Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Side 15
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987. 15 Jariinn af Halamiðum íslendingar hafa lífsviðurværi sitt að mestu af auðlindum sjóvar, 70-80 prósent útflutningsverðmæta okkar eru sjávarafurðir. Nútíma menning- arríki væri ekki hugsanlegt hér á þessari eyju norður við Dumbshaf ef ekki kæmu til gjöful fiskimið. Þróað menntakerfi, fullkomið heil- brigðiskerfi, almannatryggingar o.s.frv., allt er þetta reist á grunni sjávarútvegsins. Ef ekki væri dreginn fiskur úr sjó væru litlir peningar til að greiða fyrir menntun, læknishjálp og vel- ferðarkerfið í heild. Engum getur þvi blandast hugur um nauðsyn þess að nýta auðlindir hafsins á sem hag- kvæmastan hátt fyrir þjóðarbúið. Stjórnun fiskveiða Stjómun fiskveiða hefur tekist vel á undanfömum árum að flestra mati. Sjavarútvegsráðherra, Halldór As- grímsson, hefur hlotið mikið lof fyrir. Honum hefur tekist við erfiðar að- stæður að ná samstöðu ólíkra hagsmunaaðila í sjávarútvegi og fiskvinnslu og þar með tekist að halda sæmilegum friði um nýtingu auðlinda hafsins. Kvótakerfið hefur auðvitað ýmsa galla, segja menn, en jafnvel hörðustu andstæðingar þess hafa ekki getað bent á aðra leið sem gengur með sæmilegu öryggi. Sjónarmið framsóknarmanna hef- ur verið: við erum fúsir að ræða aðrar leiðir til stjómunar fiskveið- unum ef menn geta sýnt fram á að þær gangi upp. En nýtingu auðlinda hafsins verður að stýra, ella gæti mikið óhapp hlotist af, sem seint yrði bætt fyrir. Ofveiði ýmissa tegunda þekkja menn frá liðnum árum og afleiðingar hennar. Gallar núverandi kvótakerfis em þó nokkrir og menn ræða hversu megi úr bæta. Kvótinn fylgir skipi og selst með því, þar af leiðir að skip seljast óeðli- lega dýrt ef þeim fylgir góður kvóti. Margir benda á erfiðleika ungra Kjallariim Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í 10 ár til þess að kostir þess njóti sín til fulls. Ég ætla að gera hér að umræðu- efni enn aðra hlið þessa máls. Greifinn af Selvogsbanka í Evrópu ríkti um tíma hið svokall- aða lénsskipulag og reyndar víðar. Lénshöfðingjar tóku vald sitt og eig- ur, lén, frá stjómvöldum, konungi. Þær auðlindir sem um var að ræða vom á þessum svæðum ýmsar land- nytjar, akrar, beitilönd, skógar, veiðilendur o.s.frv. Af þessum landnytjum hafði fólkið lífsviðurværi sitt. Konungur setti lénsherra sinn yfir þessar landnytjar á ákveðnum svæð- um. Aðrir á svæðinu, innan lénsins, áttu sitt því undir lénsherranum, sem aftur var öflugri þeim mun gjöf- ulla sem landsvæðið var og landnytj- amar meiri. „Er þá langt í að við komum okkur upp jarlinum af Halamiðum, greifanum af Selvogsbanka, barónum og riddurum? Og ekki losnar um við að lögfesta kerfið í 10 ár eða neita öllum breytingum nema í samráði við hagsmunaðaila, jarlana sjálfa.