Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987. 31 Sandkom Ragnhildur Helgadóttir. Völvan og pólitíkin Völva Vikunnar hefur löng- um þótt nösk að sjá fyrir óorðna hluti. Þessi ágæta spá- dómsgáfa bregst henni ekki í spánni fyrir árið 1987 sem birt- ist í janúarblaði. Þar tæpir hún á umróti i pólitíkinni og segir meðal annars að kosn- ingabaráttan verði „mjög óvægin" að þessu sinni. Völ- van segir enn fremur: „Það munu verða breytingar á sætaskipan manna á listum svo um munar.“ Hún víkur ögn að ráðherra- málum hjá Sjálfstæðisflokkn- um eftir kosningar og segir: „1 Sjálfstæðisflokki verða ráð- herrar útnefndir af þriggja manna nefnd, sem formaður flokksins skipar. Ég sé aðeins tvo af núverandi ráðherrum þess flokks í þessari útnefn- ingu, formann flokksins, Þorstein Pálsson, og Ragn- hildi Helgadóttur." Enginn Albert nefndur þar. Höfuðvígi allaballa Algjör glundroði ríkir nú í pólitíkinni. Eins og glöggt kom fram í síðustu skoðana- könnun DV skipta menn nú um flokka eins og sokka. Að undanfömu hefur meira að segja verið spáð í hvort höfuðvígi Framsóknar í Norð- urlandi eystra væri að hrynja til grunna. Hefurýmislegt þótt benda til þess að sérfram- boð Stefáns Valgeirssonar hafi ekki haft góð áhrif á blóð- rennslið í félagshyggjufólkinu þar nyrðra. Heyrðust meira að segja raddir um að allaball- ar væru að leggja kjördæmið undir sig. En nú telur Framsókn sig ekki þurfa að óttast Alþýðu- bandalagið. Það var nefnilega svo að allaballar efndu til ár- ans mikillar baráttusamkomu í Sólgarði á dögunum. Þar mættu þrír frummælendur svo og maður til að leiða sam- kunduna og stjóma umræð- um. Þær urðu hins vegar af skomum skammti því fundar- gestir vom ekki nema fjórir. Amerísk barátta Búast má við að kosninga- baráttan, sem hafin er, verði nokkuð ólík því sem þekkst hefur fyrir alþingiskosningar til þessa. Nú verður barist á ameríska vísu. Er þegar farið að örla á þessu og þá að sjálf- sögðu í Borgaraflokki Alberts Guðmundssonar. Má búast við að hinir flokkarnir tileinki sér líka ameríska takta ef þeir gefast vel hjá Albert. Þessi nýja aðferð kom ber- lega í ljós á sameiginlegum framboðsfundi flokkanna á Hvolsvelli um daginn. Þar mætti Helena Albertsdóttir ásamt friðu föruneyti. Þegar fundurinn hófst kom í ljós að þama var á ferðinni þraut- þjálfað klapplið sem smellti Helena Albertsdóttir. saman lófum á réttum stað og stundu. Eitthvað munu Alberts- menn hafa gert af því að hringja í kollega sína í Suður- landskjördæmi og biðja þá að koma og klappa á fundinum. Mættu þeir og ræktu hlutverk sitt mætavel. Þessir lófaskellir fóm svolítið fyrir brjóstið á einum ræðumanni kvöldsins, Áma Johnsen. Tilkynnti hann að hann myndi ekki láta fá- mennt klapplið tmfla ræðu sína. En það er ekki séð fyrir end- ann á þessari nýstárlegu aðferð... Öngstrætiö Það hefur margt skrýtilegt skotið upp kollinum í fjöl- miðlahasar þeim sem staðið hefur yfir undanfama daga. Fólk ræðir ýmislegt sem því hefur komið á óvart í ham- forunum. Einkum virðist fréttastofuundur ríkissjón- varpsins hafa komið mönnum í opna skjöldu vegna þeirra viðbragða sem skutust upp á yfirborðið þar. Óánægjuraddir heyrðust fljótlega í kjölfar rabbþáttar Ingva Hrafns og Halls Halls- sonar með Albert Guðmtmds- syni. Þóttu fréttamennimir sýna viðmælandanum full- mikla samúð og hluttekningu. Ingvi Hrafn JónsSon. Einstaklingar í útvarpsráði vom eitthvað óhressir með þáttinn og var það sjónarmið rætt á fundi ráðsins. Ingvi Hrafn sá þó ekki ástæðu til að vera að ansa þvf kroppi. Það var ekki fyrr en tekið var í