Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. 3 DV Kristín Halldórsdóttir um stjóm Kvennalista, Alþýðuflokks og SjáHistæðisflokks: Stjómmál Fusar til að athuga hveiju við fengjum áoifcað í slíkri stjóm „Við erum að búa okkur undir alvöru stjómarmyndunarviðræð- ur,“ sagði Kristín Halldórsdóttir, þingkona Kvennalista, síðdegis í gær. „Við gerum okkur alveg grein fyrir því að þetta er dálítið erfitt vegna þess að við erum svo allt öðruvísi heldur en hinir. Okkar stefnuskrá, sem við byggjum auð- vitað allt á og erum búnar að vera að kynna, og vonum að sé grunnur- inn að okkar ágæta árangri, er nánast byltingarkennd. Þó að bylt- ing sé heldur ljótt orð og við viljum síst kenna okkur við blóðbragð, eða nokkuð slíkt, þá tölum við nú samt um hugarfarsbyltingu og breytt verðmætamat. Það er auðvitað vandi að móta þannig skilyrði að við náum ár- angri í samræmi við okkar stefnu en göngum kannski ekki svo langt að það sé ekki vinnandi vegur að koma til móts við okkur. Þetta er það sem við erum á fást við þessa dagana og vinnum eins og berserkir í þessu. Þetta kostar miklar umræður og samtöl en það gengur ágætlega. Við erum komnar alveg með meginlinur en það er ekkert sem við kynnum nánar í fjölmiðlum á þessu stigi.“ - Ætlið þið að ræða frekar við Jón Baldvin eða Þorstein áður en forseti fer að kalla flokksformenn á sinn fund? „Það er ekkert frágengið. En ég reikna ekkert sérstaklega með því. Þorsteinn Pálsson mun hafa átt símasamtal við Guðrúnu Agnars- dóttur í gær. Þau komu sér saman um að það lægi ekkert lífið á. Það er vitað mál að það er ekki ætlunin að flýta sér neitt með þessi viðtöl. Og við erum mjög sammála því að fólk fái frið til þess að átta sig og sé virkilega reiðubúið til þess að tala saman. Jón Baldvin spurði um viðhorf okkar til þess að þetta stjórnarsam- starf yrði reynt. Hann hefur verið ákaflega fús til þess að lýsa því yfir að þetta sé það samstarf sem hann telji líklegast til árangurs og kannski vinsælda. Við erum fúsar til þess að skoða þetta allt saman og athuga hverju við fengjum áork- að í slíkri stjórn." - Eruð þið þá fúsar til að skoða þennan möguleika á undan öðrum? „Því get ég ekki svarað. Ég get ekki metið það beint. En ég hef bara séð það auðvitað hér og þar, meðal annars haft eftir báðum þessum formönnum, sem leiða við- komandi flokka, að þeir virðast telja þetta fyrsta kostinn sem verði byrjað á að athuga. Og við höfum ekkert á móti því að athuga það,“ sagði Kristín. -KMU Suðuriand: 643 útstrikanir á Þorstein og félaga Miklar útstrikanir voru á lista sjálf- stæðismanna á Suðurlandi í nýaf- stöðnum kosningum. Alls sáu 643 kjósendur flokksins ástæðu til að breyta kjörseðlinum er þeir stóðu ein- ir og alls ráðandi í kjörklefanum. Að sögn Kristjáns Torfasonar, form- anns kjörstjórnar í Suðurlandskjör- dæmi, voru breytingar á atkvæðaseðl- um í Suðurlandskjördæmi sem hér segir: A-listi: 15 breytingar. B-listi: 178 breytingar. D-listi: 643 breytingar. G-listi: 8 breytingar. S-listi: 14 breytingar. V-listi: 2 breytingar. M-listi: 1 breyting. „Atkvæðaseðlamir em nú í tölvu- vinnslu og ætti að liggja fyrir á morgun hvemig útstrikanimar skipt- ust. Á þessu stigi er ekkert hægt um það að segja með vissu,“ sagði Kristján Torfason í samtali við DV. -EIR Nýr þingfiokkur Alþýðuflokksins kom saman til fyrsta fundar i Alþingis- húsinu i gær. Beðió verður með að kjósa stjórn þingflokksins þangað til stjórnarmyndunarviðræður fara að skýrast. Frá vinstri sitja Jón Sæ- mundur Sigurjónsson, Eiður Guðnason, Sighvatur Björgvinsson, Karvel Pálmason, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, Karl Steinar Guðnason, Kjartan Jóhannsson, Árni Gunnarsson og Jón Sig- urðsson. DV-mynd GVA Albert formaður þingflokksins Albert Guðmundsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra, var kjörinn for- maður þingflokks Borgaraflokksins á fyrsta þingflokksfundi í gær. Jafn- framt var honum falið að leiða flokk- inn í hugsanlegum stjómarmyndunar- viðræðum. Júlíus Sólnes, þingmaður flokksins í Reykjanesi, var kjörinn varafor- maður þingflokksins. Óli Þ. Guð- bjartsson, Suðurlandskjördæmi, var kjörinn ritari þingflokksins. Þeir tveir vom einnig tilnefridir til hugsanlegra stjómarmyndunarviðræðna af hálfú flokksins. Ákveðið hefúr verið að varaþing- menn Borgaraflokksins hafi rétt til að taka þátt í störfum þingflokksins. -KMU Mikil umfjöllun um kosningamar í Belgíu: Vöktu mikla athygli Kristján Bembuig, DV, Belgíu: . Kosningamar á Islandi hafa vakið mikla athygli hér í Belgíu og fengið mikla umfjöllun í öllum fjölmiðlum. Het Nieuwsblad, eitt stærsta dagblað landsins, var þannig með fréttir af úrslitunum strax á mánudaginn og í ítarlegri grein í blaðinu vom þeim gerð góð skil. I umfjöllun Het Nieuwsblad er m.a. mynd af Albert Guðmundssyni en í myndatexta með henni segir: „í pólitík skýtur hann hnitmiðað eins og hann gerði í knattspymunni," en fyrirsögn á grein blaðsins er „Knattspyrnumað- ur og kvenréttindakonur settu ísland á annan endann.“ GinSdlUGTI5 Skólavörðustíg 1 Simi: 22966 101 Reykjavik. AUKIN SNERPA, BETRIAFKÖST Ef þú sefur illa og erf úrillur ó morgnana, lœfur umferðina fara í faugarnar ó þér, ólt erfitt með að einbeita þér að verkefnum dagsins, skaltu líta við í Heilsuhúsinu. Við leiðum þig í allan sannleikann um Glfis<iHflGll5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.