Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Blaðsíða 44
62 • 25 • 25
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987.
Tilboð Þorsteins:
Fer 6-7% um-
fram verð-
bólgumarkmið
stjómvalda
Fyrstu útreikningar á tilboði Þor-
steins Pálssonar fjármálaráðherra til
Starfsmannafélags ríkisstofnana
benda til þess að nú stefni í launa-
hækkanir sem kosti ríkið tvo milljarða
króna á árinu og 600-700 milljón krón-
um meira en ef desembersamningar á
almenna vinnumarkaðnum hefðu
haldið hjá ríkinu. Hækkun launa-
kostnaðar verður 17-18%, sem er
6-7% umfram síðustu verðbólgumark-
mið ríkisstjómarinnar.
I þessum útreikningum er gengið út
frá því að sambærilegar hækkanir og
fjármálaráðherra bauð Starfsmanna-
félagi ríkisstofhana gangi til allra
ríkisstarfsmanna. Enda þótt búið sé
að semja við nokkrar stéttir um minni
hækkanir vega þeir samningar lítið í
heildardæminu. Ennfremur em þar
fyrirvarar sem talið er víst að verði
notaðir til endurskoðunar. Reikni-
meistarar ríkisins virðast alla vega
reikna fastlega með þeim möguleika
að allir fái svipað. -HERB
Samgöngur í
eðlilegt horf
Samgöngur virðast oú vera að fær-
ast i eðlilegt horf viðast um land.
Hjá Flugleiðum er fastlega gert ráð
fyrir að hægt verði að fljúga um allt
land. Amarflug gerir einnig ráð fyrir
að hægt verði að fljúga til allra við-
komustaða félagsins. Nokkur óvissa
er þó með flug til Siglufjarðar en búist
er við að veður þar gangi niður.
Hjá vegaeftirlitinu fengust þær upp-
lýsingar að færð væri ágæt á Suðurl-
andi og austur um firði. Holtavörðu-
heiðin hefur verið lokuð síðan á
miðvikudag en gert er ráð fyrir að
takist að opna hana nú strax eftir
hádegi. Oxnadalsheiðin er nú um það
bil að opnast og fært er á Siglufjörð.
Búið er að moka Vatnsskarð og tæki
em á leið til moksturs á Steingríms-
fjarðarheiði.
Útlit er þvi fyrir að samgöngur fæ-
rist til betri vegar eftir óveðrið sem
geisaö hefur víða um landið undan-
fama daga ef ekki kemur til vonsku-
veðra á ný. -es
Ávallt feti framar
68-50-60
ÞRÖSTIIR
SÍÐUMÚLA 10
LOKI
En ætlí Sverrir
veröi samstarfs-
hæfur?
Hannes Agústsson með töskuólina, blár og marinn, á áttræðisaldri.
Fatlaður fomsali rændur á Njálsgötunni:
DV-myndir S
„Hótuðu að hengja
mig í töskuólinni“
Þetta er í þriðja sinn sem Hannes
er rændur á skömmum tíma. Síðast
var hann rændur 20 þúsund krónum
fýrir aðeins tveimur dögum. Hann
heldur sjálfur að það séu tengsl á
milli þessara rána:
Ráðist var á fatlaðan fomsala á
Njálsgötunni síðdegis í gær og hann
barinn og rændur.
„Þeir komu hér inn í gær og sögð-
ust ætla að kaupa svefhbekk en fyrr
en varði var ég sleginn í gólfið og
mér misþyrmt. Ég reyndi að kalla á
hjálp en þá börðu þeir mig í andlitið
og hótuðu að hengja núg í töskuól-
inni sem ég held á héma,“ sagði
Hannes Ágústsson fomsali er DV
neddi við hann í morgun. „Mennim-
ir sögðust koma aftur og drepa mig
ef ég hringdi á lögregluna og því til
áréttingar slitu þeir símann úr sam-
bandi áður en þeir fóm.“
„Ræningjamir bera sig alltaf eins
að. Þeir slá inig og fara síðan beint
í rassvasann þar sem ég geymi pen-
ingana. Síðast náðu þeir 20 þúsund
krónum, í gær vom það um 10 þús-
und krónur í peningum og nokkrar
ávísanir," sagði Hannes en hann er
72 ára, fatlaður, með gervifót upp
að hné á hægri fæti.
