Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Qupperneq 34
34
FIMMTUDAGUR 16. JÚLI' 1987.
AndJát
Skarphéðinn Guðbrandsson frá Ólafs-
vík verður jarðsettur frá Fossvogs-
kirkju í dag. Foreldrar hans voru
Guðbrandur Sigurðsson og Jóhanna
Valentínusdóttir. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Laufey Þórðardóttir
og eignuðust þau fjögur börn.
Jóna Þorkelsdóttir, Snorrabraut 58,
Droplaugarstöðum, áður til heimilis
á Bergþórugötu 20, lést 14. júlí.
Guðbjörg Júlía Þorsteinsdóttir,
Furugerði 1, andaðist í Landakots-
spítala þriðjudaginn 14. júli.
.Sigurður Pálsson lést þann 13. júlí í
Sjúkrahúsi Suðurlands. Útför hans
verður gerð frá Selfosskirkju föstu-
daginn 17. júlí kl. 13.30.
Árni Garðar Kristinsson, Melabraut
55, Seltjarnarnesi, lést í Landspítal-
anum 14. júlí.
Ýmislegt
Kennsla í jóga
Konum á öllum aldri er boðið upp á frýja
^eiðsögn og kennslu í jóga og hugleiðingu
sem leið til heildræns þroska.
Hægt er að velja um einkatíma eða hóp-
tíma eftir óskum og þörfum.
Hafið samband við Dídí
c/o Leikskólinn Sælukot,
Þorragötu 1, sími 27050.
AEmæli
75 ára er í dag, 16. júlí, Lárus Þ.J.
Blöndal, fyrrverandi bóksali á Siglu-
firði, nú búsettur að Hlíðarbyggð 9,
Garðabæ.
Jón Baldvin
leitar að
aðstoðarmanni
Jón G. Hauksscm, DV, Akureyri;
!»Ég er að leita mér að aðstoðar-
manni en niðurstaðan er ekki fengin.
Hins vegar er ljóst að það er meiri en
nóg þörf fyrir slíkan mann,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson fjármálaráð-
herra þegar hann var spurður í gær
hvort hann væri búinn að fá sér að-
stoðarmann. Jón Baldvin sagðist ekki
vera fyrir fram með neinn ákveðinn
mann í huga til að taka við þessu
starfi.
Hafnarfjörður:
Opna gistihús og tjaldstæöi
og gefa út fyrsta leiðakortið
Hafnfirðingar eru þeirrar skoðunar að
bærinn þeirra eigi framtíð fyrir sér sem
ferðamannabær. Til að stuðla að því að
svo megi verða komu bæjaryfirvöld á lagg-
irnar fimm manna ferðamálanefnd á
síðasta ári og vinnur hún nú ötullega að
áætlanagerð.
Fyrir fáeinum dögum var tjaldstæði tekið
í notkun á Víðistaðasvæðinu þar sem unn-
ið er að miklu útivistarsvæði samkvæmt
nýsamþykktu skipulagi. Við opnun tjald-
stæðisins notaði »)C--Hafnaríjörður tæki-
færið og afhenti fulltrúum ferðamála-
nefndar fyrsta kortið af Hafnarfirði sem
prentað er fyrir ferðamenn. Er það á ensku
en næsta sumar verður einnig prentuð ís-
lensk útgáfa af kortinu.
Þá má geta þess að blómabúðin Burkni
við Linnetsstíg hefur tekið að sér að starf-
rækja upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn
og er það í fyrsta skipti sem slík þjónusta
er í Hafnarfirði. Einnig er vert að geta
þess að nýtt gistihús verður senn opnað í
Hafnarfirði en gistihús hefur ekki verið í
bænum í áratugi. Þá liggur einnig fyrir
bæjaryfirvöldum ósk um leyfi til að reisa
mótel við Reykjanesbraut í tengslum við
veitingahús sem á að fara að reisa þar
innan skamms.
Og svo má ekki gleyma því að náttúruöfl-
in hafa einnig lagt sitt af mörkum til
þeirrar viðleitni Hafnfirðinga að laða að
ferðamenn. Öllum að óvörum tók „túrista-
holan" eða borhola 14 í Krýsuvík að gjósa
á nýjan leik en hún hrundi saman í fyrra
og var af flestum talin dauð.
