Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Blaðsíða 38
50
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987.
SYNGILL VIKUNNAR
U2 - With Or Without You
(ISLAND)
U2 eru í framvarðasveit
þeirra hljómsveita og ein-
staklinga sem leika það
sem kallað hefur verið
gáfumannapopp. Er þá átt
við vandaða popptónlist
sem ekki rennur bara inn-
um annað eyrað og útum
hitt heldur skilur eitthvað
eftir. Og þetta lag uppfyllir
öll skilyrði; er á sinn hátt
grípandi eftir stutta hlust-
un en skilur sífellt meira
eftir sem oftar er hlustað.
Hér sameinast allt í einu
lagi; frábær hljóðfæraleik-
ur, söngur, túlkun og
framsetning. Alvöru popp.
AÐRIR ÁGÆTIR SYNGLAR
The Go Betweens - Right
There (BEGGARS BAN-
QUETT)
Mjúkt popp í millitakti,
með skemmtilegum
strengjaútsetningum, blíð-
um röddum og angurværð
inná milli. Melódían liggur
ekki alveg í augum uppi
strax en þetta er eitt þeirra
laga sem vinna á við nán-
ari kynni.
World Party - Ship Of Fools
(CHRYSALIS)
Gamli tíminn trommar
upp enn á ný; hér er engu
líkara á stundum en að
gömlu Animals hafi þvælst
inná plötuna, meira að
segja er söngvarinn þræl-
líkur Eric Burdon í hljóm
og töktum. Það er víðar en
í Hollywood sem týnda
kynslóðin skýtur upp koll-
inum.
Jackie Wilson - I Get The
Sweetest Feeling (SMP)
Talandi um týnda kyn-
slóð má segja að Jackie
Wilson tilheyri þeirri kyn-
slóð sem nú týnir tölunni
óðum. En þrátt fyrir að
vera kominn undir græna
torfu fyrir nokkru er
Jackie heitinn vinsælli en
nokkru sinni og á hvern
smellinn í toppsætum
breska listans á fætur öðr-
um. Hér er enn eitt gull-
kornið; soul eins og það
gerist best og þeir gera ekki
betur í dag þó þeir hafi
lært.
Eurythmics - Missionary
Man (RCA)
Enn er verið að tína lög af
Revenge á smáskífur og
enn eru þau ekki farin að
dala neitt í gæðum að heit-
ið geti. Þetta er hreint og
beint rokklag í ekta Eur-
ythmics anda og það fer
ekki á milli mála að Dave
Stewart er eitt af örfáum
ekta séníum í poppinu í
dag. -SþS-
Level 42 - Running In TTie Family
Ættariaukurinn
Ferill bresku hljómsveitarinnar Le-
vel 42 er um margt nokkuð sérstakur.
Hljómsveitin var stofnuð árið 1980 og
lék þá mestanpart jass-fónk tónlist án
söngs. Var Mezzoforte til að mynda
líkt við Level 42 á þessum tíma.
Fljótlega tóku Level 42 uppá að
bæta röddum við í stöku lagi og fjölg-
aði þoim lögum eftir því sem leið á
ferilinn. Jafnframt fór að bera á aukn-
um áhrifum frá soultónlist á plötum
hljómsveitarinnar.
Og á allra síðustu árum hefur hljóm-
sveitin svo stigið síðustu skrefin yfir
i simgna tónlist eingöngu og við það
skipað sér á bekk með allra vinsæl-
ustu hljómsveitum Bretlands i dag.
Tónlistin er nú svotil alfarið afhrigði
af soulrokki ekki ósvipað því sem oft
mátti heyra frá Earth, Wind And Fire
fyrir nokkrum árum.
Þetta er áferðarfalleg, mjúk popp-
tónlist sem stuðar engan sem slík eri
er engu að síður áleitin og krefst hlust-
unar til að hennar verði notið til fulls.
Aðaldnfíjöður Level 42 er söngvar-
inn, bassaleikarinn og lagasmiðurinn
Mark King og er hann nú talinn í
hópi allra færustu manna á sínu sviði
í Bretlandi. Er það ekki furða þegar
mið er tekið af þeim gæðum sem ein-
kenna bæði lagasmíðar hans og söng.
Og á þessari nýju plötu Level 42 má
segja að King blómstri, enn frekar en
fyrr, því hér er tvímælalaust um heil-
steyptustu plötu Level 42 að ræða og
yrði ég ekki hissa þótt bessi plata yrði
ofarlega á blaði yfir bestu plötur árs-
ins þegar upp verður staðið í árslok.
Hér er hvert lagið öðru betra, eitt
rejmdar frá í fyrra, stórsmellurinn
Lessons In Love, en það fellur mjög
vel að efhi plötunnar.' Önnur stórgóð
lög á þessari plötu eru núverandi
I
smellur hljómsveitarinnar, lagið
Running In The Family, sem reyndar
er titillag plötunnar; lagið To Be With
You Again, Two Solitudes og Sleep-
walkers, sem er eina lagið sem sker
sig örlítið úr, en það er meirayfir í
reggaedeildina.
Running In The Family er kosta-
gripur í alla staði og það fer ekki milli
mála að Level 42 er með áhugaverðari
hljómsveitum um þessar mundir.
