Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Síða 23
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
23
DV
Dægradvö]
Islendingar eru vinnudýru
Maria Edholm, 24 ára, frá Svíþjóð og Satu Kankaala, 20 ára, frá Finnlandi.
Maria frá Svíþjóð og Satu frá Finn-
landi hafa verið hér á landi í 1 mánuð
á vegum Nordjobb. Þær þekktust
ekkert áður en þær komu til íslands
en nú búa þær saman og eru bestu
vinkonur.
„Hafði lesið Sölku Völku“
- Af hverju völduð þið ísland?
Maria svarar fyrst. „Ég hafði lesið
Sölku Völku og mikið af bókum um
íslenska menningu og hið sérstaka
samband á milli lands og þjóðar,
náttúrutengslin. Ég ákvað því að slá
til og skella mér hingað." Satu segir:
„Ég vildi fyrir það fyrsta bara kom-
ast eitthvert út. Ég treysti mér ekki
til að fara á flakk á eigin spýtur,
redda vinnu o.s.frv. svo ég valdi
Nordjobb til að hafa þetta allt saman
öruggt og skipulagt. ísland varð svo
fyrir valinu vegna þess að þær tvær
personur sem hafa haft mest áhrif á
mig hafa verið á íslandi og líkað
vel. Ég fór á bókasafn og gleypti í
mig allt sem hægt var að finna um
landið."
„Fín föt, flott hús“
Þær stöllur vinna báðar hjá Ár-
mannsfelli og hafa helst eignast
íslenska vini í gegnum vinnuna.
„Mér finnast Islendingar vera frekar
lokaðir, þeir eru með nokkurs konar
grímu sem svo brotnar þegar þeir
fara á fyllirí," segir Maria og bætir
við: „íslendingar eru lika vinnusjúk-
ir, það er unnið myrkranna á milli
til að eignast fín föt, hraðskreiðan
bíl og flott hús.“ Maria kveðst, þrátt-
fyrir þetta, líka ágætlega á íslandi
og ætlar hún að koma aftur í vetur,
vinna í fiski og læra íslenskuna.
„Vildi deyja í Þórsmörk“
Þeim stöllum finnast ungir Islend-
ingar vera mjög feimnir við að tala
dönsku. „Þeir vilja bara tala ensku
en aftur á móti er eldra fólkið
óhræddara við dönskuna." Þær voru
sammála um að Island væri mjög
fallegt land. „Þórsmörk er frábær,
alveg stórbrotin. Þar vildi ég deyja,“
segir Maria að lokum.
Aldrei
áður
smakkað
fisk!
„Ég er byrjaður að skilja svolítið þó
ég sé aðeins búinn að vera í 2 vik-
ur,“ sagði Jörgen Leded, tvítugur
Dani frá Hjorring á Jótlandi. „Það
er erfiðara að tala og það eina sem
ég kann er: Ég skilja ekki íslensku."
Jörgen býr hjá fjölskyldu í Njarðvík-
um og svo skemmtilega vill til að sú
fjölskylda hefur búið í heimabæ
hans, Hjorring.
Jörgen frá Danmörku með skyr og
islenskt brennivín í höndunum. Hon-
um fannst skyrið gott en brennivínið
afleitt.
- Er eitthvað sem þér finnst öðru-
vísi hér en í Danmörku? „Já, mjög
margt. Þið drekkið t.d. mjög mikið
kók og þá oft með lakkrísröri í og
svo borðið þið súkkulaði með lakkrís
utan um. Þetta hef ég aldrei séð og
mér finnst þetta stórfurðulegt.“
Krakkarnir sem sátu í kring höfðu
líka tekið eftir þessari venju íslend-
inga. Þeim fannst þetta alveg ferlega
fyndið og ætluðu aldrei að hætta að
hlæja. Þegar mestu hláturgusurnar
voru yfirstaðnar hélt Jörgen áfram:
Mikið videogláp
„Mér finnast fjölskyldu- og vina-
böndin líka vera sterk hérna. Fólk
kemur bara og bankar og kíkir í
heimsókn. Heima í Danmörku er
alltaf hringt áður en maður fer í
heimsóknir og þá er allt svo form-
legt, þú veist, kaffi og kökur og
svoleiðis. Þetta er miklu betra og
frjálslegra hérna. En svo ég haldi
áfram að telja upp hluti sem eru
öðruvísi þá finnast mér íslendingar
horfa alveg rosalega mikið á sjón-
varp og video. í Keflavík búa 7 þús.
manns og það eru 6 videoleigur á
staðnum en i heimabæ mínum búa
20 þús. og þar eru aðeins 3 leigur!“
„Bjórinn ekki nauðsyniegur“
- Saknarðu bjórsins? „Svolítið en
hann er ekki nauðsynlegur. Það er
kannski vegna þess að þið hafið ekki
bjór sem þið drekkið svona mikið
kók. Maturinn hérna finnst mér bara
góður. Ég hafði aldrei smakkað fisk
áður en ég kom til íslands en mér
líkar hann mjög vel.
Ég get vel hugsað mér að koma aftur
til Islands og skoða landið þá bet-
ur,“ sagði þessi hressi Dani að
lokum.
Vegna hagkvæmra-innkaupa
getum við nú boðið UNO 45 á
279 þús.kr., Einnig höfum við
fengiö nýja 5 dyra útgáfu af
UNO 45S á aðeins 327
þús.kr.. Tilboðið gildir meðan
birgðir endast.
Skiptikjör:
Eldri bifreið er tekin sem
greiðsla upp í nýja.
Kr. 45.000.- út og eftirstöðvar
eru lánaðar í allt að 24 mánuði.
Dæmi: Nýr UNO 45 279.-
Peningar 45.000,-
Eldri bifreið 150.000,-
Eftirstöðvar lánaðar
í allt að 24 mánuði.
Lánakjör:
Þeir sem ekki láta eldri bifreið
ganga upp í kaupin borga 20%
út. Eftirstöðvar eru lánaðar í allt
að 24. mánuði.
UN0 45 3jœdyra
UN0 45S 3jadyra
UN0 45S 5dyra
UNO60S 5 dyra
öll verð eru háð gengisbreytingum
IVu i
ER VIÐ SKEIFUNA
tíð
FIAT UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSSON HF.
S: 688850 - 685100