Meðfylgjandi mynd var tekin við afhend-
ingu fyrsta eintaksins af kortinu. Til
vinstri eru ritari og formaður ferðamála-
nefndar Hafnarfjarðar. þeir Þórarinn Jón
Magnússon og Páll Pálsson. Til hægri eru
JC-félagarnir Guðni Gunnarsson. fráfar-
andi formaður JCH, Svava H. Svavars-
dóttir og Ægir Björgvinsson.
Tilkyrmingar
Golfklúbbur Ísafjarðar
Meistaramót Golfklúbbs ísafjarðar var
haldið í Tungudal um helgina.
Keppt var í tveimur flokkum karla og
unglingaflokki.
Gunnsteinn Jónsson sigraði í 1. flokki
karla á 306 höggum. í öðru sæti varð Arn-
ar Baldursson á 309 höggum og í þriðja
sæti Einar Valur Kristjánsson á 327 högg-
um.
Unglingameistari varð Ólafur Sigurðsson.
fór á 184 höggum, í öðru sæti varð Jón
Yngvi Jónsson á 185 höggum og í þriðja
sæti varð Pétur Þór Grétarsson á 200
höggum.
1 2. flokki karla sigraði Viðar Konráðsson
á 363 höggum, 2. varð Baldur Geirmunds-
son á 373 höggum og í þriðja sæti Samúel
Einarsson á 374 höggum.
Sigurður Th. Ingvarsson fór holu í höggi
á 6. braut og varð fyrstur klúbbfélaga til
að fara holu í höggi á Tungudalsvelli.
Veður var frábært alla mótsdaga og fór
mótið hið besta fram.
Foreldra- og vinafélag Kópa-
vogshælis
Hin árlega sumarhátíð Foreldra- og vina-
félags Kópavogshælis verður á lóð
Kópavogshælis kl. 14. laugardaginn 18
júlí. Félagar og velunnarar velkomnir.
ASÍ vill 7-7,5
prósent
Hagfræðideild ASÍ hefur spáð að
verðhækkanir fari 5,5% fram yfir
rauðu strikin svonefndu 1. sept.
Þetta telja ASÍ menn að þurfi að
bætast að fullu 1. okt. Auk þess er
samningsbundin hækkun um 1,5% 1.
okt. svo í heild telur ASÍ að hækkun-
in þurfi að vera 7-7,5%.
Hækkunin samanstendur af mörg-
um liðum en þyngst vega ýmsar
stjómvaldsaðgerðir svo sem söluskatt-
ur á matvæli sem veldur um 1,2%
hækkun.
-ES
Ferðlög
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Laugardagur 18. júlí - kl. 08. - Hekla
Gönguferð fram og til baka á Heklutind
(1491 m) tekur 10 klst. Ógleymanleg
gönguferð. Verð kr. 1.200.
Sunnudagur 19. júlí:
Kl. 08 - Þórsmörk - dagsferð. Verð kr.
1.000.
Kl. 10 Dyravegur - Grafningur.
Gengið frá Kolviðarhóli um Dyraveg
(gömul þjóðleið) í Grafning. Verð kr. 800.
Kl. 13. Illagil - Vegghamrar í Grafningi.
Ekið í Hestavík og gengið þaðan inn Illag-
il að Vegghömrum. Verð kr. 800.
Miðvikudagur 22. júlí:
Kl. 08 - Þórsmörk - dagsferð. Verð kr.
1000.
Kl. 20. Ketilstígur (kvöldferð).
Brottíor frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna.
Útivistarferðir 18. júlí.
Kl. 8 Eyjafjöll - Skógar, fossar og gil.
Kvernárgil (Kvernárfoss). Byggðasafnið
að Skógum $koðað, Paradísarhellir, Selja-
landsfoss, sund í Seljavallalaug sem er
nýuppgerð. Verð 1.100, frítt fyrir börn með
fullorðnum.
Sunnudagur 19. júlí.
