Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1987, Síða 11
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987.
11
Gandhi ánægður með
úrslit forsetakjörsins
Ramaswamy Venkataraman var í
gær kjörinn áttundi forseti Indlands.
Nýi forsetinn er sjötíu og sex ára gam-
all lögfræðingur og þingmaður.
Venkataraman, sem er tamíli frá
suðurhluta Indlands, naut stuðnings
Gandhis og flokks hans og er búist
við að hann verði samvinnuþýðari en
Zail Singh forseti sem nú lætur af
embætti.
Gandhi lét í ljósi ánægju sína með
úrslitin er hann kom í gær heim til
hins nýkjöma forseta sem var skreytt-
ur blómsveigum í tilefni sigursins.
Kvað Gandhi úrslitin vera meira en
sigur fyrir hans eigin flokk þar sem
fjöldi andstæðinga stjómarinnar hefði
einnig greitt Venkataraman atkvæði.
Zail Singh hefúr mánuðum saman
neitað að samþykkja lagafrumvarp um
Búist er við að hinn nýkjörni forseti,
Venkataraman, verði samvinnuþýðari
en fyrirrennari hans.
Simamynd Reuter
að yfirvöldum sé heimilað að opna
póst og hefur hann hvað eftir annað
deilt við Gandhi um réttindi og völd
forseta.
En þó svo að Venkataraman reynist
samvinnuþýðari getur verið að forsæt-
isráðherrann reki sig á að nýi forset-
inn fari sínar eigin leiðir. Sem
formaður efri deildar þingsins átti
hann það til að gagnrýna bæði stjóm-
arandstöðuna og Gandhi sjálfan.
Þrátt fyrir að Venkataraman hafi
setið í fangelsi í tvö ár fyrir þátt sinn
í sjálfstæðisbaráttu Indveija viður-
kennir hann samt söguleg tengsl
þjóðanna og hefur ritað bréf til neðri
deildar þingsins í Bretlandi þar sem
hann tekur fram að breskum hefðum
verði framfylgt í málefnum er varða
stjórnarskrána.
Fjárkúgararnir voru lögreglumenn
Baldur Róbertsson, DV, Genúa:
Fyrirtæki eitt í Alfonsine á Ítalíu
leitaði aðstoðar lögreglunnar til þess
að hafa hendur í hári þeirra manna
er kúguðu ’fé út úr fyrirtækinu.
I samvinnu við fyrirtækið skipulagði
lögreglan gildru til þess að reyna að
ná fjárkúgurunum. Var þeim talin trú
um að þeim yrði afhent sú fjámpphæð
er þeir fóm fram á. Er fjárkúgararnir
komu til að sækja féð umkringdi lög-
reglan þá.
En þá kom upp óvænt staða. Tveir
fjárkúgaranna reyndust vera úr röð-
um lögreglumannanna og grétu þeir
er þeir gáfust upp eftir skothríð. Einn
lögreglumannanna særðist í skothríð-
inni.
Egypskur ráðherra í heimsókn til ísraels
Utanríkisráðherra Egyptalands,
Abdel-Maguid, er væntanlegur til Isra-
els á mánudaginn. Er það fyrsta
heimsókn egypsks utanríkisráðherra
til Israels frá því að Israelar réðust inn
í Líbanon 1982.
Abdul-Maguid mun þar hitta að
máli forseta Israels, Chaim Hertzog,
og nokkra ráðherra.
Israelskt dagblað hefur það eftir
diplómatískum heimildum að Israelar
muni lýsa yfir áhyggjum sínum yfir
fregninni um að Egyptaland hyggist
bjóða Kurt Waldheim, forseta Austur-
ríkis, til Kaíró. Waldheim hefur verið
sakaður um aðild að stríðsglæpum
nasista í seinni heimsstyijöldinni.
Israelar mótmæltu harðlega þegar
Jóhannes Páll páfi II. bauð Waldheim
til páfagarðs í síðasta mánuði. Er
Waldheim heimsótti Jórdaníu voru
mótmælin ekki jafnhávær.
Embættismenn í utanríkisráðuneyt-
inu í ísrael segjast ekki vita til að
rædd verði möguleg heimsókn Wald-
heims til Egyptalands. Kváðust þeir
búast við að fjallað yrði um samskipti
landanna tveggja og tilraunir til þess
að alþjóðleg ráðstefna um frið í Mið-
austurlöndum verði að raunveruleika
á þessu ári.
