Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987. Erlendir fréttaritarar Hart deitt um öldrunanuál í Svíþjóð Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi: Öldrunarmálin hafa verið eitt aðalmálið í sænskri stjórnmála- umræðu að undanfömu. Bengt Westerberg, leiðtogi Þjóðarflokks- ins, sem í síðastliðnum kosningum boðaði þá stefnu að sérhver sænsk- ur ellilífeyrisþegi skyldi hafa rétt til einkaherbergis á elliheimilum, hefur gagnrýnt stjórn jafnaðar- manna harðlega fyrir fyrirhugaða byltingu þeirra í öldrunarmálum og fyrir að ætla að leggja niður öll elliheimili. Heldur Westerberg því fram að sá niðurskurður sé þegar hafinn með því að skera niður opin- ber gjöld til elliheimilanna. Ýmsir aðrir hafa orðið til að taka undir þessa gagnrýni. „Andstaðan við stofnanir, sem hefur aukist undanfarin ár, má ekki leiða til þeirra öfga að telja að við getum verið án allra stofnana. Við ráðum ekki einu sinni við heimahjúkrun eins og málum er nú háttað hvað þá ef allir aldraðir skulu búa í heimahúsum," sagði öldrunar- læknir um málið. Nú virðist sem jafnaðarmenn hafi dregið í land. Ingvar Carlsson Jafnaðarmenn í Svíþjóð hafa verið gagnrýndir fyrir að ætla sér að leggja niður öl! elliheimili. Nú virðist sem þeir hafi dregið í land og byltingin í öldrunarmálum verði ekki að veruleika. forsætisráðherra hefur lýst því yfir að hann telji nauðsynlegt að elli- heimili verði áfram til staðar. Gertrud Sigurdssen heilbrigðisráð- herra hefur tekið í sama streng. „Meginatriðið hlýtur að vera að aldraðir fái að búa þar sem þeir vilja. Þeir sem vilja búa heima eiga að fá að gera það. Þeir sem hins vegar vilja búa á elliheimilum eða þjónustuíbúðum fyrir aldraða eiga sömuleiðis að eiga rétt á því.“ Og þar með virðist sem byltingin sem boðuð hafði verið í öldrunarmálum verði ekki að veruleika. Tryggingafélög hvetja til nágrannahjálpar Haiikur L. Haukœan, DV, Kaiganaimahöfti: þeir em fjarverandi án --------------------- þess þó að leika logregluþjóna. Ef Tryggingafélög hvetja til atofhun- eitthvað grunsamlegt gerist á fólk ar8vokallaðrarnágrannahjálparum einungis að láta lögregluna vita. alla Danmörku í þeim tilgangi að Ságallihefurveriðáaðnágranna- íækka þjófhuðum og innbrotum. hjálp í einstökum hverfum lækkar Hvatning þessi á rætur að rekja ekki heildarfjölda þjófoaða Þjófarn- til þeirrar staðreyndar að þjófiiuðum ir flytja sig einfaldlega yfir í önnur fjölgaði um tiu prósent á tímabilinu hverfi eða í sumarbúataðalöndin. Því 1985 til 1986. Árið áður nam fjölgun- hvetja tryggingafélögin til stofiiunar in aðeins þremur prósentum. Þessi nágrannahjálpar um allt land. mikla flölgun kostaði tryggingafé- Tryggingafélögin hafiia þeim lögin níu hundruð milljónir danskra vangaveltum að aukningu þjófcaða króna eða tvær og hálfa milljón á á pappímum megi rekja til tilbúinna dag. irmbrota. Mörg tryggingafélög hafa Komið hefiir verið á nágranna- ráðið fyrrverandi lögreglumenn til hjálp í einstökum hverfiun í að lfta nánar á grunsamleg innbrot Danmörku en hún felst í því að fólk og bflhvörf og því ætti að vera búið hefur auga með eignum nágrann- að koma í veg fyrir svindl. Færri dauðaslys eftir lækkun hámarkshraða Haukur L. HaukEson, DV, Kaupmannahö&i: Eftir að hámarkshraði í þéttbýli var lækkaður úr sextíu kílómetrum á klukkustund í fimmtíu kílómetra á klukkustund þann 1. október 1985 hefur dauðsföllum í umferðinni fækk- að