Kl. 8.00 Þórsmörk - Goðaland. Góð skoð-
unarferð um Þórsmerkursvæðið. Verð
1.000.
Féll niður
af hús|iaki
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Maður slasaðist mikið þegar hann
féll niður af þaki dvalarheimilisins í
Skjaldarvík, sem er rétt utan við Ak-
ureyri, um sexleytið í gær. Maðurinn
var að vinna uppi á þaki þegar hann
missti jafnvægið og datt niður. Fallið
var nokkuð hátt. Ijögreglan á Akur-
eyri gat ekki sagt í morgun nákvæm-
lega hversu hátt fallið hefði verið.
Kl. 13.00 þjóðleið mánaðarins: Skipsstíg-
ur - Bláa lónið. Gengin gamla þjóðleiðin
frá Njarðvíkum til Grindavíkur að hluta.
Bað i Bláa lóninu í lok göngunnar ef
vill. Verð 700.
Miðvikudagur 22. júlí
Kl. 8.00 Þórsmörk - Goðaland. Létt skoð-
unarferð um Þórsmörkina. Áning í Básum.
Verð 1.000. Þetta er líka tilvalin ferð fyrir
þá sem vilja dvelja í góðu yfirlæti í skálum
Útivistar í Básum. Friðsælt umhverfí, góð-
ar gönguleiðir. Leitið upplýsinga á skrifst.
Grófinni 1. Símar. 14606 og 23732.
KI. 20.00 Dauðadalahellar. Kvöldferð.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
Útivistarferðir.
Símar. 14606 og 23732.
Helgarferðir 17.-19. júlí.
1. Þórmörk - Goðaland. Gist í skálum
Útivistar í Básum, einum friðsælasta stað
Þórsmerkur. Gistiaðstaða eins og best ge-
rist í óbyggðum. Skipulagðar gönguferðir.
2. Landmannalaugar - Eldgjá, nýtt.
Skemmtilegt og ijölbreytt hringferð um
Fjallabaksleið nyrðri. Gengið um Eldgjá,
(Ófærufoss) og Landmannalaugasvæðið.
Fararstjóri: Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir.
Brottför föstud. kl. 20.00.
3. Skógar - Fimmvörðuháls - Básar.
Brottför laugard. kl. 8.00
Sumarleyfi í Þórsmörk
Tilvalið að dvelja á milli ferða t.d. frá
föstudegi eða sunnudegi til miðvikudags.
Ódýrt og þægilegt sumarleyfi.
Sumarleyfisferðir.
1. Eldgjá - Strútslaug - Þórsmörk, 7
dagar, 27. júlí.
2. Hornstrandir, Hornvík, 6 dagar, 30.
júlí.—4. ágúst.
3. Lónsöræfi 5.-12. ágúst.
4. Hálendishringur, 10 dagar, 5.-14.
ágúst. Tjaldferð. Gæsavötn - Askja
Kverkfjöll - Snæfell o.íl.
5. Tröllaskagi, 7 dagar. 9.-15. ágúst. Bak-
pokaferð. Munið ferðir um verslunar-
mannahelgina: 1. Þórsmörk, 2. Núpsstað-
arskógar, 3. Lakagigar - Leiðólfsfell.
Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni,
Grófinni 1. Sjáumst, Útivist.
Tímarit
Aukahefti Máls og menningar
Út er komin sjötta bókin sem ber afmælis-
merki Máls og menningar. Þetta er
aukahefti af Tímariti Máls og menningar
með ýmsu efni sem tengist hálfrar aldar
afmæli félagsins.
I heftinu eru fyrst tvær greinar. Jakob
Benediktsson skrifar minningar frá þeim
dögum þegar hann var framkvæmdastjóri
Máls og menningar fyrir fjörutíu árum.
Og Pétur Gunnarsson birtir grein sem
hann nefnir Fjögrablaðasmárinn og eit-
ursveppurinn, um samspil sósíalisma og
þjóðarvakningar, Fjölnismenn og stofn-
anda Máls og menningar, Kristin E.
Andrésson.
