Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 3. APRlL 1987. Utlönd Alexander Haig forsetaefni Gagnrýninn fylgis- maður Reagans fórseta Yfirmaður herafla Atlantshafs bandalagsins. Alexander Haig, sem gegndi emb- ætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fyrstu árum stjómartíðar Reagans forseta, hóf í gær formlega þátttöku sína í keppninni um útnefningu sem forsetaefhi Repúblikanaflokksins á komandi ári. Möguleikar Haig til að hljóta út- nefhingu em taldir fremur litlir. Skoðanakannanir hafa gefið vísbend- ingu um að aðeins fimm af hundraði repúblikana styðji framboð hans. Hef- ur Haig því minnst fylgi allra þeirra sem lýst hafa áhuga á útnefningu en George Bush varaforseti nýtur enn sem komið er áberandi mests fylgis í flokknum. Hermál og pólitík Alexander Haig er sextíu og tveggja ára gamall. Hann vakti fyrst athygli á sér á dögum Víetnamstríðsins þegar hann var einn af aðstoðarmönnum Westmoreland hershöfðingja. Haig hafði fyrst opinber afskipti af stjómmálum árið 1969 þegar hann var skipaður aðstoðarmaður Henry Kiss- inger í öryggisráði Bandaríkjastjóm- ar. Þar átti Haig hlut að því erindrekastarfi sem Kissinger rak fyrir Richard Nixon, þáverandi Banda- ríkjaforseta, og varð frægur af. Haig reis svo sjálfur upp á stjömu- himin bandarískra stjómmála árið 1973 þegar Watergatehneykslið hafði neytt marga af helstu ráðgjöfum Nix- ons forseta til að hverfa frá störfum. Haig var einn fárra ráðgjafa forset- ans sem ekki urðu fyrir álitshnekki vegna Watergatemálsins. í glundroða þeim sem fylgdi í kjölfar þessa þekkt- asta hneykslis bandarískra stjómmála tók Haig við embætti starfsmanna- stjóra Hvíta hússins og þótti honum fara sá starfi vel úr hendi. Hann var síðan i hópi þeirra sem fengu talið Nixon forseta á að segja af sér til þess að komast hjá formlegri ákæm um embættisafglöp og endanlega brott> vikningu úr forsetaembættinu. Gagnrýninn á Reagan Haig var yfirmaður NATO-heija ár- in 1974 til 1979. Hann sneri að því loknu aftur til Bandaríkjanna og gegndi embætti utanríkisráðherra í stjóm Ronalds Reagan fyrstu átján mánuði forsetans í Hvíta húsinu. Forsetanum og utanríkisráðherran- um samdi frá upphafi misjafnlega og eftir hálft annað ár sagði Haig af sér embætti. Hann bar því þá við að meg- inþættir utanríkisstefhu Bandaríkj- anna hefðu breyst verulega frá því sem ákveðið var við upphaf stjómartíðar. Þótt Haig segi Reagan hafa endur- reist stolt bandarísku þjóðarinnar og telji sig dyggan stuðningsmann forset- Páfinn hefur heimsótt þriðjung allra landa heims „Ferðapáfinn" hefur Jóhannes Páll □. (pólski páfinn) stundum verið kallaður, enda hefur páfatíð hans skorið sig mjög frá páfadómi fyrir- rennara hans, sem hafa jafnvel verið kallaðir „fangar Páfagarðs“ fyrir þá sök að þaðan hreyfðu þeir sig sjaldan nema til sumarhallar páfa við rætur Dólemítanna. Tólf sinnum umhverfis jörðina Áður en Jóhannes Páll II. kom til Suður-Ameríku núna í vikunni hafði hann þegar heimsótt rúmlega þriðj- ung allra landa heims. Að þessari ferðalotu lokinni mun hann hafa lagt undir fót á þessum ferðalögum alls um hálfa milljón kílómetra. Er þá samt ekki fyrir endann séð, því að til tals hefur komið að hann heim- sæki Norðurlönd og þá líka hugsan- lega Island. Þegar „ferðapáfinn“ kemur til Vatíkansins (Páfagarðs) úr þessari heimsókninni til Suður-Ameríku hefur hann alls farið 33 ferðir út fyr- ir Ítalíu og heimsótt 67 af alls rúmlega 170 