Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 21
20
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987.
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987.
21
íþróttir
„Eg er virkilega stoltur,“ segir Sigurður Halldórsson
Sigurður Halldórsson, Skagamaður,
mun þjálfa fyrstu deildar lið Völsungs
á næsta leiktímabili. Sigurður þekkir
vel til á Húsavík enda hélt hann um
stjómvölinn hjá Völsungum í annarri
deild fyrir fáeinum áram.
„Ég er hálfmontinn yfir þessu .. .ég
er virkilega stoltur og um leið spennt-
ur yfir því að takast á við þetta erfiða
verkefni," sagði Sigurður Halldórsson
í spjalli við DV seint i gærkvöldi.
„Ég tel að þetta geti orðið ágætt sam-
starf milli mín og félagsins,“ sagöi
Sigurður jafnframt.
„Hópurinn hjá Völsungum ei orðinn
mun stærri og sterkari en þegar ég sá
um þjálfun liðsins á sínum tíma. Þar
fyrir utan þekki ég betur til í fyrstu
deild en annarri og það er allt hægt
ef viljinn er fyrir hendi,“ sagði Sigurð-
ur.
Þekkjum vel til Sigurðar
Halldórssonar
„Við þekkjum vel til Sigurðar Hall-
dórssonar," sagði Ingólfur Freysson,
formaður knattspymudeildar Völs-
ungs, í samtali við DV í gærkvöldi.
Sigurður Halldórsson.
„Við erum geysilega ánægðir með
að ganga til samstarfs við Sigurð og
væntum góðs af.“
Ingólfur sagði í spjallinu að enn ætti
eftir aö undirrita samninga en að öðru
leyti væri allt frágengiö milli Sigurðar
og félagsins.
„Það verður gengið frá ráðningunni
með formlegum hætti einhvem næstu
dagana,“ sagði Ingólfur.
Þess má geta að Sigurður mun ekki
leika með Völsungsliðinu heldur sinna
þjálfuninni óskiptur.
-JÖG
Stjarnan var í hlut-
verki músarinnar
- FH-ingar unnu stórsigur, 38-22
• Konráð Oiavsson skoraði
mörg falleg mörk.
Konráð
sterkur í
bláhorninu
- sýndi góðan leik
með KR gegn Þór
„Það vantaði aDa baráttuna hjá
strákunum í þessum leik og þegar
hún er ekki fyrir hendi er ekki von
á góðu. í fyrra var baráttan okkar
aðalsmerld. Við erum áðkveðnir
að kippa þessu vandamáli í liðinn
og efvið geram það fara hlutirnir
að ganga betur,“ sagði Erlendur
Hermannsson, þjálfari Þórs, í sam-
tali við DV í gærkvöldi eftir að KR
hafði sigrað Þór, 31-22, í 1. deild
íslandsmótsins í handknattíeik í
Laugardalshöll í gærkvöldi. í hálf-
leik var staðan 15-7 KR-ingum í viL
Það var strax greinilegt í upp-
hafi leiksins hvert í stefndi.
KR-ingar tóku leikinn í sínar hend-
ur og náðu fljótíega 4-1 forystu.
Um miðjan fyrri hálfleik var stað-
an 7-4. Síðan breikkaði bpið jafiit
og þétt á milli liöanna. í háfleik
leiddu KR-ingar með átta marita
forystu.
1 síðari hálfieik var sama upp á
teningnum. Á tima í seinni hálfleik
náðu KR-ingar tólf marka forystu,
23-11. KR-ingar gátu nánastskorað
þegar þeir vildu. Vöm Þórsara var
mjög léleg og það sama verður
sagt um sóknarleik liðsins. KR-
ingar léku oft skemmtilega.
Leikkerfi liðsins genguiðulega upp
en þau voru vel úffærð. Áður en
yfir lauk var yfirburöasigur KR-
inga í höfn.
Konráð Olavsson var bestur í liöi
KR og skoraöi möig góð mörk úr
báhominu. Bjami Ólafeson kom
einnig sterkur út Gísli Felix mark-
maður varöi vel framan af.
Ef tekiö er miö af leik Þórsara í
gærkvöidi er varla hægt að
ímynda sér aö liöið hljóti stig í
deildinni i vetur. Leikmenn liðsins
þurfa heldur betur að taka sig sam-
an í andlitinu ef ekki á illa að fara.
