Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987. Fréttir Vestmannaeyingar í árangurslausri innkaupaferð: Loftpúðaskipið var innrásarprammi „Þegar við komum út varð okkur ljóst að það eru aðrir möguleikar betri. Svifriökkvinn, sem okkur var sýndur, var óyfirbyggður prammi ætlaður til þungaflutninga fyrir bandaríska herinn," sagði Pálmi Lórenzson, veitingamaður í Vest- mannaeyjum. Hann er nýkominn heim úr ferð til Bandaríkjanna við þriðja mann þar sem ætlunin var að leigja eða kaupa loftpúðaskip til far- þegaflutninga milli lands og Eyja. Samkvæmt heimildum DV var svifnökkviim er Pálma og félögum var boðinn í Bandaríkjunum hann- aður sem innrásarprammi en ekki til fólksflutninga. Varð því ekkert af kaupunum. „Nú höfum við augastað á enskum loftpúðaferjum sem þegar eru í notk- un víða í Evrópu. Slíkar ferjur kosta um 100 milljónir króna og taka um 100 farþega. En þessi kaup öll verður að athuga vandlega áður en í verður ráðist," sagði Pálmi. Hugmyndin er að láta loftpúða- skipið sigla fiá Vestmannaeyjum beint yfir á sandana í landi. Þá hefur sú hugmynd einnig skotið upp koll- inum að láta loftpúðaskipið halda áfram upp Markarfljót að Markar- fljótsbrú þar sem yrði endastöð. í för með Pálma Lórenzsyni til Bandaríkjanna voru Jón Eyjólfsson, skipstjóri á Heijólfi, og Siguijón Ásbjömsson, umboðsmaður svif- nökkva. -EIR Anægðir Sómabátaeigendur, 3 þeirra í óðaönn að Ijúka við smiði báta sinna. Þeir eru f.v.: Stefán Helgason, Páll Guðmundsson, Kristján Jónsson og þeim til hægri handar er Gunnar Þór Þórarnarson. Hann er Sómaeigandi sem i landlegum gengur vel fram i þvi að aðstoða félaga sína í bátasmíðum enda hafsjór af fróðleik um báta og bún- að þeirra. DV-mynd Ragnar Imsland Júiia Imstand, DV, Höfri: Óhætt er að segja að Sóma hraðfiski- bátamir frá Bátasmiðju Guðmundar í Hafharfirði séu mjög vinsælir hjá sjó- mönnum hér á Höfii. Sumir kaupa bátana án tækja og innréttinga og vinna sjálfir að því að gera þá sjó- klára. Þessa dagana eru 5 Sómabátar í smíðum, 7 komnir á sjó og 2 væntan- legir á næstunni. Heyrst hefur að mönnum finnist orðið tímabært að stofha „Sómamannafélag". í sumar verða gerðir út á handfæri rúmlega 20 bátar, undir 10 tonnum. Tveir vöru- bílstjórar hér hafa vent sínu kvæði í kross, selt vömbíla sína og em komn- ir í smábátaútgerðina. Útgerðarmenn smábátanna bera sig illa yfir aðstöðu- leysinu í höfninni og segja það fyrir neðan allar hellur að ekkert skuli gert til úrbóta og ekki sjáanlegt að það muni verða á næstunni, nóg hefði þó verið af fallegum fyrirheitum í kosn- ingabaráttunni sl. vor. Hallgrímur Guðmundsson sveitar- stjóri var spurður hvað væri að frétta af þessum óefiidu kosningaloforðum. Sagði hann að á næstu dögum yrði byijað á skipulagningu hafharsvæð- isins og þar með aðstöðu fyrir smábát- ana, en hvað mikið verður framkvæmt í sumar ráðist af því fjármagni sem til ráðstöfunar verður. Snældu-Blesi er laus úr spelkunum og klifrar nú upp tölvuspárstigann Jón G. Haukssan, DV, Akureyii' Stóðhesturinn Snældu-Blesi frá Ár- gerði í Eyjafirði, sem fótbrotnaði illa haustið 1984, losnaði nýlega við spelk- umar. Síðasta sumar hafðí hann þó í nógu að snúast þrátt fyrir spelkumar. Undir hann vom leiddar 47 hryssur. Snældu-Blesi er einn af vinsælustu stóðhestum landsins. Hann er aðeins þrem stigum á eftir Náttfara 766 frá Ytra-Dalsgerði í Eyjafirði í tölvuspá kynbótahrossa. „Snældu-Blesa líður mjög vel en hann nær sér aldrei til fulls. Hann haltrar ennþá lítillega," sagði Magni Kjartansson, bóndi í Árgerði og eig- andi Snældu-Blesa, við DV. „Jú, það verður nóg að gera hjá honum í sumar. Það em þegar komnar 30 pantanir fyrir utan meramar mín- ar,“ sagði Magni. Talið er með ólíkindum hversu vel Snældu-Blesi hefur náð sér eftir fót- brotið. Brotið er ekki að fullu gróið „en nógu vel til þess að hægt sé að leiða undir hann hryssur," sagði Magni. Búnaðarfélag íslands birtir tölvuspá kynbótahrossa. Hæstu einkunn þeirra er Náttfari 766 frá Ytra-Dalsgerði í Eyjafirði með. Hann er með 133 stig. Kjarval frá Sauðárkróki er með 132 stig og Snældu-Blesi er með 130 stig. Snældu-Blesi ásamt húsbónda sínum, Magna Kjartanssyni. Hesturinn hefur nú losnað við spelkumar og er bærilega sprækur þrátt fyrir aö brotið sé enn ekki alveg gróið. DV-mynd JGH Keflavík: Aðkomufólk láfið greiða mun hæni félagsgjöld Aðkomufólk, sem vinnur á