Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 29. APRlL 1987.
Utlönd
Eining á utlegðar-
þingi Palestínuaraba
Yasser Arafat, leiðtoga Þjóðfrels-
ishreyfingar Palestínuaraba (PLO),
tókst að halda einingu meðal þing-
heims á fundi Þjóðarráðsins í síðustu
viku í Alsírborg og þótti það eitt út
af fyrir sig mikil tiðindi og meira
kraftaverk en nokkur hefði getað
trúað fyrir útlegðarþingið.
Arafat náði málamiðlun við
þá herskáustu
Að visu voru ekki allir jafnsann-
færðir um að sú eining hefði rist eins
djúpt og látið var af. En hún hélst
samt út þingið. Og þótt Arafat hafi
neyðst til þess að láta hitt og þetta
undan harðlínumönnum er það
flestra mat að hann hafi samt tryggt
sér nægilegt svigrúm til samnin-
gaumleitana í ýmsum mikilvægum
málaflokkum.
Herskáustu skæruliðahópar PLO,
sem flestir hafa þá sínar bækistöðvar
i Sýrlandi og eru meira undir áhrif-
um Damaskus-stjómarinnar en
Arafats, knúðu fram eftirgjöf við
stefnumálum þeirra í skiptum fyrir
að snúa aftur til meginhópsins. En
málamiðlanir, sem náðust um friðar-
ráðstefnuhugmyndina (fyrir Aust-
urlönd nær) um hið viðkvæma mál
varðandi tengsl Egypta og ísraela
og um breytingar innan samtaka
A fundi þjóðarráðs Palestinuaraba, sem haldið var í síðustu viku í Alsírborg. Arafat, leiðtogi þjóðfrelsishreyfingar Palestínuaraba (PLO), og fleiri
greiða atkvæði með inntöku kommúnistaflokks Palestínuaraba i þjóðarráðið en það var samþykkt með miklum meirihluta. -Símamynd Reuter
PLO, létu þó Arafat ef'tir nær
óbundnar hendur.
Dæmdur hryðjuverkamaður í
framkvæmdanefnd PNC
Sú mynd sem dregin hefúr verið
upp af Arafat sem öfgalausum frið-
semdarmanni skekktist nokkuð
þegar hryðjuverkaforinginn Abu
Abbas var endurkjörinn í fimmtán
manna framkvæmdanefnd þjóðar-
ráðsins. Eins og lesendur muna af
fyrri fréttum var Abbas dæmdur af
ítölskum dómstól (í fjarveru hans
sjálfs) fyrir skipulagningu ránsins á
skemmtiferðaskipinu Achille Lauro
1985.
En aðalhiyðjuverkahópurinn,
flokkur Abu Nidal, sem að vísu hafði
tekið þátt í undirbúningsviðræðun-
um fyrir fund þjóðarráðsins (PNC),
var útilokaður frá því að sitja fúnd-
inn þegar til kom.
Hvetja til skæruhernaðar á
hernámssvæðunum
En þjóðarráðið, sem þykir vera
eins konar útlegðarþing fyrir hina
landlausu Palestínuaraba, lauk sex
daga þinghaldi sínu í Alsír á ályktun
þar sem hvatt var til herts skæru-
hemaðar gegn Israelsmönnum á
hemámssvæðunum (vesturbakkan-
um og Ga2a-svæðinu). Allir fimm
fylkingararmar PLO hafa nú þjapp-
ast í einn hnapp undir Arafat eftir
margra ára leyndar og ljósar deilur.
En allir vom einum rómi andvígir
árásum gegn ísraelum utan hem-
umdu svæðanna.
Þetta átjánda þing PNC (setið af
440 þingfulltrúum) lætur eftir sig
ósvaraðar spumingar sem framtíðin
ein getur leyst úr, svo sem hvemig
tengsl PLO við einstök arabaríki
þróast héðan af. Þó þarf sennilega
ekki lengi að bíða viðbragða stjóm-
arinnar í Damaskus við þeim sigri
Arafats að vinna sýrlensku PLO-
hópana til fylgis við sig.