Gunnar og Ólafúr voru skástir
manna liðsins.
Dómarar leiksins voru Sigurður
Baldursson og Björn Jóhannsson.
Mörk KR; Konráð 6, Bjami 5,
Stefán 5/2, Guðmundur P 4, Sigurð-
ur 4, Guðmundur A 3, Jóhannes
3, Stefán 1.
Mörk Þór; Gunnar 5, Sigurpáll
5/4, Ólafur 4, Sigurður 3, Arni 2,
Ingólfur l, Jóhannes 1, Baldvin l.
•JKS
FH-ingar fóru hreinlega á kostum
gegn nágrönnum sínum, Stjömunni
úr Garðabæ, í Digranesi í gærkvöldi.
FH-ingar sýndu hreint stórkostlegan
leik og burstuðu Garðbæinga með 38
mörkum gegn 22 eftir að staðan í hálf-
leik hafði verið 19-11FH í vil. FH-ingar
tróna því enn í efsta sæti 1. deildar og
eftir leiknum í gær að dæma er ólík-
legt að þeir fari þaðan á næstunni.
„Þetta var frábær leikur og liðið
náði stórkostíega vel saman. Við náö-
um að brjóta niður leikkerfi þeirra
Valsstúlkumar vora ekki í teljandi
vandræðum með frekar slakt lið Vík-
ings í gærkvöldi. Eftir að hafa haft
eins marks forystu í hálfleik, 10-9,
juku Valsstúlkumar forskot sitt jafnt
og þétt og þegar flautað var til leiks-
loka var munurinn orðinn átta mörk,
24-16.
Bæði liðin voru sein í gang og var
mikið um mistök, bæði í vöm og sókn
í fyrri hálfleik. Vöm Vals var mjög
ósannfærandi og mynduðust oft stórar
glufúr sem Víkingsstúlkur notfærðu
sér óspart, annaðhvort með sending-
um inn á linu eða með skotum után
af velli. Víkingur tók til þess ráðs að
klippa Katrínu Friðriksen út og við
með geysisterkri vöm og sóknarleikur
okkar var mjög góður,“ sagði Viggó
Sigurðsson, þjálfari FH-inga, að von-
um ánægður eftir stórsigur sinna
manna.
Sóknarleikur FH-inga í fyrri hálfleik
var stórkostiegur. Liðið skoraði úr
fyrstu il sóknum sínum og alls 19
mörk í 22 sóknum. Flest mörkin eftir
vel útfæröar leikfléttur og Stjörnu-
menn áttu ekkert svai’. Staðan 9-5 um
miðjan fyrri hálfleik og FH-ingar
sigld'i stöðugt lengra og lengra fram
það raskaðist sókn Vals mikið og
gerðu þær sig oft sekar um mikil mis-
tök.
Eins og áður sagði var Valsliðið seint
í gang og fór með mörg góð marktæki-
færi í fyrri hálfleik auk þess sem
vömin var ekki sannfærandi. Ætla
má að Jón, þjálfari þeirra, hafi lesið
vel yfir þeim í hálfleik því allt annað
var að sjá til liðsins í síðari hálfleik,
vömin var þéttari og sóknarleikurinn
bitmeiri. Éinnig varði Amheiður,
markvörður þeirra, í heildina vel.
Víkingsliðið átti ekki góðan dag og
náðu aldrei að sýna sitt rétta andlit.
Það var helst í fyrri hálfleik sem þær
náðu að ógna Valsliðinu en í síðari
úr. Munurinn síðan 8 mörk í leikhléi
og í síðari hálfleik hélt „handboltasýn-
ing“ Hafnfirðinga áfram. Hraðinn í
leik FH-inga var mikill og mörg mörk
liðsins í síðari hálfleik skomð úr
hraðaupphlaupum. Stjömumenn, sem
unnu frækinn sigur á Víkingum á
dögunum, áttu ekkert svar við leik
FH-liðsins og í lokin skildu 16 mörk
liðin að, 38-22. „Við náðum upp mikl-
irni hraða og keyrðum Stjömumenn
niður strax í byijun. Annars átti ég
von á jöfnum leik en þaö var gaman
að vinna svona stóran sigur,“ sagði
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði FH-
inga, en hann átti frábæran leik og
sýndi hversu sterkur línumaður hann
er. Héðinn Gilsson átti einnig stórgóð-
an leik eins og reyndar allt FH-Uðið.