“ manna við að hasla sér völl í útgerð og segja að sumir af okkar aflakóng- um hefðu ef til vill aldrei einu sinni orðið sjómenn ef kvótakerfið hefði verið viö lýði þegar þeir ólust upp. Sumir benda á lagfæringar, kvót- inn skuli fylgja fyrirtækjum og mönnum en ekki skipum og fisk- vinnslan eigi að fá kvóta o.s.frv. Enn aðrir benda á nauðsyn þess að allar lagfæringar séu gerðar í fullu samráði við hagsmunaaðila og nausyn sé á að lögfesta kvótakerfið Enginn maður gat náð slíkum landnytjum af lénsherranum sem þáði vald sitt og auðlindir frá kon- ungi. Nú komast menn ekki hjá því að draga nokkra samlíkingu af léns- skipulaginu og kvótakerfinu þó ekki megi um of jafna saman. Nokkrir leggja til, og þá sérstak- lega alþýðuflokksmenn, að kvótinn verði látinn í té mönnum og fyrir- tækjum. Erfitt mundi reynast að ná kvótan- „Nú komast menn ekki hjá því að draga nokkra samlíkingu af lénsskipu- laginu og kvótakerfinu þó ekki megi um of jafna saman." um aftur af slíkum aðilum og þyrfti talsverða réttlætingu til. Auðlindir hafsins, sem öll þjóðin nánast lifir á, eru þá fengnar ákveðnum aðilum til nytja en aðrir mega þar hvergi koma nærri. Stjómvöld hafa valið lénsherrana og þeir þiggja vald sitt og sjávamytj- ar af þeim. Afrakstri sjávarnytjanna er í rík- um mæli haldið hjá þeim aðilum sem auðlindimar nýta. Selt erlendis ef betra verð byðist, hæsta markaðsverð til lénsherranna. Er þá langt í að við komum okkur upp jarlinum af Halamiðum, greifan- um af Selvogsbanka, barónum og riddurum? Og ekki losnar um við að lögfesta kerfið í 10 ár eða neita öllum brevtingum nema í samráði við hagsmunaaðila. jarlana sjálfa. Það er auðvelt að gagnrýna Já, það er auðvelt að gagnrýna en erfitt að benda á sannfærandi lausn. Sjálfur hefi ég oft sagt að það er enginn vandi að standa utan við veginn og ausa skít á þá sem draga vagninn. En okkur er öllum hollt að staldra við annað slagið og hugsa málið. Kerfið má ekki fara að lifa sínu eigin lífi. Hættumar em margar. Ég hefi hér freistað þess að horfa á vandamálið frá annarri hlið. Vandi stjórnvalda við skiptingu gæða er ævinlega mikill. Ef til vill finnst mörgum þessar samlíkingar mínar langsóttar. En hugsið vkkur aðeins um aftur. Það skyldi þó ekki vera að það komi hik á einhverja. Guðmundur G. Þórarinsson Stefha ríkisstjómarinnar í skólamálum Þegar þetta er skrifað standa enn yfir viðræður um stjómarmyndun milli Alþýðuflokks, Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. Af málflutningi þess sem viðræðunum stýrir mætti ætla að stjóm þessara flokka sé í burðarliðnum. Daglega er frá því skýrt sem rætt hefúr verið og væri synd að segja að þjóðinni væm ekki gefnar skýrslur. Þær em þó næsta innihaldslausar enn sem komið er. Fjölmargir málaflokkar hafa verið til umræðu og athygli rnína vakti að skóla- og menntunarmál em eitt þeirra mála sem ræða á. Það hefúr ekki gerst fyrr í stjómarmyndunar- viðræðum að þessi málaflokkur hafi verið talinn þess eðlis, eða kannski þess virði að hann væri ræddur sér- staklega. Rétt er að geta þess að Samtök um kvennalista vom með skólamál sem einn meginflokk í við- ræðum um nýja ríkisstjórn. Nauðsynlegt er fyrir þá sem ætla að vinna saman i ríkisstjórn að koma sér saman um stefnu í þessum mál- um. Fráfarandi ríkisstjórn hafði enga stefnu í skólamálum, með þeim afleiðingum að allt gekk á afturfót- unum. Ekki gekk eins illa með nokkum málaflokk á síðasta kjör- tímabili ef ríkisfjármálin em frátal- in. Grundvallarmál Skóla- og menntunarmál era gmndvallar málaflokkur í öllum nútíma þjóðfélögum. Aðrar þjóðir láta sig mál þessi miklu varða og í kosningabaráttu em þau i hávegum höfð. Þau taka enda til sín mikinn hluta af tekjum ríkisins. Þvi