um tuttugu prósent. Talsmaður umferðarrannsóknar- ráðsins í Danmörku telur að fækkun dauðaslysanna sé bein afleiðing hinn- ar nýju hraðatakmörkimar. Þó að brot á hraðatakmörkun hafi aukist skyggir það ekki á ávinning breytingarinnar. Fyrir breytinguna vonuðust menn til að munurinn á hæg- og hraðakst- ursmönnum mundi minnka þar sem jafhari hraði umferðarinnar væri mik- ilvægur fyrir umferðaröryggið. Mælingar hafa þó sýnt að þeir er keyrðu of hratt fyrir breytinguna keyra á sama hraða sem fyrr og blásá því á fimmtíu kílómetra hámarks- hraða. Á meðan höfðu hægfara ökumenn frekar tilhneigingu til að hægja á sér. Hin nýja hraðatakmörkun virðist sérstaklega hlífa gangandi vegfar- endum og hjólreiðafólki. Fyrir þessa hópa virðist það skipta miklu máli að margir hafa hægt á sér eftir allt sam- an. Dæmigert umferðaróhapp í þétt- býli á sér nefhilega ekki stað milli tveggja bíla heldur milli bíla annars vegar og fyrmefhdra hópa hins vegar. Formaður umferðarráðsins i Dan- mörku vill ekki draga of skjótar ályktanir af áhrifiun hraðabreytingar- innar á umferðaröryggið en lýsir yfir ánægju sinni með fækkun dauðaslysa. Mengun ógnar stöðuvötnum Kanada Skógar í Kanada hafa oröið fyrir miklum skemmdum vegna súrregns og telja vísindamenn að hálf milljón stöðu- vatna landsins sé nú í hættu af sömu ástæðu. Guðrún Hjanaidóttir, DV, Otlawa: Kanadískir vísindamenn hafa að undanfömu verið að gera sér æ ljós- ari grein fyrir þeirri ógnun er steðjar að náttúru landsins af völdum súr- regns á komandi árum. Telja þeir að nálægt þvi hálf milljón stöðu- vatna landsins sé í hættu. David Schindler, sérfræðingur um súrregn hjá vatnastofhuninni í Winnipeg, segir að rannsóknar- mönnum hafi hingað til skjátlast er þeir hafi talið áhrif súrregns vara í fremur stuttan tima. „Staðreyndin er sú að súrregn hefur langtímaáhrif og hefðbundin líffræðiþekking getur ekki með nokkru móti séð fyrir hvaða afleiðingar það á eftir að hafa í för með sér fyrir náttúruna í fram- tíðinni," segir Schindler. Nýjustu rannsóknir á súrregns- myndun í Bandaríkjunum og Kanada hafa leitt að þvi líkur að allt að því þrisvar sinnum fleiri vötn en áður var talið séu mengúð brenni- steinssýru á þessu svæði. Málið hefur verið á þingpöllum í Ottawa að undanfömu. Þann 6. apríl næstkomandi mun Ronald Reagan Bandaríkjaforseti koma í hina árlegu heimsókn sína til Kanada. Eitt af aðalumræðuefn- um hans og Bryans Mulroney forsætisráðherra verður súrregns- mengunin og aðgerðir vegna hennar. En langmestur hluti þessarar meng- unar berst norður yfir Kanada frá Bandaríkjunum. í ræðu í síðustu viku sagði Mulroney að fjórtán þús- und kanadísk vötn væru menguð af brennisteinssýru og að önnur þrjú hundruð þúsund væm í hættu. Schindler telur hins vegar að tala dauðra vatna í landinu sé mun hærri og að um ftmm til sex hundmð þús- und vötn séu í hættu. Súrregnið, sem myndast aðallega af völdum brennisteinsúrgangs frá verksmiðjum og raforkuverum er brenna kolum, er einnig talið valda eyðileggingu á skógum og mann- virkjum auk þess sem það ógnar heilsu manna. Rannsóknir, er staðið hafa undan- farin ár í Quebeck fylki, hafa sýnt að skógum á tuttugu og fiögur þús- und ferkilómetra svæði í fylkinu stendur ógn af súrregni en um það bil sjötíu og fimm prósent tijáa á svæðinu bera merki skemmda af völdum regnsins að meira eða minna leyti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.