Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987. Dægradvöl Föngulegur hópur Islendinga, Norðmanna, Finna og Dana. Texti: Brynhildur Ólafsdóttir Ljósmyndir: Sveinn Þormóðsson N ordi obb - hvað er nú það? Uppi á annarri hæð í Hátúni 12 sátu um 50 krakkar og horfðu á íslensku Stuðmannamyndina, Með allt á hreinu. Öðru hverju glumdu hlátur- rokur í salnum. Það hefði mátt ætla að allt væru þetta íslenskir krakkar sem skildu það sem fram fór í mynd- inni en það var nú öðru nær. Þarna atvinnumiðlun fyrir ungt fólk á aldr- inum 18 til 26 ára. Hugmyndin var upphaflega að auka ungmennaskipti á milli Norðurlandanna með því að leyfa ungu fólki að kynnast frænd- þjóðum sínum af eigin raun. Þetta á auðvitað líka að styðja og auka nor- ræna samvinnu. húsnæði fyrir krakkanna. Hann fer líka og heimsækir þá sem eru að vinna úti á landi einu sinni á sumr- in. Eyjólfur Pétur Hafstein, starfs- maður Norræna hússins, er verkefnisstjórinn hér á landi. Tungumálið ekki vandamál - Hvar fá þau svo vinnu? Krakk- arnir fá störf á ótalmörgum stöðum um allt land og þau fá sömu laun og aðrir. Sumir vinna í stórmörkuðum, Hampiðjunni, Rafmagnsveitum rík- isins og SS, aðrir hjá bönkum, á skrifstofum, í fiski o.fl. o.fl. Tungu- málið virðist ekki valda þeim neinum erfiðleikum og þeir læra fljótt al- gengustu orðin.“ - Hvað eru þeir lengi? „Það er mjög misjafnt. Alveg frá 1 mán. upp í 3 mán. og þá yfir sumartímann. Það fer oftast eftir því hve langt sumarfrí þeir eiga frá skólum eða bara hve lengi þeir vilja vera. Sum eru jafnvel lengur og mörg koma aftur árið eftir og fá vinnu hjá fyrri vinnuveitenda án þess að það fari í gegnum Nordjobb. Krakkarnir ferðast líka oft á eigin spýtur um landið eftir að vinnunni lýkur og þá getur teygst úr dvölinni. „Fleiri íslendingar sem fara út“ - Er jafnt hlutfall á milli íslendinga sem fara út og hinna sem koma hing- að? „Nei, enn sem komið er eru það miklu fleiri fslendingar sem fara til starfa á Norðurlöndunum eða hátt á annað hundrað á meðan aðeins um 90 manns koma hingað. Það er fyrst leitað að störfum og síðan er ráðið í þau. - Hvað á maður að gera til þess að fá starf í gegnum Nordjobb? „Það birtist auglýsing upp úr áramótum og kynningarbæklingar eru sendir Kristin Stefánsdóttir. til skóla og ráðningarskrifstofa, auk þess sem Norrænu félögin gefa allar upplýsingar. Umsækjendur fylla út blað, sérstaklega til þess gert og segja örlítið frá sjálfum sér og við hvað þeir vilja helst vinna. Umsókn- irnar eru svo sendár til þeirra landa sem viðkomandi hefur áhuga á. Umsóknarfrestur er til 1. mars. Hvert land fyrir sig velur úr umsóknunum sem inn koma og oftast komast færri að en vilja. Á hestbaki í Hveragerði - Hvernig er svo félagslífið? Ég er æskulýðsfulltrúi Norræna hússins og hef yfirumsjón með frístunda- starfi þeirra krakka sem hér dvelja á vegum Nordjobb en það er mjög víðtækt. Við höfum farið í ýmsar styttri og lengri ferðir um landið, t.d. að skoða Gullfoss og Geysi, upp í Þórsmörk, farið var á hestbak í Hveragerði og um síðustu helgi var farið til Vestmannaeyja. Nú, svo er stutt íslenskunámskeið í gangi og svokölluð landakvöld eru að byrja. Þá taka krakkar frá hverju landi sig til, bjóða upp á þjóðarrétti og kynna sína þjóð og menningu." íslenskir hrútspungar Islandskvöldið var einmitt sama kvöldið og blm. kíkti i heimsókn. Stórt langborð var hlaðið íslenskum kræsingum og ýmislegt var á boð- stólum s.s. slátur, svið, harðfiskur, hangikjöt og ýmislegt súrmeti eins og súrsaðir hrútspungar, sem reynd- ar vöktu litla hrifningu. Ekki má heldur gleyma íslenska brennivíninu sem drukkið var sem snaps með matnum. Kristín sagðist ekki ætla að útskýra fyrir krökkunum hvað væri í réttunum fyrr en eftir borð- hald. Það voru íslensku krakkarnir sem fóru til Norðurlandanna á veg- um Nordjobb í fyrra sem sáu um kvöldið. Með fullan munninn. „Alveg ágætur matur, alla vega sumt, en þessir súrs- uðu hrútspungar oj.