Mubarak, forseti Eg\'ptalands. og
Peres, forsætisráðherra ísraels. stvðja
slíka ráðstefhu en Shamir. utanríkis-
ráðherra Israels. er henni mótfallinn.
Er hann hræddur um að Israel neyðist
þá til að láta af hendi landsvæði sem
hertekið var í stríðinu 1967. Shamir
kveðst aftur á móti hlynntur ráðstefnu
án íhlutunar annarra en Israelsmanna
og araba.
Uppboðsfyrirtæki hætta
að selja grafíkverk Dalis
- 400.000 fölsuð verk í umferð
Samkvæmt fréttum breska blaðsins
The Sunday Times hafa helstu upp-
boðsfyrirtæki í Bretlandi, Sotherbys
og Christies nú tekið fyrir sölu á graf-
íkverkum eftir spænska listamanninn
Salvador Dali þar sem þau telja sig
ekki lengur geta treyst því að þau séu
ófölsuð. Giskað hefur verið á að
400.000 folsuð grafíkverk merkt Dali
séu nú í umferð og séu þau seld fyrir
allt að því 130.000 ísl. krónur stykkið.
Dótturfyrirtæki Sotherbys og Christi-
e’s í New York íhuga einnig að hætta
að selja grafíkverk með nafni Dalis.
Einn af sérfræðingum Sotherbys,
Jonathan Pratt, sagði að fyrir stuttu
hefði maður komið með 30 þrykk „eft-
ir“ Dali og beðið þá að selja fyrir sig.
„Þau voru nákvæmlega einskis virði,“
sagði Pratt. Þessi þrykk höfðu verið
keypt á sýningu á Cumberland hótel-
inu í London í fyrrasumar,
Ofangreind uppboðsfyrirtæki hafa
einnig tekið fólki vara fyrir að kaupa
grafísk þrykk sem merkt eru Chagall
og enska málaranum L.S. Lowry en
báðir þeirra njóta mikilla og almennra
vinsælda. Hafa fyrirtækin rökstuddan
grun um að grafíkverk þeirra séu föl-
suð í stórum stíl.
Þar sem sala á grafíkverkum
þekktra listamanna er nú stórbisness
upp á marga milljarða íslenskra króna
hafa falsarar í æ ríkari mæli látið til
sín taka á listaverkamarkaðinum.
Fyrir viku tók bandaríska lögreglan
hús á fjölda sýningarstaða víða um
Bandaríkin og lagði hald á fölsuð
þrykk með nafni Dalis sem selja átti
fyrir 36 milljarða íslenskra króna.
The Sunday Times full\Tðir að nán-
ustu vinir og ráðgjafar Dalis hafi verið
famir að hafa svo miklar áhvggjur af
fölsunum að þeir hafi efnt til fundai'
með listamanninum á Spáni.
Að þeim fundi loknum tilkynnti
Robert Descharnes, helsti ráðgjafi
Dalis um margra áratuga skeið. að
næsta október yrði sérstöku vatns-
merki, sem engin leið væri að fafsa.
komið fyrir i þeim þrykkjum sem Dali
hefði sjálfur lagt blessun sína \-fir.
Deschames gaf einnig í skyn að
Dali hefði lúmskt gaman af þessum
hremmingum listaverkasala og upp-
boðsfyrirtækja.
..Vitanlega hefur hann áhyggjur af
fölsunum." sagði hann. ..En ég er ekki
frá því að honum þvki þetta tilstand
staðfesta heimsfrægð hans." -ai
__________________________________________________Úflönd
Setja á stofn rikisrekin hómhús
Samkvæmt nýrri reglugerð í Rotterdam í Hollandi gæti borgarstjómin
þar bráðlega hafið rekstur hóruhúss með um citt hundrað gleðikonum í
fullu starfi. Reglugerðin gerir borgaryfirvöldum jafhframt kleift að ákvarða
verðlag á þjónustu gleðikvenna um alla borgina sera og hafa hert eftirlit
með heilsufarslegu ástandi kvennanna.
Talsmaður borgarráðsins í Rotterdam sagði í gær að líklega myndi borgar-
stjómin einnig setja reglur um heimilan opnunartíma gleðihúsa i borginni
en að flestu öðru leyti láta framkvæmdastjóra gleðikvennanna um rekstur
þeirra.