„Þeir vom einfaldlega miklu betri
en við í kvöld og unnu sanngjaman
sigur. Það vantaði alla einbeitningu í
mína menn og greinilegt að þreyta sit-
ur í mönnum eftir Víkingsleikinn.
Liðið er ungt og efnilegt og þarfnast
meiri reynslu í svona leiki en ég er
samt ekki hræddur um framhaldið,"
sagði Gunnar Einarsson, þjálfari
Sljömunnar og fyrrum leikmaður FH,
eftir leikinn.
Stjömuliðið átti mjög dapran dag og
allir leikmenn liðsins vom daufir.
Langmest bar þó á Einari Einarssyni
og reyndi hann einna helst að rífa lið-
ið upp.
Mörk Stjömunnar: Einar 7, Skúli 4,
Siguijón 3, Sigurður 2, Magnús, Her-
mundur 2 (lv), Haisteinn og Hilmar 1
hvor.
Mörk FH: Þorgils 10, Héðinn 7,
Óskar Á. 5 (2v), Gunnar 4, Óskar 4
(lv), Guðjón 3, Pétur 3, Halfdán 1.
Dómarar vora Þorgeir Pálsson og
Guðmundur Kolbeinsson og vora þeir
slakir. Ráku leikmenn óþarflega oft
af velli í annars prúðum leik. -RR
hálfleik var eins og allur vindur væri
úr þeim og Valsliðið gekk á lagið.
• Mörk Vals: Ema Lúðviksdóttir
6/4, Guðrún Rebekka Kristjánsdóttir
6, Katrín Friðriksen og Magnea S.
Friðriksdóttir fiögur mörk hvor, Ásta
Björk Sveinsdóttir 2, Ragnhildur
Skúladóttir og Björg Elín Guðmunds-
dóttir eitt mark hvor.
• Mörk Víkings: Eiríka Ásgríms-
dóttir 5/1, Inga Lára Þórisdóttir 4/3,
Valdís Birgisdóttir 3, Jóna Bjamadótt-
ir 2, Svava Baldvinsdóttir 1 og Heiða
Erlingsdóttir 1/1 mark.
Leikinn dæmdu þeir Einar Sveins-
son og Gunnar Viðarsson.
ÁS/EL
• Þrátt fyrir að Stjörnumenn fóru ekki mjúkum höndum um Þorgils Óttar,
náði hann að skora tíu mörk gegn þeim. DV-mynd Brynjar Gauti
Öiuggur sigur Valsstúlkna
- unnu sigur, 24-16, yfir Víkingsstúlkum
• Hilmar Sigurgíslason er hér búinn að leika á varnarleikmenn Fram og síðan sendi hann knöttinn i netið.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Við erum einfaldlega
ekki betri en þetta“
- sagði Sigurður Gunnarsson eftir að Víkingar höfðu átt í basli með Fram en sigraö, 28-21
„Viö eram einfaldlega ekki betri en þetta
og Víkingsliðið í dag er engan vegiim sann-
færandi. Ég held að við höfum alls ekki
vanmetið Framara í þessum leik. Frammi-
staða okkar í leiknum gegn Stjömunni gaf
ekki tilefni til þess. Við verðum að taka
okkur veralega saman í andlitinu og mun-
um öragglega verða betri með hveijum
leik,“ sagði Sigurður Gunnarsson, lands-
liðsmaður í Víkingi, eftir að íslandsmeist-
aramir höfðu átt í mesta bash með
vængbrotið lið Fram í 1. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik í gærkvöldi. Víkingar
sigraðu, 28-21, eftir að staðan í leikhléi
hafði verið 12-9, Víkingi í vil.
Víkingar skoraðu fyrsta mark leiksins
og héldu þeir forystunni alveg til loka fyrri
hálfleiks. Mestur munur í fyrri hálfleik
var fiögur mörk, 9-5 og 10-6. Geta Víking-
ar þakkað Kristjáni Sigmundssyni foryst-
una í leikhléinu en hann var sá leikmaður
Víkingsliðsins í fyrri hálfleik sem Framar-
ar réðu ekki við.