“ Það er tilraunasvipur á krökkunum. var saman komið ungt fólk sem tal- aði 5 mismunandi móðurmál, frá 5 mismunandi löndum og átti það eitt sameiginlegt að vinna á íslandi. Ungt fólk kemur hingað á vegum Nordjobb. „Atvinnumiðlun ungsfólks“ - En hvað er Nordjobb? Það er Kristín Stefánsdóttir, æskulýðsfull- trúi Norræna félagsins, sem verður fyrir svörum. „Nordjobb er norræn Það var svokölluð Gyllenhammar- nefnd, sem hét í höfuðið á forstjóra Volvo i Svíþjóð, sem kom fyrst með þessa hugmynd um norræn ung- mennaskipti og árið 1985 fór þessi starfsemi af stað. Nú er svo komið að Nordjobb er sjálfseignarstofnun sem norrænu félögin ásamt ýmsum fyrirtækjum eiga aðild að. í hverju landi er einn verkerfnis- stjóri sem hefur alla yfirumsjón með starfseminni, þ.e. útvegar atvinnu og „Finnar líkastir íslendingum u Jóhanna er ein þeirra íslendinga sem farið hefur á vegum Nordjobb á vit nýrra landa og ævintýra. Jó- hanna fór til Svíþjóðar í fyrra og vann þar á sjúkrahúsi í Gautaborg. Hún var stödd á íslandskvöldinu og reyndar ein af þeim sem sáu um það. „Bjuggum öll saman“ „Það sem var skemmtilegast úti í Gautaborg var að við bjuggum öll saman á stúdentagarði og kynntumst þar af leiðandi mun betur og héldum alltaf hópinn. Við bjuggum í einstaklingsherbergjum og vorum með sameiginlegt eldhús. Þetta eru risastórir stúdentagarðar með þvottahúsum, sjónvarpsher- bergjum og öllu mögulegu. Hér á íslandi búa krakkarnir hins vegar vítt og breitt um bæinn og það hlýt- ur að vera mun leiðinlegra. Strákarnir hjá Volvo - Hvar unnu flestir? Flestir strák- anna unnu hjá Volvo en forstjóri Volvo er einn stofnanda Nordjobb. Annars var unnið í öllu mögulegu, þvottahúsum, mjólkursamsölu o.s. frv. Kaupið var mjög gott miðað við ísland. Verst var að það var tekið af okkur 25 % í skatta, sem við að vísu fáum endurgreitt um næstu jól, en þetta kom sér frekar illa. Ég held að nú sé búið að semja um lægri skatta Nordjobburum til handa.“ „Alveg til í að fara aftur." Jóhanna Kristjánsdóttir fór í fyrra á vegum Nordjobb til Gautaborgar þar sem hún var í 3 mánuði. Hjólreiðaferðalag til Danmerkur - Hvað varstu lengi? „Ég var í 3 mánuði, vann í 2 'A og ferðaðist svo aðeins um Svíþjóð fór t.d. til Stokk- hólms. Flestir fara út í júní og eru þetta einn til tvo mánuði, en sumir fá tilboð frá vinnuveitandanum um að vera lengur." - Hvemig var félagslífið? „Alveg æðislegt, meiriháttar. Það var opið hús einu sinni í viku, veislur haldn- ar og alltáf eitthvað sniðugt að gerast um helgar. Svo var farið í fullt af ferðum. T.d. fórum við einu sinni í hjólreiðaferðalag til Dan- merkur. Allar ferðimar eru skipu- lagðar og greiddar niður af Nordjobb" „Mjög þroskandi" - Hvað var það einna helst sem þú fékkst út úr dvölinni? „Ég kom ein til Svíþjóðar og hafði aldrei áður farið svona að heiman. Ég varð því að læra að treysta á sjálfa mig, láta enda ná saman o.s.frv. Þetta var mjög þroskandi. Svo kynntist ég auðvitað alveg fullt af krökkum þó aðallega íslenskum og finnskum Nordjobburum. Þeir héldu líka mest hópinn og mér finnast Finnar einna líkastir ís- lendingum í hegðun, ekki eins formlegir og lokaðir og mér finnast hinir vera oft á tíðum. Ég ráðlegg fólki tvímælalaust að fara í svona ferð. Það er skemmtilegt að kynn- ast öðru fólki en íslendingum.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.