Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Síða 12
12
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987.
Neytendur
i>v
„Lokað á laugar-
dögum,“ segja Kaup-
mannasamtökin og V.R.
„Opið á laugardögum," segir kaupmaðurinn á hominu
Eins og fram hefur komið í DV að
undanfömu, ætlast Kaupmannasam-
tökin og Verslunarmannafélag
Reykjavíkur til þess að afgreiðslutími
verslana í Reykjavík hafi breyst þann
1. júní sl.
Samkvæmt kjarasamningum þess-
ara félaga, er gert ráð fyrir því að
verslanir í Reykjavík hafi lokað á
laugardögum í júní, júlí og ágúst.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
hefúr undanfarin ár sótt það fast að
fá að samningsbinda afgreiðslutíma
verslana í Reykjavík og kröfúr þeirra
í þeim efnum hafa reyndar gengið
nokkuð lengra en núgildandi kjara-
samningur félaganna gerir ráð fyrir.
Kaupmannasamtökin hafa hins vegar
reynt að draga úr þessum kröfum
Verslunarmannafélagsins og innan
Kaupmannasamtakanna virðast mjög
skiptar skoðanir um réttmæti þessa
samningsákvæðis.
Matvörumarkaðir og margar stórar
hverfaverslanir hafa orðið við tilmæl-
um Kaupmannasamtakanna um að
loka á laugardögum. Hins vegar hafa
aðrar stórar hverfaverslanir og flestar
minni hverfaverslanir hundsað þessi
tilmæli og bjóða því viðskiptavini sína
velkomna á laugardögum jafnt sem
aðra virka daga.
Umsjónarmenn neytendasíðunnai
tóku sig til og óku á milli matvöru-
verslana í Reykjavík í góða veðrinu í
vikunni í því skyni að kanna svolítið
nánar afstöðu kaupmanna til þessara
mála.
Könnun okkar leiddi i ljós að það
eru a.m.k. fjörutíu matvöruverslanir í
Reykjavík sem hafa opið á laugardög-
um í sumar. Þessar verslanir verða
ýmist opnar til hádegis, til 13:00,14:00,
15:00 eða jafnvel til 16:00.
Flestir þeir kaupmenn, sem við tók-
um tali, voru andsnúnir afstöðu
Kaupmannasamtakanna og jafnvel
hneykslaðir yfir þeirri miðstýringu
sem samtök þeirra gera kröfu um: „Eg
er Bjartur í Sumarhúsum og stend
mínar vaktir þegar mér dettur í hug,“
sagði dæmigerður kaupmaður á hom-
inu sem kominn var á efri ár.
„Við í litlu búðunum látum ekki
stórmarkaðina og stofnanakarla segja
okkur fyrir verkum,“ sagði kaup-
mannsfrú í austurbænum.
„Ég er yfir mig hneykslaður á því
að stærstu samtök um verslun í
landinu skuli leyfa sér að taka ein-
hliða ákvörðun í þessu máli, án
nokkurs samráðs eða tillits til þess
aðila sem mestu máli skiptir, en það
er viðskiptavinurinn sjálfur," sagði
kaupmaður i Breiðholtinu.
Einstaka kaupmenn sögðust hins
vegar hlakka til að fá nú loksins að
sofa út á laugardögum og bentu þá
jafnframt á að verslunarstörf væru
gjarnan erilsöm og þreytandi.
Enn aðrir sögðust svo gjaman vilja
hafa opið á laugardögum en vildu hins
vegar ekki þurfa að standa í illdeilum
við Kaupmannasamtökin og Verslun-
armannafélagið.
Á meðfylgjandi töflu og Reykjavík-
urkorti er að finna þær matvöruversl-
anir í Reykjavík sem við vitum til að
verða opnar á laugardögum í sumar.
Við viljum taka það skýrt fram að
við vorum öll af vilja gerð til að hafa
allar þær verslanir hér með sem ætla
að hafa opið í sumar, en Reykjavík
er glettilega stór borg og verslanir
hennar margar. Það er því ekki loku
fyrir það skotið að hér vanti enn ein-
hverjar verslanir inn í myndina. Ef svo
er, viljum við biðja hlutaðeigandi
kaupmenn að hafa samband við okkur
svo hægt sé að leiðrétta mistökin.
Að lokum vonumst við til þess að
meðfylgjandi tafla verði lesendum DV
notadrjúg hafi þeir ekki tök á því að
gera helgarinnkaupin á föstudögum.
KGK
Skrá yfir verslanir í Reykjavík sem hafa opið á laugardögum í suman
Vesturbærinn:
1. Kjötbúð Vesturbæjar, Bræðraborgarstíg 43, sími 14879, opið frá 9 til 13.
2. Neskjör, Ægissíðu 123, sími 19292, opið frá 9 til 12.
3. Ragnarsbúð, Fálkagötu 2, sími 26680, opið frá 9 til 12.
4. Skerjaver, Einarsnesi 36, sími 11246, opið ffá 10 til 16.
5. Skjólakjör, Sörlaskjóli 42, sími 18555, opið frá 9 til 12.
6. Verslun Áma Einars, Fálkagötu 13, sími 12693, opið ffá 9 til 12.
7. Verslunin Lögberg, Bræðraborgarstíg 1, sími 18240, opið frá 9 til 16.
Þingholtin
8. Kjötbúr Péturs, Laugavegi 2, sími 11112, opið frá 9 til 13.
9. Njálsbúð, Njálsgötu 64, sími 14063, opið frá 8:30 til 12.
10. Verslunin Baldursgötu 11, sími 14062, opið frá 9 til 13.
11. Þórsbúð Bergstaðastræti 46, simi 12737, opið frá 9 til 12.