Sigurður varði tvö vítaköst
Síðari hálfleikurinn hófst með nokkuð
skemmtilegum tilburðum markvarða lið-
anna. Sigurður Jensson, varamarkvörður
Víkings, kom inn á er dæmt var vítakast
á Víkinga og hann varði skot Agnars Sig-
urðssonar. Skömmu síðar skoraði
Guðmundur A. Jónsson, markvörður
Fram, yfir allan völlinn yfir Kristján Sig-
mundsson og staðan þá 12-10, Víkingi í
vil. Fi-amarar gáfust ekki upp og Víkings-
liðið gerði mikið af mistökum. Framarar
höfðu tækifæri á að jafna leikinn þegar
staðan var 16-15 en þá misnotaði Ágnar
Sigurðsson annað vítakast sitt í leiknum
og skaut í þverslá. Síðar í hálfleiknum
varði Sigurður annað vítakast Framara.
Eftir að Frömurum mistókst að jafna leik-
inn í stöðunni 16-15 urðu þáttaskil í
leiknum. Framliðið brotnaði niður og Vík-
ingar bættu jafnt og þétt við fengið forskot
og sigraðu 28-21.
Meistararnir nokkuð frá sínu besta
Lið Víkings nær ekki vel saman ein-
hverra hluta vegna. Með allan þennan
mannskap á liðið að geta leikið mun betur
en í síðustu leikjum en án nokkurs vafa
er þetta lognið á undan storminum hjá
liðinu. Leikmenn hðsins virðast gera sér
fyllilega grein fyrir stöðu sinni og eiga
öragglega eftir að sýna mun betri leiki í
framtíðinni. Kristján Sigmundsson var
góður í fyrri hálfleik en datt niður í þeim
síðari. „Ég byijaði ekki að æfa fyrr en í
september og svo virðist sem ég hafi ekki
úthald 1 nema einn hálfleik," sagði Kristj-
án sem varði 11 skot í leiknum. Aðrir
leikmenn vora jafnir að getu og enginn
skaraði fram úr.
„Ég er ekki óhress“
„Vítaköstin sem við misnotuðum í þess-
um leik reyndust dýrmæt. Annars var
þetta mjög jákvætt hjá strákunum og ég
gat ekki séð mikinn mun á liðunum," sagði
Björgvin Björgvinsson, þjálfari Fram, eftir
leikinn. Og hann bætti við: „Ég er ekki
óhress með leik minna manna þótt ég
hefði viljað hafa náð í fleiri stig. Strákam-
ir era að ganga í gegnum mikla eldskím
og þeir hafa þurft að ganga í gegnum and-
legt og sálfræðilegt áfah vegna meiðsla
lykilmanna. Það hefur komið í ljós í leikj-
um okkar í íslandsmótinu að strákamir
geta gert ýnúslegt þrátt fyrir að það vanti
svo að segja byijunarhðið hjá okkur.“
• Framhðiö lék nokkuð vel í þessum
leik miðað við ahar aðstæður og hðið
gæti hæglega náð að hala inn stig áður
en „hækjuhðið" mætir til leiks í síðari
umferöina. Framhðið var mjög jafnt í þess-
um leik en mest á óvart kom Hinrik
Ólafsson.
• Mörk Víkings: Bjarki 6, Sigurður 6/2,
Hilmar 4, Karl 4, Guðmundur 3. Ámi 3
og Siggeir 2.
• Mörk Fram: Hinrik 4, Agnar 4/1, Júl-
íus 4/2, Hermann 2, Pálmi 2, Ólafur 2,
Sigurður 1, Brynjar 1 og Guðmundur
markvörður 1.
