Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 16. JIJLÍ 1987.
37
DV
Misjafn
sauður
í
mörgu
Hassan, konungur Marokkó, og El-
ísabet, drottning Breta, i kvöldverö-
arboði i Buckingham Palace til
heiðurs Hassan.
JtL
Eyðni-
kvikmynd
í USA
Ronald Rcagan yngri brosir breitt
á blaðamannafundi þar sem hann var
að kynna kvikmynd um eyðnivanda-
málið. Hann verður sögumaður í
myndinni sem heita mun „eyðni
breytir reglunum". Myndin verður
nokkurs konar fræðslumynd þar sem
frægir kappar, s.s. Ronald Reagan
forseti, munu segja bandarískum al-
menningi frá hættunum í sambandi
við sjúkdóminn og hvernig mú var-
ast þær.
Sviðsljós
Hassan, konungur Marokkó, líktist hinum hvita sauði, íklæddur sínum hefðbundna kufli, i svartri hjörð iifvarða
bresku krúnunnar þegar þeir stóðu heiðursvörð við komu hans til Bretlands i fyrradag en þangaö kom hann i
fjögurra daga opinbera heimsókn.
Hætti til að bjarga
hjónabandmu
Nastassia Kinski og eiginmaður hennar. egvpski kvikmvndaframleiðandinn
Ibrahim Moussa voru uamingjusöm og brosandi þegar þau voru viðstödd
sýningu á kvikmynd Fellinis ..Entrevista” á kvikmyndahátíðinni í Moskvu
í fyrradag. Eina hlutverkið. sem Nastassia hefur tekið að sér síðastliðið ár.
er einmitt í þeirri kvikmvnd. Samband þeirra Nastassia og Ibrahim stóð
völtum fótum um langan tima eða þangað til hún tók þá ákvörðun að hætta
að leika til að bjarga hjónabandinu. Síðan er liðið rúmlega ár og nú ýirðist
allt vera í himnalagi. Við skulum vona að þessi frábæra leikkona siái sér
loks fært að fara út á vinnumarkaðinn aftur án þess að stofna sambandi
sínu við eiginmanninn og tvö börn þeirra í hættu.
Nastassia Kinski og eiginmaður hennar, Ibrahim Moussa, á góðri stundu
á kvikmyndahatíðinni í Moskvu. Nastassia hefur afþakkað öll tilboö að
undanförnu en nú geta aðdáendur loksins farið að vona að hún eigi eftir
að birtast aftur á hvíta tjaldinu.
Slysí
kóngafjöl-
skyldunni
Paul. sonur Önnu Mariu drottn-
ingu og Konstantíns. fyrnun Grikk-
landskonungs. lenti í alvarlegu
umferðarslysi fyrir nokkrum dögum
þegar hann bíll hans fór fram af 10
metra hárri brú og valt þar um 7
metra. Krónprinsinn er alvarlega
slasaður og liggur nú á gjörgæslu í
Englandi þar sem slysið varð. Paul
prins er tvítugur og er hann elsti
sonur Önnu Maríu og Konstantíns.
Talið er víst prinsinn muni lifa slysið
af en áverkarnir eru alvarlegir og
það mun taka langan tíma fyrir hann
að ná sér að fullu.
Ólyginn
sagði...
Paul Newman
Góðu fréttirnar af leikaranum
og poppkónginum vinsæla
Paul Newman eru þær að
hann er byrjaður að skrifa
ævisögu sína. Hann hefur
vafalítið frá mörgu að segja
og myndi þessi frétt gleðja
hjörtu margra ef ekki væri fyr-
ir hina hliðina. Þessi bók mun
nefnilega aldrei koma fyrir
augu almennings. Newman
ætlar aðeins að gefa bókina
út í 40 eintökum og dreifa
henni á meðal vina sinna.
Enginn vafi er’á að bókin mun
hækka álitlega í verði eftir
nokkur ár.
Jesper Olsen,
danska fótboltahetjan, sem
spilar nú með 1. deildar liðinu
Manchester United, gifti sig
um daginn enskri yngismey
að nafni Sarah. Brúðkaups-
gjöf knattspyrnufélagsins
Manchester United var nýr
samningur sem hljóðar upp á
25 milljónir ísl. króna. Dálag-
leg búbót það fyrir ungu
hjónin. Jesper er sæll og afar
lukkulegur með hjónabandið
og segist ætla að skora börn
í framtíðinni.
Don Johnson
fær svo mörg aðdáendabréf
að til vandræða horfir. Hann
fær bréf hvaðanæva að úr
heiminum, ekki síður frá Ástr-
alíu og Evrópu en Bandaríkj-
unum. Bréfin streyma inn til
allra sem að einhverju leyti
tengjast Don og hann hefur
eytt svo miklum tíma í að svara
æstum aðdáendum að vinnan
er farin að sitja á hakanum.
En nú á að snúa þessari öfug-
þróun við og öll bréf á nú að
senda beint til aðdáenda-
klúbbsins. Sviðsljósið birtir
hér heimilisfangið, íslenskum
yngismeyjum til hagræðingar.
Club D.J., P.O. Box 1863,
Encino, CA 91426-1863.
Njótið heil.