Tíð formannsskipti hjá
sænsku stjómmálaflokkunum
Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi
Það er greinilega ákaflega ótryggt
starf að vera formaður sænsks
stjómmálaflokks. Á undanfömum
árum hefúr hver formaðurinn á fæt-
ur öðrum orðið að víkja úr embætti.
Ola Ullsten, formanni þjóðar-
flokksins, var fyrst sparkað og Bengt
Westerberg, sem tók við af honum,
tókst að koma flokknum á sigur-
braut að nýju og virðist að minnsta
kosti enn sem komið er fastur í sessi.
Thorbjöm Fálldin var sparkað úr
formannsembætti miðflokksins og
Karin Söder, sem tók við af honum,
þoldi ekki álagið, veiktist og gafst
upp. Núverandi formanni flokksins,
Olaf Johansson, hefur ekki tekist að
bæta afleita stöðu flokksins og verð-
ur trúlega ekki langlífur í embætti.
Þrjátíu ár í formennsku?
Ulf Adelsohn sagði af sér sem for-
maður íhaldsflokksins er raddir um
afsögn hans gerðust háværar. Carl
Bildt, núverandi formaður flokksins,
er aðeins 37 ára gamall og ýmsir
hafa spáð honum að minnsta kosti
Lars Werner hefur verið formaður
vinstri flokksins, kommúnistanna,
síðan 1975. Flokkur hans hefur átt
í vök að verjast að undanförnu og
hafa nú komið fram kröfur um að
Werner segi af sér.
þijátíu ára setu í formannsembætti
en reynslan sýnir að slíkir spádómar
em meira en lítið hæpnir.
Olof Palme féll fyrir morðingja-
hendi eins og allir muna og eftirmað-
ur hans, Ingvar Carlsson, hefur
nýverið gengið í gegnum sína mestu
erfiðleika í forsætisráðherraembætt-
inu í sambandi við ólöglega vopna-
sölu sænska vopnasölufyrirtækisins
Bofors. En ekkert bendir þó til ann-
ars en að Carlsson njóti enn óskipts
trausts jafnaðarmannaflokksins.
Kröfur um afsögn Werners
Lars Wemer, formaður vinstri
flokksins, kommúnistanna, vpk, er
sá sænsku flokksformannanna sem
hefur setið langlengst á formanns-
stþli eða frá 1975. Að undanfömu
hefur flokkur hans hins vegar átt í
vök að verjast. Skoðanakannanir
sýna að flokkurinn hefur innan við
(jögur prósent fylgi sem er það fylgi
sem þarf til að komast inn í þingið.
Og þá er ekki að sökum að spyija,
kröfur hafa komið fram meðal
flokksmanna um að Wemer segi af
sér.
Carl Bildt er formaður sænska
ihaldsflokksins. Hann er aðeins 37
ára gamall og hafa ýmsir spáð hon-
um þrjátíu ára setu í formannsem-
bætti. Reynslan sýnir þó að slíkir
spádómar eru hæpnir.
Flokkurinn hefur gert umhverfis-
vemdarmál að einu helsta baráttu-
máli sínu en fleiri flokkar hafa róið
á þau mið undanfarin ár, einkum
miðflokkurinn og umhverfisvemd-
arflokkurinn sem lifir best þessara
flokka.
Skiptar skoðanir um samstarf
Það hefur líka sýnt sig í skoðana-
könnunum að það er einmitt
umhverfisvemdarflokkurinn sem
hefúr aukið fylgi sitt á kostnað bæði
miðflokksins og vpk. Umhverfis-
vemdarmenn hafa engan flokks-
formann sem hægt væri að velta af
valdastóli ef á móti blési.
Vafalaust hefur það háð kommún-
istum að þurfa æ ofan í æ að styðja
frumvörp minnihlutastjómar jafn-
aðarmanna. Um það samstarf hafa
verið mjög skiptar skoðanir innan
vpk og hefur óánægjan magnast.
Framtíð flokksformannsins Lars
Wemer verður því vafalaust eitt af
aðalumræðuefnunum á flokksþingi
vpk í sumar.