Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1987, Síða 36
62 • 25 • 2
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Oreifing: Simi 27022
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987.
Pósthúsið og Islenskur markaður að hrekjast úr Leifsstöð:
Leiáan tudr millióna
0 O • m
„Við getum ekki greitt þessa leigu
sem upp er sett og ef ekki semst um
að kekka hana kemur til álita að
leggja afgreiðshuia á neðri hæðinni
niður i núverandi mynd,“ segir Ólaf-
ur Tómasson, póst- og símamála-
stjóri. Pósti og síma í nýju flugstöð-
inni er ætlað að greiða nærri 10
miUjónir á ári í húsaleigu en allar
tekjur af fránerkjasölu og simaaf-
greiðslu mimu ekki ná 7 milljónum
króna.
Póstur og sími hefur aígreiðslu í
farþegasainum á 2. hæð og verður
að halda henni. Á fyrstu hæð er stór
afgreiðsla með yfir 130 pósthólfum
sem ætlað var að þjóna rekstri í flug-
slöðinni og í nálægum húsum sem
rísa munu síðar og jafavel nálægri
byggð í Keöavík. Leigan hefar hins
vegar komið stjómendum Pósts og
síma i opna skjöldu, eins og öðrum,
og lá ekki fyrir fyrr en í vor. Tekjum-
ar duga ekkí eínu sinni fyrir húsa-
leigu, hvað þá öðrum rekstrarkostn-
aði. Búið er að leggja á þriðju milljón
króna í innréttingar og húsbúnað.
Astandið hjá íslenskum markaði
hf. er ekki burðugra. Því fyrirtæki,
sem er eins konar auga til íslenskrar
framleiðslu og óbein upplýsmgamið-
stöð, er ætlað að borga 22 milljónir
króna á ári í húsaleigu. Eigendur
fyrirtækisins sjá ekki glóru í því að
reka fyrirtækið á þeim grundvelli
og því gæti farið svo að það hrein-
lega leystist upp, Talið er að enginn
rekstur geti borgað uppsetta leigu
fyrir það pláss sem markaðurinn er í.
Þá stynja Flugleiðir hf. undan 17
milljóna króna ársleigu og hækkuð-
um afgreiðsiugjöldum vegna flugvél-
anna. 1. október bætist svo við nýr
„landaraæraskattur", S dollarar á
hvem fkrþega. -HERB
Allharður
árekstur
Gylfi Kristjánssan, DV, Akuxeyn;
Allharður árekstur varð á Akure>TÍ
í gærmorgun á mótum Skarðshlíðar
og Smárahlíðar. Bifreið sem ekið var
suður Skarðshlíð og bifreið sem ekið
var austur Smárahlíð skullu saman á
gatnamótunum og skemmdust báðar
mjög mikið.
Kona, sem var ökumaður annarrar
bifreiðarinnar. var flutt á sjúkrahús
> og mun hafa handleggsbrotnað en um
frekari meiðsli var ekki kunnugt í gær.
Bruni á Fjöllum:
Hlaða og fjár-
hús eyðilögðust
í gær kom upp eldur í hlöðu á bæn-
um Hólsseli á Fjöllum. Slökkvilið úr
Reykjahlíð kom að bænum en fékk
við lítið ráðið. Hlaða, fjárhús og við-
bygging munu hafa skemmst verulega
eða jafhvel eyðilagst í brunanum.
Ekki tókst að afla upplýsinga hvort
slys hafi orðið á mönnum eða dýrum.
Eins er óljóst hve mikið hey var í hlöð-
unni.
-sme
llar
gerðir
sendibíla
25050
SEJlDIBiUISTÖÐin
Borgartúni 21
LOKI
Það endar með því
að Flugleiðir hrekjast úr
flugstöðinni.
Mikið er lagt í endurbyggingu gömlu kirkjunnar, eins og glöggt má sjá á myndinni. Hún verður m.a. klædd
með hnausþykkum panel.
Ámeskirkja:
Töluverð illindi í sókninni
„Það stendur allt við það sama í
þessu máli og það eru töluverð illindi
í sókninni,“ sagði Gunnsteinn Gísla-
son, kaupfélagsstjóri á Norðurfirði á
Ströndum, í samtali við DV í gær.
Ámessókn, 150 manna sókn, skiptist
í tvær stríðandi fylkingar. Tekist er á
um það hvort sóknin eigi að endur-
byggja gömlu kirkjuna eða byggja
nýja. Hafa deilurnar verið svo hat-
rammar að nýlega sá sýslumaður
Strandasýslu ástæðu til þess reyna að
finna sáttaleið á milli sóknarbamanna
en enga úrlausn var að finna.
Núna standa málin þannig að
grunnur að nýju kirkjunni er að verða
fallbúinn en hluti sóknarbarna hefar
á sama tíma hafið fjársöfhun til varð-
veislu gömlu kirkjunnar og vinnur i
sjálfboðavinnu við endurbyggingu
hennar.
-ATA
ReykjaWkuidagurinn:
Mikið fjöl-
menni en
talsverð ölvun
„Reykjavíkurdagurinn" var haldinn
í miðbæ Reykjavíkur i gær. Lögreglan
telur að alls hafi safhast saman í mið-
bænum um fimm þúsund manns. Það
vom útvarpsstöðin Stjaman og
Tomma hamborgarar sem gengust fyr-
ir skemmtuninni.
Það var boðið upp á margt til
skemmtunar. Jóhann Hjartarson stór-
meistari tefldi fiöltefli við nokkra
frækna unga taflmenn. Jóhann vann
fimm skákir og gerði tvö jafhtefli.
Lögreglan segir að nokkuð hafi bor-
ið á ölvuðum unglingum og hafi þurft
að hafa afskipti af nokkrum.
-sme
Fyrstu réttir
á morgun
Fyrstu réttir haustsins verða á morg-
un. Það em Vestur-Húnvetningar sem
ríða á vaðið með rétt í Hrútafirðinum,
Hrútatungurétt.
Um næstu helgi verða svo réttir á
allmörgum stöðum, svo sem í Svína-
dal, Aðaldal, Kolbeinsstaðahreppi,
Hjaltadal, Miðfirði, Akrahreppi,
Gönguskörðum, Svartárdal og Vind-
hælishreppi í Austur-Húnavatnssýslu,
Vatnsdal og Víðidal.
-ATA
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Svipað veður alla helgina
Það lítur út fyrir að veðrið verði mjög svipað alla helgina og fram á þriðjudag.
Það verður norðlæg átt á landinu með skúrum norðanlands og 8 til 11 stiga hita en bjartara verður sunnanlands og hiti þar töluvert hærri, eða 11 til 12 stig.