Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. Menning Kannski landslag IVeir ungir málarar í Nýlistasafninu Tveir ungir myndlistarmenn halda um þessar mundir sýningu á verkum sínum í Nýlistasafninu. Þeir heita Aðalsteinn Svanur Sigfusson og Hlynur Helgason og eru nýútskrif- aðir úr Myndlista- og handíðaskól- anum. Báðir eru þeir Akureyringar og lofar frammistaða þeirra góðu um framtíð myndlistar þar nyrðra. Aðalsteinn Svar.ur sýnir 28 mál- verk sem eru mjög i anda þeirrar fígúratífu bylgju sem gengið hefur yfir listina á undanfömum árum. Viðfangsefhin eru af ýmsum toga og benda til þess að listamaðurinn sé enn að þreifa fyrir sér um markmið og leiðir. Skólamyndir af fígúrum við daglega sýslan og aðstæður keppa við ævintýramyndir með ljóð- rænum áherslum. Sjálf túlkunin er ívið sjálfstæðari. Aðalsteinn Svanur málar sterkbyggðar, massífar fi'gúrur og notar til þess þykka og efriis- mikla litaáferð, eins og til að gefa þeim aukna vigt á fletinum. Aðalsteinn Svanur Sigfússon - Sjáandinn, málverk. Þessi áferð, og sérstakt litróf lista- mannsins, nær í sumum tilfellum tilætluðum árangri, gefur verkunum mónúmental yfirbragð, þótt ekki séu þau stór um sig. Hins vegar verða þessir effektar einnig til þess að of- þyngja mörgum þeirra, gera þau hrá og stirðleg. En Aðalsteinn Svanur virðist hafa alla burði til að snúa þessari þróun sér í hag í nánustu framtíð. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson Huglæg reynsla Á hinn bóginn kemur Hlynur Helgason hér fram sem óvenju sjálf- stæður og þroskaður myndlistar- maður. Hann sýnir 15 akrýlmálverk, sem í venjulegum skilningi mundu kallast afstrakt, en eru í raun til- raunir til að draga saman bæði áþreifanlega og huglæga reynslu í myndræna kjama. Sérstakt við þessi „óhlutbundnu" málverk Hlyns er til dæmis að þau sniðganga helstu hefð- ir í íslenskri afstraktlist. Hér á ég til að mynda við hinn formfasta „flugstiT margra Septem-manna og hina opnu, en þó formsæknu af- straktlist listamanna á borð við Kristján Davíðsson og Elías B. Halldórsson. Andlegt veðurfar Málverk Hlyns gætu sem best ver- ið eins konar afstrakt eftirmáli við muskulega myndlist þeirra Vest- mannaeyinganna, Júlíönu Sveins- dóttur og Ágústs Petersen. Þau eru hlutgervingar á ákveðnu andrúmslofti eða andlegu veðurfari, Hlynur Helgason - „alföður" og „I sem umvefur ýmisleg óræð kenni- leiti, kannski landslag, kannski einstaka fígúru, fugl eða fjall, sem rissuð hafa verið upp með kolum og hálffalin í lituðum slæðum. Þroski þessara mynda birtist alls staðar, í heillegri framsetningö hlut- anna, í öruggri beitingu mjög svo háskalegra lita (fjólubláma, dumb- rauðra o.s.frv.), ekki síst í markvissri upphengingu þeirra. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu. -ai I", málverk. Að hún leiki þannig sem allra oftast af og hafi í sumum hringunum haft meira að segja. Svo er stykkið mjög vel „instrúmenterað“ og blásaramir okkar fluttu það prýðisvel. Vonandi þarf ekki að biða lengi þar til eitthvað heyrist meira frá Oliver Kentish. Fullskipuð mætti hljómsveitin til leiks í forleik Berlioz, Kameval i Róm. Berlioz var mikill aðdáandi hljóð- færasmiðsins Adolfs Sax. Notaði hann hin nýuppfúndnu hljóðfæri hans oft í verkum sínum, meðal annarssaxófón- inn eftir að hann kom fram um miðja síðustu öld. Mig minnir að hann hafi bæði notað althom og tenórhom í Rómarkamevalinu en nú tíðkast að skrifa þær raddir inn fyrir fastahljóð- færi sinfóníuhljómsveitarinnar. í þessum efnum ætti það að vera vanda- laust að hverfa til upprunaleiks og blærinn á því er á sinn hátt skemmti- legur. Annars skyldi ekki við hljóm- sveitina sakast eins og hún lék á þessum degi. Nú mátti hrópa bravó og standa upp Hljómurinn í Berliozforleiknum gaf til kynna að hljómsveitin væri til mik- ils vís þennan daginn. Meðal annars kvað við nýjan hljóm hjá lágfiðlunum. Þar birtist óvænt