Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Síða 33
FÖSTUDAGUR 12. JÚNl 1987.
45
DV
Svidsljós
Þeir virðast fullir iðrunar, þessir Þessir kumpánar voru meðal fjöld-
tveir Pólverjar í trúarlegum fatnaði, ans og tóku þeir þátt i messunni af
undir messu sem Jóhannes Páll páfi miklum trúarhita í miklum sólarhita
annar hélt í bænum Tarnow i Suð- en hvort andlitsgretturnar stafa af
austur-Póllandi í fyrradag. Um tvær iðrun, syíju eða ofbirtu í augum
milljónir manna hlýddu á messuna vegnasólarinnarererfittaðspáum.
sem haldin var undir berum himni.
Símamynd Reuter
Simamynd Reuter
Það mætti halda að Margaret Thacther væri að bægja frá sér illum öndum
áður en hún gekk inn á kjörstað sinn í Westminster i gær. eins og sjá má
á þessari mynd. Revndar var þó ekki um illa anda að ræða í þetta skiptið
heldur sæg fréttamanna og ljósmyndara sem virðist hafa tekist að króa
járnfrúna upp við vegg og er hún þarna í óða önn að reyna að bægja þeim
frá og verjast spurningum.
„Mig vantaði pening. Þess vegna tók ég hlutverkið. Það hvarflaði ekki
að mér að það ætti eftir að færa mér auðæfi, enda átti þetta ekki að taka
nema sex vikur í fyrstu,“ segir leikarinn John Karlen, betur þekktur sem
dyggur eiginmaður lögreglukonunnar Lacey i sjónvarpsþáttunum um Cag-
ney og Lacey.
Öðruvísi fór en á horfðist. Nú
er Karlen orðinn heimsfrægur
fyrir leik sinn í þessum þáttum,
sem eru meðal þeirra vinsæl-
ustu í Bandríkjunum, og hefur
hann auk þess hlotið Emmy
verðlaunin fyrir aukahlutverk,
fyrir leik sinn í þeim. Karlen
hefur reynt fyrir sér í leikaralíf-
inu undanfarin fimmtán ár án
þess þó að hafa slegið nokkum
tíma í gegn og raunar hefur
hann verið blankur í gegnum
tíðina.
Hann tekur því rólega núna,
er i upptökum á Cagney og
Lacey tvo daga vikunnar en
þess á milli sinnir hann uppá-
haldsáhugamálinu, hesta-
mennskunni, eða keyrir um á
Jagúarnum sínum. Einnig hef-
ur hann tekið gestahlutverk í
öðrum sjónvarpsþáttum, t.a.m.
í þáttunum um Mike Hammer
þar sem kunningi hans, Stacy
Keach, fer með aðalhlutverk.
Simamynd Reuter
Hinn heimsfrægi óperusöngvari Placido Domingo hefur nú tekið að séi
hlutverk óperutónskáldsins Puccini, í kvikmynd sem á að gera um lífsferi
Puccinis. Hér sést Placido undirrita samning við forráðamann kvikmyndafyr-
irtækisins sem framleiðir myndina, Kenneth Beacham. Viðamestu óperusen-
urnar í myndinni verða unnar í samráði við kinversk kvikmyndafyrirtæk
og teknar í Kina.
Hlutverk eiginmannsins i þáttunum um
Cagney og Lacey hefur gjörbreytt lifi leik-
arans Johns Karlen. Sæll, rikur og
frægur. Símamynd Reuter
Ólyginn
sagði...
Charles Dance
þekkja íslendingar m.a. úr
sjónvarpsþáttunum Dýrasta
djásnið og úr kvikmyndinni
Plenty þar sem hann lék á
móti Meryl Streep. Þessi hlut-
verk auk margra annarra hafa
gert hann heimsfrægan á ör-
skömmum tíma og síðasta
hlutverk hans i nýjustu mynd
Eddie Murphys virðist enn
ætla að auka á hróður hans. «
Charles hefur þó einsett sér
að láta ekki frægðina stíga sér
til höfuðs og reynir sem hann
mest má við að halda sjálfum
sér og konu sinni, Joönnu,
auk barnanna, Oliver og
Rebeccu, utan sviðsljóssins.
Hann hefur hafnað stóru hlut-
verki I nýrri bandarískri
sápuóperu enda hefur hann
nú efni á að velja og hafna
þegar góð hlutverk eru annars
vegar.
Paul Newman
hefur lýst því yfir að ef hann
fengi að lifa lífinu aftur þá
myndi hann ekki eyða því eins
og hann hefur gert. Helst
myndi hann þá langa til að
verða sjávarlíffræðingur.
Newman er nú orðin sextíu
og tveggja ára gamall og hefur
að mestu dregið sig út úr kvik-
myndaleik, „enda orðinn
lúinn og þreyttur", eins og
hann orðar það sjálfur. Ekki
fyrr en eftir sjö útnefningar til
óskarsverðlauna hlaut hann
þau, en það var síðasta ár fyr-
ir leik sinn í kvikmyndinni
„Color of money". Á efri árum
segist ætlar hann að sökkva
sér í áhugamál sitt, sjávarlíf-
fræðina, „á meðan honum
endist tími".
Lisa Bonet
er sögð valda aðdáendum sín-
um miklum vonbrigðum með
því hlutverki sem hún fer með
i kvikmyndinni Angel Heart,
a.m.k. er sjónvarpspabbinn
hennar, hann Bill Cosby, al-
veg gáttaður á framferðinu.
Lisa, sem leikur dóttur svarta-
galdursprests, sést nefnilega i
nokkuð mörgum ansi svæsn-
um senum í myndinni, svo
margar eru þær að minnstu
munar að myndin fái á sig
pornóstimpil. Mótleikari
hennar er Mickey Rourke,
sem m.a. lék eitt aðalhlutverk-
ið i Níu og hálfri viku, þannig
að hann er ekki alveg ókunn-
ugur erótískum senum á við
þessar. Stökk Lisu úr hlutverki
fyrirmyndardótturinnar þykir
hins vegar vera nokkuð
stærra.