sjálfstæðum ríkjum heims. Vegalengdin samtals svarar til þess að hann hafi farið tólf sinnum umhverfis jörðina. Páfi dró sig inn fyrir múra Páfagarðs 1870 Alþjóðleg ítök páfastóls hafa tekið róttækum breytingum frá því 1870 þegar Píus IX. páfi dró sig inn fyrir múra Páfagarðs í mótmælaskyni við Vegna ferðalaga páfans hefur verið smiðaður sérstakur brynvarinn vagn með skotheldum glerjum, því að tilræðið á Péturstorgi sannaði að öryggisráðstafana er þörf. ríkisupptöku páfajarða við samein- ingu Ítalíu. Fjórir páfar fylgdu á eftir honum sem „fangar Páfagarðs" fram til ársins 1929 þegar kaþólska kirkj- an fékk bætur fyrir landaupptökum- ar og Páfagarður var gerður að sjálfstæðu ríki. Árið 1964 varð Páll VI. fyrstur páfa til þess að fara út fyrir land- steina Ítalíu síðan Napóleon neyddi Píus VH. í útlegð 1812. Páll páfi fór alls níu utanferðir, sem hver varð að meðaltali þrír dagar. Telur „vísitasíurnar“ prest- lega skyldu sína Fyrir viku, þegar páfinn var að ávarpa pílagríma á Péturstorginu, prestverk. Páfinn notar þessar heimsóknir til þess að ná persónulega eyrum um- boðsmanna kirkju sinnar, kynna sér sérþarfir kirkju viðkomandi lands, leiðrétta það sem honum finnst vera villa frá sannri trú og réttri guðs- dýrkun og til þess að hvetja til einingar. Ópólitískar ferðir eða hvað? I Páfagarði þvertaka menn fyrir að ferðalög páfans séu pólitísk. En hitt hefur þó reynslan sýnt að þeir viðburðir hafa orðið í þeim löndum, sem páfinn hefur heimsótt, að rekja má orsakimar beint til orða sem hans heilagleiki hefur látið falla um réttlæti, mannréttindi og ýmis mál pólitísks eðlis. Þannig líta margir svo á að heim- sókn páfans til fæðingarlands síns, Póllands, árið 1979 hafi orðið til þess að stappa svo stálinu í landa hans að miklu hafi valdið um uppgang hinna óháðu verkalýðssamtaka „Einingar" ári síðar. - Einnig rifjast í sömu mund upp að páfinn las sömu- leiðis yfir Ferdinand Marcos, forseta Fihppseyja, svo og Jean Claude Duvaher, forseta Haiti, um mann- réttindi og lýðræði þegar hann heimsótti þessi tvö lönd á ámnum 1981 og 1983. Báðir þessir einvaldar flúðu lönd sín á síðasta ári. Kirkju- leiðtogar þessara tveggja kaþólsku landa léku stór hlutverk í viðburð- unum sem veltu þeim af stóli. Menn hafa veitt því eftirtekt að svo vill til að sams konar aðstæður ríkja í Chile, sem páfinn heimsækir þessa dagana. Þar hefur verið her- foringjastjóm í þrettán ár, lýðræðis- reglur hafa verið virtar mjög sparlega og mannréttindi jafrivel minna og ólga kraumar í lands- mönnum vegna óánægjunnar með stjómarhætti. Jóhannes Póll II. hefur ekki veriö þaulsætinn á páfastóli sinum heldur lagt lönd undir fót. Þessir mynd er tekin af honum f aöalstöðvum Menntastofnunar Sameinuöu þjóöanna (UNESCO). Umsjón: Guðmundur Pétursson gaf hann til kynna svarið við spum- ingunni, sem stundum kemur upp við þessi ferðalög hans: „Hvers vegna ferðast hann svona mikið?“ - „Ég er biskup Rómar og heimsins,“ sagði hann. Starfsmenn í Páfagarði segja að Jóhannes Páll II. líti á sjálf- an sig sem æðsta yfirmann heims- kirkjunnar og telji sig skyldugan til að heimsækja umdæmi kirkju sinnar, eins og biskup sem vísiterar biskupsumdæmi sitt eða sóknar- prestur visiterar sóknarböm sín. Hann sé einfaldlega að vinna það sem honum finnst vera sitt sjálfsagða Þaö hefur ekki verið Iftill hluti af ritstörfum núverandi páfa að skrifa í gestabókina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.