aukin mýkt og fyll- ing tóns. Vonandi helst sá sumarboði. Og svo kom að Mahler. - Ég held að hljómsveitin okkar hafi ekki leikið eins skínandi vel í vetur og hún gerði nú. Með lykilmennina, Joshep Ogni- bene á einleikshominu og Ásgeir Hermann Steingrímsson á einleikst- rompet, eins og glæstar galíonsfígúrur á stefni, sigldi hún í gegnum Fimmtu Mahler með þvílíkum glæsibrag að manni datt helst í hug að jafha henni við frægar stöllur sínar úti í heimi. Þama sýndi Arthur Weissberg hvað hann kann að fá út úr hljómsveitinni og fyrirgefst (og meira en það) fyrir þurrlega afgreiðslu mála í haust. Fyrir svona leik mátti sannarlega hrópa bravó og standa upp (sem annars er orðinn slíkur plagsiður að spariglans- inn er að minnsta kosti af því farinn) i virðingarskyni. Megi hljómsveitin okkar leika svona sem allra oftast. -EM Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands i Há- skólabíói 25. apríl. Stjórnandi: Arthur Weissberg. Hfnisskrá: Oliver Kentish: Myrkraverk; Hect- or Berlioz: Karneval i Róm; Gustav Mahler: Sinfónia nr. 5 i cis-moll. Einhver ruglingur varð með dag- setningu á fyrstu sumartónleikum hljómsveitarinnar okkar. Svo þurfti bæði veðrið, einsog það var nú, og kosningar í ofanálag að dynja yfir á sama degi. í þokkabót var ekki verið að hampa neinum aðfengnum, ffægurn einleikara eða því um líku, heldur treyst á heimafengnu baggana; „Is- lenskt" verk eftir nær óþekkt tónskáld frumflutt,-ein forleikur á milli og svo Mahlersinfónía. Það var því engin Tónlist Eyjólfur Melsted furða þótt húsið væri hálftómt á þess- um degi. Hvað fældist fólk? En hvað þurfti fólk að fælast? Frum- flutta verkið reyndist hið snotrasta stykki fyrir blásarasveit. Ég held að þetta sé örugglega fyrsta verkið eftir Oliver Kentish, sem flutt er hér syðra. Hann vinnur í Myrkraverkum nostur- samlega úr smáu frumi. Stundum finnst manni að hann klippi fullfljótt Oliver Kentish Gunnar Idenstam Orgelsnillingur UNGIR NORRÆNIR EINLEIKARAR Orgeltónleikar Gunnars Idenstam í Frikirkj- unni 26. april. Á efnisskrá, orgelverk eftir: Duruflé, Johann Sebastian Bach, Schumann, Vierne, Ravel og Idenstam. Aðrir tónleikar í röð Norræna húss- ins, Ungir norrænir einleikarar, voru haldnir í Fríkirkjunni. Reyndist þar rétt valið því vart getur aðra eins radd- fegurð í íslensku orgeli og í orgeli Fríkirkjunnar. Bar þar líka allt að sama brunni því að efnisval þessa unga sænska orgelleikara var í góðu samræmi við eðli og hljómblæ orgels- ins. Hinn franski skóli Leikur Gunnars Idenstam ber með sér áhrif hins franska skóla sem svo margan hefur heillað. Það geislar beinlínis af þeim ferskleikinn, ungu ffanskmenntuðu organistunum sem hér hafa leikið hin síðari ár. Ferskleik- inn nær ekki einungis til verka hins gallíska tónheims heldur einnig til verka gömlu germönsku meistaranna eins og Bachs. Án þess að ganga beint á svig við góðar og gildar hefðir um leik verka Bachs tekst þeim að gæða leikinn léttleika og á stundum sveiflu sem fer hinum gamla meistara prýðis- Tóiílist Eyjólfur Melsted vel. í þessum sökum er Gunnar Idenstam dæmigerður fyrir hinn franska skóla. í orðsins fyllstu merkingu En pilturinn kann fleira fyrir sér. Hann lék til dæmis eigin útsetningu, stórvel gerða, á hinum fræga Pavan,' Ravels. Svo klykkti hann út með því að spinna fjórþætt sinfónískt ljóð yfir sálmastefið sem við þekkjum sem tut- tugasta og sjöunda Passíusálm, eða Víst ertu, Jesú, kóngur klár. Þótti mér sérstaklega til annars þáttarins, sem var impressioniskur mars, koma. Annars þarf ekki að orðlengja það eða tíunda í smáatriðum hversu snjall organisti Gunnar Idenstam er. Hann er orgelsnillingur í fyllstu merkingu þess orðs. Meira þarf ekki um leik hans að segja. En verst var að svo margir skyldu þurfa að sofa úr sér kosningahrollinn og missa þar með af stórkostlegum tónleikum. -EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.