Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. 13 Neytendur Fjóvfaldur mismunur: Hátt innflutningsverð og tollar gera reiknivélar dýrar Reiknivél, sem kostar 75 dollara út úr búð í Bandaríkjunum, kostar 136 dollara í t innflutningi til íslands. Ástæða: Það má ekki flytja vasatölv- una beint inn írá Bandaríkjunum heldur verður innflutningur að fara um umboðsaðila í Danmörku. Þegar búið er að leggja á opinber gjöld og verslunarálagningu kostar reiknivélin fjórum sinnum meira í búð á Islandi en í Bandaríkjunum og er tvisvar sinn- um dýrari á Islandi en Danmörku. Reiknivélin, sem hér um ræðir, er af tegundinni HP-15C og framleidd af Hewlett-Packard í Bandaríkjunum. Þessi reiknivél er mikið notuð af verk- fræðingum og tæknifræðingum og þykir þarfaþing. Verkfræðingur sagði í samtali við DV að HP-15C reiknivél- ina mætti kaupa á 3.000 krónur í Bandaríkjunum og í Danmörku kost- aði gripurinn 6.700 íslenskar krónur. Verkfræðingurinn lagði fram verð- auglýsingar sem sönnuðu mál hans. íviðræðum um lækkun Verslunin Penninn flytur inn Hew- lett-Packard reiknivélar og HP-15C vasatölva kostar þar 11.765 krónur. í samtali við DV sagði Þórhallur Þór- hallsson, deildarstjóri i Pennanum, að þetta háa vérð ætti sér tvær ástæður. Annars vegar að Penninn mætti ekki flytja reiknivélina beint inn frá Bandaríkjunum heldur frá umboðsað- ila í Danmörku sem hefði umboð fyrir Hewlett-Packard á Norðurlöndum. Innkaupsverðið frá Danmörku væri 136 dollarar. Hins vegar að vasatölvur bæru 35 prósent toll og 24 prósenta vörugjald og ofan á verslunarálagn1 inguna legðist 25 prósenta söluskatt- ur. Álagning Pennans er 30 prósent. -Við seljum sáralítið af svona reikni- vélum vegna þess hve dýrar þær eru. Undanfarið höfum við bæði átt í við- ræðum við Hewlett-Packard og tolla- yfirvöld um lækkum á innkaupsverði og tollum. Enn hefur engin niðurstaða fengist. Þórhallur sagði það í allra hag að útsöluverðið lækkaði. Þar sem margir notuðu þessa tölvu en lítið er keypt af henni á íslandi er ljóst að reiknivél- inni er smyglað í stórum stil inn í landið. Og smyglið er vandalaust þar sem HP-15C er minni en meðalstór vindlapakki. -pv DREGIÐ í KVÖLD yo,,,-• ^'"///(inh.•'11,11111.'/// v ■ v 1 fc^-'////////i -llllil.'.'W/l ■ M ^^/.'Iillllliil "ní/iU'ztlS. ,, ^►.//////////' •/////,, i,in, r wj^ji/lllllllu ,111(11 ‘III /iiitn1^1' •/'/ i,r '///* •nii11111 -1111' Kosningahappdrættið stendur straum af kosningabaráttunni Sjátfstæðismenn, greiðum heimsenda gíróseðla. Skrifstofa happdrættisins í Valhöll er opin alla daga kl. 09.00-22.00. Sfmi 82900 Drætti frestað til 29. apríl. vinningar að verðmæti kr. 3.998.160 3 fólksbifreiðir 34 glæsilegir ferðavinningar 20 húsbúnaðarvinningar SJALFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.