• Leikinn dæmdu þeir Hákon Sigur-
jónsson og Guðjón Sigurðsson. Víkingar
vora einum færri í 8 mínútur en Framar-
ar í 6 mínútur. Dæmd vora 3 víti á Fram
og 5 á Víking. Dæmdu þeir félagar iha og
ósamræmi var mjög áberandi í dómum
þeirra. -SK
Jón Þórir hetja Breiðabliks
- skoraði sigurmarkið, 18-17, gegn KA rétt fyrir leikslok
Gylfi Knstjánsson, DV, Akuieyri;
„Þetta var ekki gott hjá okkur í sókninni
en vömin var góð. Við voram klaufar að
missa niður forskotið í síðari hálfleik en
okkur tókst að sigra og það er fyrir öllu,“
sagði Jón Þórir Jónsson eftir að Breiða-
bhk hafði sigrað KA, 17-18, í 1. deild á
Akureyri í gærkvöldi.
Leikurinn var spennandi undir lokin en
ekki að sama skapi vel leikinn. Vendi-
punkturinn í leiknum var þegar staðan
var 9-11 fyrir Blikana í síðari hálfleik og
Guðmundur Hrafnkelsson varði vítakast
frá Pétri Bjamasyni. í stað þess að KA
minnkaði í eitt mark, skoraðu Blikamir
þijú næstu mörk. Staðan því 9-14 þeim í
vil. Þessi kafli réð úrshtum i leiknum. KA
náði að visu að minnka muninn í 15-16
og 16-17 þegar ein og hálf minúta var til
leiksloka. Jón Þórir tryggði Bhkunum sig-
ur með marki úr hominu þegar 30
sekúndur vora eftir. En Friðjón Jónsson
átti síðasta oröið og skoraði fyrir KA eftir
að leiktíma var lokið.
KA komst í 3-0 í upphafi en Bhkamir
jöfnuðu, 4-4. Síðan var leikurinn í jafn-
vægi og Blikamir leiddu í hálfleik, 8-9.
Leikurinn var ágætis skemmtun fyrir
fiölmarga áhorfendur en hann var ekki
gallalaus. Sóknarleikurinn afar slakur og
einhæfur á báða bóga. Jón Þórir lék ipjög
framarlega í vöm Blikanna og setti það
leik KA úr jafnvægi. En annars var
Breiðabliks-liðið jafnt í þessum leik og hð-
ið náði í tvö dýrmæt stig þrátt fyrir slakan
leik.
KA á í miklum erfiðleikum þessa dag-
ana. Fjarvera Jakobs Jónssonar skýrir
ekki nálægt þvi aht og ef ekki verður stór
breyting á leik hðsins þegar þaö hefur
boltann, verður veturinn langur og erfiður
hjá KA. Erhngur Kristjánsson var besti
maður hðsins, klettur í vöminni og sótti
sig mjög í sókninni þegar leið á leikinn.
Þá varði Gísh Helgason ágætiega. En hðið
tapaði nú öðra sinni á heimavelh, mest
vegna eigin mistaka sem vora fiölmörg.
Mörk Breiðabliks: Hans 6/2, Jón Þórir
3, Kristján 3, Aðalsteinn 2, Bjöm 1, Þórður
1, Svafar 1, Andrés 1.
Mörk KA: Eggert 4, Guðmundur 4, Axel
3, Friðjón 3/1, Pétur 1, Erlingur 1, Hafþór 1.
Þokkalegir dómarar leiksins vora Gunn-
laugur Hjálmarsson og Óh Ólsen.
JKS
fþróttir
Síguröur Bjömsscn, DV, V-Þýakalandi
Liö V-Þjóöveija og Svia skyldu jöfn,
1-1, í vináttulandsleik í gærkvöldi.
Komu Sviar mjög á óvart meö fræki-
legri baráttu og snihdarlegum leik.
Það var flgner, komungur mark*
vörður þeirra v-þýsku, sem foröaöi
þjóð sinni frá sára tapi á heimavehi.
Þjóðveijar tóku þó forystuna í
leiknum og var Pierre Iittbarski þar
að verki. Glen Hysen, besti maður
Svia og vallarins, jafiiaði síðan metin
með glæshegum skalla.
-JÖG
URAPEuLIM
UMTALAÐASTI MEGRUNARKÚRINN
FÆST í APÓTEKUM OG HEILSUBÚÐUM
Heiöar Jónsson snyrtir: Þetta er sá alsniðugasti, hollasti og áhrifaríkasti
megrunarkúr sem ég hef kynnst.
auglýsingastofa magnúsar ólafssonar
MÁTTUR GEAPE FRUIT ÁVAXTARINS
í MEGRUNARKÚRNUM.
