Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Keflavíkuiflugvöllur:
Slökkviliðið á skyttiríi
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
hefur fleiri starfa en að glíma við
eld og eldhættu. Á þriðjudag voru
sex slökkviliðsmenn vopnaðir hagla-
byssum að skjóta svartbak við nýju
flugstöðina. Með þeim var einn mað-
ur frá Náttúrufræðistofhun.
Jóhann Egilsson slökkviliðsmaður
sagði í samtali við DV að svart-
bakurinn hefði aldrei verið ágengari
við flugvöllinn en nú. Hann sagði
að í vor hefði verið reynt að eitra
fyrir fuglinn en það hefði ekki tekist
eins og vonast var til. Jóhann sagði
að þessi plága væri að ágerast. Jó-
hann sagði að áður en farið var að
nota haglabyssur hefði hvellbyssa
verið reynd en hún hefði laðað að
sér fuglinn í stað þess að fæla hann
frá.
Á þriðjudaginn tókst þeim félögum
að farga alls 280 svartbökum. Jó-
hann taldi víst að framhald yrði á
þessum aðgerðum þar sem þetta virt-
ist vera eina leiðin sem skilaði
árangri.
-sme
Fáskrúðsfjörður:
Mikil þátttaka í ökuleikni
- 25 keppendur í hjólreiðakeppni
Létt undir
með eyðni-
smituðum
„Þetta er einstaklingsbundið og
verður metið í hverju tilfelli fyrir
sig. Þetta er gert samkvæmt heim-
ild í farsóttarlögum. Ég held að það
hafi ekki reynt á þetta fyrr,“ sagði
Heimir Bjamason en hann gegnir
störfúm borgarlæknis í fjarveru
Skúla Johnsen.
Teknar hafa verið upp greiðslur
til fólks sem smitað er af eyðni.
Heimir segir að ekki sé hægt að
segja um hversu háar greiðslur til
þessa fólks eru. Þetta sé hugsað
til að létta undir með þeim sem
geta ekki unnið og/eða ef hagir
fólksins séu þannig að það geti
ekki framfleytt sér án hjálpar.
„Eins og ég sagði verður þetta
metið í hverju tilfelli fyrir sig sem
vonandi verða sem fæst,“ sagði
Heimir Bjamason.
-sme
Keðjubréf:
Hefur fengfð
þrjú bréf
á stuttum tíma
]ón G. Haukaaon. DV, Akureyn
Nokkuð er um keðjubréf á Akur-
eyri um þessar mundir. Reyndar
hafa keðjubréf verið gangandi í
allan vetur. Kona ein sem hafði
samband við DV í gær hefur feng-
ið þrjú bréf nýlega. Um er að rreða
svokölluð hamingjubréf og boða
þau happ og hamingju. Ekki er um
peninga að ræða. I bréfúnum er
sagt að ef keðjan verði slitin þá
geti óhamingja riðið yfir.
Ökuleikni fór vel af stað hér á Fá-
skrúðsfiröi og var mikil þátttaka, bæði
í karla- og kvennariðli og hjólreiða-
keppninni.
13 keppendur kepptu í eldri riðli í
hjólreiðakeppninni og lenti Rafn
Heiðar Ingólfsson, 12 ára, í fyrsta sæti
með 65 refsistig, i öðm sæti lenti Birg-
ir Ómar Ingason, 15 ára, með 73
refsistig og í þriðja sæti lenti Guðjón
Gunnarsson, 12 ára, með 74 refsistig.
í yngri riðli lenti Ágúst Þór Margeirs-
son, 11 ára, í fyrsta sæti með 52 refsi-
stig og er það besti árangur sem náðst
hefur í sumar og hjólaði hann alveg
villulaust í gegnum brautina. 1 öðm
sæti lenti Þórður Hansson, 11 ára, með
73 refsistig og í þriðja sæti lenti Ingim-
ar Óskarsson, 10 ára, með 78 refsistig.
