Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987. Andlát w Sölvi Ingólfsson, Fögrukinn 8, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju, fimmtudaginn 2. apríl kl. 13.30. Ólafur Rósinkarsson lést 24. mars sl. Hann fæddist 28. september 1917. Eftirlifandi eiginkona hans er Sölv- eyja Jósepsdóttir. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Síðustu árin vann Óli í rækjuverksmiðjunni O.N. Olsen. Útför hans verður gerð frá ísafjarðarkirkju í dag kl. 14. Gréta Kristjánsdóttir Rasmussen lést 24- mars sl. Hún var fædd í Holbæk í Danmörku 31. mars 1937. Foreldrar hennar voru Karl Kristian og Dorathea Carla Rasmussen. Gréta kom til íslands 1957 og kynntist skömmu síðar eftirlifandi eigin- manni sínum, Garðari Finnbogasyni. Þeim hjónum varð fimm barna auð- ið, en misstu einn son á fyrsta ári. Útför Grétu verður gerð frá Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 15. Ólafur Gíslason, Súðavík, lést í Landakotsspítala sunnudaginn 29. mars. Minningarathöfn verður í kap- ellunni í Fossvogi fimmtudaginn 2. apríl kl. 15. Útförin fer fram frá Súða- víkurkirkju og verður hún auglýst , síðar. Bálför Eyjólfs R. Árnasonar, Eski- hlíð 14, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. apríl kl. 10.30. Grétar Jóhannesson, Eiríksgötu 19, lést í Landakotsspítala 31. mars. Guðmundur Guðjónsson, Páls- húsum, Garðabæ, lést 30. mars á St. Jósepsspítala, Hafnarfirði. Jón Sigurðsson frá Hópi í Grinda- vík, Austurbrún 4, verður jarðsung- inn frá Grindavíkurkirkju laugar- daginn 4. apríl kl. 13. Margrét Þorsteinsdóttir fyrrum húsfreyja á Hallanda, Hraungerðis- hrepp í Flóa, Þinghólsbraut 35, andaðist 22. mars. Útförin hefur farið fram. Flóamarkaður Söngfélag Skaftfellinga verður með kökubasar í Blómavali við Sigtún sunnudaginn 5. apríl og hefst kl. 13. Á boðstólum verða góðar heimabakað- ar kökur. Kórinn ætlar að fara í söngferð í Vestur-Skaftafellssýslu í byrjun maí og ætlar að afla sér farareyris með þessu. Fundir Skólamálaumræöa KHÍ • Á næstunni verður efnt til umræðu á veg- um KHl er tengist skólastarfi, kjaramálum og menntun kennara. Fyrirlestramir verða haldnir á fimmtudögum. Þeir hefjast kl. 15.15. Að fyrirlestri loknum fara fram umræður í kaffistofu stúdenta þar sem 3. árs nemar sjá um veitingar. Umræðum mun jafnan Ijúka kl. 17. Tveir fyrirlestrar verða í vor: 2. apríl: Úr kennaraskóla í kennarastarf- úr öskunni í eldinn. Hvem- v ig skila kennaranemar sér til kennslu- starfa að námi loknu? Hvers konar leiðsögn og stuðning fá kennarar, sem hefja störf í íslenskum skólum? Frummæl- andi: Sigurjón Mýrdal kennslustjóri. 30. apríl: Starfsmenntum kennara og kjara- mál. Kalla nýir þjóðfélagshættir á breytta skilgreiningu kennarastarfsins? Umræða sem snertir kennara og kennaranema. Frummælandi: Stella Guðmundsdóttir skólastjóri. Ráðgert er, í samvinnu við Kennarasamband Islands, að efna til síð- degisráðstefnu í maí nk. um efnið: Skóla- stefna á íslandi í ljósi OECD-skýrslunnar. Nánari upplýsingar um tilhögun og tíma- setningu þeirrar ráðstefnu koma síðar. Fundur Kvenfélag Hallgríms- kirkju verður haldinn fimmtudaginn 2. apríl kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Hró- bjartur Darri Karlsson segir frá ferð sinni til Suður-Ameríku. Upplestur, létt efni, kaffi og að lokum hugvekja sem sr. Pétur Ingjaldsson flytur. Konur eru hvattar til að mæta og taka með sér gesti. Messur Hallgrímskirkja Föstumessa í kvöld kl. 20.30, sameiginleg með Ássöfnuði. Sr. Árni Bergur Sigur- bjömsson predikar. Kór Áskirkju syngur, organisti Kristján Sigtryggsson. Kvöld- bænir eru í Hallgrímskirkju alla virka daga nema laugardaga kl. 18. I gærkvöld Andrés Indriðason rithöfundur Frísklegar fréttir á Stöð 2 Mitt uppáhaldsfólk í sjónvarpinu um þessar mundir eru sómahjónin George og Mildred. Þau brugðust ekki í gærkveldi frekar en endra- nær. Að þeim slepptum var ekkert sem togaði sérstaklega í mig í Ríkis- sjónvarpinu í gærkveldi. Ég hef ekki fylgst með