Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987.
Fréttir
Endurskoða
þarf alla
starfsemi
deildarinnar
„Það skiptir ekki máli hvað það
kostar, við sem eftir verðum hér á
deiidinni verðum að veita sjúkl-
ingunum alla þá aðhlynningu og
hjálp sem við getum veitt. Auðvit-
að kostar það röskun á högum
okkar, hjá því verður ekki kom-
ist,“ sagði Eygló Guðmundsdóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur á hand-
lækningadeild Landspitalans, í
samtali við DV.
Eygló sagði að 23 sjúklingar
væru á deildinni, aðeins einn væri
sendur heim. Hún sagði að því
starfsfólki, sem eftir yrði, væri
skylt að vinna aukavinnu sem
næroi 33% af dagvinnutíma og hjá
því yrði ekki komist að nota þetta
ákvæði. Þetta mun að sjálfeögðu
breyta öllu einkalffi þess starfs-
fólks sem eftir verður, sagði Eygló.
Hafi fólk verið með einhveijar
áætlanir um að gera þetta eða hitt
verður það að víkja núna. Alla
vinnutilhögun á deildinni verður
að endurskipuleggja, þar sem 6
hjúkrunarfræðingar í 80% starfi
og 7 sjúkraliðar sömuleiðis í 80%
starfi mirnu hætta á miðnætti, að
sögn Eyglóar.
„Ástandið hér hjá okkur er í einu
orði sagt - óskaplegt - og ég er
ekki viss um að almenningur skilji
hversu alvarlegt ástandið í raun
og veru er,“ sagði Eygló Guð-
mundsdóttir.
-S.dór
Pemngamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækur 10-11 Lb
óbund. Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-19 Vb
12 mán. uppsögn 13-22 Sp.vél.
18 mán. uppsogn 20.5-22 Sp
Ávísanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar 4-7 Sp
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb. Lb.Ob, Vb
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2.5-4 Ab.Úb
10-22
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 5-6 Ab
Sterlingspund 8,5-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskarkrónur 9-10.25 Úb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
LJtlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv) 19-20 Lb.Úb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) 22 eða kge
A'menn skuldabréf(2) 20-21.5 Ab.Úb
Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) Utlán verðtryggð 20-21,5 Lb
Skuldabréf
Að 2.5árum 5-7 Lb
Til lengri tíma 6.5-7 Ab.Bb. Lb.Sb, Úb.Vb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 16.25-21 Ib
SDR 7,5-8,25 Lb
Bandaríkjadalir 7,5-8 Sb.Sp
Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Úb. Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-6.75
Dráttarvextir 30
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 1643 stig
Byggingavísitala 305 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. april
HLUTABRÉF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar trvggingar 121 kr.
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 166 kr.
Hampiðjan 147 kr.
lönaðarbankinn 135kr.
Verslunarbankinn 125kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil-
alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema í Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýslngar um peningamarkaðinn
blrtast i DV á fimmtudögum.
Upplausn á Borgarspríala:
Sjúklingar sendir heim
með plastpoka undir hendi
Það var dapurlegt um að litast á
Borgarspítalanum síðdegis í gær.
Aðstandendur sjúklinga steymdu
inn um aðaldyr og að vörmu spori
út aftur með sjúk skyldmenni sín.
Allir voru með plastpoka þar sem
í voru helstu nauðsynjar. Ferðinni
var heitið í heimahús þar sem að-
standendur verða að halda áfram
umönnun sjúklinga í stað hjúk-
runarfólks sem farið er í verkfall.
A Borgarspítalanum varð að
rýma 150-60 sjúkraúm en það eru
33 prósent af rúmafjölda sjúkra-
hússins. Slíkt hefur aldrei áður
gerst í sögu sjúkrahússins: „Þetta
er algert neyðarástand," sögðu
starfsmenn. „Þó eru menn búnir
að hafa sex mánuði til að semja.“
-EIR
Eg er ekki
einu sinni
orðinn
alveg hitalaus
Petrína Einarsdóttir sjúkraliði er lengst til vinstri á myndinni en hún er í hópi sjúkraliða sem sagt hefur upp störfum
á Landspitalanum. Við hlið hennar eru Inga Tryggvadóttir og Fjóla Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingar.
DV-mynd S
Hvers vegna var uppsagnar-
tíminn ekki notaður betur?
Þær sátu og ræddu hið alvarlega
ástand sem skapast hefur á sjúkra-
húsunum, Petrína Einarsdóttir
sjúkraliði, sem sagt hefur upp störf-
um á Landspítalanum, og hjúkrunar-
fræðingarnir Inga Tryggvadóttir og
Fjóla Grimsdóttir, en á þá hjúkr-
unarfræðinga, sem eftir verða eftir
að uppsagnir sjúkraliða og iðjuþjálfa
koma til framkvæmda, leggst aukið
álag.