í ökuleikninni var það Gunnar
Skarphéðinsson sem varð í fyrsta sæti
með samtals 139 refsistig, í öðm sæti
lenti Garðar Skarphéðinsson með 195
refsistig og í þriðja sæti lenti Jón
Kárason með 236 refsistig. í kvenna-
Regina Thoiarensen, DV, Gjögri;
Það er byggt fleira en kirkjur í Ámes-
hreppi á Ströndum. Á Krossnesi á að
byggja í sumar íbúðarhús handa eldri
hjónum en sonur þeirra er tekinn við
búskapnum ásamt ungri konu sinni.
riðli, sem var frekar íjölmennur, lenti
Sigríður Pálsdóttir í fyrsta sæti með
samtals 346 refsistig, í öðm sæti lenti
Helga Hrönn Melsted með 361 refsi-
stig og í þriðja sæti lenti Sigrún
Ragnarsdóttir með 396 refsistig. Verð-
Gerðar Jónsson, fiskverkandi úr
Reykjavík, er að byggja á Gjögri hús
sem er 14 metrar á léngd og 7 á breidd.
Verður það fiskmóttaka og íbúðarhús
yfir sumarmánuðina en allt er byggt
undir sama þaki. Þá er verið að
stækka íbúð skólastjórans í barna-
launin í hjólreiðakeppninni gaf reið-
hjólaverslunin Fálkinn og í ökuleikn-
inni gáíú verðlaunin Bíla- og
búvélaverkstæðið Ljósaland og Álím-
ingar á Fáskrúðsfirði.
EG
skólanum á Finnbogastöðum og er sú
bygging orðin fokheld og á að verða
tilbúin í haust. Einnig er verið að
steypa viðlegukant á tveggja ára
gamla bryggju í Norðurfirði.
Ágúst Þór Margeirsson fór villulaust í gegnum brautina og er nú með besta
árangur yfir landið í yngri riðli.
Gjögur:
Mikið um byggingar
Hækkar hrá-
efhið í grjóna-
grautinn?
Kvennalistinn hefúr sent frá sér
áskorun til ríkisstjómar Islands
þar sem áformum um söluskatt á
matvæli er mótmælt.
„Kvennalistinn skorar á hina
nýju ríkisstjóm að láta af áfomum
um 10% söluskatt á matvæli. Þeg-
ar hefur framkvæmd þessarar
skattheimtu veriö frestað til næstu
mánaðamóta og vill Kvennalistirm
benda nýjum valdhöfúm á að nota
þann tíma til að íhuga vandlega
kosti og galla skattlagningar á
matvæli," segir í áskoruninni.
Þá bendir Kvennalistinn á að
hin nýja skattlagning samræmist
illa markmiðum ríkisstjómarinnar
um verðbólgu og að tekjuöflun rík-
isins verði gerð réttlátari og
einfaldari. -ES
Stöð 2
beint til
Ólafsfjarðar
Jón G. Haukssan, DV, Akureyit
Stöð 2 mun líklegast nást beint
til Ólafsíjarðar í næsta mánuði.
Sjónvarpskóngurinn Skúli Páisson
á Ólaísfirði hyggst nefrdlega setja
upp sendi efet á Múlakollu, fjallinu
sem Ólafsfjarðarmúli er í. Þannig
mun Skúh ná sendingunni beint
frá Akureyri. Vindrafstöð mun
framleiða rafmagn fyrir sendinn
uppi á íjallinu. Vikugamalt efiii
Stöðvar 2 er nú sýnt á Ólafefirði.
Slátturgengurvel
Regfea WiararKBffli, DV, G^ogri:
Sláttur er byijaður í Ámeshreppi
og gengur vel, því hér hefúr verið
frábært tíðarfar, en þurrkar og hiti
hafa tafið fyrir grassprettu og þá
sérstaklega þar sem tún eru rækt-
uð á sandi. Bændur slá og aka
heyjunum i flatgryfjumar svo að
gömlum Ámeshreppsbúum, sem
hér em á ferð, ofbýður hvað hey-
skapurinn gengur fljótt. Þegar það
var í sveit fyrir um 30 árum var
slegið með orfi og ljá og heyskapur
stóð þá lengi yfir.
í dag mælir Dagfari
AUir þekkja Parkinsons-lögmálið.
Hins vegar hafa færri séð eða heyrt
í Parkinson sjálfúm og því var það
skemmtileg uppákoma þegar Versl-
unarráð íslands og Almenna bókafé-
lagið buðu þessum aldna heiðurs-
manni hingað til lands nú í vikunni.
Parkinson er þekktur maður af naíhi
sínu en ekki í eigin persónu og enda
þótt bæði AB og Verslunarráðið séu
mikilvægar samkundur þá var það
vel til fimdið hjá Sjónvarpinu að
bjóða Parkinson í beina útsendingu,
svo fleiri gætu skemmt sér við að
hlusta á hann. Þetta var gert í fyrra-
kvöld undir stjóm Ólafs Sigurðsson-
ar en auk þess var kynnt í
dagskránni að þau Davíð Scheving
Thorsteinsson og Guðrún Helga-
dóttir ræddu við gestinn.