Meginefni heftisins er tvær miklar skrár
sem Kristín Björgvinsdóttir bókasafns-
fræðingur hefur unnið. Önnur er efnisskrá
Tímaritsins frá 1977 til 1986, vandlega
flokkuð, og fylgir henni nákvæm nafna-
skrá yfir alla sem skrifað hafa í Tímaritið
þessi ár og alla sem skrifað hefur verið um.
Hin skráin er yfir allar bækur sem út hafa
komið á vegum Máls og menningar og
Heimskringlu frá upphafi. Þar má finna
allar frumútgáfur bóka á vegum þessa for-
lags og líka endurútgáfur, en ekki óbreytt-
ar endurprentanir. I skrá þessari teru hátt
í þúsund titlar.
Spakmælið
Með því að hefna sín gerir maður sig aðeins að jafninga
óvinar síns, en með því að láta það ógert sýnir maður
yfirburði sína.
Bacon
Hringvegurinn lokaðist
Síðustu daga hafa verið miklar rign- en vegurinn var ruddur fljótlega eftir
ingará Austurlandiogígærféllskriða hádegi. Enginn slasaðist né var i
á veginn í Þvottárskriðum. Lokaði hættu.
þetta hringveginum um nokkra stund -JFJ
Staðgreiðslan kemur
um áramót
- segir ión Baldvin Hannibalsson
Jón G. Haukssan, DV, Akureyit
„Það er ekkert bakslag að koma í
staðgreiðslukerfið en ekki mun veita
af tímanum til að undirbúa það,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra á Akureyri í gær þegar hann
sótti þing skattstjóra sem haldið er á
Hótel KEA.
Gestur Steinþórsson, skattstjóri í
Reykjavík, sem staddur er á Akureyri
á þingi skattstjóranna, sagði við DV
í morgun að verið væri að ræða undir-
húning staðgreiðslukerfisins fyrst og
fremst.
- Verður af staðgreiðslunni?
„Já, já.“
Að sögn Gests bendir ekkert til ann-
ars en að dæmið gangi upp, „en það
þarf að nýta tímann mjög vel.“
Þingi skattstjóranna lýkur í kvöld.
Á þinginu eru átta skattstjórar.
Um það hvenær álagningin kæmi
sagði Gestur að það yrði síðast í þess-
um mánuði. „Dagurinn er ekki
ákveðinn."
Hvalveiðimálið:
Yiðræðunefndin fér til Banda-
ríkjanna á laugardaginn
íslenska viðræðunefndin, sem
mun freista þess að semja við banda-
rísk stjómvöld um hvaladeiluna,
mun halda til Baltimore á laugar-
daginn kemur. Nefndin var skipuð í
gærdag. Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra mun leiða nefndina
en auk hans eiga sæti í henni tveir
fúlltrúar frá utanríkisráðuneytinu,
tveir frá sjávarútvegsráðuneytinu og
einn frá Hafrannsóknastofnun.
Frá utanríkisráðuneytinu fara þeir
Guðmundur Eiríksson þjóðréttar-
fræðingur og Helgi Ágústsson
sendifulltrúi. Frá sjávarútvegsráðu-
neytinu fara þeir Ámi Kolbeinsson
ráðuneytisstjóri og Kjartan Júlíus-
son deildarstjóri en frá Hafrann-
sóknastofnun fer Jóhann Siguijóns-
son sjávarlíffræðingur.
„Auk þess mun svo sendiherrann
okkar og hans fólk í Washington
verða okkur til halds og trausts,"
sagði sjávarútvegsráðherra.
„Eg býst ekki við löngum viðræð-
um þama úti,“ sagði ráðherra, sem
vildi að öðm leyti ekkert tjá sig um
hugsanlegan árangur viðræðnanna.
„Ég hvorki get né vil tjá mig neitt
um viðræðumar svona fyrirfram,"
sagði hann.
Eins og fram hefur komið í fréttum
munu hvalveiðar liggja niðri á með-
an á viðræðunum stendur en sjávar-
útvegsráðherra tók það fram að
fúllkomin eining væri innan ríkis-
stjómarinnar um þá ákvörðun.
-KGK