Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. Andlát Útför Ástu Þorbjörnsdóttur, Mím- isvegi 2, sem lést ó Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund 8. apríl, hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Jóhannesson, Blindraheimilinu Hamrahlíð 17, andaðist í Landakotsspítala 27. apríl. Guðmundur Hreinn Gíslason, bóndi að Uxahrygg, lést í Borgarspít- alanum 18. apríl. Útförin verður gerð frá Oddakirkju á Rangárvöllum laugardaginn 2. maí kl. 14. Arndís Finnbogadóttir, Kvisthaga 10, Reykjavík, andaðist að heimili sínu föstudaginn 24. apríl sl. Guðný Stefanía Guðmundsdóttir, Vífilsgötu 22, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. apríl kl. 13.30. TJarðarför Sesselju Konráðsdóttur frá Stykkishólmi fer fram frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 30. apríl kl. 13.30. Sigríður G. Sigurðardóttir, Suður- braut 10, Hafnarfirði, andaðist í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 20. þ.m. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Valgerður Hallgrímsdóttir Kröy- er, Norðurbrún 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudag- inn 30. apríl kl. 15. ACRYL PLASTGLER Háborg sérhæfir sig í sölu á ACRYL plastgleri. •i Mikið úrval af glæru og lituðu plastgleri, 2-20 mm þykkt. ACRYL plastgler er hægt að vinna og forma á allan máta. Sérsmíðum eftir pöntunum. Hagstætt verð. Getum eirrnig útvegað ýmsar aðrar gerðir af plasti í plötum. Heildsala - smásala. HáborgF Skútuvogi 4 - Sími 82140 Útför Þórnýjar Þorsteinsdóttur, Stigahlíð 34, Reykjavík, verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. apríl kl. 15. Dýri Baldvinsson rennismiður, Brúnastekk 9, Reykjavík, verður jarðsunginn í dag, miðvikudaginn 29. apríl, frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 13.30. Jóhann Friðleifsson, fyrrverandi vélstjóri frá Siglufirði, verður jarð- sunginn frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 30. apríl kl. 13.30. Sigurður Guðmundsson, Stigahlíð 36, er látinn. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. apríl kl. 10.30. Ólafur Kjartansson brunavörður, Hraunbæ 47, sem andaðist 21. apríl, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 30. apríl kl. 13.30. Jenný Stefánsdóttir lést 20. apríl sl. Hún var fædd 7. janúar 1901, kjör- dóttir Stefáns Jónssonar og Guð- rúnar Einarsdóttur. Jenný giftist Alfonsi Jónssyni. Hann lést árið 1952. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið. Útför Jennýjar verður gerð frá Áskirkju í dag kl. 13.30. Guðrún Oddsdóttir lést 15. apríl sl. Hún var fædd 24. nóvember 1909, dóttir Finnbogu Árnadóttur og Odds Jónssonar. Guðrún giftist Ásberg Jóhannssyni, hann lést árið 1955. Útför Guðrúnar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. JMC V-6 litdýptarmælir - 6 tommu litaskermur - 5 dýpisskalar, 0-500 m - 5 litir - hraða/dýpis/hitamælir A A. A. -A. A. A. A. Friðrik A. Jónsson h.f. Sklpholti 7, Reykjavlk, Simar 14135 — 14340. I gærkvöldi Sigrún Helgadottir Irffræðingur: Nóg komið af kaldastríðs-teiknimyndum Ég missti nú af fréttunum á báð- um sjónvarpsrásunum sem ég þó yfirleitt: horfi á. Barnaefni sjónvarpsins fer alla- jafna mjög í taugarnar á mér, í fyrsta lagi vegna þess að textinn er ekki lesinn með myndunum, ta- lið er yfirleytt á ensku en þeir krakkar sem horfa á barnaefnið kunna annaðhvort ekki að lesa eða geta