Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987. 5 Fréttir Landsprtalinn: Hjartaþræðingar liggja niðri vegna tækjabilunar Hjartaþræðingartæki Landspítal- ans hefur verið bilað að undanfornu en vonir standa til að það komist í lag í þessari viku.p Hjartaþræðingar liggja niðri á meðan, samkvæmt upplýsing- um sem DV fékk hjá Grétari Ólafssyni, yfirlækni á Landspítalanum. Sagði Grétar skaðlaust að hjarta- þræðingar lægju niðri í nokkra daga enda eru hjartaaðgerðir ekki fram- kvæmdar nú á Landspítalanum, vegna sumarleyfa starfsfólks, þar sem ekki er nægur mannafli til að halda úti þessum aðgerðum í fjórar vikur yfir sumartímann. Hjartaaðgerðir hefjast aftur 11. ágúst næstkomandi. Grétar sagði að sjúklingar væru á biðlistum vegna hjartaaðgerða og undanfarið hefðu tilfelli, sem ekki hefðu þolað bið, verið send utan til að gangast undir aðgerðir þar. Grétar sagði hjartaaðgerðimar hafa gengið vel þann tíma, sem þær hafa verið gerðar hér á landi. en um 70 sjúklingar hafa gengist undir slíkai aðgerðir hér. Árangur sagði Grétar ekki vera verri hér en erlendis enda þótt íslensku læknarnir fengju oft erf- iðari tilfelli til meðferðar. sjúklinga sem af einhverjum ástæðum vildu ekki fara til útlanda eða ekki væru talið fært að senda þmigað. -ój Hressir krakkar i Olafsvik, talið frá hægri: Jóhanna Ósk Jónsdóttir, Viöar ingi Pétursson, Lúðvik Rúnarsson og Þráinn Egilsson. DV-mynd JAK Olafsvík: Fótbolti og dúfharækt „Það er frábært að eiga heima í Ólaf- svík. Hér er sko margt skemmtilegt hægt að gera,“ sögðu fjórir hressir krakkar þegar tíðindamenn DV hittu þau að máli síðdegis á fógrum degi fyrir skömmu. Þetta voru þau Þráinn Egilsson, Lúðvík Rúnarsson, Viðar Ingi Pétursson og Jóhanna Ósk Jóns- dóttir. Strákarnir sögðust allir vera að vinna í fiskinum. Tveir, sem orðnir eru 14 ára, fá vinnu allan daginn, einn vai- 13 ára og fær því bara vinnu hálfan daginn en Jóhanna, sem er 12 ára, fær ekki vinnu fyrr en næsta sumar. Og hvað gera svo krakkar í Ólafsvík í tómstundum? „Yfir veturinn stundum við mikið skíði og leikum okkur við eitt og ann- að. En yfir sumarið er margt hægt að gera. Við syndum í sjónum á góðviðr- isdögum, erum i fótbolta á kvöldin og svo stundum við dúfnarækt.“ - Fótbolta, segið þið, - þetta gengur hálfilla hjá ykkur Ólsurum, Víkingur, Ólafsvík, er fallinn í 3. deild. „Já, það er rétt, en það verður nú sko ekki lengi. Taktu eftir því. Það er stutt þar til við komum inn í þetta og þá breytist allt. Við verðum komn- ir í 1. deild eftir nokkur ár:" Ekki hvarflaði að fréttamanni að efast um þessi orð. Krakkamir sögð- ust hlakka til næsta vetrar vegna þess að þá yrði nýja félagsheimilið komið í notkun og þar ætti að reka félagsmið- stöð fyrir börn og unghnga. „Það verðui' nú flott rnaður." köll- uðu krakkamir á eftir okkur þegar við kvöddum. -S.dór Fiskmarkaður á Akureyri Jón G. Haukssan, DV, Akureyrú „Við stefnum að því að vera með fyrsta uppboðið á fiskmarkaðnum 1. september," sagði Sigurður P. Sig- mundsson, fi'amkvæmdastjóri fisk- markaðar Norðurlands, við DV i gær. Sigurður tók til starfa föstudaginn 10. júlí en hann hefur unnið í sjávarút- vegsráðuneytinu. Líklegast er hann þó þekktastur sem langhlaupari í frjálsum íþróttimi. Fiskmarkaðurinn á Akureyri verður til að byrja með fyrst og ffemst fjar- skiptamarkaður. „Það er verið að vinna í því núna að smíða fyrir okkur fullkomið tölvukerfi," sagði Sigurður. I húsi fiskmarkaðarins verður tölvu- Þegar starfsfólk hjá sportfatagerð Henson hf. mætti til vinnu í gær kom i ljós að innbrot hafði verið framið. Benedikt Guðmundsson hjá Henson Brotist inn hjá Henson sagði við DV að ekki væri fullkannað hverju hefði verið stolið. Þó væri víst að tveimur tölvulyklaborðum hefði verið stolið, svo og myndavél. Bened- ikt sagði að ekki hefðu verið unnar skemmdir við innbrotið. Málið er í rannsókn. miðstöð. Þangað berast frá seljendum upplýsingar sem jafnharðan eru tölvu- skráðai'. Kaupendur, hvort sem þeir eru á Ólafsfirði, Dalvík eða annarstað- ar, tengjast kerfinu. Það þýðir að þeir þurfa aðeins að ýta á einn takka til að sjá hvaða magn er í boði, hvaða tegundir, hversu gamall fiskurinn er. hvar viðkomandi skip nmn landa o.s. frv. Um áramótin er stefnt að því að byrja með uppboðsmarkað eins og hann tíðkast í Reykjavík og Hafnar- firði. Á þeim markaði mæta menn á staðinn og bjóða í fiskinn. En fisk- markaður Norðurlands verður þó fyrst og fremst íjarskiptamarkaður. THAILAND A KANARIEYJA - VERÐI BANKOK 09 baðstrandabærinn PATTAYA ÓTRÚLEGT EN SATT - Nú getum við boðið •likaur ævmtyraierou: a ivanan- eyjaverði. Takmarkað s»ta£ramboð. Brottför 18. «ept 19 dagar - Kyxmingarverð kr. 59.400 Jólaferð 18. des.,21. dagur. FLUGFERÐIR IFLUC Vasturgötu 17 aímar 10661,15331, 22100 / JL-BYGGINGAVÖRUR TEPPADEILD UTSALA-NEI! LÁGTYERB- Við höldum ekki útsölu. En með hagstæðum innkaupum reynum við að hafa vöruverð alltaf sem lægst. Madras 100% zinthetic.kr.405 perm2 Meriden 50% polyprop, 50% polyamid .. kr. 640 per m2 Sandra 50% polyprop, 50% polyamid.kr. 665 per m2 Turbo 50% polyprop, 50% polyamid..kr. 665 per m2 Cadis 100% poíyamid...kr.760 per m2 Tweed 50% polyprop, 50% polyamid..kr. 785 per m2 Rosanne 100% polyamid.kr. 875 per m2 Shadows 100% polyamid. kr. 1.185 RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND per m2 FTl BYGGIMCAWÖBÐBl Greiöslukjör gerast varla betri Aðeins að Stórhöfða, sími 671-100 ] >:■!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.