Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987. Viðskipti Verð a ali að nalgast það hæsta sem þekkist Verö á áli á heimsmarkaönum er nú meö því hæsta sem þekkist. Það hefur rokið upp úr minna en þúsund sterlingspundum upp í um 1250 sterl- ingspund á aðeins þremur mánuöum. Um skamman tima árið 1983 var verö á áli örlítið hærra. Talið er allt eins líklegt að verðið hækki meira á næst- unni. Þetta háa álverð kemur álverk- smiðjunni í Straumsvik að sjálfsögðu til góða. Verð á bensíni og gasolíu á mark- aðnum í Rotterdam hefur verið nokkuð stöðugt undanfama daga. Verð á venjulegu bensíni, fob., dag- verð, var í fyrradag, 13. október, 166,5 dollarar fyrir tonniö. Kaup íslendinga á bensíni og olíu miðaðst við skráð verð í Rotterdam. Þegar síðasti farmur af bensini var keyptur til landsins var verðið hærra en nú, eða um 172 dollarar tonnið. Það er nú verð birgða af venjulegu bensíni hjá okkur. Ef næsti farmur verður á því verði, sem nú gildir, fáum við bensín á hag- stæðara verði en síðast. Vert er aö minna á að við fobverðið bætast flutn- ingsgjald og tryggingar og vextir ef um einhvem greiðslufrest er að ræða. Til viðbótar má geta þess að opinber gjöld í verði bensíns á íslandi em yfir 65 prósent. Til stendur að hækka vega- gjaldið og þar með er fyrirsjáanlegt að hið opinbera eykur hlut sinn í verði á bensíni. Athyglisvert er að fylgjast með kaffi- verðinu, það er verðinu á hrákaffi- baunum. Það hefur hækkað aö undanfómu. Þjóðimar sem rækta kaffið og þær sem kaupa það hafa gert með sér samkomulag um að reyna að halda veröinu á milli 120 og 140 cent pundið. Þetta verður ífamkvæmt þannig aö ef verðið er undir 120 centum munu framleiðendur draga ákveðið magn af markaðnum en ef verðið fer yfir 140 cent er ætlunin aö auka magniö á markaðnum til að lækka verðið. Verö á fínni ull í Sydney í Ástralíu hefur farið hækkandi á árinu. Þetta þýðir verri stöðu ullarinnar gagnvart gerviefnum. Samkeppnin er mikil og af íslenskum fyrirtækjum er það Ála- foss sem lendir í þessari samkeppni. Fyrirtækið kaupir inn mikið af ull. Álverksmiöjan i Straumsvik. Mikil hækkun á verði áls á heimsmarkaðnum kemur verksmiðjunni til góöa. Peningamarkaður______________________ i>v Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losaó innstæöur sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mán- aða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verötryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lifeyri frá lífeyris- sjóðum eða almannatryggingum. Innstæðureru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 18% og ársávöxtun 18%. Sérbók. Viö irinlegg eru nafnvextir 15% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttekt- ar upp í 21%. Hvert innlegg er meðhöndlaó sérstaklega. Áunnió vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uöi ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er geröur samanburður við ávöxtun þriggja mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2% vöxtum eftir þrjá mánuði og 4% eftir sex mán- uöi, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæöu eóa ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxta- leiðréttingu. Vextir færast misserislega. Metbók er með hvert innlegg bundiö í 18 mánuði á 27% nafnvöxtum og 28,8% ársávöxt- un, eöa ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust að 18 mánuðum liönum. Vextir eru færðir misserislega. lönaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð- tryggður reikningur með 20% nafnvöxtum og 23,4% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru 3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð- tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Hreyfðar innstæður innan mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á mánuói, og verðbætur reiknast síðasta dag sama mánaðar af lægstu innstæðu. Vextir fær- ast misserislega á höfuðstól. 18 mánaóa bundínn reikningur er meö 27% nafnvöxtum og 28,8% ársávöxtun. LandJbankinn: Kjörbók er óbundin meö 24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun. Af óhreyfð- um hluta innstæöu frá síðustu áramótum eða stofndegi reiknings síðar greiðast 25,4% nafn- vextir (ársávöxtun 27%) eftir 16 mánuði og 26% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 27,7%). Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svo- nefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast misseris- lega á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxtatímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuðina 15%, eftir 3 mánuði 19%, eftir 6 mánuöi 25%, eftir 24 mánuði 27% eða ársávöxt- un 28,8%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verð- tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta- reikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 26% nafnvexti og 27,7% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast misserislega. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfæröum vöxt- um síðustu 12 mánaða. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga i bankanum, nú 24,88% (ársávöxtun 25,80%), eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er gerður mánaðarlega en vextir færöir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda al- mennir sparisjóðsvextir, 15%, þann mánuó. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn- aðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá í 26,73-29,55%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg- inreglan er að innistæða, sem er óhreyfö í heilan ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða bundins óverðtryggs reiknings, nú með 21,0% ársávöxt- un, eða 6 mánaöa verðtryggðs reiknings, nú með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxt- un fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notiö þess- ara „kaskókjara”. Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa veriö á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt í fjórðungi reiknast almennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virk- an dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlutfalls- legar verðbætur m.v. dagafjölda í innleggsmán- uði, en ber síðan kaskókjör út fjórðunginn. Reikningur, sem stofnaður er síöar fær til bráða- birgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfyllt- um skilyrðum. Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggð- ur og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 22,5% með 24,12% ársávöxtun. Miðað er við lægstu innstæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist tromovextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóösvexti, 15%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð- tryggða en á 26,5% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð- tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóða er með inn- stæðu bundna í 18 mánuði óverðtryggða á 25,5% nafnvöxtum og 27,6% ársávöxtun eða á kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfiröi, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Nes- kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavík- ur og nágrennis bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð- bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20% eða meðalvextir bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð- tryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins getur numið 2.688.000 krónum á 3. ársfjórð- ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á síðustu þrem árum, annars 1.882.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.882.000 krónum, hafi viökomandi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.317.000 krónum. Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna. Lánin eru til allt að 40 ára og verðtryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán iífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hversjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5-9% vöxtum, algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóöa eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuöstól oftar á ári veröa til vaxta- vextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæöan í lok tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæöan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,5% á mánuði eöa 42% á ári. Vísitölur Lánskjaravisilala i september 1987 er 1778 stig en var 1743stig í ágúst. Miðað erviögrunn- inn 100 i júnl 1979. Byggingarvisltala fyrir september 1987 er 324 stig á grunninum 100 frá 1983, en 101,3 á grunni 100 frá júli 1987. Húsalelguvisltala hækkaði um 9% 1. júli. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega I samn- ingum leigusala og leigjenda. Hækkun vísi- tölunnar miðast vlð meöaltalshækkun launa næstu þrjá mánuði á undan. INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 14-17 Lb.Ob Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-19 Ub 6 mán. uppsögn 16-20 Úb.Vb 12 mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél. 18mán. uppsögn 25,5-27 Bb.lb Tékkareikningar 6-8 Allir Sér-tékkareikningar 6-17 nema Vb Ib Innlán verðtryggo Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán meðsérkjörum 3-4 Ab.Úb 14-24,32 Úb Innlán gengistryggð Banaaríkjadalir 5,5-6,5 Ab.Vb Sterlingspund 8,25-9 Ab.Úb, Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Ab.Vb Danskarkrónur 9-10,5 Ib ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 28-29,5 Bb.Lb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 30,5-31 Almenn skuldabréf eöa kge 29,5-31 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 30 Allir Utlan verðtryggð . Skuldabréf 8-9 Lb Útlán tll framleiðslu Isl.krónur 28-29 Vb SDR 8-8,25 Bb.Lb. Bandarikjadalir 8,5-8,75 Úb.Vb Bb.Úb, Sterlingspund 11,25- Vb Sp Vestur-þýsk mörk 11,75 5,5-5,75 Bb.Sp, Húsnæðislán 3,5 Úb.Vb Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 42 MEÐALVEXTIR Överðtr. sept. 87 29,9 Verðtr. sept. 87 8,4% VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 1778 stig Byggingavísitala 1 sept. 324 stig Byggingavísitala2sept. 101,3 stig Húsaleiguvísitala Hækkaöi 9%1. júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestingarfélaginu): Ávöxtunarbréf 1.2588 Einingabréf 1 2,301 Einingabréf 2 1,356 Einingabréf 3 1,422 Fjölþjóðabréf 1,060 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,322 Lífeyrisbréf 1,157 Markbréf 1,178 Sjóösbréf 1 1,135 Sjóðsbréf 2 1,097 Tekjubréf 1,220 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnur m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 278 kr. Flugleiðir 196 kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóöurinn 119 kr. Iðnaðarbankinn 143 kr. Skagstrendingurhf. 182 kr. Verslunarbankinn 126 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavfxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóö- irnir. Ná'nari upplýsingar um peningamarkaö- inn birtast i DV á fimmtudögum. Á í myrkri gildir að sjást. Notaðu endurskinsmerki! | UMFERÐAR FararheiK/ Iráð Bensín og olía Verð í Rotterdam, fob. 13. október Bensín, venjulegt:...166,5$ tonnið eða.............4,90 ísl. kr. lítrinn Bensín, súper:.......184,5$ tonnið eða............5,50 ísl. kr. lítrinn Gasolia..............163,5$ tonnið eða.............5,40 ísl. kr. lítrinn Ál Verð á áli í London 1.250 sterlingspund.....tonnið eða.........80.000 ísl. kr. tonnið Verð í Sydney, Ástralíu 893 cent......................kílóið eða...............348 ísl. kr. kílóið Kaffibaunir 2,53 dollarar.............kílóið eða..............98 króiiur kílóið Bómull Verð á bómull i New York 72 cent................fyrir 1 lb eða...........61,60 krónur kílóið Sykur, hrásykur Verð í London 171 dollar................tonnið eða..........6.669 krónur tonnið Sojabaunir Verð i London 132 sterlingspund.tonnið eða......8.448 ísl. kr. tonnið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.