ekki lesið nógu hratt til að ná textanum. Þetta verður til þess að þau sitja bara fyrir framan skerminn og missa af mörgum skástu myndunum. Mér finnst að það ætti leggja meiri kostnað í myndirnar og hafa þær þá frekar færri en vandaðri þannig að börnin geti notið þeirra eins og þeim ber. Ég er einnig orðin leið á þessum kaldastríðs-teiknimyndum eins og Villa spætu og Tomma og Jenna þar sem allt gengur út á einhverja baráttu og ofbeldi. Börnin mín spyrja mig oft af hverju enginn sé góður í teiknimyndunum. Sem and- svar við þessu eru t.d. tékknesku myndirnar sem ég sakna. Mér finnst slæmt að fjárskortur og van- kunnátta skuli bitna á barnaefn- inu. Sonur minn, sextán ára, horfði á sönglagakeppnina og fannst hon- um ítalska lagið best. Ég hlustaði á útvarpsþáttinn Höfuðsetið höfuðskáld hjá Emil Björnssyni sem fjallaði um Kiljan og tók hann fyrir hvernig gagnrýni Kiljan fékk fyrst í stað og hvernig þróunin varð á viðurkenningu hans sem skálds eftir að hann fékk Nóbelsverðlaunin. Ég gafst nú upp á að hlusta á útvarpsleikritið sem var frekar þungt og langdregið. Þættirnir Vestræn veröld eru oft skemmtilegir og þar er fróðleiks- mola að finna . Ég endaði á því að hlusta á Vöku- lok, þar sem verið var að ræða um varnarmál, og það var heldur nið- urdrepandi að heyra hvað langt er í land með að heimurinn afvopnist. Yfirleitt fylgist ég vel með fjöl- miðlum en það sem pirrar mig mest er hvernig barnaefni sjónvarpsins er háttað. Ýmislegt Hallgrímskirkja - starf aldr- aðra hefur opið hús í safnaðarsal kirkjunnar á morgun og hefst það kl. 14.30. Dagskrá: sr. Pétur Þ. Ingjaldsson segir frá, sýnd verður kvikmynd frá Seyðisfirði í fsaíjarð- ardjúpi. Kaffiveitingar. Þeir í sókninni sem óska eftir að verða keyrðir eru vin- samlegast beðnir að hringja í síma kirkj- unnar, 10745, á milli kl. 10 og 12 í fyrramálið og hafa samband við safnaðar- systur. Digranesprestakall Vorfundur kirkjufélagsins verður í safn- aðarheimilinu við Bjamhólastíg fimmtu- daginn 30. apríl kl. 20.30. Auk fastra liða verður á dagskránni stutt erindi, ljóðalest- ur og myndasýning. Kaffiveitingar. Fræðslufundur Landfræðifé- lagsins Fimmtudagskvöldið 30. apríl nk. verður fræðslufundur á vegum Landfræðifélags- ins í ODDA, húsi Háskóla fslands, stofu 101. Fundurinn hefst kl. 20.30. Ásta Ur- bancic landfræðingur mun þar flytja erindi um efni M.A.-ritgerðar sinnar: Á- nægja íbúa í Árbæjar- og Breiðholtshverf- um með umhverfi sitt. Ásta, sem unnið hefur hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, lauk B.S. prófi frá Háskóla íslands árið 1984 og M.Á. prófi frá háskólanum í Mary- land í Bandaríkjunum árið 1986. Félags- menn em eindregið hvattir til að koma og kynna sér áhugavert efni. Kvenfélag Óháða safnaðarins Félagsvist verður spiluð í Kirkjubæ fimmtudaginn 30. þ.m. kl. 20.30. Góð spila- verðlaun og kaffiveitingar. Skólaumræða KHÍ Nk. fimmtudag, 30. apríl, verður 2. um- ræðufundur um skólamál í Kennarahá- skólanum og hefst hann kl. 15.15. Frummælandi verður Stella Guðmunds- dóttir skólastjóri og fjallar um starfs- menntun kennara: „Kalla nýir þjóðfélags- hættir á breytta skilgreiningu kennarastarfsins?" Að fyrirlestrinum loknum verða umræður og veitingar sem kennaranemar sjá um. Fyrsti umræðu- fundurinn var 2. apríl sl. og talaði Siguijón Mýrdal kennslustjóri þá um leiðsögn og stuðning við kennara sem eru að