Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 29. APRlL 1987.
.31
Sandkorn
Kvikmyndir
Stjörnubíó - Engin miskunn
★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
Nóg komið
eða...
Skoðanakannanir eru til
margs nytsamlegar, sérstak-
lega ef ætlunin er að hafa
gagn af þeim. Það er líka hægt
að nota þær öðruvísi og stund-
um er hægt að fá þær í
hausinn, aðallega þó óvilj-
andi.
Sérkennileg skoðanakönn-
un var framkvæmd á kosn-
inganóttina fyrir sjónvarps-
stöðvamar. Upphaflega var
það RÚV-sjónvarpið sem fékk
Skáís í leikinn og átti að
mæla notkun áhorfenda á
dagskrám beggja stöðvanna.
Framan af var greinilegt að
ríkissjónvarpið naut meiri
hylli en þegar komið var
notkuð fram yfir miðnætti fór
að draga saman. Þá sögðu rík-
issjónvarpsmenn nóg komið
og þökkuðu fyrir sig. Stöð 2
brá þá hins vegar við og fékk
Skáís til þess að halda áfram
það sem eftir lifði nætur. Og
dagskrá stöðvarinnar naut sí-
vaxandi hylli þar til svo fór
að ríkissjónvarpið hætti út-
sendingum klukkan 6 um
morguninn, þótt margt væri
þá enn óljóst.
Eftir það þurfti auðvitað
ekki að spyija neinn hvort
hann horfði á ríkissjónvarpið
eða Stöð 2, en stöðvarmenn
héldu áfram þar til reglubund-
ið bamaefni kom á skjáinn
klukkan 9.
íkörfu
Þeir eru margir sem iðka
íþróttir sínar í laumi og keppa
aldrei opinberlega, eru í þessu
svona rétt til þess að halda
pumpunni gangandi. Þar á
meðal er hópur sem mætir
reglulega í körfubolta. 1 hópn-
um eru ýmsir meira og minna
kunnir menn og má þar rtefna
einnig sérlega tregur á að láta
knöttinn frá sér og geri það
raunar alls ekki. Einu skiptin
sem hann sleppi boltanum
sjálfviljugur sé þegar hann
„dripplar" eða skýtur á körf-
una.
Ekki veg-
stikur...
Nokkrir ungir menn rugluð-
ust tímabundið (vonandi) í
vetur norður í Skagafirði og
réðust á vegstikur í tugatali
og einnig vegslár sem merkja
beygjur á vegum. Þetta er svo
sem ekki alveg nýtt, að menn
fremji óskiljanleg og tilgangs-
láus skemmdarverk. Það er
hins vegar öllu lakara þegar
eyðileggingin bitnar á hlutum
sem settir hafa verið upp til
þess að treysta almennt ör-
yggí-
Vegagerðin ætlar ekki að
láta kyrrt liggja að þessu sinni
og hefur látið lögmann sinn
kanna viðurlög við brotum af
þessu tagi. Niðurstaða hans
■er sú að við þeim liggi viðurlög
samkvæmt 168. grein hegning-
arlaga - allt að 6 ára fangelsi
eða varðhald. Og nú er að sjá
hvað þessar 100 vegstikur og
3 vegslár kosta skemmdar-
vargana í Skagafirði.
Raunir
Þeir sem eru í pólitík mega
hafa ýmislegt misjafnt og láta
sér hvergi bregða ef þeir ætla
að hafa kjósendur sína góða.
Á einum gleðskapnum fyrir
kosningar, reyndar austur á
Egilsstöðum, mætti formaður
viðkomandi fiokks til þess að
treysta stöðu viðkomandi
frambjóðenda. Þegar hátíðin í
Valaskjálf stóð sem hæst
þurfti formaðurinn að rýma
fyrir nýjum birgðum og brá sér
á salemið. Þar var þá fyrir
ungur kjósandi sem eins var
ástatt fyrir, nema að hann
þurfti greinilega að rýma enn
meira, svo að ekkert lát var á.
Þegar hann sér formann
sinn kominn að næstu skál
grípur piltinn mikill fognuður.
Snýr hann sér beint að for-
manninum, ávarpar hann
innilega, en gleymir greini-
lega um leið til hvers hann
stóð þama. Stóðu nú tvær
bunur á formanninn, hátt og
lágt, sem var vonum seinni að
víkja sér undan. Ekki þarf að
orðlengja þetta frekar, nema
hvað formaðurinn mátti hafa
þetta án eftirmála því ekki
mátti styggja atkvæðið.
Kosningamar
í hættu
Sú þjóðsaga hefur gengið
fjöllunum hærra síðustu miss-
erin að eini maðurinn á
íslandi sem gæti reiknað út
úrslit þingkosninga eftir nýju
kosningalögunum væri Þor-
kell Helgason prófessor. Hann
var aðalráðgjafi og aðstoðar-
maður kosningalaganefndar
og þrátt fyrir harða baráttu
hans fyrir einfaldari kosn-
ingalögum ákváðu þingmenn
að nota flókið kerfi til þess,
eins og Þorkell segir, að það
sæist ekki eins augljóslega
hve kerfið er í rauninni rang-
látt.