svipaðan streng í Reykja- víkurbréfi Morgunblaðsins að fréttastjórinn sá ástæðu til að taka mark á athugasemdun- um. Hugleiddi hann að segja af sér en sendi svo út yfirlýs- ingu úr sumarbústað sínum í Borgarfirði um málið. Sagðist hann ekki ætla að ansa Mogg- anum sem lent hefði í „faglegu öngstræti." Varð þá einhveij- um snillingnum að orði að í þeirri götu hefðu þeir þá lík- lega hist, fréttastjórinn og Morgunblaðsmenn. Hvað um það, fjölmargir eru óhressir með þessa sérstöku tillitssemi fréttastjórans við Morgunblaðið. Sé engu líkara en að það sé Moggi en ekki útvarpsráð sem telji sig hafa foðurlega umsjá þar innan dyra. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir Islenskir songvar íslenskir söngvar, hljómplata i útgáfu is- lenskrar tónverkamiðstöðvar. ITM 5-07. Rytjendur Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður Ingvi Snorrason. Tónmeistarí: Bjami Rúnar Bjamason. Hljóðmeistari: Vigfús Ingvarsson. Kápa og bæklingur: Erlingur Páll Ingvarsson. Skurður og pressun: Teldic Hamburg. Það er líkast til vandinn mestur að velja þegar setja ó saman efni á söng- plötu sem dæmigerð skuli teljast fyrir nútímalega sönglagagerð á Islandi, jaíhvel þótt aðeins sé um einsöngslög að ræða. Margir kunna tónsmiðir að þykja sjólfskipaðir á slíka plötu. En þótt býsna þétt sé pakkað á umrædda plötu, eða fast að einnar klukkustund- ar söng, kemst samt ekki nema takmarkað úrval fyrir á henni. Tónlist Eyjólfur Melsted Mér þykir valið þó hafa tekist harla vel. Ekki veit ég gjörla hvort neinum einstökum er að þakka, en geri ráð fyrir að þar hafi róðið smekkur flytj- endanna og að góð ráð útgáfústjómar flotið með. Það eitt að gæði plötunnar skuli vera sambærileg við aðrar plötur í þessum flokki vitnar um þá vand- virkni sem lögð er í tæknihliðina. Að mega sækja í sjóðinn En annað er það sem maður rekur augun í, og gleður að sjálfsögðu eyrað líka, og það er við hve gegnumvandað- an kveðskap lögin em samin. Þó breyting hafi orðið á síðan gömlu meistaramir allt að því kepptust við að gera leirburð ódauðlegan með snjallri músík sinni, þá hygg ég að íslensk tónskáld njóti forréttinda að geta kafað ofan í annan eins ljóðafjór- sjóð og við eigum og alltaf er að bætast i. Ekki bara eyrnaormana Þau sóma sér þama harla vel hvert með öðm, Atli Heimir, Jórunn Viðar, Jón Þórarinsson annars vegar og hins Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona. vegar Páll Pampichler Pálsson, Fjölnir Stefánsson, Snorri Sigfús Birgisson og Þorkell Sigurbjömsson. Sérstaklega þykir mér vænt um að lög Jómnnar skuli vera þama með. Mér finnst oft að Sigvaldi Kaldalóns hafi einn verið jafnoki hennar í að stíla sönglög sin svo „absolut" inn á mannsröddina. Einnig er það svolítið sérstakt að Ólöf Kolbrún skuli velja þau af Ljóðakom- um Atla Heimis sem ekki hafa náð jafh skjótt að bora sig inn i hlustir, en standa eymaormunum i engu að baki. Magnsins vegna Ástarljóð Hannesar Péturssonar öðlast fagurgerðan ramma hjá Páli Pampichler og Ljóðasveigur Þorkels Sigurbjömssonar við kvæði Jóns úr Vör úr Þorpinu held ég að hafi fest sig sem klassík í íslenskri ljóðsöngva- gerð. Það kann að vera magnsins vegna að mér finnst þessi plata ekki hitta jafn vel í mark og systur hennar í flokknum. Að minnsta kosti kemur hvorki til greina að kenna flytjendum né einstökum efhisþáttum á plötunni um. Þar er allt á sama veg og með tæknivinnuna sem getið var um fyrr - alúð og metnaður lögð í verk og árangur eftir því. EM Atvinnuinál Vestmannaeyjar: Þórunn VE hefur landað 1000 tonnum Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum: Þómnn Sveinsdóttir VE landaði á laugardag 33 tonnum af þorski og var þar með búin að fá rúmlega 1000 tonn frá því að vertíð hófst. Þórunn. sem er á netaveiðum, byrjaði vertíðina 23. janúar og var fyrstu dagana á snur- voð. I snurvoðina fékk hún 130-140 tonn af langlúru en 9. mars byrjaði skipið á netaveiðum. Sigurjón Óskarsson skipstjóri, sem oft hefur verið aflakóngur á vertíðum í Eyjum, sagði í viðtali við DV að þetta hefði verið mesti afli sem hann hefði fengið á ekki lengri tíma, eða rúmum tveim mánuðum. Annars sagði hann að vertiðin einkenndist af því að þorskur gengi ekki á grunnslóð og það væri svipað og verið hefði á vertíð- inni í fyrra. Stærstu róðrar á vertíðinni sagði hann að hefðu verið ufsaróður. þar sem þeir fengu 74 tonn. og seir.na hefðu þeir fengið 73 tonn af þorski í einum róðri. Enn er rúmur mánuður eftir af ver- tíðinni og ef svo heldur fi-am sem horfir mun þetta verða góð vertíð hjá þeim á Þórunni. Suðurev VE er með næstmestan afla báta í Vestmannaeyj- um. 7-800 tonn. Katrín VE er með afla á bilinu 6-700 tonn og aðrir með minna. Vetrarvertiðin: Lélegar gæftir og lítill afli Heldur er dauft hljóð í mönnum á helstu vertíðarstöðvunum um þessar mundir. Bæði hefur veður verið rysj- ótt og þegar gefið hefúi- á sjó hefur afli verið tregur. Eina undantekningin hvað afla varðar er á Snæfellsnesi. þar er afli sæmilegur þegar gefur. Þó er aflinn á Rifi um þúsund lestum minni á vertíðinni miðað við sama tíma í fyrra. I fyrra var einmuna tíð alla ver- tíðina en gæftaleysi hefur verið mikið það sem af er marsmánuði. I Grindavík var þungt hljóð í mönn- um. Vikuafli netabátanna i síðustu viku var aðeins á milli 20 og 30 lestir enda veður rysjótt og minni bátamir komust lítið á sjó. Það litla sem aflað- ist var fallegur fiskur eða þetta 5 til 7 kílóa þorskur. Bæði í Þorlákshöfn og Vestmanna- eyjum var dauft hljóð í mönnmn. V'kuaflinn í Þorlákshöfh var 1172 lestir á 47 báta. Fór saman leiðinlegt veður og lítill afli þegar gaf á sjó. Afla- hæsti báturinn i Þorlákshöfh á vertíð- inni er Höfrungur 3. ÁR með 572 lestir. í öðru sæti er Friðrik Sigurðsson ÁR með 562 lestir og í þriðja sæti er Jó- hann Gíslason ÁR með 537 lestir og fjórði Þorleifur Guðjónsson með 531 lest. ..Þetta er ósköp dapurt hjá okkur," sagði Torfi Haraldsson í Vestmanna- eyjum og bætti því við að vertíðin það sem af væri hefði verið léleg og mun lakari en i fyrra. Sagði Torfi að saman færi gæftaleysi og lítill afli þegar gæfi nema hjá netabátum sem sæktu lengst austur eftir. I síðustu viku hefði verið óróasamt á þeim miðum. bæði straum- ur og vont veður. -S.dór Fiskmarkaðimir: Enn er lágt verð á þýska markaðnum Enn er verðið lágt á þýska fiskmark- aðnum. Vigri RE seldi í gær 326 lestir af ufsa og karfa í Þýskalandi og fékk meðalverð 47,19 krónur fyrir kílóið. Ymsir bundu vonir við að fiskverð myndi hækka á föstunni en svo virðist ekki ætla að verða og er lítil eftir- spum eftir fiski á þýska markaðnum. Betra verð fæst í Bretlandi. Otto Wathne seldi í Grimsby í fyrradag og fékk 61,75 krónu meðalverð fyrir afl- ann. Mikill smáfiskur var í aflanum og verðið því lægra en ella. -S.dór Isafjörður. Góður þorskafli Bjami Guðmarsson, DV, Ísafirði: Þorskafli togara hefur að undan- fómu verið mjög góður. Hafa þeir komið að landi með 110-140 tonn eftir stutta útiveru og hefur nokkuð af því jafnan farið í gáma. Þá hefur afli línubáta einnig verið nokkuð góður þegar gefur. Línubát- ar hafa aðallega fengið steinbit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.