Petrina sagðist ekki skilja hvers
vegna uppsagnartíminn, síðustu 6
mánuðir, hefði ekki verið notaður
betur en raun ber vitni. Allt í einu,
þegar örfáir dagar eru eftir af upp-
sagnarfrestinum, væri rokið til og
reynt að semja.
Þær Inga og Fjóla sögðu að hjá því
gæti aldrei farið að meira álag yrði
á þeim hjúkrunarfræðingunum eftir
að hinar stéttirnar væru farnar. Þær
töldu upp deildir sem búið væri að
loka eða yrði lokað og sögðu að þeir
sem eftir yrðu á spítalanum væru
þeir veikustu sem útilokað væri að
flytja heim.
Aðspurð hvort hún myndi lausráða
sig eftir ósk heilbrigðisráðherra,
sagðist Petrína ekki mundu gera það
og þannig væri með flesta að því er
hún vissi best. Þær voru allar sam-
mála um að ástandið væri óskaplega
alvarlegt og annað en létt að horfa
á eftir sjúklingum heim, sem alls
ekki ættu að vera annars staðar en
á sjúkrahúsi.
-S.dór
„Það er ekki um annað að ræða, ég
verð að fara heim í dag. Ég er tiltölu-
lega nýkominn úr mikilli skurðaðgerð,
þar sem segja má að hafi verið skipt
um hné í mér. Ég er enn ekki orðinn
hitalaus eftir aðgerðina en samt er
ekki möguleiki á að vera hér áfram,“
sagði Ólafur Þórðarson, múrarameist-
ari frá Akranesi, sem var að yfirgefa
Landspítalann um miðjan dag í gær.
Ólafúr sagði að hann hefði ekki get-
að farið í neina endurhæfingu með
hnéð á Landspítalanum vegna þess
hve langt er síðan sjúkraþjálfamir
fóru í verkfall. Hann sagðist komast
í þjálfun uppi á Akranesi hjá sjúkra-
þjálfa sem vinnur sjálfstætt og að það
væri alveg nauðsynlegt fyrir sig að
komast sem allra fyrst í þjálfun.
-S.dór
Olafur Þórðarson frá Akranesi, ný-
kominn úr mikilli skurðaðgerð en
verður að fara heim vegna ástands-
ins á sjúkrahúsunum.
DV-mynd S
„Ef ég fæ kast verð
ég að drepast heima“
- segir Helgi Gestsson
„Starfefólkið héma á ekki að gefa
neitt eftir í þessari kjaradeilu. Það er
ekkert vit í að láta stjómmálamennina
haga sér eins og apinn sem átti að
skipta ostinum og át hann svo allan
sjálfur," sagði Helgi Gestsson, 87 ára
sjúklingur á Borgarspítalanum sem
hefur dvalið þar að undanfomu vegna
gallblöðrubólgu og gallsteina.
„Ég get náttúrlega ekkert annað
gert en farið af sjúkrahúsinu og ef ég
fæ kast verð ég að drepast heima.
Þetta er ósköp einfalt í mínum huga;
það er fyrir löngu kominn tími til að
lækka launin hjá bankastjórum, ráð-
herrum og alþingismönnum og láta
hina lægstlaunuðu njóta þess. Eg veit
ekki betur en þessir háu herrar hafi
allt upp í 200 þúsund krónur á mán-
uði fyrir utan öll fríðindi. En það er
ef til vill ekki von til þess að nokkuð
gerist í þessari sjúkrahúsdeilu á með-
an þingmennimir hugsa ekki -um
Helgi Gestsson á Borgarspítalanum:
- Þetta er ósköp einfalt í mínum huga.
DV-mynd KAE
annað en að vefa ábreiður fyrir fylgi-
fiska sína,“ sagði Helgi Gestsson.
-EIR
„Get ekki farið
heim með stöngjna
- segir Vilborg Gísladóttir
„Ég var að frétta það núna rétt
áðan að ég ætti að fara heim á morg-
un. Ég veit ekki hvemig ég á að
fara að því með þessa stöng í eftir-
dragi,“ sagði Vilborg Gísladóttir, 29
ára gömul húsmóðir og tveggja
bama móðir, er DV ræddi við hana
á Borgarspítalanum í gær.
Vilborg hefur legið á Borgarspítal-
anum í rúmar tvær vikur vegna
ígerðar er hún fékk eftir gallsteina-
aðgerð. Bömin hafa verið í gæslu á
meðan móðir þeirra hefur legið á
sjúkrahúsi og býst hún við að svo
verði áfram:
„Ég á að vísu mann en hann er í
fastri vinnu og veit ekki einu sinni
að ég sé að koma heim. Ég veit eigin-
lega ekki hvemig ég á að fara að
þessu. Mér er brugðið," sagði Vil-
borg.
-EIR
veit ekki að ég er að koma heim.
DV-mynd KAE