Þátturinn fór fram á ensku, enda
ekki hægt að gera ráð fyrir að Park-
inson gæti tjáð sig á íslenskri tungu
þótt hann sé víðförull maður og hafi
mikið álit á íslendingum. Þetta gerði
ekki svo mikið til vegna þess að
þorri þjóðarinnar er reiprennandi í
enskunni og þar að auki gátu sjón-
varpsáhorfendur séð íslenskan texta
neðanmáls á skjánum.
I upphafi þáttarins mátti ráða að
íslensku þátttakendumir skildu það
hlutverk sitt rétt að þeir væm boðn-
I enskri útsendingu
ir í sjónvarpssal til að ræða við
Parkinson og spyija hann spjörun-
um úr. Davíð og Guðrún gátu heldur
ekki búist við að ríkissjónvarpið
eíhdi til umræðuþáttar á síðkvöldum
til að leyfa áhorfendum að kynnast
viðhorfhm þeirra. Það var Parkin-
son sem var interessant, enda
óvæntur og sjaldséður gestur hér á
landi.
En ekki hafði þessi þáttur staðið
lengi yfir þegar ljóst var að Parkin-
son gegndi aukahlutverki í þættin-
um. Davíð og þó einkum Guðrún
alþingiskona tóku forystuna í því
að lýsa sínum skoðunum og karpa
um það sín í milli hvort það borgaði
sig að vera ríkur. Og eins hvað mað-
ur ætti að gera við peningana ef
maður væri ríkur. Bæði Parkinson
og Ólafúr stjómandi drógu sig fljót-
lega í hlé og það verður að segja
þeim til hróss að báðir sýndu þá
kurteisi að grípa ekki fram í fyrir
skötuhjúunum nema til að slíta
þættinum og segja nokkur orð að
lokum.
Allt var þetta sök sér en nýstárlegt
að því leyti að þama sátu tveir ís-
lendingar og þráttuðu fram og til
baka á ensku. Er það áreiðanlega í
fyrsta skipti sem sjónvarpið tekur
upp á þeirri nýbreytni að láta íslend-
inga leiða saman hesta sína á
erlendu tungumáli. Áður en yfir lauk
mátti Parkinson þakka fyrir að fá
að skjóta inn orði og orði og maður
fór að velta því fyrir sér til hvers
hann hefði verið fenginn í sjón-
varpið til að hlusta á þessa kapp-
ræðu. Þótt ekki verði það dregið í
efa að Parkinson hafi margt og mik-
ið lært af því að heyra skoðanir
þingmanns Alþýðubandalagsins
annars vegar og framleiðanda gos-
drykkja hins vegar á þvi til hvers
peningar em notaðir þá hefur maður
á tilfinningunni að hann hafi ýmis-
legt heyrt um það áður.
En kannski er þetta nýbreytni sem
verður fastur liður í framtíðinni, aö
bjóða mektarmönnum til Islands til
að fá þá í sjónvarpssal til að hlusta
á íslendinga rífast innbyrðis. Hvers
vegna þá ekki að láta stjómmála-
mennina okkar hætta þessari vit-
leysu, að karpa fram og til baka á
íslensku, þegar í ljós kemur að hér
er til fólk sem er miklu færara til
að tjá sig á ensku? Þar að auki er
engin hætta á öðm en að bjóða
megi frægum, erlendum mönnum til
að vera viðstaddir slíka umræðu til
að lyfta stjómmálaumræðunni upp
á æðra plan. Parkinson er áreiðan-
lega ekki einn um það að vilja mæta
í sjónvarpssal til að hlýða á gáfuleg-
ar athugasemdir innfæddra um
sjálfan sig.
Eins kemur það til álita að sleppa
því að hafa útlending viðstaddan,
enda miklu ódýrara ef hægt er að
komast hjá því. Ef sjónvarpið er á
annað borð þeirrar skoðunar að
Parkinson þurfi upp á líf og dauða
að vita hvað þau Davíð Scheving
og Guðrún Helgadóttir hafa að segja
hvort við annað þá má alltaf senda
honum spólu. Islendingar em gáfað
fólk, vel máli famir og segja margt
af viti sem útlendingar gætu lært af.
Parkinson er ekki einn um að þurfa
á því að halda.
Dagfari