Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. 33 Erlendir fréttaritarar Blóðbaðs að vænta á Sri Lanka Jón Ominr HaUdórsson, DV, Londan; Skæruliðar tamíla á Sri Lanka myrtu nær þrjú hundruð manns í síðastliðinni viku í þremur atlögum að almenningi. Litlu mun hafa mun- að að óeirðir brytust út en þeim heíðu íylgt alda morða á tamílum. Ríkisstjómin afstýrði þessu með útgöngubanni, sem nú hefur verið aflýst, og fullyrðingum um að her- menn hennar hefðu vegið hundrað skæmliða í norðurhluta landsins og þannig heíht fyrir hefhdarverkin. Flestir telja þessa tölu hins vegar stórlega ýkta og einungis til þess ætlaða að friða almenning sem heimtar blóðhefhd. Stjómin er undir ört vaxandi þrýstingi frá skipulögðum hópum í landinu sem vilja að lagt verði til atlögu gegn skæruliðum sem stjóma borginni Jaffna og nokkrum svæð- um í norðurhluta landsins. Stjómar- herinn hefur verið illa vopnum búinn fram að þessu, fámennur og lítt þjálfaður en þetta hefur nú breyst þánnig að í fyrsta sinn frá því að skærur hófust í landinu fyrir fjómm árum er stjómarherinn i stöðu til þess að hefja verulega sókn gegn skæruliðum. Það kann hins vegar að skipta enn meira máli fyrir þróun mála á Sri Lanka að Rajiv Gandhi og stór hluti almennings á Indlandi hafa misst þolinmæði og samúð með tamílskum skæmliðum eftir hefhdarverk þeirra sem verða sífellt hrottafengnari. Tamílar á Sri Lanka em aðeins um tvær og hálf milljón manna en handan sundsins, sem skilur eyjuna frá Indlandi, búa fimmtíu og fimm milljónir tamíla. Á meðal þeirra em nær tvö hundmð þúsund flóttamenn frá Sri Lanka og úr þeirra hópi em skæmliðar þjálfaðir, búnir vopnum og sendir síðan til Sri Lanka. Indverska stjómin er þess senni- lega umkomin að eyðileggja skæm- her tamíla með því að loka búðum þeirra og aðdráttarleiðum á Indlandi en þetta hefur verið pólítískt óhugs- andi fyrir stjómina vegna fjölmennis og styrks tamíla á Suður-Indlandi. Indverjar hafa enn samúð með mál- Fyrir utan sjúkrahúsið i Colombo á Sri Lanka hefur verið komið upp listum með nötnum þeirra er særðust og létu lífið í atlögum skæruliða tamíla í siðustu viku. Símamynd Reuter stað tamíla á Sri Lanka en þetta þjóðarbrot hefur mátt sæta vondri meðferð af hendi meirihlutans á eyj- unni eins og víðast gerist við svipað- ar aðstæður. Á Sri Lanka er hins vegar ýmissa veðra von í stjómmálum því ólga hefur farið vaxandi í landinu og þolinmæðin minnkað eftir hermdar- verk síðustu viku. Forseti landsins er nú áttræður að aldri og eykur það ekki á stöðugleika stjómarinnar. Líklegt má því telja að stjómar- hemum verði beitt meira gegn skæmliðum en áður og hugsanlegt er að lagt verði til mikillar atlögu gegn vígum nema þá að Indveijar blandi sér í málið af auknum þunga. Túlípanaakrar Hollands í blóma Margir Kanadamenn Sgiún Haiöaidóttir, DV, Miinchen; Nú er sá tími ársins er túlípana- akrar Hollendinga draga til sín hópa ferðalanga víðs vegar úr heiminum og nágrannaþjóðimar fylla lang- ferðabifreiðar sínar og aka garð- yrkjuáhugamönnum í hópum yfir landamærin. 1 helsta blómlaukaræktarhéraði Hollands, sem liggur meðfram ströndinni milli borganna Haarlem og Haag, er Keukenhof, frægasti garður Hollendinga. Garðurinn er tuttugu og átta hektarar að stærð með milljónum laukblóma og fimm þúsund fermetrum af gróðurhúsum. „Með nútímatækni í blómlauka- framleiðslu er hægt að láta túlípana blómstra á hvaða árstíma sem er,“ segir Jaap Nijssen, sölustjóri sam- bands hollenskra blómlaukafram- leiðanda í blaðaviðtali nú fyrir skömmu. Segir hann útflutning blómlauka færa þjóðarbúinu tæpan milljarð gyllina árlega og að mögu- leikar til blómlaukaræktunar séu enn ekki fullreyndir og fullnýttir. Árlega koma um níu hundruð þús- und gestir í Keukenhof sem er einungis opinn