Lögreglan brást hart við er til-
kynnt var um ránið á Njálsgötunni
og handtók þegar fimm manns í
húsi við Hverfisgötuna. Tveir hinna
handteknu játuðu þegar á sig ránið.
„Ég er búin að reka verslun héma
í 37 ár en nú sé ég ekki fram á ann- Hannes Ágústsson. Hann vonast til
að en ég verði að hætta. Ég hef ekki að fá peningana sína aftur.
efni á að ráða mér lífvörð,'1 sagði -EIR
Odæðismennimir og félagar þeirra handteknir á Hveifisgötunni siðdegis í
gær.
Sverrir Hermannsson:
Útilokar
stjómar-
samstarf
við Albert
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra telur stjómarsamstarf Sjálf-
stæðisflokks og Borgaraflokks
útilokað.
„Það er ekki umræðuhæft. Þó að
þeir hefðu meirihluta saman kæmi það
ekki til greina. Svo fjarri öllu lagi er
þetta. Þetta er svo einfalt svar að þess
þarf ekki að spyrja. Við Glistrupa er
aldrei talað," sagði Sverrir í samtali
við DV í morgun.
Hann taldi 'að aðrir forystumenn
Sjálfstæðisflokksins væm sömu skoð-
unar.
„Það leiðir enginn hugann að þessu.
Hvemig mætti það vera? Em menn
með réttu ráði?
Sagan endurtekur sig ævinlega. Hér
er að fjcUga flokkum, eins og í Dan-
mörku, þar sem allt fór á hliðina í
stjóm þess blessaða lands af of mörg-
um flokkum. Þar reið Glistrup sem
næststærsti flokkur þjóðarinnar um
árabil. Þar varð að kjósa stundum
tvisvar á ári.
Svona verður þetta hjá okkur. Það
hefur ævinlega verið staðreynd að ef
þurfa fleiri en tveir flokkar að taka
saman um stjóm landsins þá fer allt
fjandans til.“
Hvað segir Albert Guðmundsson um
þessi orð Sverris?
„Ég hef enga möguleika á að vita
ástæðuna fyrir því að hann talar svona
og heldur ekki í hvaða umboði hann
talar svona.“
- Sverrir líkir þér við Glistmp.
„Ég þekki Glistrup ekki. Hann hlýt-
ur að þekkja Glistmp vel úr því að
hann getur líkt mér eða öðrum mönn-
um við hann. Ég veit ekki hvað hann
á við með því.
Ég útiloka ekki stjómarsamstarf við
neinn. Ég hef aldrei neitað að starfa
með nokkrum manni. Ég útiloka ekki
neitt. Það em þá aðrir sem verða að
útiloka," sagði Albert.
-KMU
SÍS á Akureyri:
Skinnasauma-
stofu lokað
- sautján sagt upp
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Mokkajakkamir frægu frá Sam-
bandinu munu nú hverfa af markaðn-
um, ef fram heldur sem nú horfir, því
skinnasaumastofa Sambandsins á Ák-
ureyri er að hætta. Um 17 konum hefur
verið sagt upp. Þeim hefur þó öllum
verið boðin vinna annars staðar hjá
Sambandsverksmiðjunum á Akureyri
en þar vinna nú um 600 manns.
„Ástæðan fyrir uppsögnunum er
verkefnaskortur. Markaðimir hafa
bmgðist. En þetta er ekki endanleg
lokun, við erum að afla verkefna,"
sagði Jón Sigurðarson, forstjóri Sam-
bandsverksmiðjanna á Akureyri.
Sambandið hefur aðallega selt mokka-
flíkur til Norðurlanda og Sovétríkj-
anna og einnig á innanlandsmarkað,
þótt hann sé ekki stór. :
„Við búum við aukningu í öllum
öðrum deildum og okkur vantar fólk.
Störfum fer hér fjölgandi," sagði Jón
og bætti við að ekki mætti blanda
saman skinnadeild og saumastofu, yfir
200 manns ynnu í skinnadeild og þar
færi verkefhum fjölgandi, sérstaklega
í sútuninni.
i
í
i
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
4
i
«