Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987.
17
Lesendur
Lækkið tollana
Erla Ingvarsdóttir skrifar:
í færibandavinnu á Alþingi síðustu
daga íyrir þingslit var aragrúi af
fhimvörpum kejrður í gegn. Mörg
að lítt athuguðu máli og í tíma-
hraki. Þar fóru í gegn frumvörp um
lækkun tolla af myndavélum, spól-
um og myndböndum sem teljast
írekar til munaðarvöru.
En ekki eitt einasta frumvarp varð
ég vör við um lækkun tolla á bama-
vörum sem allar eru í hæstu toll-
flokkum.
Margt ungt fólk langar að eiga
böm en hefur hreinlega ekki efrii á
því. Unga fólkið er að basla við að
koma yfir sig þaki. Það þekkja allir
þá sögu. Bameignir em þar ekki á
dagskrá.
í þættinum I takt við tímann hinn
4. mars, sem var tekinn upp á fæð-
ingardeildinni, kom fram að bams-
fæðingum fer stórfækkandi. „Svo
uggvænlegt er,“ eins og einn lækn-
anna sagði, þróunin væri líklega sú
að helmingi færri fæðingar yrðu árið
2000 heldur en nú er.
Það segir sig sjálft að ekki fjölgar
bömunum við aukna notkun á
smokkum sem kemur í kjölfarið á
sjúkdómnum eyðni. Þannig að slysa-
bömum fer líka fækkandi.
Nú fara kosningar í hönd og allir
þurfa þingmenn að hafa einhver
málefni á oddinum til að fá at-
kvæði. Góðar þingkonur og þing- tollana á bamavörum, með því
menn, sýnið nú manndóm og lækkið tryggið þið ykkur atkvæði.
„Ekki eitt einasta frumvarp varð ég vör við um iækkun tolla á barnavörum
sem allar eru i hæstu tollflokkum."
Aukið
ötyggiskrafur
við bryggjur
Lesandi hringdi:
Mig langaði að vekja athygli á
bágborinni aðstöðu við bryggjur
hér við land vilji svo óheppilega
til að fólk detti niður milh akips
og bryggju. Slík slys hafa því mið-
ur orðið og munu verða, oft með
skaðvænlegum aöeiðingum. Ef
slíkt kemur upp öllum að óvörum
og enginn sér til þeas er féll út-
byrðis em ekki miklar líkur að
viðkomandi komist lífe af. Þess
vegna segi ég að það þurfi að koma
upp einhvers konar aðstöðu við
biyggjur svo fólk geti bjargað sér
sjálft falli það útbyrðis. Það væri
td. hægt að leggja kaðla meðfram
bryggjunum með eins metra milli-
bili með upplýstum endurskins-
merkjum sem em greinileg. Eða
þá að bafa vaktmann er skip em
í höfn til að fylgjast með svona
löguðu.
Af þessu hafa hlotist stórelys
bæði á Akureyri og ísafirði, þetta
ætti að vekja stjómvöld til um-
hugBunar, það er mjög brýnt að
aukið sé við öryggisaðstæður við
biyggjur.
„Mér fannst lagið hans Valgeirs, Hægt og hljóft, tvimælalaust besta lagið og
virkilega fallegt. “
Söngvakeppnin:
„Átti skilið að vinna“
Jóhanna Friðriksdóttir hringdi:
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir
spennandi og tvísýna söngvakeppni
er mér fannst mjög vandað til. Mér
fannst lagið hans Valgeirs, Hægt og
hljótt, tvímælalaust besta lagið og
virkilega fallegt. í rauninni var þetta
eiginlega eina lagið sem var ekki sam-
ið í eurovision stíl og af þeirri ástæðu
einni hafði það mikla sérstöðu.
Mér fannst Halla, sem söng lagið,
líka standa sig með mikilli prýði og
þetta lag átti svo sannarlega skilið að
vinna.
Ég efast ekki um að þetta hugljúfa
lag á eftir að ná langt en við verðum
bara að bíða óþreyjufull eftir sjálfri
keppninni í Brussel.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
í Reykjavík vegna alþingiskosninga 1987 hefst í Ár-
múlaskóla laugardaginn 4. apríl kl. 14 og stendur til
kl. 18. Síðan verður kjörstaðurinn opinn alla virka
daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 en sunnudaga og
helgidaga kl. 14-18. Lokað verður föstudaginn langa
og páskadag.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
AÐALFUNDUR
Verzlunarbanka íslands hf.
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu,
laugardaginn 11. apríl 1987
og hefst kl. 14.00
Dagskrá:
1.
Aðalfúndarstörf skv. 33. grein
samþykktar fyrir bankann.
2.
Tillaga um útgáfú jöfiiunarhlutabréfa.
3.
Tillaga um breytingar á samþykktum
bankans.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til
fúndarins verða afhentir hluthöfúm
eða umboðsmönnum þeirra í
afgreiðslu aðalbankans Bankastræti 5,
miðvikudaginn 8. apríl,
fimmtudaginn 9. apríl og
föstudaginn 10. apríl 1987
kl. 9.15-16.00 alla dagana.
Bankaráð
VERZLUNARBANKA ÍSLANDS HF.
UCRZLUNRRÐRNKINN
st. 541 m/skáp og
hátölurum
24.300 stgr.
st. 543 m/skáp
hátölurum
35.910 atgr.
st. 545 m/leysiplötu-
spilara, skáp og
hátölurum
49.950
stgr.