Nú, en önnur saga segir að
Þorkell stundi með fleirum
reglubundið leikfimi í íþrótta-
húsi Háskólans. Á dögunum,
rétt fyrir kosningar, var Þor-
kell á leið á æfingu og þurfti
að fara yfir Suðurgötuna.
Hann var á seinustu stundu
og í óðagotinu var hann næst-
um orðinn fyrir bíl á hraðferð.
Áhorfendur sem næstir stóðu
mku til en í ljós kom að Þor-
kell hafði sloppið lifandi og
ósærður. „Þar fór betur,“
sagði einhver, „annars hefði
orðið að fresta kosningunum."
Umsjón: Herbert Guómundsson
Bófahasar í New Orleans
Guðmundur - tregur á knöttinn, en
sumir eru ennþá tregari - á knöttinn.
fyrrverandi háskólarektor og
fyrrverandi þjóðhagsstjóra.
Þetta eru þeir Guðmundur
Magnússön prófessor og Jón
Sigurðsson alþingismaður frá
því á laugardaginn. Þaíer
sagt um Guðmund að hann sé
tregur til þess að láta knöttinn
frá sér, nái hann höndum yfir
hann, og geri það helst ekki.
Um Jón er sagt að hann sé
Engin miskunn (No Mercy).
Leikstjóri: Richard Pearce.
Aöalleikarar: Richard Gere
og Kim Basinger.
Ferill Richard Gere hefur vægast
sagt verið misheppnaður hingað til
þegar haft er í huga að hann er
helsta kyntákn níunda áratugarins
í Hollywood. Varla hefur nokkur
mynd borgað sig sem hann hefur
leikið í síðan An Officer And A
Gentleman. Og eftir irammistöðu
sína í King David, sem eru mestu
mistök sem gerð hafa verið í
Hollywood síðan í Heavens Gate, á
hann svo sannarlega erfitt uppdrátt-
ar. Ekki bætti fyrir honum pólitískur
þriller, Power, þótt við stjómvölinn
væri Sidney Lumet og sú mynd, sem
hér er til umfjöllunar, Engin mis-
kunn, bætir ekki stöðu hans.
Þar leiða saman hesta sína Gere
og Kim Basinger sem hefúr vakið
athygli að undanfömu og þá ekki
síst vegna kyntöfra sinna.
Engin miskunn er rómantísk saka-
málamynd. Richard Gere leikur
Eddie Julette, lögregluþjón í
Chicago, sem ásamt samstarifsmanni
og vini er að rannsaka beiðni um
atvinnumorðingja sem tengist að því
er virðist ómerkilegu fíkniefnamáli
sem þeir félagar hafa verið að ranns-
aka. En þegar vinur og félagi Julette
er myrtur, að því er virðist að
ástæðulausu, kemst aðeins eitt að í
huga Julette, hefnd. Beiðnin um at-
vinnumorðingjann kom frá New
Orleans svo Julette heldur þangað í
miklum ham.
Þar reynir hann að hafa uppi á
Michel Duval (Kim Basinger), sem
tengist morðinu. Hún er aftur á
móti ástkona Losado undirheimafor-
ingja sem ábyrgur er fyrir morðinu.
Richard Gere og Kim Basinger á flótta í fenjum Louisiana.
Þrátt fyrir andstöðu lögreglunnar í
New Orleans er Julette ákveðinn í
að hafa hendur á hári Losedo og
hefst nú æsilegur leikur og flýtur
blóðið í stríðum straumum...
Það vantar ekki að söguþráðurinn
er á köflum æsispennandi, en virkar
um leið ósannfærandi og þrátt fyrir
að nokkur grá hár hafi verið sett í
Gere og hann klæðist snjáðum fötum
er hann aldrei sannfærandi lögga
með mikla reynslu að baki. Kim
Basinger er eins og alltaf kynþokka-
fúll og nýtur sín vel fyrir framan
myndavélina. Hún hefur samt oftast
áður leikið betur og að fólk trúi að
sú þokkagyðja, er hún leikur, sé ólæs
og óskrifandi er erfiður biti að
kyngja.
Enginn miskunn er í besta falli
sæmileg afþreying, kokkteill þar sem
ofbeldi er bíandað með passlega
djarfri ástarsenu þar sem Gere og
Basinger eru á heimavelli.
Hilmar Karlsson
GÓÐ FERMINGARGJÖF
2 manna svefnsófinn með sængurfatageymslu
kr. 21.500.- stgr.
Raðsett klætt með áklæði eða nýja undraefninu
LEÐURLUX. Ótal uppröðunarmöguleikar.
BÓLSTRUN
Sveins Halldórssonar, Laufbrekku 26 (Dalbrekku megin)
sími 641622, heima 656495.
Loftastoðir
BYGGIIMGA-
MEISTARAR
Eigum nú á lager
loftastoðir á
mjög hagstæðu
verði, bæði
málaðar og
galvaniseraðar
★
Stærðir
1,90-3,40 m,
2,30-3,80 m
og 2,50-4,40 m
★
Góðir greiðslu-
skilmálar
★
Leigjum einnig
út loftastoðir
Fallar hf.
Verkpallar - stigar
Vesturvör 7 - 200 Kópavogur,
simar 42322 - 641020.