Svarta tuminum, nenni sjaldan að hanga yfir svona vana- bindandi þáttum. Oftast kíki ég á fréttimar og þá yfirleitt á Stöð 2 af því að þær em á undan og eins vegna þess að mér finnst þær frísklegri en í Ríkissjónvarpinu. Auk fréttanna sá ég á Stöð 2 þáttinn 1 návígi þar sem fjallað var um þátt fjölmiðlanna í hinu pólitíska umróti líðandi stundar. Þama vom valinkunnar skraískjóður og fannst mér Ingvi Hrafn komast sterkastur úr út karp- inu þó að saumað væri að honum, hinir hafa -verið á valdi tilfinning- anna í frægum spjallþætti við Albert á dögunum. Hann er svo sannarlega ekki að vera með höfúðið undir handarkrikanum þó að hann hafi verið mjúkur í þeim þætti. Frétta- mennska má ekki verða svo hörð og óvægin að hinn mannlegi þáttur Andrés Indriðason. verði alveg útundan. Þorbjöm Broddason sagði mikið atriði að fólk gæti treyst ljósvakamiðlinum og borið virðingu fyrir honum. Ég tek undir það. Mér finnst þættir eins og í návígi sýna og sanna að Stöð 2 er lifandi sjónvarp í takt við tímann. Það er líka margt gott um Ríkissjónvarpið að segja, þó hefur innlenda dag- skrárgerðin verið með dræmara móti í vetur. Þættir eins og í takt við tímann hafa aldrei náð sér á strik. Það sem hefúr heppnast sem best í vetur er framkvæmd söngva- keppninnar. Það var vel að henni staðið núna og sigurlagið verður okkur ömgglega til sóma í Brússel, svona notalega yfirlætislaust. Til hamingju Valgeir. Tilkyimingar Flotbjörgunarbúningar keypt- ir í fiskiskip Sl. föstudag undirskrifaði Innkaupadeild Landssambands ísl. útvegsmanna kaup- samning á flotbjörgunarbúningum til notkunar um borð í fiskiskipum félaga samtakanna við danska fyrirtækið A/S nordisk Gummibádsfabrik í Esjberg. Samningurinn nær yfir 3.400 stk. auk kaupréttar á frekari 1.600 stk. Útboð á búningunum var sent til 14 tilbjóðenda, sem buðu 19 mismunandi búninga. Allir þessir búningar höfðu hlotið viðurkenn- ingu Siglingamálastofnunar ríkisins. Við mat á tilboðum var haft mjög náið sam- starf við Slysavarnafélag íslands, Sjó- mannasamband Islands og Farmanna- og fiskimannasamband Islands. Við endan- legt val var haft að leiðarljósi að taka þann búning, sem flestir gætu fellt sig við og uppfyllti þau skilyrði best sem gera verður til slíkra búninga, þ.e. með eins mikla flothæfni og hitaeinangrunargildi og frekast er kostur. Mikil áhersla var lögð á það atriði að pökkun búninga í upphafi væri þannig úr garði gerð að end- ing þeirra væri tryggð að lágmarki 5 ár án skoðunar. Með þessu einu sparast út- gerðinni verulegir fjármunir. Tilgangur LÍÚ og félaga þess með þessu framtaki, er að tryggja, sem best má vera, öryggi sjómanna okkar sem iðka störf sín af mik- illi elju og samviskusemi við hvað hættu- legustu aðstæður sem þekkjast í íslensku atvinnulífi. Málstofa heimspekideildar Næsta erindi verður fimmtudag 2. apríl kl. 16.15 í stofu 301 í Árnagarði. Þá ílytur Magnús S. Magnússon sagnfræðingur er- indi sem nefnist „Nýsköpun atvinnulífs 1880-1930“. Að loknu errindi verða um- ræður. Öllum er heimill aðgangur. Styrkir til unglingaþjálfara I ár, eins og á undanfömum árum, mun Iþróttasamband Islands veita styrki til unglingaþjálfara sem hyggjast sækja nám- skeið erlendis. Að þessu sinni verða veittir 3 styrkir að upphæð kr. 25.000 hver. Um- sóknir um styrki þessa þurfa að vera á sérstökum eyðublöðum sem send hafa ve- rið héraðs- og sérsamböndum og eru einnig til í skrifstofu ÍSÍ. Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Kökusala Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur köku- sölu laugardaginn 4. apríl kl. 15 í safnaðar- heimili kirkjunnar. Þess er vænst að félagskonur og aðrir velunnarar kirkjunn- ar gefi kökur. Tekið verður á móti kökunum milli kl. 13 og 14 á laugardag í safnaðarheimilinu. Kvenfélag Laugarnessóknar ákvað á síðasta fundi að í stað afmælis- fundar fjölmenntu félagskonur í kvöldverð á Hótel Sögu fostudaginn 3. apríl kl. 19. Nánari upplýsingar hjá Lilju s. 34228, Erlu s. 34139 eða Jónínu s. 32902. Tónlist Músíktilraunir ’87 Bylgjan og Tónabær munu nú á næstu dögum standa fyrir Músíktilraunum ’87 og eru þær hugsaðar sem tækifæri fyrir unga tónlistarmenn til að koma á fram- færi verkum sínum. Mikil áhugi er nú á lifandi tónlist og hefur 21 hljómsveit til- kynnt um þátttöku. Músíktilraunir 1987 verða haldnar á fimmtudagskvöldum í Tónabæ sem hér segir. 