svæði Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavikur, er mjög óánægt með að þuría að greiða helmingi hærra gjald til félagsins en heimamenn þurfa að greiða. Karl Steinar Guðnason, formað- ur félagsins, var spurður hveiju þetta sætti og sagði hann að félags- gjaldið væri 1% af föstum launum manna. Þó væri sérstakt þak á gjöldum þeim er heimamenn greiddu en það væri aftur á móti ekki hjá aðkomufólki og kallaðist það vinnuréttargjald. Aðkomufólk, sem ekki hefúr sætt sig við þessa mismunun, hefur leit- að eftir leiðréttingu en ekki fengið. Munu sumir hafa á orði að leita réttar síns í þessu máli eftir öðrum leiðum. -S.dór Mótmæli vf ð Ármúlann: Starfsleyfi „Top ten“ verði ekki framlengt Eigendur fasteigna og fyrirtækja við Áimúla, 48 talsins, hafa sent borgarstjóranum bréf þar sem þess er farið á leit að unglingaskemmti- staðnum „Top ten“ við Ármúla 20 verði ekki veitt áframhaldandi starfsleyfi, en það rennur út nú í vor, samkvæmt upplýsingum sem DV hefur aflað eér. Mikið hefur verið um rúðubrot og önnur skemmdarverk í Árraúla undanfarið og er það rakið til unglingaskemmtistaðarina Nefnt er að aðstaða í kringum staðinn sé ekki góð, þar sé malarplan og nóg af lausu gijóti sem á síðan greiða leið í gegnum nærliggjandi glugga. Mörg fyrirtæki við Armúl- ann telja sig hafa orðið fyrir tjóni og nefiia má að eitt fyrirtæki hefúr orðið fyiir 200 þúsunda króna tjóni vegna akemmdarverka undan- fama tvo mánuði. Þá eru trygging- arfélög byijuð að segja upp húseigenda- og rúðutiyggingum, samkvæmt heimildum DV. -ój Sómabátamir efdrsóttir ndumniuiBi. Láviðmannskaða vegnasam- bandsleysis Amþór PáJsacm, DV, Sau&itóh: Á Raufárhöfii gekk yfir eitt það versta veður sem menn muna síð- astliðinn þriðjudag. Klukkan 15.40 brast á með stórhríð og 12 vindstig- um að sögn veðurathugunar- manns. Fólk var statt hingað og þangað í þorpinu eins og gengur og geristídaglegu lífi. Bátaeigend- ur börðust við að halda bátum sfnum ofansjávar en óbrotinn sjór gekk yfir bátana og olli mikilli ís- ingu á þeim og umhverfinu. Klukkan 17.20 voru komin 13 vindstig og vafialaust meira í verstu hryðjunum. Svo háttar til að báta- lægið er opið fyrir vestanátt sem yfirleitt er vindmesta áttin hér og gerir þessa bátahöfii að liálfgerðri dauðagildru og er enn einn minnis- varðinn sem Vita- og hafhamála- stjórnhefúrreistsér. Örbylgjukerfi Pósts og sima bilaði fljótfega eftir að vind tók að herða og var þorpið nánast símasambandslaust en hægt var að nota eina )ínu utan örbyigjukerfis sem lítáð hafði að segja undir þessum krmgumstæð- um þegar reynt var að hringja og leita að bömum sem ekki skiluðu sér heim og fólki sem var að heim- an þegar veðrið akall á. Bátaeig- endur komust í síma skammt frá bátahöfiúnni en náðu engu sam- bandi en þá vantaði aðstoð og þurr föt og lá við að mannskaði yrði vegna sambandsleysisins. Nokkrir bátar skemmdust og einn sökk og manni dettur kannski í hug að Almannavamir ættu að vera i viðbragðsstöðu þegar svona fárviðri skellur á en hér varð eng- inn var við nein slík viðbrögð. Borgaraflokkurinn: JónOddsson leiðir framkvæmdaráð Borgaraflokkurinn hefur kom- ið á fót framkvæmdaráði til þess að vinna að skipulagi flokksins, stofnun kjördæmisráða og undir- búningi landsfundar í vor. Formaður ráðsins er Jón Odds- son hæstaréttarlögmaður. Með honum eru Lúðvig Hjálm- týsson, fyrrverandi ferðamála- stjóri, Magnús Benediktsson endurskoðandi, sonur Benedikts Bogasonar, verkfræðings og 4. manns á framboðslista fiokksins i Reykjavík, og Jóhann Alberts- son lögfræðingur, sonur Alberts Guðmundssonar. -HERB Metvertíð erlokið Nú er loðnuvertíð lokið og hefiir sjaldan eða aldrei verið tekið á móti meira magni hér í Eyjum, eða samtals tim 95.000 tonnum frá ára- raótum og 120 130.000 tonnum á allri vertíðinni. Frá árámótum hef- ur Fiskimjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum tekið á raóti 59.000 tonnum og er það met hjá henni. Áður hafði verksmiðjan tekið mest á móti 55.000 tonnum, en það var árið 1977. Fiskimjölsverksmiðja Einars Sigurðarsonar hefúr tekið á móti um 36.000 tonnum. Auk þessa er búið að fiysta um það bil 4.500 tonn af loðnu og loðnubrognum á vertíðinni, aem er það langmesta frá upphafi. Er útflutningsverð- mæti lauslega áætlað 500-600 milljónir. Þeæ má geta í lokin að afla- hæsta skipið á vertíðinni er Sigurður RE. Fékk hann um 47.000 tonn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.