hefja störf í íslenskum skólum. Ráðgert er að framhald verði á þessari skólaumræðu næsta haust. Ársrit HSÞ Út er kominn 21. árgangur af ársriti HSÞ. Blaðið er helgað landsmóti UMFÍ sem haldið verður á Húsavík dagana 10-12. júlí nk. Auk þess er fjallað um starf HSÞ á síðasta ári í blaðinu Fyrirlestur hjá Geðhjálp Geðhjálp heldur fyrirlestur fimmtudaginn 30. apríl 1987. Helgi Kristbjarnarson geð- læknir flytur erindi um svefnleysi. Fyrir- lesturinn hefst kl. 20.30 á geðdeild Landspítalans, í kennslustofu á 3. hæð. Fyrirspumir, umræður og kaffi verða eftir fyrirlesturinn. Allir eru velkomnir. Að- gangur er ókeypis. Afrnæli 70 ára er í dag, 29. apríl, Regina Thorarensen, fréttaritari DV á Sel- fossi, til heimilis að Vallholti 20. Regína hefur verið fréttaritari um langt árabil, m.a. á Gjögri, Eskifirði og nú síðast á Selfossi. Eiginmaður Regínu er Karl Thorarensen. Regína heldur fagnað með sínum boðsgest- um í Inghóli í dag milli kl. 15 og 18. Menning______________ dv Grimmd og Nemendaleikhusið sýnir í Lindarbæ: Rúnar og Kyllikki Höfundur: Jussi Kylatasku Þýðing: Þórarinn Eldjárn Leikstjórn: Stefán Baldursson Leikmynd og búningar: Grétar Reynisson Lýsing: Ólafur Örn Thoroddsen Tónlisfc Kaj Chydenius Tónlistarstjórn og undirleikur: Valgeir Skagfjörð. Nemendaleikhúsið frumsýndi í gær þriðja og síðasta verkefiii þessa leik- árs í Lindarbæ. Þetta er um leið lokaverkefhi útskriftarhópsins sem fékk skírteini sín afhent við hátíð- lega athöfn eftir frumsýninguna. Leiklist Auður Eydal Alls eru það níu leiklistamemar sem útskrifast að þessu sinni. Þeir hafa á leikárinu sýnt Leikslok í Smymu, sem Kristín Jóhannesdóttir leikstýrði, og Þrettándakvöld, leik- stjóri Þórhallur Sigurðsson. Nú er röðin komin að finnska nú- tímaverkinu Rúnar og Kyllikki eftir Jussi Kylatasku. Hann er fæddur 1943 og því af yngri kynslóð leikrita- höfunda þar í landi. Verkið byggir hann á sakamálum sem munu hafa átt sér stað í Finnlandi fyrir um það bil 30 árum. Ekki kann ég frekari skil á þeim málum en höfundur spinnur út frá þessari kveikju heldur ófagra lýsingu á mannlegum örlög- um og miskunnarlausu samfélagi. Leikritið dregur nafn af tveimur persónum, unglingunum Rúnari og Kyllikki sem búa í sveitaþorpi þar sem skinhelgin ræður ríkjum. Bibl- íunni er veifað með annarri hendi á meðan leðurólinni er sveiflað með hinni. Persónumar þrá betra líf en slíkar vonir eru fyrirfram dauða- dæmdar i hrottalegu samfélagi sem þolir engum afbrigðilega hegðun. Þau Rúnar og Kyllikki hljóta að verða píslarvottar, hvort á sinn hátt. Öll er sagan sögð af miklu misk- unnarleysi. I þessari sýningu er ekkert undan dregið og er hún mjög gróf og harkaleg á köflum. Mörg atriðin eru hrikaleg og oft sátu áhorfendur sem steinrunnir undir öllu saman. Grimmdin og gimdin ráða ríkjum í samskiptum manna í leiknum og hinir veikari eiga sér þar enga von. Meiri áhersla er lögð á að lýsa botn- lausri hræsni samfélagsins og rangsnúnum viðbrögðum einstakl- inga við atburðum heldur en að kafað sé djúpt í persónulýsingu. En atburðarásin snýst að mestu um Rúnar og hann er líka eina persónan sem öðlast einhverja dýpt. En hin hlutverkin gera engu að síður öll miklar kröfur til leikend- anna og að því leyti til er þetta kjörið verkefni fyrir hópinn. Stefán Baldursson er næmur og listrænn leikstjóri sem nýtir til fulls getu leik- endanna án þess þó