Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987. 7 Deilt um synd guð- f á*m TicBOI" lektors i*SÍS,þ6tti™JeM,gœt« Stjómin í guðfræðiskóla norsku kennurunum í norska guðfræðiskól- kirkjunnar ákvað á dögunum að anum og þvi var það þung ákvörðun reka einn af lektorum skólans úr fyrir stjómskólansaðþurfaaðbiðja starfi vegna þess að hann hafði hann að segja af sér. syndgað. Lektorinn hafði játað synd Mikil opinber umræða varð um sína fyrir stjóm skólans en syndin málið og ýmsir kirkjunnar menn og þótti of stór til þess að hægt væri jafnvel biskupar iögðust á móti því að leyfa manninum að halda áfram að lektomum yrði sagt upp. Eftir kennslu í guðfræði. töluvert þóf var ákveðið að láta Lektorinn hafði nefnilega falhð málið niður falla og leyfe honum að fyrirþeirrifreistinguaðbúaíóvigðri halda áfram í starfi sínu. En hipn sambúð með unnustu sinni í tólf syndugi lektor segist ekki geta verið daga Og til þess að kóróna allt sam- áífram við guðfræðiskólann eftir allt an bar sambúðin ávöxt og ástkonan það sem á undan er gengið. Engar varð bamshafandi. Þar með varð sögur fera af því á hvaða mið hann ekki umflúið að stjóm skólans kæm- mun leita á ný í starfi. Sakharov og Ihatcher ræddu um mannréttindi Andófshjónin Andrei Sakharov og Yelena Bonner þáðu í gær matarboð Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, í breska sendiráðinu í Moskvu og áttu við hana langar viðræður. Eftir fundinn sagði Sakharov að hann og Thatcher hefðu rætt mann- réttindamál, afvopnunartilraunir og ástandið í Sovétríkjunum og hefðu verið sammála um flest. Sakharov, sem er kjarneðlisfræð- ingur og stundum kallaður faðir vetnissprengju Sovétmanna, sagðist hafa áréttað við breska forsætisráð- herrann að hann styddi umbóta- stefnu Gorbatsjovs í Sovétríkjunum, eins og hann hefur áður gert í yfirlýs- ingum síðan sovéski leiðtoginn leyfði Sakharov að snúa aftur heim til Moskvu úr útlegðinni í Gorkí. Thatcher sagði í gær við frétta- menn að á fundum hennar og leið- toga sovéska kommúnistaflokksins hefði Gorbatsjov greint allítarlega frá áætlunum um endurskipulagn- ingu sovéska þjóðfélagsins. Bar hún lof á umbótastefnu hans. Sovéski andófsmaðurinn Andrei Sakharov og eiginkona hans, Yelena Bonn- er, yfirgefa breska sendiráðið i Moskvu í gær eftir viðræður þeirra við Margaret Thatcher, forsætlsráöherra Breta, sem stödd er i heimsókn i Moskvu. Að baki hjónunum sést Geoffrey Howe utanrikisráðherra gæta þess að þau hjón fari ekki með vitið út úr húsinu. Simamynd Reuter Útlönd Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, og Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, við komu þess fyimefnda til Hvíta hússins. Simamynd Reuter Chirac og Reagan gera samning um eyðni og verslun Franski forsætisráðherrann Jacques Chirac, sem ásamt eigin- konu sinni er staddur í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum, og Ronald Reagan Bandaríkjaforseti undirrituðu í gær samkomulag ríkjanna þar sem bundinn er endi á ágreininginn um einkaleyfi á blóðprófi til sjúkdómsgreiningar á alnæmi. „Þetta samkomulag markar nýtt tímabil í samstarfi Frakka og Bandaríkjamanna i viðleitninni til þess að ná tökum á hinum hræði- lega sjúkdómi og þróa mótefni og lækningu við honum,“ sagði Reag- an forseti eftir fund þeirra í Hvíta húsinu í gær. Ætlunin er að tekjur af einkaleyf- inu verði látnar renna í sérstakan sjóð sem notaður verði til barátt- unnar gegn alnæminu. Þeir Chirac og Reagan áttu lang- ar viðræður í gær þar sem vopna- takmörkunarmálin bar á góma og þar á meðal tillagan um að banna meðaldrægar kjarnaflaugar í Evr- ópu. Sömuleiðis ræddu þeir milliríkja- verslun þessara tveggja landa, en Frakkar hafa áhvggjur af síhækk- andi röddum í Bandaríkjunum sem krefjast þess að innlendur iðnaður verði tollverndaður fyrir innflutn- ingi. Gjöf sem kemur á óvart frá Sinclair - ensk gæðavara. Sniðug fermingargjöf, gengur fyrir rafhlöðum eða rafmagni. Tæki sem þú hefur með þér hvert sem er. Staðgrverð 11.600,- Greiðsluskilmálar. Opið laugardaga Verslunin Grensásvegi 50 - simi 83350.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.