-SþS-
Colin James Hay - Looking For Jack
Einn úr vinnuflokknum
Áströlsku hljómsveitinni Men At
Work skaut heldur betur upp á
stjömuhimininn fyrir rúmlega íjórum
árum. Hvert lagið af öðm vermdi vin-
sældalista víða um heim og á stuttum
tíma komu tvær LP plötur sem seldust
eins og heitar lummur. En eitthvað
hefur farið úrskeiðis því sama og ekk-
ert hefur heyrst frá hljómsveitinni
síðan.
Ekki veit ég hvort Men At Work er
hætt. Allavega hefur söngvari, laga-
smiður og gítarleikari hljómsveitar-
innar, Colin James Hay, yfirgefið þá
og þegar hann er farinn er nú ekki
mikið eftir af sérkennum þeirra. Það
var nefhilega Hay sem með sinni ein-
stöku rödd gaf Men At Work þann
sérstaka blæ sem einkenndi hljóm-
sveitina.
James Colin Hay hefur nú gefið út
sólóplötu er nefnist Looking For Jack.
Eins og komið hefur fram hefur Hay
nokkuð sérstaka rödd og þegar lög
hans em í sama farveg og lögin sem
hann samdi fyrir Men At Work, þá
er samlíkingin óhjákvæmileg og því
er plata hans nokkum veginn endur-
ómur af tónlist Men At Work.
Það er svo bara smekksatriði hvort
mönnum líkar betur eða verr. James
Colin Hay er mjög melódískur laga-
höfundur og á létt með að semja lög
sem venjast vel, svo er um flest lögin
á Looking For Jack. Rólegheita rokk
í fyrirrúmi. Áreynslulaust í flutningi
og allur umbúnaður fyrsta flokks.
Ef undan er skilið titillag plötunnar
Looking For Jack á fyrri hlið plötunn-
ar er lítið um tilþrif þar. Miðlungs lög
sem renna ljúflega í gegn og gleymast
fljótt. Meira er lagt í Looking for Jack
sem er róleg ballaða flutt með góðum
tilþrifum af Hay sem nýtur aðstoðar
sjálfs Herbie Hancock í þessu lagi.
Á seinni hliðinni tekur Hay sig að-
eins á og þar er að finna ágæt lög eins
og Puerto Rico, Ways Of The World
og Fisherman’s Friend, lög sem taka
því fram sem Men At Work gerði á
sínum tíma, þó ekki séu þau líkleg til
vinsælda.
í heild er Looking For Jack meló-
dísk og þægileg plata sem þó varla
boðar nein stórtíðindi fyrir Colin Ja-
mes Hay. HK
Sæl uú!*. .. Eins oij sjá má
á siðuimi hér víö hliðína fer
gamla Bitlalagið Let It Be
beinustu íeiö á toppinn í
Bretlandi en þetta lag var
hljóöritað uppá nýtt á dög-
unum i þeim tílgangi að
styrkja aðstandendur þeirra
setn fórust i ferjuslysinn við
Belcjiu um tl
ir fratgir popparar
málefninu lið og lögðu til
raddir sínar og hijóðfæra-
ieik; þeirra á ineóal má
nefna Boy George, Frankíe
Goes To Holiywood, Curi-
ostiíy Kilied The Cat og
Mark Knopfler. Paul
McCartney. annar af höfnnd-
um lagsins, gat ekki komið
til leiks en gaf gúðfúslega
leyfi til að söngnr hans á
uppiunalegu upptökunni yrði
notaður. Og Michaef Jack-
son, sem á útgáfuréttinn á
larjinu, gefur cftii allar tekj-
ur sem iun koma af sölu
lagsins . , • Bronski Beat
ittunu risa aftur úr gröfinni
eii aðeins i stutta stund.
Jimmy Sommerville fékk
fyrrum féfaga sina i hijóni-
sveitinní tii að koma fram
með sér á alþjóðlega eyðni-
daginn sem er á morgun , . .
Rod Stewart hefur gefið
grænt Ijós á að gantfi smell-
urinn hans, Sailing, verði
endurútgefinn til styrklat
sama málefni og getið er um
hér að framan . .. Rotl er
ennfremur farinn að huga að
næsiu breíðskífu sínni og
athygli hefur vakið að meðal
vinnumanna lijá honum við
gerð þeirrar plötu verður
Andy Taylor, fyrrum gítarísti
. Duran Ðuran. (Roddi gæti
verið pabbi hans). . . Fleet-
wood IVIac hefur verið
endmreist og er nýr syngiify
væntanlegur innan skamms'
og segja þeir sem hafa heyrt.
að hér sé vhkilega gott efní
á feiðinní. Stór plata er svo
væntanleg i kjölfarió og mun
hún heita Tango )n The
Night . , . Robert Pahner,
bieski rokkarinn sem settist
að á Bahamaeyjum og sló i
gegn á nýjan Ieik i fyrra með
plótuna Riptide og söng með
Powei Statíon, hefur i
hyggju að taka upp samstarf
við þýsku lokksveitifia
Scotpions af öllum rokk-
sveitum. Allt vai þetta
tilvíljun ein; Palmer var á
þvælingi í KÖIn og komst
" þar i kynni við trommara
Scorpions og síðan restina
af sveitinni og leist svona
skrambi vel á þýðverskti
rokkatana aó hann stakk
uppá samstarfi Þaó verður
fróðiegt aó sjá og beyra . ..
og hana nó . ,.