltaf tíma til að spara ykkur slíkt. -PLP Glóðarkerti i urvali fyrir TOYOTA ISUZU DATSUN MERCEDES BENZ O.FL. G ” SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88 FJARLÆGÐARKLOSSAR Að gefnu tilefni viljum við vekja athygli á að mikið af steypuskemmdum í húsum stafar af rangri legu jámbindinga. Komið í veg fyrir þessar skemmdir þegar í upp- hafi með notkun fjarlægðarklossa og komist hjá viðgerðum fyrir hundruð þúsunda eftir nokkur ár. Heildsala - smásala. Fallar hf. Vesturvör 7 200 Kópavogi. Simar 42322 - 641020. PÁSKAFERÐIR TIL SVISS OG MALLORKA SVISS 11. til 20. apríl. Eins og undanfarin ár bjóöum við nú skíða- og skemmtiferð til Axenfels í Sviss. Á þessum tíma er Sviss í vorblóma og er þessi ferð því sambland af vetrar- og sumarferð. Verókr. 35.300 á mann í stúdíó-íbúð. Barnaafsláttur. MALLORKA 15. til 29. apríl. Sumarferðir Atlantik byrja með tveggja vikna páskaferðtil sólskinseyjarinnar Mallorka. Gist verður í íbúðarhótelunum glæsilegu, Royal Playa de Palma og Royal Jardin del Mar. Takmarkað sætaframboð er í þessari ferð. Verðfrákr. 22.000 á mann miðað við hjón meö tvö börn í íbúö. OTC9* FERÐASKRIFSTOFA IÐNAÐARHUSINU HALLVEIGARSTÍG 1. SÍMAR 28388 - 28580

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.