Megrunareiginleikar US GRAPE SLIM
tafnanna koma fyrst og fremst vegna
tilverknaðar trefja grape ávaxtarins, sem
gefur vellíðan. - Og þar fyrir utan, flýtir fyrir
meltingunni. Það er, styttir þann tíma sem
maturinn dvelur í þörmunum, áöur en
likaminn skilar honum frá sér.
Þessi virkun eykst samtímis vegna innihalds
taflananna af kelp (Kyrrahafsþara), lecitini,
eplavínsediki og þeirra vítamina sem eru I
töflunum..
HVAÐ ER KELP?
Það kelp sem notaö er hér, er hinn stóri
brúni hafþörungur(phaeophyta), sem er
ræktaður i Kyrrahafinu úti fyrir strönd
Kaliforníu. Kelp inniheldur ógrynni af
steinefnum og snefilefnum. Asíu-megin
Kyrrahafsins er kelp í dag nauösynleg
fæðuuppbót fyrir Japani og Kóreubúa, eftir
að þeir fóru í miklu mæli að boröa hýðislaus
hrísgrjón. Kelp vegur á móti næringartapi
þess sem heföi verið í hýði hrísgrjónanna.
Hinn heimsþekkti svissneski náttúrulæknir
og næringarsérfræðingur dr. A. Vogel, segir
í bók sinni ,,Der kleine Doktor", að kelp, jaf ni
líkamsþyngdina.
HVAÐ ER LECITIN?
Lecitin veröur til í sojabaunum, svo og
einnig í lifurmannsins. Lecitin finnst í miklu
mæli hjá mönnum, m.a., í taugavefjum og
40% af heilanum samanstendur af lecitin.
Hið „góöa kólestról”, HDL-kólestróliö er
lecitin. Þaö vinnur á móti kransæöastíflu.
Lecitin er fosfatíö, sem virkar sem venjulegt
byggingarefni ífrumhimnum og hvatberum.
Þetta síöasttalda er talið vera, af hinum
þekkta finnska fjörefna- og steinefnavisinda
manni Matti Tolonen dósent, „miniatur
kraftverk" í frumunum. Þau breyta nær-
ingarefnum í vatn, kolsýru og orku.
Lecitin er hluti af varnarkerfi likamans, þar
sem þaö hemur eitraöar sýrur, sem safnast i
líkamanum og getur brotiö niöur frumurnar.
Lecitin örvar niöurbrot fitunnar í líkam-
anum, losar á þann hátt líkamann viö
ónauösynlega fitu.
Þessa sömu virkni hafa E-vitamín og B-6
vitamín hér.
HVERNIG VIRKAR E-VÍTAMÍN HÉR?
Fituleysiö og geymt í lifrinni, fituvefjunum,
hjartanu, vöðvunum, eistunum, leginu,
blóöinu, nýrnahettum og heiladingli. E-
vítamín er virkt þrávarnarefni, hindrar oxun
fjölómettaöra fitusýra, og oxun A-vítamíns,
selens, tveggja aminósýra sem innihalda
brennistein, auk nokkurs C-vítamíns. Eykur
einnig starfsemi A-vítamíns.
E-vítamín hjálpar viö aö halda þér unglegum
meö því aö seinka frumöldrun vegna
oxunar. E-vítamín eykur úthald likamans,
og dregur úr þreytu. Kemur í veg fyrir og
leysir upp blóökekki. Virkar sem þvag-
ræsilyf og gæti læknaö of háan blóö-
þrýsting.
HVAÐ GERIR C-VITAMÍN HÉR?
Flest dýr geta myndaö sitt eigiö C- vítamín,
en apar og mannfólkiö veröa aö treysta á
fæöuna. C-vítamín hjálpar öörum
vítamínum til aö vinna betur, þaö gerir
vöövavefjunum kleyft aö breyta fitu i orku -
þannig sparar þaö aöalorkugjafann
fjölsykru (GLYKOGEN) og eykur á þann
hátt úthald.
HVAÐ GERIR EPLAVlNSEDIKIÐ HÉR?
Þaö er vatnslosandi, en einnig er þaö
nauösynlegur efnaskiptahvati.
