Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987. Dægradvöl Keilarar Keila er íþrótt sem lengi hefur ver- ið iðkuð víða erlendis við miklar vinsældir, ekki síst í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þessi íþrótt hefur ekki verið stunduð hérlendis að neinu marki fyrr en fyrir rúmum tveimur árum að aðstaða til þessa var opnuð í Öskjuhlíðinni í Reykja- .vík. í innliti í Keilusalinn síðastliðið mánudagskvöld var margt um mann- inn og allar átján brautir salarins fullskipaðar. Þar var einnig fólk í billiard eða ballskák eins og sumir kalla það og einn hópur æfði sig í golfherminum. Ekkert kynslóöabil Guðný og Asgeir Heiðar sjá um starfið í Keilusalnum og spila að sjálfsögðu bæði keilu. Þau sögðu að það sem væri sérstakt fyrir keiluna væri það að hana gætu allir verið saman um að spila, það væri ekki flokkað eftir aldri eða kyni, heldur væri einmitt mikið um að hópar tækju sig saman um að mynda lið sem mætti reglulega til að spila. Það er þess vegna alveg tilvalið fyrir fjölskyldur að spila saman og reyndar er töluvert mikið um það og Guðný og Ásgeir nefna að allt tal um kynslóðabil fjúki út í veður og vind þegar fólk kemur saman og spil- ar keilu. í keilunni geta allir náð árangri og það er ekki bundið við neina ákveðna aldurshópa. Öll heiti íslenskuð í byrjun Það vakti strax athygli, þegar stað- urinn var opnaður, að eigandinn, Jón Hjaltason, kom orðinu keila á framfæri í stað þess að nota erlenda orðið bowling og er svo nú að orðið keila er notað. Síðan var bætt um betur og fyrir öll orð viðvíkjandi keiluíþróttinni voru fundin íslensk orð um leið og staðurinn var opnað- ur. Þýðingin þykir hafa tekist vel hjá Boga Arnari Finnbogasyni og Jóni Hjaltasyni og mörg þeirra eru notuð í dag enda halda starfsmenn- irnir íslensku heitunum á lofti og reyna að forðast enskuslettur. Ensku orðin þykja jafnvel hallærisleg í dag miðað við þau íslensku. Sem dæmi um nýyrði má nefna að keilari er leikmaður í keilu, amlóði er sá sem fæst stig fær í tveggja liða keppni og bikkja er sú keila sem ekki fæst til að falla. Með hæstu skor í kvennaliðinu. Svava Johansen og Ásgeir Johansen stunda keiluna reglulega. Keila og félagsskapur Yfirleitt er keila leikin í liðum með fimm eða fleiri aðilum og oft vill svo verða að hópurinn heldur saman svo árum og áratugum skiptir. Leikmenn eru flestir sammála um að það sem keilan hafi umfram aðrar íþróttir sé félagslegi þátturinn sem er stór hluti af leikgleðinni. Einn hópurinn, sem hefur fasta tíma á mánudagskvöldum, er skipað- ur þeim Þorsteini, Inga, Hermanni og Þór og hafa þeir mætt síðan stað- urinn var opnaður. Þeir eru allir meðlimir í hjónaklúbbi sem nefnir sig Villtir fætur og því fannst þeim tilvalið að kalla keiluhópinn, sem þeir skipa, Villtar hendur en það er einmitt venja að hóparnir nefni sig viðlíka nöfnum. Meðlimir Villtra handa sögðu keiluna vera ómissandi hluta af tilverunni og alveg ákjósan- legt að mæta í keilu á meðan konurnar væru í saumaklúbb, en fyrst og fremst væru þeir í þessu vegna félagsskaparins og kunningj- anna. Kvennalið í keilu Kvennalið í keilu ber nafnið Ball- lið og æfir það af kappi á hverjum sunnudegi. Sú sem á hæstu skor kvenna í liðinu er Svava Johansen og var hún mætt á mánudagskvöldi til að spila keilu með bróður sínum, Ásgeiri, og að sögn þeirra er öll fjöl- skyldan á kafi í keilunni og jafnan væru þau sex í hóp. Þau sögðu að það ríkti góður mórall hjá keilurun- um í salnum og að keilan væri skemmtileg íþrótt. Á einni brautinni var ein fjölskylda saman komin til að spila og sögðu hjónin Þorsteinn og Anna að þau kæmu þarna saman ásamt kunn- ingjafólki sínu. Sögðu þau þetta vera eitt besta fjölskyldusportið til að stunda innivið, a.m.k. yfir veturinn. í sumar tæki svo sumarbústaðurinn og hestamennskan við. Bömin þeirra, Margrét og Skapti, sögðu keiluna vera æðislega skemmtilega og þegar börn eiga í hlut fá þau létt- ari kúlu en fullorðnir og kúlumar em holaðar samkvæmt stærð hand- arinnar. Golfhermir Á meðan golfvellir eru á kafi í snjó eða veður hamlar útiveru, er hægt yfir vetrartímann að halda sér í formi og aðrir spilarar Félagarnir í keiluhópnum Villtar hendur: Þorsteinn, Ingi, Hermann og Þór. Ásamt keilunni taka menn öðru hvoru í billiard t * ilflp * ] , |MM|m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.