Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Síða 36
36
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Bee Gees
Lítiö hefur heyrst frá hljóm-
sveitinni Bee Gees síðan
kvikmyndirnar Saturday night
fever og Staying alive voru
og hétu. En nú á að verða
breyting á. Barry Gibb, einn
hinna þriggja Gibbbræðra í
hljómsveitinni, segir þá bræð-
ur hafa skipt um útgáfufyrir-
tæki og nú standi til að gefa
út plötu og fara í hljómleika-
ferðalög um allan heim. Þeir
segja gamla útgáfufyrirtækið
sitt, Warner Bros, hafa staðið
í vegi fyrir frama þeirra en nú
á að taka heiminn með trompi.
er peninganna virði og vel
það," segir leikstjóri nýrrar
myndar um tónskáldið Arturo
Toscanini. Elísabet mun leika
í myndinni en það fékkst hún
ekki til að gera fyrir einhverjar
smáfúlgur. Hún fær rúmlega
39 milljónir ísl. kr. fyrir hlut-
verkið. Já, þetta er ekki
prentvilla. Elísabet mun fara
með hlutverk hinnar frægu
sópransöngkonu Nadinu Bul-
isjijovu en Toscanini var yfir
sig ástfanginn af henni. Leik-
stjórinn er mjög bjartsýnn og
segir að peningunum sé vel
varið og muni skila sér í að-
sókn.
Lisa Bonet
byrjaði á því að hneyksla alla
vel siðaða áhorfendur Fyrir-
myndarföður með leik sínum
í hryllingsmyndinni Angel he-
art sem nú er sýnd við góðar
undirtektir hér á landi. Ekki
alls fyrir löngu birtust svo
myndir af henni, topplausri í
karlablaði af því taginu sem
aðeins sést í efstu hillum
bókabúðanna og undir rúm-
um siðlausra karlmanna. Nú
segist Lisa vera búin að fá sig
fullsadda af Bandaríkjunum
og tilkynnti um daginn að hún
ætli að flytja af landi brott.
Margrét Blöndal og Kristján Sigurjónsson, nýir dagskrárgerðarmenn á Akureyri, í nýjum bil svæðisútvarpsins.
en saxnt
ekkisaman
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Þau Margrét Blöndal og Kristján
Sigurjónsson, bæði gömul í hettunni
á Rás 2, eru nú orðin dagskárgerðar-
menn við Ríkisútvarpið á Akureyri.
Blöndal er frá Akureyri og er því
komin heim á fornar slóðir en Krist-
ján segist vera linmæltur austubæ-
ingur úr Reykjavík. Þau er bæði
þrælvanir útvarpsmenn og því mikill
styrkur fyrir Ríkisútvarpið á Akur-
eyri að fá þau til starfa. Sumir halda
að þau séu hjón en svo er ekki. Þau
voru meira að segja spurð að því,
þegar þau komu til Akúreyrar, hvort
þau væru ekki búin að fá sér ibúð.
Til viðbótar við þau Kristján og
Margréti hefur svæðisútvarpinu
bæst nýr bíll af gerðinni Subaru.
Allt er þegar þrennt er.
í aldarfjórðung
James Bond á 25 ára afmæli á þessu ári og nýjasta Bond-myndin, The Li-
ving Daylight, er sú fimmtánda í röðinni um myndarlega spæjarann James
Bond og glæsipíurnar hans. Leikarinn, Timothy Dalton, fer nú með hlutverk
James Bond í fyrsta skipti en áður voru það þeir Sean Connery og Roger
Moore sem fengust við þetta hlutverk. Myndin fær góða dóma og hefur ve-
rið tekið mjög vel i London en hún var frumsýnd þar fyrir rúmlega viku.
The Living Daylight yerður frumsýnd hér á landi í Bíóhöllinni næsta föstu-
dag, þann 17 júlí. Norska hljómsveitin A-ha, sem leikur titillag myndarinnar,
verður stödd hér á landi í tónleikaferð um sama leyti og vel gæti farið svo
að strákarnir kíktu á frumsýningu.
A frumsýningu myndarinnar, The Living Daylight, í London. Diana prins-
essa heilsar upp á aðalleikarana i myndinni, þau Timothy Dalton og Maryam
d’Abo.
Edduhótel stækkar á
Kirkj ui>æj arklaustr i
Við kynningu nýbyggingarinnar í blíðviðri á Klaustri: Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, Jón Helga-
son, formaður stjórnar Bæjar hf., Margrét ísleifsdóttir hótelstýra, Jafet Ólafsson, Tryggvi Guðmundsson, forstöðu-
maður Edduhótelanna, og Gunnlaugur Sigmundsson, forstjóri Þróunarfélagsins.
„Kirkjubæjarklaustur er einn
mesti álagspunktur af öllum stöðum
á landinu enda geysilegur fjöldi
ferðamanna sem fer hér um árlega.
Það var því ekki vanþörf á þessu
nýja gistirými sem verður án efa full-
nýtt í sumar,“ sagði Kjartan Lárus-
son, forstjóri Ferðaskrifstofu
ríkisins, þegar kynnt var nýbygging
á Klaustri sem er í eigu Bæjar hf.
en Ferðaskrifstofan rekur þar Eddu-
hótel.
Gistiálma er sú þriðja í röðinni af
álmum sem reistar hafa verið á
Kirkjubæjarklaustri. I henni eru 14
herbergi með baði og var byggingar-
tíminn óvenju stuttur, aðeins þrír
mánuðir. Þess má geta að Þróunarfé-
lag íslands lagði til hlutafé í bygg-
inguna og er þetta fyrsta fjárfesting
sem félagið tekur þátt i í ferða-
mannaiðnaði.