Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Qupperneq 37
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987.
37
„Óskar -
húrra!"
Framieiðandi Piatoon myndarinnar
var i sjöunda himni þegar óskarnum
var úthlutaö að þessu sinni enda
með einn slikan i góðu gripi. Arnold
Kopelson með þann margfræga
gyllta karlmannsbúk en hann féll i
hans hendur þegar Platoon var valin
besta kvikmynd ársins að þessu
sinni.
Simamynd Reuter
Sviðsljós
Safnvörður sýnir rammana sem voru utan um málverkin sem stolið var
frá listasafninu í Argentínu. Listaverkin eru metin á tiu milljónir dollara.
Símamynd Reuter
Stuldur á Goya og
öðrum afreksmönnum
Málverkum eftir Goya, E1 Greco
og fleiri listmálara hefur verið sto-
lið úr listasafni í Argentínu og þau
eru metin á tiu milljónir dollara.
Þjófarnar bönkuðu á hliðardvr
listasafnsins í Rosario, sem er 310
kílómetra fyrir norðan Buenos Air-
es, og beindu byssu að gæslumann-
inum. Þeir hurfu á brott með tvö
málverk eftir Goya, tvö eftir Vero-
nese, eitt eftir Tiziano og Guð-
spjallamanninn eftir E1 Greco.
Listasafnið var byggt fyrir fimmtíu
árum og hafði engu þjófavarnar-
kerfi verið komið fyrir í húsinu.
Þjófarnir skáru sundur símasnúrur
í safninu. að sögn lögreglunnar.
Virðist sem þjófnaðurinn hafi
verið framinn af atvinnumönnum
þar sem augljóst er að vanir hand-
verksmenn tóku málverkin úr
römmunum. Ekkert vafstur á
staðnum heldur gengu þeir beint
að málverkunum og voru fljótir að
athafna sig og hverfa af vettvangi.
Rússatíska í
eplaborginni
Rússarnir eru komnir alla leið til New York og gera meðal annars
innrás í tiskuheiminn. Rautt þema skal það líka vera þvi sovésku hönnuð-
irnir
Vladimir Chopinov og Faina Menyuk sýna rauðan ullarjakka með hettu
og svart pils á kynningu sinni á tisku næsta vetrar. Endaskipti virðast
ofarlega á blaði þannig að ef til vill verður Nancy bráðlega á vappi um
ganga Hvita hússins iklædd rússnesku vaðmáli - sem mótvægi við
Raisu umvafða tittnefndum evrópskum hátiskuplöggum.
Simamynd Reuter
Ólyginn
sagði...
Hans heilagleiki -
krókódíllinn
Þetta er ekkert unglamb sem fær hér blíðlegt klapp frá gæslumanninum,
vini sínum í Pakistan. Krókódíllinn er orðinn áttatíu ára gamall en þarf
þrátt fyrir hrumleikann litlar áhyggjur að hafa af daglegu amstri og afkomu.
I tilefni hátíðar, sem afkomendur Afríkumanna i Pakistan - Sheedimenn -
halda árlega, var rósakrans hengdur um háls þessa heilaga krókódíls og
honum að auki færðar fórnir. Hrátt kjöt er efst á vinsældalistanum og er
það talið gæfumerki ef Króki tekur til matar sins en hreinasta hörmung
ef hann fúlsar við fóðrinu. Símamynd Reuter
Liz Taylor
er alveg orðlaus um þessar
mundir og þykir það svo sannar-
lega saga til næsta bæjar. Sá
sem vann það afrek að þagga
rækilega niður i kerlu er Lynn
Redgrave enda mun hún þekkt
fyrir allt annað en linkulegan
málflutning. Stöllurnar voru
önnum kafnar við að afhenda
gagnrýnendaverðlaun i epla-
borginni ógurlegu þegar Lynn
kom því hressilega á framfæri
að fyrir nákvæmlega tuttugu
árum hefði Liz gerst svo gróf
að láta sig vanta á sambærilega
samkomu. Viðstaddir fengu
meiningu Lynn á slikri fram-
komu nákvæmlega afgreidda
með kröftugu orðbragði og að
þessu sinni átti Liz hreinlega
ekki orð til varnar. Kunnugir spá
uggvænlegri hrinu úr þeirri átt-
inni síðar.
Diana prinsessa
svaraði næturklúbbasólói Kalla
á einum slíkum alvörustað fyrir
nokkrum dögum. Hún smellti
sér til plötusnúðsins og bað
hann að brenna Chain P.eaction
með Diönu Ross á fóninn. Að
því fengnu ýtti hún Kalla prmsi
snyrtilega út I næsta horn og tók
geggjað rokksóló á dansgólfinu.
Erfðadúlla Bretaveldis þorði
hvorki að æmta né skræmta
þarna i skammarkróknum en
gestir staðarins ætluðu hreint
óðir að verða í fagnaðarlátunum
sem skullu yfir eftir að Di hætti
að snúast. Sagt er að stjúpan
góða i Öskubusku hefði ekki átt
nokkurn möguleika i hálfan
hring með þeirri rokkóðu Breta-
kvensu.
Brooke Shields
á í miklum erfiðleikum með hið
gagnstæða kyn - karlmennina.
Skólafélagarnir vestra hafa það
á hreinu að slíkur kvenmaður
sitji uppi með þúsundir boða á
hverju kvöldi og jarða þvi alla
drauma um Brooke jafnóðum
og þeir láta á sér kræla. Þvi situr
sú fagra vera ein heima flest
kvöld - illilega án nokkurs karl-
mannsbúks í nágrenninu - og
segist neydd til að taka hvaða
hallærisgutta sem bara léti í sér
heyra. Það er kannski reynandi
fyrir íslenska afreksmenn að taka
vélina vestur?