hlýtur það að vera óeðlilegt ef ríkisstjórn hefur ekki ákveðna stefnu í skóla- málum. Það er nauðsynlegt að koma í veg fyrir að sú handabakavinna sem átti sér stað í skólamálum í tíð fráfarandi stjónar endurtaki sig. Hætt er við því að hver ráðherra fari sínar eigin leiðir ef ekki er ákveðinn starfsrammi fyrir hvem málaflokk. Um það höfum við glögg dæmi. Mörg axarsköft vom gerð á síðasta kjörtímabili. Má þar til nefna endurskipulagningu menntamála- ráðuneytis, sem virtist ekki hafa annan tilgang en þann að losna við ímyndaða andstæðinga úr ráðuneyt- inu sem þar áttu að vera búnir að hreiðra um sig. Afleiðingin varð ringulreið og óstjóm þar sem stjóm- málaskoðanir vom teknar fram yfir hæfni. Forðast var að hafa samvinnu við samtök kennara enda lentu báð- ir ráðherrar menntamála i mikilli andstöðu við skólamenn í landinu. Embættisafglöp, eins og þau sem gerst hafa í tíð núverandi mennta- málaráðherra, verða ekki umflúin með öllu þó skýr stefna sé mörkuð en plagg eins og frumvarp að nýjum lögum fyrir gmnnskóla sem lagt var fram til kynningar í þinglok ætti ekki að koma frá ráðherra nema það sé stefria viðkomandi stjómar. Þó völd ráðherra séu mikil eiga KjaUarinn Kári Arnórsson skólastjóri þau ekki að ganga út vfi'r yfirlýsta stefriu viðkomandi stjómar. Stefnan á að veita ráðhemmi aðhald. Rikis- stjóm er ábyrg fyrir stefnunni en hún ber líka ábyrgð á afleiðingum stefnuleysis. Fráfarandi ríkisstjórn ber því ábyrgð á verkum sinna ráð- herra. Mikið fagnaðarefni Á nýafstöðnu þingi Kennarasam- bands íslands, sem era fiölmennustu samtök kennara á íslandi, var sam- þykkt skólastefna. Samþykktin markar timamót, því í fyrsta sinn er sett fram af kennarasamtökum heildstæð stefiia í skólamálum. Það ætti að verða til mikils hægðai-auka fvrir þá flokka. sem nú ræða stjóm- armyndun. að kennarasamtökin skuli hafa sett fram skýra og af- markaða stefnu. Kennarasamtökin hafa alla tíð tjáð sig reiðubúin að vinna með ráðuneyti menntamála að bættum og betri skóhun. Mark- mið þeirra og ráðuneytisins hljóta að fara saman. Skiptar skoðanir kunna að sjálfsögðu að vera um leið- ir að marki og ekkert við það að athuga. En kennurum þarf að vera ljóst hver stefna ríkisstjómar er á hverjum tíma. Náist samkomulag milli þessara aðila er það farsælasta lausnin. Skólamál virðast lengi hafa verið á því plani í hugum stjómmála- manna að þau væm ekki alvöra- stjómmál og þess vegna væri hægt að ýta þeim þegjandi frá sér. Sé mönnum annt um íslenska þjóð má slíkur hugsunarháttur ekki ríkja. Því er það sérstakt fagnaðarefni að nú skuli eiga að taka skólamál sér- staklega til umræðu við myndun stjómar. Það vekur vonir um að þau fái hærri sess í komandi ríkisstjóm, hvemig sem hún svo verður saman sett. Kári Arnórsson „í fyrsta sinn er sett fram at kennarasamtökunum heildstæð stefna i skólamálum. Það ætti að verða til mikils hægðarauka fyrir þá flokka, sem nú ræða stjórnarmyndun, að kennarasamtökin skuli hafa sett fram skýra og afmarkaða stefnu." „Fráfarandi ríkisstjórn hafði enga stefnu í skólamálum, með þeim afleiðingum að allt gekk á afturfótunum. Ekki gekk eins illa með nokkurn málaflokk á síðasta kjörtímabili ef ríkisfjármálin eru frá- talin/‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.