Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987.
23
Dægradvöl
WESM
Viðgerða- og varahlutaþjonusta
P ' . _ I — Raltækja-og heimi
Faanlegir imHEKÍAl
fylgihlutir: Lk ■ ^ I Laugavegi 170-172 Simi I
Spil á
Spil á hendi eru án efa vinsælust
allra spila og fjölhæfust. „Alls kyns
spil af ýmsu tagi hafa verið búin
til á ýmsum öldum bæði í Asíu og
á Vesturlöndum og alls kyns leikir
hafa verið fundnir upp sem tengdir
eru þeim. Hin hefðbundna spila-
samstæða með 52 spilum er býsna
mögnuð og sveigjanleg táknasam-
stæða og hentar vel til margs konar
leikja sem eru í senn háðir heppni
og dugnaði í mismunandi hlutföll-
um. I bridge og póker skiptir
dugnaður spilamannsins t.d. mestu
en í ýmsum öðrum spilum er vinn-
ingur einungis undir heppni
kominn.
Eitt af því sem laðar menn að
spilunum er eflaust það að snert-
ingarkenndinni er fullnægt: Það
er notalegt að fá spil í hendur og
margir spilamenn eru sannir snill-
ingar að stokka og gefa spil. Spil
höfða líka til sjónskynjunarinnar
og eru tíðum vel úr garði gerð.
Engir minni háttar nytjahlutir úr
daglegu lífi hafa notið slíkrar um-
hyggju og alúðar sem spilin af
hendi málara og graflistarmanna.
Loks má geta þess að spilunum
fylgja tiltekin dulúð og töfrablær
sem vísindi og rökvísi hafa ekki
unnið bug á.“ (Úr Spil og leikir.)
hendi
Umsjón: Dröfn Hreiðarsdóttir
GrO
Go er heiti á einu allra elsta spili
veraldar þó það eigi sér heldur
skamma sögu að baki á Vesturl-
öndum. „Go er einfaldara og
rökréttara en skák. Báðar grein-
arnar eru baráttuleikir. Skák
minnir á orrustur riddaraskeiðsins
en þótt go sé komið til ára sinna
svipar því fremur til nútímahern-
aðar,“ segir í bókinni Spil og leikir
um víða veröld.
Hér á landi stunda fáir go sem
flokkast undir íþrótt eins og skák-
in. Þó er hreyfing á málum því
þeir Sigurður Haraldsson og Krist-
inn Torfason eru báðir nýkomnir
úr Norðurlandamóti í go í Dan-
mörku. Þeim gekk hara nokkuð vel
á mótinu miðað við það að þetta
var í fyrsta sinn sem go-spilarar frá
íslandi mættu á mót og sagði Sig-
urður að fólk hefði orðið gapandi
hissa á að einhver skyldi hafa kom-
ið frá íslandi. Þeir fengu sérstök
verðlaun fyrir framtakssemina.
Þeir sögðu spilið vera um 4.500
ára gamalt. Þess er fyrst getið í
kínverskum bókum enda voru go-
meistarar mikils metnir í Kína til
forna. Hinum fornu Samurajum í
Japan bar lengi vel skylda til að
læra go til að þjálfa hernaðartækni
sína.
Landvinningaspil
Go byggist einmitt á hernaðar-
tækni, það er landvinningaspil og
hver leikur er til þess gerður að
vinna svæði. Spilið notast við tré-
plötu með 19x19 reitum og 181
svarta steina, 180 hvíta steina og
tvo leikmenn. Stundum er skák-
klukka notuð til að fylgjast með
tímamismun. Leikreglur eru ein-
faldar og árangur næst fljótlega
enda hjálpar forgjöfin byrjendum á
sama hátt og forgjöfin í golfi gerir.
Go er þó eitt af þeim spilum sem
hægt er að ná mikilli færni í því
það krefst mikillar útsjónarsemi,
rökhugsunar og innsæis.
Spilið kennir mönnum einnig þá
hugsun að vanmeta ekki andstæð-
inginn, ætla sér ekki of mikið, nota
innsæi til að sjá fyrir hluti og síð-
ast en ekki síst að vinna á sínu
eigin ágæti.
Fyrirhugað félag i go
Þeir Sigurður og Kristinn hafa
Eitt af fyrstu spilunum sem börn
komast í kynni við eru ólsen, svarti
pétur, langavitleysa og önnur álíka
auðlærð spil. Síðan læra margir
kana, vist, kapal, rommí og önnur
þekkt spil. Bridge er enn eitt spilið
en það telst þó flóknara en hin
enda er keppt í því á bridsmótum.
Félagsvistin er mikið stunduð af
eldri borgurum sem finna í henni
skemmtilega dægradvöl.
Aðal go-spilarar Islands, Sigurður
Haraldsson og Kristinn Torfason,
nýkomnir af go-móti i Danmörku
þar sem þeim var veitt sérstök
viðurkenning fyrir það framtak að
vera fyrstir íslendinga, svo vitað
sé til, að keppa fyrir íslands hönd
í go. DV-mynd KAE
mikinn hug á að stofna félag go-
spilara á íslandi og fá til liðs við
sig þá sem þegar kunna spilið
ásamt því að kynna spilið fyrir
öðrum. Þeir sögðu að í Japan
þekkti almenningur álíka mikið til
go eins og Islendingar til skákar-
innar. í Japan eru t.d. um 5.000
atvinnumenn í go.
Styrkleiki leikmanna er í fyrstu
mældur í ákveðið mörgum „kyu“
(framb. kíjú) og þegar færnin vex
geta menn nælt sér í ákveðinn
fjölda „dan“ eins( og tíðkast í kar-
ate.
Þeir félagarnir voru sammála um
að „go er dægradvöl sem okkur
þykir virkilega einhvers verð því
maður þarf svo sannarlega að nota
hausinn."
=KENWOOD=
ÞAÐ VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMIUSTÆKIN
KENWOOD CHEF
hefur sannað ágæti sitt í gegnum árin
Það er alltaf gaman að grípa i
spil og eldri borgarar hafa verið
iðnir við að stunda félagsvistina.
Verð kr. 12.960,-
með skál, þeytara, hnoöara,
hrærara, loki og mæliskeiö.