Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Page 32
44
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Sara Ferguson
er í uppáhaldi hjá samlöndum
sínum, enda þykir hún meö
afbrigðum hress og óþvinguð
og smitar það út frá sér hvert
sem hún fer. Það er því ekki
að furða þótt hún sé vinsæl
hjá Bretanum, en nú fylgjast
aílir spenntir með því hvort
henni og Andrew prinsi fer
ekki að fæðast barn, en það
hefur víst verið þeirra heitasta
ósk undanfarna mánuði. Ann-
ars þykir Fergie, eins og hún
er kölluð, sjaldan hafa litið
betur út en nú, enda nýkomin
úr ströngu líkamsræktar- og
megrunarprógrammi. Árang-
urinn lætur ekki á sér standa.
Samantha Fox,
söngkonan og Ijósmyndafyrir-
sætan; hélt upp á tuttugasta
og fyrsta aldursárið fyrir
skömmu. Á sama tíma er hún
alveg æf út í kaþólsku kirkjuna
því að á hennar vegum var
nýlega gefin út bæklingur
með hollum ráðum til ung-
linga um hvernig þeir eigi að
haga kynlífi sínu. í bæklingn-
um var notuð mynd af
Samönthu, topplausri, og hún
tekin sem dæmi um hvernig
ungar fáfróðar stúlkur niður-
lægja sig með því að láta birta
af sér nektarmyndir. Saman-
tha varð að sjálfsögðu afar
óhress með þetta enda telur
hún sig hvorki fáfróða né nið-
urlægða, einungis stúlku sem
hefur auðgast á útliti sínu á
eðlilegan hátt, án þess t.d. að
hafa komið nálægt klámiðn-
aðinum.
Jacqueline
Bisset
fer með hlutverk Jósefínu í
sjónvarpsmyndaþáttum um
Napóleon og Jósefínu, en
gerð á þeim stendur nú yfir.
Með hlutverk Napóleons hins
mikla fer Armand Assante.
Búningagerð sem þurfti með
þáttunum var gríðarmikil,
enda var fatabúr þeirra hjóna
ekki af verri toganum. Fyrir
hlutverk Jósefínu einnar þurfti
að sauma um fimmtíu kjóla,
að sjálfsögðu í þeim stíl sem
ríkjandi var um 1800, en flíkur
frá þeim tíma eru frægar fyrir
flókinn saumaskap. Jacquel-
ine varð líka að gjöra svo vel
og fullnema sig í billiardlist-
inni vegna þess að slíkt var
ein helst skemmtun Jósefínu
keisaraynju, þótt undarlegt
megi virðast!
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987.
Krakkaskarinn kominn á kreik.
Skarinn
skeiðadi
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Hið geysivinsæla Brekkuhlaup var
haldið á Akureyri um hvítasunnuna.
Fjölmargir krakkar mættu í hlaupið
að vanda. Það er verslunin Garðs-
horn sem heldur hlaupið sem frekar
ætti eiginlega að nefna útihátíð því
krökkunum er boðið upp á margt
fleira en að hlaupa. Sumir þeirra
tefldu við stórmeistarann Jóhann
Hjartarson, trúðar mættu á svæðið
og svo var þar að sjálfsögðu nammi
handa öllu liðinu eftir hlaupin. Þau
urðu líka aðeins að fá að fita sig eft-
ir allt fitutapið.
Trúðar mættu í hlaupið og hlupu á
sig.
Jóhann Hjartarson stórmeistari tefldi fjöltefli og fór létt með að vanda.
m
'y' '
i g
Skriðjöklarnir fyrir framan nýja Benzinn. Þeir fóru til Þýskaiands og keyptu bíl af Benz-verksmiðjunum
DV-mynd JGH
Skrið-
jöklar
bruna
á Benz
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Hljómsveitin Skriðjöklar frá Ak-
ureyri stendur í ströngu þessa
dagana, meðlimir hennar eru ný-
búnir að kaupa sér Benz-kálf og
um miðjan mánuðinn er stór plata
væntanleg á markaðinn frá þeim,
þeirra fyrsta stóra plata.
Mercedes Benzinn keyptu þeir
félagar i Þýskalandi. Hann er not-
aður, ekinn 30 þúsund kílómetra,
og gripinn fá Jöklarnir frá sjálfum
Benz verksmiðjunum í Branz.
Þetta ku hafa verið sýningarbíll.
„Þeir tóku vel á móti okkur Benz-
höfðingjarnir í Þýskalandi, gáfu
okkur Benz-húfur og buðu okkur
svo upp á fínan málsverð," sagði
Ragnar Gunnarsson, söngvari
Skriðjökla.