á vorin frá marslok- um til maíloka og geta gestir fengið keyptar allar þær tegundir blóm- lauka sem eru til sýnis í garðinum. Samtals sextán þúsund hektarar lands fara undir blómlaukaræktun í Hollandi og stækkar það landrými stöðugt. Blómlaukasala Hollendinga hefur aukist úr fjögur hundruð og fimm milljónum lauka frá árinu 1966 í tólf hundruð og þrjátíu milljónir blómlauka árið 1986. Áukningin hef- ur verið mest síðastliðin tíu ár því árið 1976 voru seldar fimm hundruð sextíu og fimm milljónir blómlauka. Síðastliðið ár voru fluttar út níu hundruð og áttatíu milljónir lauka en salan í landinu var tvö hundruð og fimmtíu milljónir. Með nútímatækni blómlaukafram- leiðslu hefur starfsfólki verið fækkað um sjötíu og fimm prósent með hjálp tölvuvæðingar og er framleiðslan þar af leiðandi arðvænlegri en áður. Garðyrkjuáhugafólk, sem sækir landið heim um þessar mundir, nýtur góðs af útflutningsstefnu Hollend- inga. Meðfram öllum vegum fást festar og kransar úr blómlaukahöfð- um fyrir smáaura og fimmtíu af- skomir túlípanar kosta sem svarar hundrað til tvö' hundruð íslenskum krónum. Samtals fara sextán þúsund hektarar lands undir blómlaukaræktun í Holj- andi. í frægasta garði Hollands, Keukenhof, eru milljónir laukblóma og geta gestir keypt allar þær tegundir sem þar eru til sýnis. ósáttir við hert lög um reykingar Guörún Hjaiterdáoir, DV, OtBwa; Heilbrigðisráðherra Kanada, Jack Epp, hefur kynnt ný og hert lög um reykingavamir í landinu. Með lög- um þessum verður lagt bann við öllum reykingum í opinberum bygg- ingum og þar sem opinber þjónusta fer fram. Gildir bannið jafht um starfsmenn sem viðskiptavini I lögunum er einnig gert ráð fyrir sérsfökum námskeiðum fyrir opin- bera um starfemenn þar sem þeim vorður leiðbeint hvemig hætta á reykingum. Verða námskciðin starfsmönnunum aðkostnaðarlausu. Bann við auglýsingum á tóbaki verður hert til muna en fyrir fimmt- án árum vom slíkar auglýsingar bannaðar í sjónvarpi og útvarpi. Með nýju lögunum verða þær einnig bannaðar í blöðum og tímaritum og annars staðar á opinbemm vett- vangi. Ýmsir reykingavama- og heilsu- verndarhópar em himinlifandi yfir þessum nýju lögum en þykir þó að það heföi mátt ganga lengra. Segja þeir þetta fyrsta stóra skrefið í bar- áttunni gegn slæmum ávana sem í hverjum mánuði leggur tvö þúsund og fimm hundmð Kanadamenn að velli og kostar ríkið óhemjufjármuni á hveijum degi. Sumir reykingamenn em sáttir við lögin og segja að þau eigi eft.fr að þrýsta á þá til að hætta reykingum. En margir em líka ósáttir viö svo hert lög. Má þá telja þá bændur er hingað til hafa byggt afkomu sína á ræktun tóbaks. Hagur þeirra hefúr farið hríðversnandi síðustu árin og ekki veiður þetta til að bæta hann. Þar sem ekki er fyrirsjáanlegt að hróður tóbaksins aukist næstu árin hefúr fylkisstjómin í Ontario því ákveðið að veija þrjátíu milljónum Kanadadollara eða níu hundmð milljónum íslenskra króna til styrkt- ar tóbaksbændum í fylkinu svo þeir geti hafið nýjar búgreinar. Auglýsingabannið hefúr farið mjög fyrir brjóstið á eigendum síga- rettu- og vindlafyrirtækja og finnst þeim að með banninu sé vegið að tjáninga- og málfrelsi. Aðstandendur íþróttafélaga og ýmissa hópa í listgreinum em ugg- andi um hag sinn því tóbaksauglýs- ingar hafa fært þeim dágóðan skilding til að halda starfeemi þeirra gangandi i gegnum árin. Margir reykingamenn, er starfa hjá hinum opinbera, em óaáttir við hin hertu lög og sérstaklega þá stefhu að hafa opinberar byggingar algerlega reyklausar og hvergi svæði til að fá sér reyk innandyra. Þykir sumum svo hart að sér vegið að þeir neyðist til að láta af starfi sínu og leita að nýju í einkageiranum þar sem enn verður löglegt að reykja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.