HVERNIG VINNA ÖLL ÞESSIEFNISAMAN
í US GRAPE SLIM?
öll þessi efni i US GRAPE SLIM, vinna
saman meö tilliti til aö jafna likamsþyngd
sem næst kjörþyngd og gefa meiri velliöan
sem hlýst óhjákvæmilega af eðlilegra
ástandi meltingarfæranna og likamans.
HVER ER ARANGURINN?
Notkun US GRAPE SLIM eins útaf fyrir sig,
getur losaö um 1,5 til 2 kg. á viku hjá fólki
meö þyngdarvandamál, þó breytilegt eftir
einstaklingum.
Meö notkun LEIÐBEINANDI-matseöilsins
sem fylgir hverri dós af US GRAPE SLIM,
eöa uppskriftum úr Scardale-kúrnum eöa
álíka, er möguleiki áaö auka þyngdartapiö
um tvöfalt eða jafnvel rúmlega þaö, 3-5 kg.
fyrstu vikuna.
Til eru viöskiptavinir okkar, sem hafa
grennst um eöa yfir 10 kg. fyrstu 2 vikurnar,
án þess að hafa farið í svelti eöa fundiö til
tifinnanlegra óþæginda. Þess ber þó aö geta
aö þessar manneskjur þurftu á þessu
þyngdartapi aö halda, sér aö skaölausu.
KRISTIN, INNFLUTNINGSVERSLUN
SKÓLABRAUT 1, SÍMI 91-611659,
BOX 290, 172 SELTJARNARNES
HVER ER EFTIRLEIKURINN?
Þegar kjörþyngd er náö, þá borgar sig ekki
aö halda hátíö og útbúa veisluborö meö öllu
þvi forboöna sem áöur mátti ekki neyta.
Kjörþyngdin er nú oröiö viökvæmt fjöregg,
sem þarf aö venja líkamann viö, og venja
sjálfan sig á næringar- og fjörefnarikt
fæöuval, og hægt og rólega minnka US
GRAPE SLIMfrá 2 töflum fyrir hverja máltíð.
niöur i 1 töflu fyrir hverja máltíö, þar til að
skammturinn er oröinn 1 tafla aöeins fyrir
morgunmat (eöa kvöldmat), og hætta svo.
NÚ ERT ÞÚ EIN(N) UM FRAMHALDIÐ.
Ef útaf ber, og þú byrjar aö safna aftur
þyngd, skalt þú ekki örvænta, því þú getur
byrjaö aftur á aö auka US GRAPE SLIM
skamtinn þér aö skaölausu, því US GRAPE
SLIM er ekki lyf, heldur fæöa og fjörefni
fyrst og fremst, og alls ekki vanabindandi.
NOTKUNARREGLUR!
Nákvæmar leiöbeiningar fylgja hverri dós,
ásamt leiöbeinandi mataruppskriftum.
Muniö aö mataruppskriftirnar eru aðeins
LEIÐBEINANDI, og ef breytt er útaf, þáskal
reynt aö hafa þaö sem i staöinn kemur, eins
likt og hægt er. Þessi kúr er á engan veg
heilagur, og hægt er aö nota hann mjög
auðveldlega hver á sinn hátt, meö
heilbrigðri skynsemi.
2 töflur (3 fyrir magastóra) tyggist vel áöur
en þeim er kyngt, um 30 minútum fyrir
máltíð. Vatn eöa hreinan ávaxtasafa má aö
skaölausu drekka á eftir.
BANNVARA!
Látiö salt og sætindi eiga sig.
Nóg salt er í matnum til aö sjá fyrir
dagsþörfinni. Salt bindur vatn i líkamanum
og mun því aö nauösynjalausu auka á
likamsþyngd, þótt ekki sé um raunverulega
fitun aö ræöa. Notiö frekar hunang eöa
gervisætu út í te og kaffi, fremur en hvitan
sykur.
MUNIÐ AÐ US GRAPE SLIM ER MEÐ
ÖLLU SKAÐLAUST!
Barnshafandi konum er aldrei ráölagt að
fara í megrun án samráös viö heimilis-
lækninn.
Fólk sem vill losna viö óeölilega mikla
þyngd ætti alltaf aö ráöfæra sig viö
heimilislækninn, sama hver megrunarkúr-
inn er!