að ofgera þeim. Sviðsmynd Grétars Reynissonar er sérstaklega vel hugsuð, skáhallandi krosspallur, sem skiptir áhorfenda- svæðinu í íjögur „hólf'. Innkomu- leiðir em þrjár og þó að sviðsbúnað- ur sé allur hinn einfaldasti gjömýtir leikstjóri svæðið svo að ótrúleg fjöl- breytni skapast. Með lýsingu Ólafs Amar Thoroddsen verður umhverfið oft harla dramatískt og í áhrifamikl- um atriðum em eingöngu notuð vasaljós til lýsingar. Hönnun búninga er verk Grétars Reynissonar, eins og sviðsmyndin. Hann velur leikendum venjuleg ígangsföt ffá sjötta áratugnum og gefa þau sýningunni raunsæisblæ. Atriði em stutt en fjölmörg þannig að skiptingar em tíðar. Tónlist eftir Kaj Chydenius og fleiri gegnir veig- amiklu hlutverki, bæði sem tenging milli atriða og eins nokkrir söngvar í verkinu. Valgeir Skagfjörð, einn leikendanna í hópnum, útsetti tón- listina, æfði og annaðist undirleik með prýði. Þýðing Þórarins Eldjáms er að vonum á ansi mergjuðu og grodda- losti legu máli þegar mest gengur á en á milli em nokkrir hægari kaflar, næstum ljóðrænir. Eins og áður er sagt reynir mjög á alla leikendur en auk þeirra níu sem útskrifuðust í gær taka þátt í sýningunni nokkrir gestaleikarar. Halldór Bjömsson leikur hinn marghrjáða Rúnar og nær heil- steyptum tökum á hlutverkinu. Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur Kyl- likki sem á í vök að verjast, ásótt í sífellu af karlpeningi staðarins og kúguð af foður sínum sem beitir of- beldi og misþyrmingum til tyftunar. Hún flýr á náðir trúarinnar og kýs að ganga með Guði. Ólafía Hrönn er nokkuð sannfærandi, einkum þeg- ar á líður. Ingrid Jónsdóttir leikur móður Rúnars með töluverðum gusti og í nokkrum atriðum er hún alfrosaleg. Ámi Pétur Guðjónsson er hinn harðneskjulegi faðir Kyllikki og heldur vel túlkuninni út í gegnum leikinn. Þórarinn Eyfjörð er smiður- inn Heikki, í prýðilegu gervi, Hjáfrnar Hjálmarsson er bílstjórinn Peltonen og Stefán Sturla Sigmjóns- son hinn breyski prestur Simo Kapeelahti og skila allir þessum hlutverkum vel. Valgeir Skagfjörð teflir á tæpasta vað í hlutverki kaup- mannsins og Þórdís Amljótsdóttir leikur Eiju röggsamlega. Góð og öguð framsögn allra þess- ara nýbökuðu leikara vekur athygli. Nokkrir gestaleikarar taka þátt í sýningunni. Sigurveig Jónsdóttir leikur ömmuna sem í sífellu tuldrar illar forspár. Þórhallur Sigurðsson er kennarinn og náði því að kæta áhorfendur í einu atriði þar sem hann bregður sér á fiðrildaveiðar. Annars er ekki mikið um slík atriði í þessu verki, Þau Bjöm Karlsson og Margrét Ólafsdóttir em einnig traust í sínum hlutverkum. Og tveir nemendur úr öðrum bekk léku lög- reglumenn. Þessi hópur nýútskrifaðra leikara tekst hér á við erfitt verkefhi sem reynir nokkuð jafht á flesta þeirra. Undir mjög góðri stjóm Stefáns Baldurssonar verður þetta heilsteypt sýning þó að varla geti verkið talist aðlaðandi. Mér fannst vanta í leikri- tið sjálft einhveija mannúð og meiri samúð með persónum, sem hefði gert það sannara. Þetta er sannarlega ekki verk fyr- ir viðkvæmar sálir og alls ekki við bama hæfi, enda sýningin bönnuð yngri bömum en 14 ára eins og kem- ur fram í auglýsingum um sýningar. Leikurunum níu, sem nú hafa lok- ið fjögurra ára ströngu námi, er óskað til hamingju með áfangann og velfamaðar í íslensku leikhúslífi. -AE --Wi-. -y „.I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.