TúninogTeigarnir
12. Lundur, Sundlaugavegi 42, sími 34880, opið frá 9 til 16.
13. Nóatún, Nóatúni 17, sími 17260, opið frá 10 til 15.
14. Teigabúðin, Kirkjuteig 19, sími 32655, opið frá 9 til 12.
15. Teigakjör, Laugateigi 24, sími 38645, opið frá 9 til 13.
Laugarneshverfi
16. Dalver, Dalbraut 3, sími 33722, opið frá 9 til 12.
17. Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, sími 686511, opið frá 8 til 16.
18. Lækjarkjör, Brekkulæk 1, sími 35525, opið ffá 9 til 13.
Laugarás, Kleppsholt
19. Laugarás, Norðurbrún 2, sími 35570, opið frá 10 til 13.
20. Matarhomið, Laugarásvegi 1, sími 36541, opið frá 9 til 16.
21. Rangá, Skipasundi 56, sími 33402, opið frá 9 til 15.
22. Siggi og Lalli hf„ Kleppsvegi 150, sími 84860, opið frá 10 til 16.
Heimar og Vogar
23. Álfheimabúðin, Álfheimum 4, sími 34020, opið frá 10 til 13.
24. Kjalfell, Gnoðarvogi 78, sími 35382, opið frá 9 til 16.
25. Langholtsval, Langholtsvegi 174, sími 34320, opið frá 10 til 21.
Hlíðar
26. Hlíðakjör, Eskihlíð 10, sími 11780, opið frá 9 til 12.
27. Sunnubúðin, Mávahlíð 26, sími 18725, opið ffá 9 til 14.
28. Sunnukjör, Skaftahlíð 24, sími 36373, opið frá 9 til 12.
29. Verslun Áma Pálss., Miklubraut 68, sími 10455, opið ffá 9 til 13.
Háaleitishverfi
30. Herjólfúr, Skipholti 70, sími 31275, opið frá 9 til 13.
31. Kjöthöllin, Háaleitisbraut 58, sími 38844, opið ffá 9 til 12.
32. Verslunin Starmýri 2, sími 30420, opið frá 9 til 14.
Bústaða- og Smáibúðahverfi
33. Áskjör, Ásgarði 22, sími 36960, opið ffá 10 til 13.
Breiðholt
34. Ásgeir, Tindaseli 3, sími 76500, opið ffá 9 til 14.
35. Iðufell, Iðufelli 14, sími 74550, opið frá 10 til 14.
36. Kjöt og fiskur, Seljabraut 54, sími 74200, opið ffá 10 til 14.
37. Nýi-Garður, Leimbakka 36, sími 71290, opið frá 9 til 16.
38. Seljakaup, Kleifarseli 26, sími 75466, opið frá 9 til 16.
Árbæjarhverfi
39. Árbæjarkjör, Rofabæ 9, sími 82240, opið frá 9 til 12.
40. Kjörbúð Hraunbæjar, Hraunbæ 102, sími 672875, opið frá 9 til 14.
Grafarvogur
41. Gunnlaugsbúð, Hverafold 1—3, sími 673060, opið ffá 9 til 12.
Afgreiðslutímann þarf að endurskoða
- segir formaður Kaupmannasamtakanna
„Þú mátt haía það eftir mér að
ég tel tímabært að endurskoða af-
greiðslutíma veralana með það í
huga að samræma hann á öllu höf-
uðborgarsvæðinu. Það er óþolandi
að á höfúðborgarsvæðinu skuli vera
mismunandi reglur í þessum efiium,
eftir því hvaða eveitarfélag á í hlut,“
sagði Guðjón Oddason, formaður
Kaupmannasamtakanna, við DV í
gær þegar hann var spurður tun af-
stöðu sína til laugardagslokunarinn-
ar í Reykjavík.
Guðjón telur hins vegar sjálfeagt
mál að heildarreglur gildi um af-
greiðslutímann og hann telur einnig
að fijáls afgreiðslutími muni hækka
vöruverð þegar til lengdar lætur.
En hver er afetaða Kaupmanna-
samtakanna til þeirra reykvísku
kaupmanna sem hafa opið á laugar-
dögum í sumar?
„Vegna kjarasamninga Kaup-
mannasamtakanna og VR hafa ekki
allar verslanir í Reykjavík mögu-
leika á því að hafa opið á laugardög-
um. Það er því illa séð í okkar
samtökum að einn og einn kaup-
maður sé að skorast undan merkjum
með því að hafa opið. En svona eru
nú hlutimir. Það eru alltaf einhveij-
ir sem ekki vilja fara eftir reglum
og það er miður," sagði Guðjón.
Þegar formanni Kaupmaxmasam-
takanna var bent á að þessi „einn
og einn“ kaupmaður ætlaði að hafa
meira en fjörutíu matvöruverelanir
opnar á laugardögum í Reykjavík
sagði hann m.a.: „Ég veit nú ekki
hvar þið faið þessar fjörutíu verelan-
ir. En það eru augljóslega uppi
kröfur um að hafa opnar verslanir á
laugardögum og um þetta er ekkert
að segja annað en að þetta verður
gefið fijálst einhvem tíma.“
Blaðamaður spurði Guðjón að lok-
um hvort allsheijarreglur um af-
greiðslutíma fælu ekki í sér
samkeppnÍ8hömlur. „Við erum nátt-
úrlega í samkeppni hver við annan
en það verða að vera reglur á öllum
hlutum. Ég tel að neytendur hafi
alveg nógu rúman tíma til að versia
þó farið sé eftir núgildandi reglum
og ég er á móti því að kaupmenn séu
að níða hver annan niður.“ KGK