Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987.
Neytendur
Fræðslurit um mataræöi og heilbrigði aldraðra er nýkomið út.
Ritlingur um
mat og holl-
ustu aldraðra
„Hægðatregða, æðahnútar og
gyllinæð eiga ofl rót sína að rekja
til slæmra fæðuvenja árum saman,
of lítillar vökvaneyslu og skorts á
líkamsþjálfun."
Þessa tilvitnun má finna í nýút-
komnum ritlingi Kvenfélagasam-
bands íslands. Ritlingurinn heitir
Aldurinn færist yfir og er gefinn út
í fræðsluritaröð Kvenfélagasam-
bandsins. Þar má finna umljöllun
og tillögur um helstu málsverði
dagsins, kaup og geymslu matvæla,
ofeldi og vaneldi, auk uppskrifta að
heppilegu fæði fyrir gamalt fólk.
Ritið er 20 blaðsíður að stærð og
þýtt og staðfært úr dönsku af Vig-
dísi Jónsdóttur og Sigríði Kristjáns-
dóttur. Það kostar 100 krónur og
fæst keypt á skrifstofu Kvenfélaga-
sambandsins að Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, 3. hæð. Skrifstofan er
opin 14-16 alla virka daga.
Við birtum hér eina uppskrift úr
Aldurinn færíst yfir:
Rúggrautur
(handa einum)
3 dl mjólk
1 1/4 dl rúgmjöl
svolítið salt
Hrærið rúgmjölið út í svolítilli
mjólk, bætið síðan í því sem eftir er
af mjólkinni, hitið og sjóðið í 5 mín.
en hrærið í við og við. Saltið þegar
grauturinn er soðinn. Gott er að
hafa saftblöndu út á eða ávaxta-
mauk með. Einnig má sjóða rúg-
graut í vatni, setja rúsínur í hann
og hafa sykur og mjólk út á.
-pv
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmauuahö&i:
Séð frá sjónarhóli Bandaríkja-
manna er Kaupmannahöfn nú sjötta
dýrasta ferðamannaborg í heimi. Er
það sérstaklega fallandi gengi doll-
arans auk aukinnar verðbólgu og
hærra verðs á hótelgistingu sem sett
hafa Kaupmannahöfn í hóp dýrustu
borga heims.
Er það blaðið Business Traveller
sem hefúr gert verðkönnun í helstu
ferðamannaborgum heimsins. Tekið
er mið af meðaltalskostnaði fyrir
einn í sólarhring. Innifalið í þeim
kostnaði er einstaklingsherþergi
með baði á fyrsta flokks hóteli,
þjórfé, máltíðir og smáupphæð til
skemmtana.
I Kaupmannahöfn nemur kostnað-
ur þessi 214 dölum eða 8.246 íslensk-
um krónum.
Dýrara er gamanið fyrir par en
herbergi fyrir tvo með baði og morg-
unverði kostar frá 6-10 þúsund
íslenskra króna.
Dýrustu borgimar í könnuninni
voru Tókýó með rúmar ellefu þús-
und krónur og New York með kr.
10.800, þá miðað við einstakling.
Þar á eftir komu Stokkhólmur með
kr. 8.600, Genf 8.500, París kr. 8.450
og svo Kaupmannahöfh með
kr.8.246.
Munurinn á evrópsku borgunum
er ekki mikill, sjöunda borgin er
Zurich með kr. 8.170, Osló kr. 8.140,
Frankfurt kr. 7.980, Amsterdam
kr.7.950 og Vín kr. 7.870.
Danir kenna, auk stöðu dollarans,
söluskattinum um stöðu Kaup-
mannahafnar. Söluskatturinn
nemur 22% en er helmingi lægri í
Stokkhólmi sem er í þriðja sæti og
dýrust evrópskra borga.
í ferðamannaáróðri Kaupmanna-
hafhar er ekki hægt að nota verðlag-
ið eins og áður. Hóteleigendur hafa
löngum kvartað yfir söluskatti á
hótelþjónustu og telja hann standa
ferðamannaiðnaðinum í heild fyrir
þrifum að miklu leyti.
Nýleg verðkönnun á herbergi fyrir
tvo í eina nótt á þekktum hótelum
í Kaupmannahöfn leiddi eftirfarandi
í ljós.