Megintilgangur þessarar nýju reglugerðar er að koma gleðikonum af göt-
um borgarinnar og að auðvelda að hefta útbreiðslu ákveðinna sjúkdóma
Borgarráð Rotterdam hefúr þegar fest kaup á auðri verksmiðjubyggingu
í borginni þar sem ætlunin er að hómhús hins opinbera verði til húsa.
Telja tilræðismennina hafa farist
Yfirvöld f Kuwait telja að tilræðis-
menn þeir sem komu sprengju fyrir
í bifreið við verslanasamstæðu þar í
gær hafi farist þegar sprengjan
sprakk. Að sögn innanríkisráðu-
neytis landsins er talið að mönnun-
um hafi orðið á einhver mistök þegar
þeir vora að koma sprengjunni fyrir
í bifreið og hafi hún sprungið í hönd-
unum á þeim. Enga aðra en tilræðis-
mennina tvo sakaði.
Þetta tilvik er áttunda sprengjutil-
ræðið sem gert er í Kuwait á þessu
ári. Sex Kuwaitmenn voru i síðasta
mánuði dæmdir til dauða fyrir
skemmdarverk á olíusvæðum á
þessu ári og þvi síðasta.
Innhelmta gjaldanna gengur mjög illa
Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa vfirleitt ekki innt af hendi nema
um helming þeirra fjárframlaga sem þau hafa samþvkkt að leggja fram til
starfsemi samtakanna á þessu ári. Alls nema framlög ríkjanna um 756 millj-
ónum Bandaríkjadala en þar af skulda aðildarríki enn meira en þrjú hundruð
milljónir.
Að auki skulda mörg ríki enn framlag frá siðasta árí, alls um 203 milljón-
ir dollara, þannig að skuldir þeirra við heildarsamtökin nema um 566
milljónum dollara.
Tekið er fram að fjöratíu og sjö af 159 aðildarþjóðum hafi greitt framlög
sín að fúllu.
Sú þjóð sem mest skuldar era Bandaríkin. Þau hafa ekki innt af hendi
neitt af þeim fjármunum sem þau hafa heitið samtökunum á þessu ári, alls
um 213 milljónir Bandarikjadala. Þá skulda Bandaríkin um 143 milljónir
dala frá síðasta ári.
Bandaríkjamenn hafa undanfarin tvö ár krafist þess í síauknum mæli að
fá að ráða meiru um það hvemig fé S.Þ. er varið. Hafa þeir grandvallað
kröfu sína á þvi hversu mikið framlag það er sem þeir greiða til Sameinuðu
þjóðanna eða eins og nú virðist vera uppi. framlagið sem þeir greiða ekki.
Bær yfirgefinn vegna bensínflöðs
Þorpið St. Nikolaus, sem er nálægt Saarbrúcken í Vestur-Þýskalandi,
tæmdist af fólki í gær þegar flutningabifreið. hlaðin eldsneyti, valt á götu
og bensín rann um götur. Alls voru um tuttugu þúsund litrar af bensíni í
tönkum bifreiðarinnar en aðeins lúuti þess lak út
Lögregla á staðnum ívrirskipaði íbúum þorpsins að yfirgeía staðinn. Atvik-
ið olli einkum uppnánú vegna þess að mönnum er enn í fersku minni
sprenging sú er varð í þýska bænum Herbom, skammt norðan við Frank-
furt. þar sem svipaður flutningabíll rakst á hús. Fjórir létu lífið í þeirri
sprengingu og ellefu bvggingar evðilögðust gjörsamlega.
Lögreglunni í St. Nikolaus tókst að koma í veg fyrir að eldur kæmist í
bensínið sem rann um götur og í frárennsliskerfi þorpsins í gær.
Sleppa föngum vegna þrengsla í fangelsum
ísraelsk vfirvöld hafa í hvggju að
sleppa um eitt hundrað Palestínu-
mönnum úr fangelsum landsins,
áður en þeir hafa setið af sér dóma
sína, vegnaþrengsla í fangelsunum.
Talsmenn stjórnvalda í Jerúsalem
segja að fangar þéssir hafi allir verið
dæmdir fyrir afbrot sem ekki hafi
falið í sér ofbeldi. Einvörðungu verði
sleppt föngum sem hafi lokið af-
plánun um níutiu prósent af dóms-
tírna sínum og talið er að muni ekki
leita út á afbrotabrautina að nýju.
Um fjögur þúsund Palestínumenn
era nú i ísraelskum fangelsum og
margir þeirra verða að sofa á bera
gólfinu vegna þrengslanna.