2. apríl, 9. apríl, 23. apríl, og úrslit verða síðan 24. apríl. Á hveiju þessara tilraunakvölda koma fram 7 tilraunahljómsveitir og flytur hver þeirra 4 frumsamin lög. Þær hljómsveitir sem skipa svo efstu sætin í keppninni fá í verðlaun stúdíótíma auk glæsilegra verð- launa frá hljóðfæraverslunum Steina v/Skúlagötu, Paul Bemburg og Rín. Á fyrsta tilraunakvöldinu, 2. apríl, koma fram: Illskásti kosturinn frá Laugarvatni, Saffó frá Garðabæ, Kvass frá Stykkis- hólmi, Skóp frá Sandgerði, Forté frá Stykkishólmi, Sogblettir úr Reykjavík og Skræpótti fuglinn frá Samvinnuskólanum á Bifröst. Gestir kvöldsins verða Rauðir fletir. Ljóðatónleikar í Bústaða- kirkju John Speight barítonsöngvari og Svein- björg Vilhjálmsdóttir píanóleikari halda tónleika í Bústaðakirkju fimmtudaginn 2. apríl kl. 20.30. John og Sveinbjörg hafa haldið fjölda tónleika á undanfornum ámm víða um land. Nú þegar hafa þau haldið tónleika á Akranesi og í Njarðvík. Á efnisskránni eru lög eftir Beethoven, m.a. An die feme Geliebte og lög eftir Vaughan-Williams, m.a. lagaflokkurinn Songs of travel. Einleikaraprófstónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur tvenna einleikaraprófstónleika í Austur- bæjarbíói 2. og 3. apríl nk. Fimmtudaginn 2. apríl verða tónleikar Þórhildar Björns- dóttur píanóleikara og hefjast þeir kl. 19. Þórhildur leikur verk eftir: Bach-Busoni, Beethoven, Chopin Debussy og Sjostako- vitsj. Föstudaginn 3. apríl verða píanótón- leikar Þórarins Stefánssonar og hefjast þeir kl. 19. Þórarinn leikur verk eftir: J.S. Bach, Beethoven, Debussy og Chopin. Þessir tónleikar em hluti af einleikara- Hjálpum prógrammi Mrs. I. Kancheya í Zambíu Þessi zambíska kona hefur hætt launuðu starfi sínu hjá Hjálparstarfsemi KFK í Lusaka til að setja á stofn prógramm fyrir stúlkur í sínu héraði. Þetta prógramm er fyrir stúlkur sem af ýmsum ástæðum hafa hætt í skóla og eru atvinnulausar. Irena og fjölskylda hennar eiga lítinn bóndabæ fyrir utan Lusaka. Þangað koma til henn- ar stúlkur úr héraðinu til að læra að ■ sauma svo þær geti væntanlega séð fyrir sér með saumaskap. Vill ekki einhver láta af hendi saumavél til þessarar starfsemi. Einnig er hægt að veita aðstoð með því að senda pakka af fatnaði í pósti. Heimilisfang Irena Kanchenja er: Donation to the schoolgirl drop-out pro- gram c/o Mr. Mrs. Kancheya Price and Income Commission P.O. box 30707, Lusaka, Zambia. Ef óskað er nánari upplýsinga, vinsamleg- ast hringið í síma 33137 (Margrét). prófi Þórarins og Þórhildar en þau munu ljúka prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík í vor. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Afenæli 90 ára er í dag, 1. apríl, Guðmundur Matthíasson, Lönguhlíð 3, Reykja- vík, fyrrum bóndi að Óspaksstöðum í Hrútafirði. Afmælisbamið tekur á móti gestum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar að Bugðulæk 13 eftir kl. 18. Fíkniefni um borð í ísbeiginu Fíkniefnalögreglan leitaði að fíkniefnum um borð í flutningaskip- inu ísbergi en það liggur nú í Hafnarfjarðarhöfn. Eitthvert magn fíkniefha mun hafa fúndist og í morgun voru hafitar yfirheyrslur yfir skipverjum hjá fíkniefnalögregl- unm. I morgun var ekki hægt að fá nein- ar upplýsingar um þetta mál hjá fíkniefnalögreglunni um hvaða fíkniefni hér væri að ræða eða hve margir tengdust málinu Við leit tollvarða í skipinu fannst lítið af smygli, 30 bjórkassar og eitt- hvað af vodka og skinku en ísbergið var að koma frá Grimsby hingað en hafði áður haft viðkomu í Bremer- haven og Rotterdam. -FRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.