Hótel Sheraton 8.000-9.600 kr., með
baði og morgunverði
Hótel Scandinavia 5.460 kr., með
baði en án morgunverðar
Hótel d’Angleterre 8.330 kr., með
baði en án morgunverðar
Hótel Alexandra 3.300-5.630 kr., með
baði og morgunverði
Hótel Imperial 6.150 kr., með baði
og morgunverði
Hótel Admiral 4.680 kr., með baði
en án morgunverðar
Framkvæmdastjóri í Bellacenter,
sem er í tengslum við sýningar og
ráðstefnur ár hvert, sinnir fjölda fyr-
irspuma um hótelherbergi og segist
aldrei heyra kvartanir vegna verðs-
ins, eina vandamálið sé að fá næg
hótelherbergi.
Hótel í Kaupmannahöfn þykja dýr. Þessir ferðalangar hafa þó fundið ráð við þeim vanda.
IKshættuleg
bíldekk
afturkölluð
Haukur L. Hauksson, DV, Khöfru
Margir bílstjórar, sem í vetur
hafa keypt ný Goodyear Vector
dekk, eiga á hættu að dekkin verði
áttköntuð við hraðakstur og því
geti þeir misst stjóm á bílnum.
Framleiðendur Goodyear hafa
uppgötvað galla í dekkjum, fram-
leiddum í 44. og 45. viku á síðasta
ári, og hafa þau verið seld fyrr í
vetur.
Næstum öll dekkin hafa verið
innkölluð í gegnum skrár um við-
skiptavini en ekki er útilokað að
mörg dekk séu enn í umferð. Því
aðvarar Goodyear sem gefhr ný
dekk að kostnaðarlausu í staðinn
fyrir þau gölluðu.
Hin hættulegu dekk heita Vector
og 8tærðin er 155x13. Eru dekkin
stimpluð á hliðinni með stöfunum
ND og átta stafa númeri sem endar
annaðhvort á 446 eða 456 sem er
framleiðsluvika og -ár.
Dekk þessi eru ekki á nýjum bíl-
um en era af mjög algengri stærð
og passa á bæði japanska og evr-
ópska bíla. Rannsóknir hafa sýnt
að galli dekkjanna kemur fram við
hraðakstur, þegar of lítið loft er í
þeim eða þegar bílhnn er of hlað-
inn.
Hafa eigendur slíkra dekkja í
Danmörku verið beðnir um að
hafa samband við söluaðila Good-
year hið snarasta.
Neytendasíðan hafði samband
við umboðsaðila Goodyear á ís-
landi en það er Hekla h/f. Þar var
okkur sagt að fyrirtækið hefði ekki
flutt inn Vector hjólbarða. Ekki
gat fyrirtækið þó útilokað að ein-
hver annar heffii flutt inn dekk af
þessari gerð á eigin vegum. Það
er því brýnt að allir þeir sem hafa
keypt Goodyear dekk nýlega af
öðram aðilum en Heklu h/f athugi
hvortdekkin séu þessarar gerðar.
Mjólkummbúðir
ífiystinn
Mjólkurfemur era tilvaldar til
þess að nota undir matvæli sem geyma
á í frystikistunni. Þvoið femumar vel
að innan áður en þær era notaðar á
nýjan leik.
Þegar fiystu matvælin era tekin úr
femunum er hægur vandi að skera
þær utan af matnum, því ekki þarf að
halda upp á femumar lengur. Það
fellur nóg af þeim til daglega.
Það er t.d. tilvalið að frysta heimatil-
búinn ís í mjólkurfemum. Þær má
einnig nota til þess að koma til blóm-
laukum, að ekki sé talað um að koma
kartöflum áfram fyrsta legginn á rækt-
unarferlinu í mjólkurfemum.
Skópoki verður að
vettiingapoka
Skópoki getur þjónað prýðilega
sem vettlingageymsla. Hengið skó-
poka upp nálægt fatahenginu, þá er
auðvelt að fá krakkana til þess að
troða vettlingunum sínum í vasana á
skópokanum, sem þá er í rauninni
ekki lengur skópoki heldur vettlinga-
poki.
Mjölbjöllur
hræðast tyggjó
Ef þú hefur orðið var við mjölbjöll-
ur í hveitinu þínu skaltu láta óinn-
pakkaða spearmint tyggjóplötu í
hveitibaukinn. Mjölbjöllumar geta
ekki þrifist þar sem þessi lykt er, en
lyktin hefur engin áhrif á hveitið.
Edik mýkir plastið
Bamasmekkir úr plasti og bleiu-
plastbuxur haldast mjúk og þjál með
því að bæta einum bolla af ediki út í
skolvatnið. Sama á auðvitað við um
sturtugardínu og borðdúka úr plasti.
Það er líka mjög gott að bregða plast-
inu inn í þurrkarann.